Vísir - 25.10.1977, Page 4
argus
Brautarholti 6, III h.
Simi 76811
Móttaka á gömlum
munum:
Fimmtudaga kl. 5-7 e.h
Föstudaga kl. 5-7 e.h. ^
Þriöjudagur 25. október 1977 visir
Sú samúö sem Indira Gandhi
hlaut eftir handtökuna á dögun-
um, hefur ekki dugaö til þess aö
bægja frá öðrum ásökunum sem
fengið hafa byr undir báða
vængi. Nefnilega að hún hafi
notað leyniþjönustu Indlands til
þessaöafla upplýsinga sem hún
gæti notaö gegn pblitiskum and-
stæöingum.
I blaðaviðtölum, timarits-
greinum og jafnvel nýlega út-
komnum bókum er þvi haldið
fram, að Indira hafi i forsætis-
ráðherratið sinni misnotaö
leyniþjónustuna meðan neyöar-
ástandslögin voru i gildi. Leyni-
þjónusta Indlands sem er
hliðstæöa CIA Bandarikja-
manna og annarra njósnastofn-
ana er i daglegu tali auðkennd
af skammstöfununni RAW. Hún
heitir hávisindalegu nafni, sem
hljóma mundi á islensku eitt-
hvað likt „Rannsókna- og skil-
greininga”-stofnunin.
Hinir nýju stjórnendur lands-
ins undir forystu Morarji
Deasai forsætisráðherra hafa
neitað að láta nokkuð eftir sér
hafa um starfshætti RAW i
stjórnartið Indiru. Hinsvegar
hafa þeir skorið fjárveitingu til
stofnunarinnar niður til hálfs og
kunngert að RAW skuli i fram-
tiðinni einbeita sér að upp-
lýsingaöflun á erlendum vett-
vangi. Enda vár það í upphafi
verksvið hennar og starfsvett-
vangur, þegar hún var stofnuð
fyrir áratug.
Margir Indverjar lita samt
RAW tortryggnisaugum vegna
tregðu stjórnvalda til þess að
rannsaka hvað hæft muni i
ásökunum um að RAW hafi
stundað njósnir i heimahögun-
um. Hafa þeir ekki látið sann-
færast þótt yfirvöld neiti þvi að
Indira Gandhi hafi misnotað
leyniþjónustuna.
P.N. Singh, sem er and-
stæðingur Indiru og fulltrúi i
borgarráði Delhi, heldur þvi
fram að hann hafi sætt áreitni
og jafnvel pyndingum af hálfu
erindreka RAW á tima neyðar-
ástandslaganna. Hann segist
hafa verið látinn dvelja dögum
saman i fangaklefum leyniþjón-
ustunnar, þar sem hann var til
yfirheyrslu. Þann tima var hon-
um varnað svefns og hann
pyndaður með raflostum, þegar
Utborgun
vinningo
í 10. flokki
'egna verkfalls BSRB er því miður ekki hægt
ð hef ja útborgun vinninga í 10. flokki í dag,
riðjudag.
Útborgun vinninga hefst um það bil sólarhring
eftir að verkfalli lýkur.
Nautabönum i Portúgal
hefur verið bannaö aö drepa
nautin slöan 1799. Miklar
deilur hafa verið um þessa
reglugerö undanfarna mán-
uöi. Ýmsir nautabanar hafa
farið aö fordæmi Fernandos,
en dómurinn yfir honum er
sá fyrsti sem kveöinn hefur
verið upp 1 þessari deilu.
erindrekarnir reyndu að pina
hann til þess að veita upplýsing-
ar um mikilvæga andstæðinga
forsætisráðherrans.
Eftir stjórnarskiptin hefur
RAW verið sveipuð huliðskikkju
leyndardóma. Desai visaði sið-
asti i júni i sumar öllum ásökun-
um á bug, og sagði, að engar
sannanir lægju fyrir um, að
RAW hefði farið út fyrir starfs-
svið sitt. Hann sagði, að ráð-
herrar stjórnarinnar hefðu eins
og aðrir lesið blaðaskrifin um
pólitiska misnotkun RAW, en
bætti þvi við, að ekkert hefði
verið aðhafst annað en „endur-
skoða og endurskipuleggja
starsemi stofnunarinnar”.
Skeleggasti málssvari RAW
er fyrrverandi lögregluforingi,
sextugur að aldri, sem stjórnaði
leyniþjónustunni frá upphafi og
þar til nýja stjórnin kom til
valda. Hann fór á eftirlaun
skömmu eftir að Desai settist i
forsætisráðherrastólinn. Ram
Nath Kao, eins og maðurinn
heitir, þvertekur fyrir það, að
leyniþjónustan hafi haft nokkuð
með innanrikismál að gera.
„RAW var sett á laggirnar til
upplýsingaöflunar erlendis til
að vernda hagsmuni Indlands,
og það er nákvæmlega það, sem
hún hefur gert,” sagði Kao i
blaðaviðtali.
Hann segir, að þeir, sem
standi að ásökunum á hendur
RAW, láti imyndunarafliö
hlaupa með þá i gönur. —
„Leyniþjónustan hefur þjónað
landinu vel,” segir hann og til-
tekur dæmi, að hún hafi veriö
mjög vel heima i atburðunum I
Bangladesh, áður en Mujib var
ráðinn af dögum.
Kao er nú sjálfur orðinn skot-
mark fjölmiðlannaen svarar þvi
öllu einfaldlega með þvi aö hann
sé ekki i aðstöðu til þess að bera
hönd fyrir höfuð sér, þvi aö hann
sé bundinn þagnareiði.
Kao er gamlareyndur i njósna
bransanum, þar sem hann á
fjörutiu ár að baki. Hann starf-
aði i leyniþjónustu Breta, áður
en Indiand öðlaðist sjálfstæði
1947.
Hann segist hafa haft á sinum
snærum fjölda erindreka i ýms-
um löndum. Kveður hann það
aðallega vera tæknimenntað
fólk, sem vinni að skilgreiningu
fyrirliggjandi upplýsinga á veg-
um RAW, fyrir utan lögreglu-
menn og foringja i hernum.
Rannsóknar- og skilgrein-
ingastofnunin var sett á lagg-
irnar, þegar starfsemi IB, ind-
versku leyniþjónustunnar, var
orðin of stór og klunnaleg i
svifum. IB hafði áður annast
allar njósnir erlendis.
Menn ætla að á vegum RAW
hafi starfað um 15.000 manns,
en 6.000 hefur nú verð sagt upp
störfum. Arleg fjárveiting til
stofnunarinnar nam um 15,5
milljónum Bandarikjadala,
áður en hún var skorin niður um
helming.
Viö biðjum viðskiptavini happdrættisins vel-
virðingar á þessari töf.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
--------------Tvö öúsund milliónir í boói
Muníð
alþjóölegt
hjálparstarf
Rauöa
krossins.
Gironumer okkar er 90000
RAUÐI KROSS ISLANOS 1 .
Beitti Indíra
leyniþjónust-
unni gegn and-
stœðingum sínum?
KARLAR
Styrkið ogfegrið líkamann
Ný fjögurra vikna námskeið
hefjast 3. nóvember
Karlaleikfimi, mýkjandi og styrkjandi,
megrunarleikfimi.
Innritun og upplýsingar alla virka daga kl.
5-7 og i sima 16288 á sama tima.
Hádegistimar, eftirmiðdagstimar og sér-
timar fyrir menn, sem komnir eru af létt-
asta skeiði.
Sturtur — gufuböð — lyftingajárn — nýjar
þægilegar dýnur.
Líkamsrœktin
Júdófélagshúsinu
Brautarholti 18 (efsta hæð)
Nautabani
í banni
fyrir að
drepa naut
Portúgalski nautabaninn
Fernandos dos Antos hefur
veriö dæmdur I þriggja ára
„keppnisbann” og 1500 doll-
ara sekt fyrir að drepa naut
sem hann var að fást við.