Vísir - 25.10.1977, Side 24

Vísir - 25.10.1977, Side 24
t SMÁAUGLÝSINGAHAPPDRÆTTI VÍSIS! simi 17. okt. - Ein greidd smáauglýsing og þó átt vinningsvon. 86611 20. nóv. ^ SANYO 20#/ litsjónvarpstceki frá Opið virka daga til ki. 22.00 GUNNARI ÁSGEIRSSYNI er vinningurinn að þessu sinni. Laugardaga kl. 10-12 Sunnudaga kl. 18-22 „Samningur, sem við mó una eftir at- vikum „Ég get ekki sagt, að ég sé ánægður með niður- stöðuna, en tel þó, að hér sé um að ræða samninga, sem við megi una eftir atvik- um", sagði Kristján Thor- lacíus, formaður Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja, er Vísir spurði hann álits á nýja kjarasamn- ingnum. „Ég tel, aö þessir samningar heföu oröiö miklum mun betri ef ekki heföi eitt af félögum banda- lagsins gert sérsamninga i þeirri hörðu deilu, sem viö áttum i, og markaö þar meö aö verulegu leyti þá útkomu, sem nú hefur oröiö”, sagöi hann. ,,Ég harma að rofin skyldi sú samstaöa, sem var svo gifurlega mikil sem sýndi sig i allsherjaratkvæöagreiðslunni sem fram fór um sáttatillöguna, þar sem 80% af félagsmönnum i BSRB höfnuöu sáttatillögunni. Ég tel aö útkoman heföi getaö oröiö miklum mun betri ef samstaöan heföi haldist órofin. Þaö er von min og ósk, aö i framtiðinni læri menn af slikum mistökum, og aö félagsmenn og einstök félög i Millilanda- flugið hefst aftur í dag Aætlunarflug Flugleiöa hefst aftur I dag og gert er ráö fyrir aö flug til Evrópu hefjist seinnihluta dagsins. Boeingþotur Flugleiöa eru á Keflavikurflugvelli, og er veriö aö ná til farþega sem eiga bókaö far. Þotur frá Luxemborg á leiö til New York lenda hér siödegis og vélarnar aö vestan í fyrramáliö. Eðlileg áætlun ætti aö vera komin á eftir daginn i dag. Upplýsingar um millilanda- flugiö eru gefnar i sima 25100 þar sem skiptiborö Flugleiöa hefur veriö bilaö að undanförnu. Flugleiöaþota meö 130 farþega lenti á Keflavikurflugvelli um klukkan 11,30 i morgun og kom hún frá New York. Eftir aö hafa beöið árangurslaust eftir svari frá BSRB siöan á laugardag um heimild til aö lenda hér ákváöu ' Flugleiöir aö flytja þessa farþega heim hvað sem tautaði og raulaði. Sveinn Sæmundsson blaðafull- trúi Flugleiöa sagöi i samtali viö Visi i morgun að um 200 farþegar heföu beöiö i New York eftir fari heim. Þeir sendu i gær skeyti til sendiráðsins i Washington sem haföi siöan samband viö utan- rikisráöuneytiö. Þegar ekkert haföi heyrst frá BSRB um kvöld- matarleytið i gær var fariö aö hóa saman farþegunum, en ekki tókst aö ná til allra. Oörum beiönum Flugleiöa um flugferöir var ekki heldur svaraö. _§(; Staðf esti úrskurðinn Hæstiréttur hefur staöfest allt að 26 daga gæsluvarðhaldsúr- skurð yfir Sigurði Óttari Hrcins- syni, sem kveðinn var upp i saka- dómi og varðar rannsókn Geir- finnsmálsins. Máliö var afgreitt frá Hæstarétti siðdegis I gær. — »G" ## sagði Kristján Thorlacius, formaður BSRB, í morgun, en hann kvaðst þó ekki ánœgður með niðurstöðuna BSRB megi i framtiðinni standa fast saman i sinni samningsgerð og sýna meiri skilning á þvi, að i verkföllum og kjaradeilum dugir mönnum ekki annaö en fullkomin og órofa samstaða”. — Veitir þetta samkomulag hækkanir umfram svonefnt Reykjavikursamkomulag? „Já, samkomulagiö felur i sér ýmsar viöbætur viö þá samninga fyrir ýmsa starfshópa i bandalag- inu, og ég tel aö sú vika sem viö höfum átt i verkfalli eftir að Starfsmannafélag Reykjavikur- borgar og borgin skrifuðu undir, hafi skilaö okkur töluveröum árangri i viðbót”. Kristján sagöi aö verkfallinu yröi frestaö fram yfir allsherjar- atkvæðagreiðslu innan BSRB um nýja samninginn. „Atkvæðagreiöslan verður framkvæmd eins fljótt og viö veröur komiö þannig aö niöur- stööur geti legiö fyrir sem allra fyrst. Ég vil svo aö lokum láta i ljós þakkir til allra félagsmanna i BSRB fyrir þeirra mikla starf i þessari kjaradeilu. Þar hafa hundruö manna lagt hönd á plóg- inn, bæði i orði og verki, og ég þakka allt þaö starf, og þá miklu samstööu, sem fram hefur komiö, og vil láta i ljós þá von, að sam- tökin eflist viö þá raun, sem þau hafa nú gengið i gegnum i þessu verkfalli”, sagöi Kristján. —ESJ „Gengið tíl hins ítrasta of hálfu ríkisvaldsins" — sagði Matthías Á. Mathíesen „Þessir samningar eru þannig úr garði gerðir, að af hálfu rikisvaldsins hefur veriö gengið til hins itrasta. Og þótt sjálfsagt finnist sumum, aö ekki hafi verið ástæða til að gera það, þá vek ég athygli á þvi, að samanburður á kjörum sumra opinberra starfsmanna og sam- bærilegra launþega annars staðar var þannig, að ástæöa var til þess að gera þar sérstaka lagfæringu. Ég tel, að það hafi gerst með þessum samn- ingum”, sagði Matthías A. Mathiesen, fjármálaráðherra, i viðtali við Visi i morgun þegar forráðamenn BSRB höfðu til- kynnt honuin, að samninga- nefnd þeirra hefði samþykkt nýjan kjarasamning. „Eg er ánægöur yfir þvi, að samkomulag hefur tekist milli BSRB og rikissjóðs um nýjan kjarasamning”, sagði Matthias ennfremur. „Þetta hefur tekið langan tima, og reynst erfitt mál að leysa. Hér hefur stór hópur manna unnið að þessu máli, bæði af halfu bandalagsins og rikisins. og ég vilfæra þeim öllum þakkir fyrir þeirra störf. Ég vil þakka forystu BSRB samstarfiö i sambandi við þennan samning, og vonast til þess, að samning- urinn verði þeim, sem hans eiga að njóta, til góðs. Ég vonast einnig til þess að af hálfu rikis- sjóðs takist að standa viö hann”, sagði Matthfas að lokum. —ESJ Milljón stolið Rúmlega einni milljón króna var stolið úr ibúð i Breiðholti I gærdag. Megniö var I seðlum en eitthvað mun hafa verið I happ- drættisskuldabréfum eða öðru. Enginn var heima í ibúðinni þeg- ar þjófnaðurinn átti sér stað. Mál þetta er i rannsók'n. _ea Utvarpið byrjað — Sjónvarp í kvöld Útvarp hófst að nýju eftir stöðvun vegna verkfalls klukkan nfu f morgun og er fyrirhugaö að dagskráin verði með eðlilegum hætti sfðdegis. Sjónvarpiö tekur upp þráö- inn þar sem frá var horfiö mánudaginn 10. október.þegar verfalliö hófst og í kvöld verö- ur sjónvarpaö þvi efni, sem kynnt haföi veriö fyrir þriðju- daginn 11. október. Dagskráin er kynnt á blað- siöum 18 og 19. Kristján Thorlaciuslt,h.), Matthlas A. Mathiesen og Haraldur Steinþórsson eftir að samninganefnd BSRB hafði samþykkt kjarasamninginn. Vísismynd-JA Áskrifendagetraunir Vísis byrja um nœstu mánaðamót: ASKRIFT STRAX EYKUR MJOG VINNINGSLIKUR 1 getraunsamkeppni VIsis, sem kynnt er á forsiðunni, verður birt ein myndagetraun I hverjum mánuði, sú fyrsta verður I blaðinu 1. nóvember, og siöan I upphafi hvers mánaðar fram I maimánuð næstkomandi. Þú getur átt sjö seöla Þegar fyrsti billinn, Derby S. veröur dreginn út 1. febrúar munu þeir áskrifendur, sem tekiö hafa þátt i getrauninni frá upphafi, geta átt þrjár réttar lausnir i pottinum. Tvær getraunir birtast svo fram aö næsta drætti og þá gæti hver áskrifandi átt fimm seðla með réttum lausnum i seöla- bunkanum sem dregið veröur úr, er Ford Fairmont — billinn verður eign einhvers ákrifanda. Enn veröa birtar tvær myndagetraunir i aprll og maí, og þegar dregið veröur 1. júni um Simca-bilinn gæti áskrif- andi, sem verið hefur meö frá upphafi getraunarinnar átt sjö svarseðla i pottinum og um leiö átt sjö sinnum meiri vinnings- likur en þeir, sem ekki hefðu oröiö þátttakendur fyrr en Visir birti siðustu myndagetraunina. Áskrifendur öölast rétt Aö sjálfsögöu hafa þær þús- undirlandsmanna sem nú þegar eru áskrifendur VIsis þátttöku- rétt I getraununum frá upphafi, en aðrir öðlast þennan rétt um leiö og þeir gerast áskrifendur. Astæða er þvi til að hvetja menn til aö draga ekki aö gerast áskrifendur. Ef mönnum reyn- ist erfitt aö ná sambandi viö simstöð Visis vegna mikils álags minnum við á, að áskriftarseðill er á blaðsiðu 20, og eftir að hann hefur verið fylltur út, þarf að senda hann sem allra fyrst til Visis i pósti eða með öðrum hætti. Eftir það ættu áskrifendur að fara að fá blaðið sent til sin innan tveggja til þriggja daga. Aukin tengsl við lesendur Visir hefur kappkostaö að vera siödegisblað fyrir fjöl- skylduna alla og hefur lagt áherslu á að efla sem mest tengslin við lesendur sina, Viö stefnum aö þvi að gera Visi þannig úr gerði, að aliir geti oröið sammála um, að aöal- vinningurinn sé að fá VIsi heim á hverjum degi. Siðustu misserin hefur Visir lagt aukna áherslu á náin sam- skipti við lesendur sina með hvers kyns beinum tengslum við þá og er þessi nýja getrauna- samkeppni einn liöurinn i aö styrkja þessi tengsl. Meö þessu móti getið þiö, lesendur Visis, tekið þátt i starfi blaðsins og notiö góös af þvi. Notiö nú tækifærið.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.