Vísir - 28.10.1977, Blaðsíða 13

Vísir - 28.10.1977, Blaðsíða 13
Fœreyska fiðíð kom skemmtílega á óvart — Stóð í finnska liðinu lengstum og tapaði aðeins með þriggja marka mun 20:17 og voru það eftir atvikum sanngjörn úrslit Færeyingar komu mjög á óvart meö góðri frammi- stööu sinni i fyrsta leiknum á Norðurlandamótinu i hand- knattlcik sem hófst i Laugar- dalshöliinni i gærkvöldi. Leiknum lauk með þriggja marka sigri Finnanna 20:17 eftir að staðan i hálfleik hafði verið 9:7. Báðum liðunum gekk afar illa að finna leiðina i markið Fyrsta júdómót vetrarins, haustmót JSÍ, fer fram I iþróttahúsi Kennaraháskól- ans n.k. sunnudag, og hefst mótið kl. 14. Þetta er punktamót og er öllum heimil þátttaka. Keppt verður i 7 þyngdarflokkum og má fastlcga gera ráð fyrir til að byrja með og eftir 15 minútna leik höfðu aðeins fjögur mörk verið skoruð — og þá var staðan jöfn 2:2. Færeyski markvörðurinn, Finn Bærentsen. byrjaði mjög vel og varði þrjú skot glæsilega, þar á meðal eitt vitakast. — Þetta hafði góð áhrif og Færeyingarnir höfðu forystuna framan af. En úthaldið var kannski ekki uppá það besta og Finn- aö allir okkar bestu júdó- menn verði meðal keppenda. Innan skamms fer fram hér á landi „Opna skandinaviska meistaramót- ið” og má gera ráð fyrir að okkar sterkustu jódómenn vilji fá smá-upphitun fyrir það mót og mæti þvi gal- vaskir til leiks um helgina. unum tókst að jafna 6:6 og komast siðan yfir 8:6, en i hálfleik var staðan 9:7. 1 siðari hálfleiknum höfðu Finnarnir svo lengstum for- ystuna, en þegar 10 minútur voru til leiksloka tókst færeyska liðinu að jafna metin 15:15 við mikinn fögn- uð áhorfenda sem flestir 'voru á þeirra bandi og hvöttu þeir færeyska liðið óspart. En það dugði ekki til og Finnarnir sigu framúr aftur á lokasprettinum 20:17, og voru það eftir atvikum sann- gjörn úrslit. Það fór ekki á milli mála að bæði eru þessi lið i lakara lagi og verða örugglega eng- in hindrun i vegi Svianna sem eru þriðja liðið i riðlin- um. Bæði leika liðin hægan handknattleik sem er mjög tilviljanakenndúr og litið lagt uppúr að leika ákveðin leikkerfi. Bestu menn i finnska liðinu voru leikmenn nr. 2, Kari Lehtolainen, nr. 4. Jan Rönneberg og markvörður- inn Ræsnænen. Hjá Færeyingum skáru tveir leikmenn sig áberandi úr — markvörðurinn Finn Bærentsen og leikmaður nr. 6, Eyðfinnur Egholm. Mörk Finnanna skoruðu: Kari Lehtolainen 6, Jan Töll- berg 4 (1) Hannu Koivun- porras 3, Pertti Soitso 2, Pevel Usvalahti 2 (l),og þeir Kurt Strömsten, Antti Koljonen og Kannu Pulkanen eitt mark hver. Mörk færeyska liðsins: Eyðfinnur Egholm 7 Joan P. Midjord 3 (3), Echart Persson 3, Hanus Joensen 2, og þeir Kári Nielsen og Eigil Johansen eitt mark hver. Leikinn dæmdu þeir óli Ól- sen og Björn Kristjánsson og geröu þvi hlutverki góð skil. —BB Haustmót í júdó Þessi mynd er úr leik Færcyinga og Finna I Norðurlandamót inu i gærkvöldi og sýnir einn færeysku leikmannanna lyfta sér upp fyrir framan finnsku vörnina. Visismynd Einar Föstudagur 28. október 1977 VÍSIR VISIR Föstudagur 28. október 1977 „Sorglega lélegt hjá okkur" Við hittum Jón Karlsson fyrir liða islenska landsliðsins og Birgi Björnsson formann landsliös- nefndar. eftir leikinn gegn Norð- mönnum I gærkvöldi og spurðum þá álits á leiknum. Jón Karlsson: „Þetta var sorglega lélegt hjá okkur, sóknarleikurinn alltof ein- hæfur, enda vantar okkur sam- æfingu”. — Nú er þetta kjarninn i liöinu frá i fyrra. Er ekki hægt að nota þau leikkerfisem voru spiluö þá? „Við beittum þeim ekki aö þessu sinni enda vantaði Björgvin i liðið og hann spilar stórt hlut- verk i þessu hjá okkur. Annars fannst mér norska liöiö langt fyrir neðan meðallag og það lýsir e.t.v. frammistöðu okkar best”. Birgir Björnsson: Við gátum allt eins unnið þenn- an leik, en ég er óánægðastur með dómgæsluna. Að minnsta kosti tvivegis i fyrri hálfleik flautuðu timaveröir vegna rangrar inná- skiptingar þeirra, en dómararnir sinntu þvi ekki og létu þá halda boltanum. Nú, við misnotuöum mörggóö tækifæri, en handknatt- leikur er ekki þannig iþrótt að þetta smelli allt saman án sam- æfingar. — Nú var nákvæmlega ekkert sett upp I sóknarleiknum lang- timum saman. Hefði þaö ekki veriö hægt með tilliti til þess aö þetta er kjarninn úr liðinu sem var við æfingar i allan fyrravet- ur? „Við reyndum það og þaö bjargaði okkur frá enn stærra tapi i þessum leik”. — Hvað meö Ólaf Benediktsson, hversvegna var hann ekki með? „Hann var eitthvað slæmur i læri i dag”. , Við stilltum honum bara ekki upp í liðið”. gk-. Birgir Jóhannsson lék sinn fyrsta landsleik i gærkvöldi. Hér fleygir hann sér inn i vitateiginn eftir boltanum og slóhann, en Istöngina og Ut. Visismynd Einar Islenska liðið var eins og höfuðlaus her - og tapaði! — Slakt lið Norðmanna sigraði ísland 17:16 í Norðurlandamótinu í handknattleik í gœrkvöldi — Ekki heil brú í sóknarleik íslands langtímum saman Leikur tslands gegn Noregi i Norðurlandamótinu i handknatt- leik var svo slakur að hálfu ts- lands, að maður gat eiginlega ekki verið að svekkja sig yfir úr- slitunum. Þótt norska liðið væri eitt það slakasta sem undirritað- ur hefur séö var sigur þess verð- skuldaður og lokatölurnar urðu 17:16, eftir að jafnt hafði verið i hálfleik 9:9. Þaö vakti strax furðu manna þegar islenska liðið hljóp til leiks ins aö Ólafur Benediktsson var ekki með, en hann var þó kominn frá Sviþjóð. Kom i ljós að hann hafði ekki verið valinn i liöiö!!, og er óþarfi aö eyða mörgum orðum um þá furðulegu ráðstöfun. Nú, byrjunin var sæmileg hjá Islenska liðinu, reynt var að skjóta i góöum færum og fljótlega tók tsland forustuna 6:3. En þar meö var allt loft úr okkar mönn- um, og Norðmennimir söxuðu smátt og smátt á forskotið og höfðu jafnaö 7:7. Jafnt var siðan 8:8 og i hálfleik 9:9. Siöari hálfleikurinn var hrein- lega ömulegur á að horfa, sér- staklega sóknarleikurinn sem var svo slakur að maður hélt aö „okk- ar bestu menn” gætu ekki dottiö svona langt niður. Það var ekki heil brú i einum einasta hlut, tóm- ar niöurstungur og tilgangslaust hnoð og skotið úr vonlausum fær- um. Enginn var verri hvað það snérti en ólafur Einarsson sem skautogskaut,og erhann skoraði 12. mark íslands og jafnaði leik- inn varhann búinn aö eiga 6 skot I vonlausum færum og tómri vit- leysu isiðarihálfleik. Ekki var þó brugöið á þaö ráð að taka hann útaf til „kælingar”, svo aö segja má aö utan vallar hafi verið sama óstjdmin og inni á vellinum. Og þetta gat ekki farið nema á einn veg. Norðmenn komust yfir og náöu þriggja marka forustu, 16:13, og voru þá aðeins 8 minútur Leikið í kvðld Tveir leikir fara fram í Noröur- landamótinu i handknattleik I Laugardalshöll I kvöld. Kl. 20 leika Sviþjóð og Færeyj- ar, og að þeim leik loknum mæt- ast Danir og Norðmenn. Vonandi tekst Dönum að sigra Norömennina i kvöld, þvi aö sigri Norðmenn þá hafa þeir unnið riðilinn. En sigri Danir eiga Is- lendingar enn möguleika á efsta sætinu með þvi aö sigra Dani á morgun. til leiksloka og raunar séð hvert stefndi. Það talar e.t.v. skýrustu máli um sóknarleik Islands i sið- ari hálfleiknum að liðið skoraði fjögur siöustu mörk sin úr vita- köstum, sem voru sum umdeild, langskotin voru auðveld fyrir Morgan Juul i norska markinu sem var hreinlega skotinn i stuö. Undir ldtin minnkaði munur- inn, þvi að Nor&nenn lögðu allt i þaö að halda forskotinuogreyndu litið að skjóta. Island minnkaði muninn þvi, og er 28 sekúndur voru til leiksloka skoraði Ólafur úr vitaskoti 16:17 en Norömenn hélduboltanum það sem eftir var. Það er alveg ljóst að Island kemur til með að leika um 5.-6. sætið I mótinu með svona leik á móti Dönum. Danirnir munu hreinlega „rassskella” okkar menn nema stór breyting verði á. Vonandi sér nú landsliösnefnd- in að sér og setur ólaf Benedikts- son I markið fyrir þann leik. Það verður aö segjast eins og er að hinir landsliösmarkverðir okkar eru ekki nógu góöir, þeir missa inn hjá sér allt of auðveld skot inni á milli, og slikt kemur liðinu i koll í jöfnum leikjum. Annars ætla ég ekki að rifast meira um þennan leik, hann gleymist fljótt almenningi (vonandi ekki lands- liðsnefnd og leikmönnum lands- liösis) sem einn af allra slökustu leikjum sem islenskt liö hefur boðið upp á i áraraðir. Mörk islands: Ólafur Einarsson 7 (4), Jón Karlsson 3, Geir Hall- steinsson, Bjarni Guömundsson og Þorbjörn Guömundsson 2 hver. Mörk Noregs:Trond Ingebriksen 7(5), Hans Augestad og Jan Bækkelaget 3hvor,Terje Hallén 2 og þeir Rune Refstad og Allan Gjerde eitt hvor. Dómarar voru Jensen og Elia- sen frá Danmörku c® dæmdu sæmilega. Þeir voru sjálfum sér samkvæmir, en gerðu vitleysur sem að minu mati bitnuöu jafnt á liðunum. gk—. Hvað gera Þórsarar gegn meísturum KR? Einvigi tveggja bandariskra körfuknattleiksmanna á Akur- eyri! Það verður boðið upp á það i iþróttaskemmunni á Akureyri i kvöid kl. 19.30, en þá koma ný bakaðir Reykjavikurmeistarar KR i heimsókn norður og leika gegn 1. deildarliöi Þórs. Að sjálfsögðu mun athygli manna beinast að þeim Andrew Piazza sem leikur með KR og Mark Christenssen sem leikur með Þór, enda ekki á hverjum degi sem boðið er upp á einvigi tveggja snjallra Bandarikja- manna i körfuknattleik á Akur- eyri. Lið Þórs er nú að undirbúa sig fyrir keppnina i 1. deild, en þar leikur liðið nú eftir nokkurra ára hlé. Liðið iék tvivegis i Njarðvik um siðustu helgi, en tapaði báðum leikjunum naumlega. Þar sem þetta voru fyrstu leikir liös- ins á keppnistimabilinu má fast- lega búast við þvi að þeir velgi Reykjavikurmeisturunum undir uggum i kvöld og takist jafnvel að sigra. Með liði Þórs leika nú 3 leik- menn sem ekki voru með liðinu i fyrra. Mark Christenssen, Jón Indriðason sem lék með IS og Jó- hannes Magnússon sem hefur leikið með Val og á fjölda lands- leikja að baki. KR-ingar mæta með þá Andrew Piazza, Jón Sigurðsson og Einar Bollason, sem leikur nú gegn sinum gömlu félögum úr Þór i fararbroddi. Leikurinn hefst sem fyrr sagði kl. 19.30 og eru Iþróttaáhugamenn á Akureyri hvattir til að fjöl- menna. .. -ir W A m VERÐLAUNAGRIPIR OG FÉLAGSMERKI Framleiði alls konar verðlaunagripi og félagsmerki. Hefi ávalh fyrirliggjandi ýmsar stœrðir verðlaunabikara og verðlauna- peninga einnig styttur fynr flestar greinar i'brótta. Leitiö upplýsinga. ús E. Baldvinsson Laugavegi 8 - Reykjavík - Sími 22804 Norðurlandamót karla í handknattleik í kvÖld: SVÍÞJÓÐ-FÆREYJAR KL. 20.00 DANMÖRK-NOREGUR KL. 21.15 Handknattleikssamband íslands

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.