Vísir - 10.11.1977, Blaðsíða 5
Nýjasti skriðdreki Rússa, T-72, var sýndur opinberlega i fyrsta skipti á
sextiu ára byltingarafmælinu á mánudaginn.
Hann er vopnaður sjálfvirkri 115 mm. fallbyssu sem hægt er að skjóta af
á ferð, með mikilli nákvæmni, eftir Laser-geisla miðunartækjum.
i von um að komast efst
á popp-vinsældalistann er nú
plötuútgáf ufyrirtæki í
Bandarík junum fyrir
hæstarétti með beiðni um
að fá leyfi til að gefa út á
kasettum, segulbandsupp-
tökur af samtölum Ric-
hards Nixons við ýmsa
menn, meðan hann var
forseti.
Það eru hinar svonefndu
Watergate-upptökur sem
þarna er um að ræða. For-
setinn hafði jafnan segul-
band í gangi þegar hann
var að spjalla við menn á
skrifstofu sinni.
VISIR Fimmtudagur 10. nóvember 1977
Á Nixon rétt
lagavernd ge
andlegri kvöl
Bítlarnir fá
minnismerki
í Liverpool
koiiuo um
1 pi UUdUUUMUO oy
myndastyttu.
Ein tillagan um myndastyttu er
á þá leið að félagarnir fjórir verði
þar hálfir menn og hálfir hestar,
á palli sem snýst i hringi. Svo á að
leika lög þeirra undir hringsólið.
Dauða-
refsing í
Stærsti stjórnarand-
stöðuflokkur Danmerkur,
Framfaraflokkur Mogens
Glistrup, hefur lagt fram
frumvarp um að dauða-
refsing verði tekin upp í
landinu að nýju.
Dauðarefsingin á þó aðeins að
ná til hryöjuverkamanna sem
með ofbeldisverkum sinum hafa
myrt fólk eða stofnaö þvi i lifs-
hættu.
Dauðarefsing var afnumin i
Danmörku áriö 1932, en þó voru
nokkrir striðsglæpamenn teknir
af lifi eftir aö landið var frelsað
undan oki nasista.
Eftir miklar og harðar
deilur hefur nú borgar-
stjórnin i Liverpool skipt
um skoðun og ákveðið að
reisa Bitlunum minnis-
merki i miðborginni.
Borgarstjórnin fékk gifurlegar
skammir hvaðanæva Ur heim-
inum þegar hún fyrir nokkrum
vikum taldi ástæöulaust að heiðra
Bítlana meö þessum hætti.
Ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um hvernig þetta minnismerki
á að lita út. Uppástungur hafa
ÍSRAEL KVEÐST ÁFRAM
MUNU HEFNA ÁRÁSA
ísraelska stjórnin
varaði við þvi i morgun
að ef gerðar yrðu fleiri
eldflauga eða stórskota-
liðsárásir á ísrael,
mundi það einnig leiða
til frekari hefndarað-
gerða af þéírra hálfu.
Stjórnin sagði mark-
lausar fréttir um að loft-
árásirnar á Libanon
hefðu verið gerðar á
þorp þar sem aðeins
bjuggu óbreyttir borg-
arar.
Talið er, að yfir hundrað manns
hafi farist i loftárásúm israelska
flughersins, sem gerðar voru i
hefndarskyni fyrir eldflaugaárás
á ferðamannabæinn Nahariya.
Þar biðu þrir bana og fleiri særð-
ust.
Stórskotalið tók einnig þátt i
þessum hefndaraðgerðum og er
talið að það hafi einkum verið
stórskotahriðin sem varð óbreytt-
um borgurum að bana.
Þrátt fyrir neitanir Israels-
manna hafi fréttamenn i Libanon
skýrt frá þvi að þeir hafi séð lik
óbreyttra borgara, þar á meðal
kvenna og barna.
Palestinuarabar eiga búðir
þarna i grenndinni og það var að
þeim sem isralesku árásunum
var beint.
ísraelska stjórnin sagði að
stjórnvöld i Libanon og Sýrlandi
ættu mikinn hluta ábyrgðarinnar
vegna þessara atburða. Herir
þeirra væru allt i kringum búðir
Palestinumanna og þeim væri i
lófa lagið að hindra árásir þeirra
á tsrael.
Þessar upptökur áttu Richard Nixon, fer hann á „Topp-10" listann?
storan þátt í því að hann
hrökklaðist úr embætti.
Lögfræðingur forsetans
fyrrverandi segir að það
muni valda honum miklum
hugarkvölum ef kasettu-
salan yrði leyfð og hann
gæti átt á hættu að heyra
upptökurnar í hvert skipti
sem hann opnaði sjónvarp
eða útvarp.
Lögfræðingur plötuút-
gefandans segir hinsvegar
að Nixon hafi engan rétt á
lagalegri vernd gegn þeim
andlegu þjáningum.
Skelfir hryðjuverka-
manna skotinn í fótinn
Sérlegur fulltrúi banda-
rikjastjórnar I baráttunni
gegn hryðjuverkamönnum
var lagöur inn á sjúkrahús
með skotsár á fæti, sfðast-
liðið þriðjudagskvöld.
Fulltrúinn Hayward Is-
ham hafði reynt aö elta uppi
tvo menn sem ætluðu að
ræna hann þegar á hann var
skotiö. Hann var við góöa
liöan i morgun.
Embætti hans var stofnað
fyrir skömmu þegar Banda-
rikjastjórn sá ástæðu til að
hafa sérstakan fulltrúa sem
hefði yfirumsjón meö bar-
áttu gegn hryðjuverkamönn-
um.
Kafnaði í
olíugeymi
Austur-Þýskur
verkamaður kafnaði í
olíugeymi vélar sem
hann hafði skriðið inní
til.að reyna að f lýja til
Vestur-Þýskalands.
Vélin sem notuð er til að
framleiða plastik mót var
keypt frá austur-þýsku fyrir-
tæki. Verkamaðurinn virðist
hafa verið viö aö pakka
henni niður og notaö tæki-
færið til aö skriða oni
geyminn.
Lögreglan i Kaufbeuren i
Vestur-Þýskalandi, segir aö
hann hafi liklega skriðið i
geyminn i lok september
siðastliðins en ekki var tekið
utanaf vélinni fyrr en siðast-
liðinn þriðjudag.
• •
Onnur rísa-
leiðsla
frá Alaska
Carter forseti hefur gefið
endanlegt samþykki sitt til
samstarfs við Kanada um að
ieggja 7680 kilómetra gas-
leiðslu frá Alaska til
miðvesturrikja Bandaríkj-
anna.
Leiðslan á að kosta fjórtán
milljarða dollara og Carter
sagði að þetta sé mesta
mannvirki sem hingaðtil
hefur verið lagt útf vegna
orkumála.
Lagningu leiðslunnar á aö
ljúka snemma á árinu 1983
og hún á að flytja 3,6 mill-
jarða kúbikfeta af gasi á
dag.