Vísir - 10.11.1977, Page 10

Vísir - 10.11.1977, Page 10
10 Fimmtudagur 10. nóvember 1977 VISXR VÍSIR utgcfandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð- mundur G. Pétursson. Umsjón meö Helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Anders Hansen, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrímsson, Jón Oskar Hafsteinsson, Kjartan L. Pálsson, Magnús Olafsson, Óli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Ljósmyndir: Einar Gunnar Einarsson, Jens Alexandersson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar: Siöumúla 8. Símar 82260, 86611. Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Ritstjórn: Síöumúla 14. Sími 86611 7 línur Askriftargjald kr. 1500 á mánuöi, innanlands. Verö i lausasölu kr. 80 eintakiö , Prentun: Blaöaprent hf. Breyttar aðstœður Fjármálaráðherrann, Matthías Á. Mathiesen, boðaði óvinsælar ráðstafanir i fjárlagaræðu sinni síðastliðinn þriðjudag. I sjálfu sér er það þverstæða, en eigi að siður rétt, að helsta gagnrýnin, sem ríkisstjórnin hefur sætt, er i þvi fólgin að hún hafi gert helst til of lítið af svoköll- uðum óvinsælum ráðstöfunum. Sannleikurinn er sá, að verðbólguvandinn er að magn- ast á nýjan leik fyrir þær sakir, að ekki hefur tekist að ná samstöðu um nógu ákveðnar og víðtækar aðhaldsað- gerðir. Stjórnmálamenn og hagsmunaforingjar hafa oft á tíðum litið svo á, að slíkar ákvarðanir væru ekki best til þess fallnar að auka á vinsældirnar, og fyrir þá sök hafa þær ekki verið teknar í nægjanlega ríkum mæli. Á hinu afmarkaða sviði ríkisf jármálanna hefur náðst talsverður árangur á síðustu tveim árum. Hlutfall ríkis- útgjalda miðað við þjóðartekjur hefur lækkað frá því sem áður var og tekist hef ur að stöðva hinn stórkostlega hallarekstur rikissjóðs, sem hófst á vinstri stjórnar árunum og tók einnig til fyrsta f járhagsárs núverandi rikisstjórnar. Nú eru hins vegar komnar upp allt aðrar aðstæður en voru fyrir hendi, þegar undirbúningur var hafinn að gerð þess fjárlagafrumvarps, sem liggur fyrir þinginu. Útlistun á þvi frumvarpi er því ekki mál dagsins, heldur hitt, hvað gera þarf í þvi skyni að koma í veg fyrir nýja kollsteypu í efnahagsmálum í líkingu við þá, sem tekin var 1974. Þessar aðstæður kalla á miklar breytingar frá ýmsu þvi, sem ráð er fyrir gert í f járlagafrumvarpinu. I f járlagaræðu sinni benti f jármálaráðherra réttilega á, að launasamningarnir síðastliðið sumar og þeir samn- ingar, er nýlega voru gerðir við opinbera starfsmenn hafi farið fram yfir þau mörk, sem efnahagsbatinn gaf tilefni til. Yfirlýsing af þessu tagi þýðir í raun og veru það eitt, að ekki er unnt að standa við þessa samninga, eigi að stefna í jafnvægisátt. Vinstri stjórnin lagði á sínum tima fram frumvarp, sem gerði ráð fyrir, að nýgerðir kjarasamningar yrðu ógiltir að hluta. Slíkar aðgerðir eru óvinsælar, en erfitt er að sjá, hvernig þær verða umflúnar við ríkjandi að- stæður. En alvarlegar aðhaldsaðgerðir á þessu sviði kalla einnig á viðtækar ráðstafanir í sömu veru. Fjárlagafrumvarpið byggir á hækkun skatta á næsta ári, bæði tekjuskatta og óbeinna skatta eins og bensín- gjalda. Þetta eru mjög varasöm áform eins og nú horfir og ekki sist, ef takmarka þarf nýgerða kjarasamninga. Ekki er því ósennilegt, að ríkisstjórnin verði að hverfa frá bensíngjaldshækkuninni og skjóta vegagerðarbylt- ingunni á frest. Niðurskurður og aðhald á öðrum sviðum er einnig óhjákvæmilegt til þess að mæta útgjaldaaukn- ingu og koma í veg fyrir beinar skattahækkanir. Launamálin eru á hinn bóginn ekki eini verðbólugvald- urinn í þjóðfélaginu. Rætur hennar liggja miklu víðar og dýpra. Endurreisnaraðgerðir í efnahagsmálum þurfa t.a.m. að miða að því að koma í veg fyrir þensluáhrif sveiflna í sjávarútvegi. Ráðstafanir í þá veru hljóta að haldast í hendur við aðhaldsákvarðanir í ríkisf jármálum og peningamálum. En þessar aðstæður sýna, að f járlagafrumvarpið þarf að taka miklum breytingum í meðförum þingsins. Að- stæður hafa breyst svo verulega á síðustu mánuðum, að hjá því verður ekki komist. Það hefur aldrei tekist aö koma i veg fyrir hækkun frumvarpsins í þinginu enda ekki verið gerðar tilraunir í þá veru. Nú hvílir hins vegar sú skylda á stjórnarf lokkunum að koma í veg fyrir frek- ari hækkun fjárlaga en frumvarpið gerir ráð fyrir. Fjármálaráðherra boðaði í fjárlagaræðunni itrasta aðhald í útgjöldum til þjónustu og framkvæmda. Við- brögð þingsins verða prófsteinn á það, hvort þingmenn þora að leggja til atlögu við efnahagsmeinsemdina með svokölluðum óvinsælum ráðstöfunum. Guðlaugur, rektor: Stórslys að kalla þetta háskóla. „í HÁSKÓLANUM ERU MENN SEM GETA GERT GAGN — sögðu hóskólamenn þegar Verk- frœðistofnunin nýja var kynnt Það má segja að þótt Verkfræðistofnun Há- skólans verði ekki formlega til fyrr en einhvern næstu daga hafi verið byrjað að leggja drög að henni á árum siðari heims- styrjaldarinnar. Þá torvelduðust leið- ir til erlendra háskóla og þvi var stofnuð sér- stök verkfræðideild við Háskóla íslands sem skyldi annast kennslu til bráðabirgða, að svo miklu leyti sem hægt væri. Ekki var verkfræöideildin þó lögð niöur I strlöslok heldur bætt smdmsaman viö hana þannig aö loks var hægt aö ljúka náminu hérheima og Utskrifuöust fyrstu verkfræöingarnir voriö 1974. Breytingin frá verkfræöideild yfir í Verkfræöistofnun felst einkum I þvl aö hlutverk stofnunar er — jafnframt kennslunni — aö stunda viötæk- ar rannsóknir á sviöi tækni- og verkvlsinda. A fundi meö fréttamönnum, i gær, sagöi Guölaugur Þorvalds- son, háskólarektor, aö Háskól- anum hafioftveriö legiö á hálsi fyrir ónógar rannsóknir. Rann- sóknir séu nauösynlegar til að tryggja gæöi kennslu I viökom- andi grein, auk þeirrar prakt- Isku þýöingar sem þær hafi á framfarir I greininni. Rektor kvaöst ekki vilja hafa mörg orö um þá erfiðleika sem rannsóknarstarfsemi fylgdu, vegna fjármagnsskorts og aö- stööuleysis, en sagöi þaö mis- munandi eftir greinum hvernig gengi aö fá fé og aöstööu til að stunda rannsóknir. Bæöi hann og talsmenn Verk- fræöistofnunarinnar töldu þó ástæöu til nokkurrar bjartsýni um rannsóknarstörf hennar. Hún heföi þá sérstööu umfram margar aörar greinar aö árang- ur skilaöi sér yfirleitt fljótt og þaö væri alltaf auöveldara aö fá fé og aöstööu til aö stunda rann- soknir. Rektor kvaö þaö álit sitt aö þaö heföi veriö meiriháttar slys aö þýöa oröiö „universitas” sem.Háskóli, þaö gæfi alranga hugmynd um tilgang hans. „Oröiö þýöir „vlöfeömi”, sagöi hann. „Háskóli er alrangt nafn sem gefur til kynna aö sú stofnun eigi aö raöa niöur og ákveöa hvaö er ööru ofar”. Menn sem geta gert gagn. Talsmenn Verkfræöistofnun- arinnar á þessum fundi meö fré^tamönnum voru þeir Einar B. Pálsson, Geir Gunnlaugsson, Valdimar K. Jónsson og Sigfús Björnsson. Þeir voru allir harla ánægöir meö tilurö sinnar stofnunar og bjartsýnir á framtlö hennar. Þeirsögöu aö þótt variö væri til hennar fé gæti hun skilaö góöum hluta þess aftur meö ýmsu móti. Sem dæmi voru nefndar tölvuvigtar þær sem frystihúsin eiga nú aö fá. Meö þvi aö hag- nýta þá tækniþekkingu sem hér er til ætti aö vera hægt aö spara milljónatugi, miðaö viö hrein kaup á tækjunum erlendis frá. „Margir virðast halda aö há- skóli sé hæli fyrir menn sem vilja vera I friöi, skilja ekki aö hér eru menn sem geta gert gagn”. Allir Háskólans menn, á staönum, voru sammála um nauösyn þess aö hinar ýmsu greinar hans og stofnanir séu sem nátengdastar atvinnullfinu og ööru sem er aö gerast I land- inu. Þvi aöeins aö svo sé takist honum aö þjóna hlutverki sinu. —ÓT

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.