Vísir - 19.11.1977, Page 10

Vísir - 19.11.1977, Page 10
10 VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson(ábm) Ólafur Ragnarsson j Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund ur Pétursson. Umsjón meö Helgarblaöi: Árni Þórarinsson Blaöamenn: Elías Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón óskar Hafsteins son, Kjartan L. Pálsson, Kjartan Stefánsson, Magnús Olafsson, Oli Tynes, Sigur veig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson Ljósmyndir: Jón Einar Guðjónsson, Jens Alexandersson. Auglýsinga og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar og skrifstofur: Síöumúla 8. Simar 86611 og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2-4, Simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611, 7 linur. Áskriftargjald kr. 1500 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 80 eintakiö. Prentun: Blaöaprent h.f. Mistökin viðurkennd i þessari viku náðist sá merki áfangi, að raforkukerfin norðanlands og sunnan voru tengd saman. Norðlending- ar fá nú raforku frá Landsvirkjunarsvæðinu og eiga erfiðleikar þeirra i þessum efnum nú að heyra sögunni til. Hér er óneitanlega um merkan áfanga að ræða í raf- orkuframkvæmdum. Athyglisvert er hins vegar að rafmagninu var ekki hleypt norður með hátiðlegri athöfn í likingu við þá sem fram fór þegar byggðalinan var opnuð án rafmagns milli Norðurlands og Vesturlands. Sannleikurinn er ein- faldlega sá að þessi merki áfangi í raforkumálum varpar svo skýru Ijósi á þau alvarlegu f járfestingarmis- tök sem gerð hafa verið við Kröflu, að stjórnvöld geta ekki efnt til opnunarstands með hefðbundnum hátiðar- ræðum. Þegar orkuy f irvöld tóku ákvörðun um að reisa Kröf lu- virkjun var þvi haldið fram af þeirra hálfu, að raforku- vandræði Norðlendinga væru svo mikil, að óhjákvæmi- legt væri að 60 til 70 MW stöð gæti hafið framleiðslu siðari hluta árs 1976. Vegna þessa var ákveðið að semja um kaup á aflvélum og byggja stöðvarhús áður en Ijóst væri hvaða orku mætti fá til raforkuframleiðslu við Kröf lu. Þegar i upphafi var á það bent af hálfu Orkustofnunar að óvarlegt væri að semja um kaup á aflvélum áður en frekari vitneskja lægi fyrir um orkuna. Þessi aðvörun var send stjórnvöldum áður en kaupsamningar voru undirritaðir. Orkuyfirvöld tóku hins vegar áhættuna þrátt fyrir þessa viðvörun. í annan stað var á það bent að því færi víðsf jarri að Norðlendingar þyrftu 70 MW raforkuver fyrir árslok 1976. Raforkuverð frá slikri stöð yrði margfalt hærra en frá öðrum orkuverum fyrir þá sök að á næstu árum yrði ekki markaður nema fyrir lítinn hluta raforkufram- leiðslunnar. Borgarstjórinn i Reykjavík, Birgir isleifur Gunnars- son svaraði fyrirspurn um þetta atriði frá Davíð Odds- syni borgarfulltrúa vorið 1976. Þar kom fram, að búast mætti við talsverðri hækkun á raforkuverði til Reykvík- inga ef kostnaði við framleiðslu Kröf luraf magnsins yrði dreift á alla landsmenn. Framkvæmdastofnunin komst siðar að þeirri niðurstöðu að Kröf lurafmagnið yrði tvö- falt dýrara en á Landsvirkjunarsvæðinu og var þá ekki reiknað með þeim miklu gufuöflunarörðugleikum, sem nú eru komnir upp. Loks kom það fram áður en Kröfluvirkjun var ákveðin, að hinn bráði raforkuvandi Norðlendinga yrði leystur á hagkvæmastan hátt með lagningu byggðalín- unnar. Það verk var hins vegar dregið á langinn en hef ur nú verið lokið og telst til meiriháttar áfanga í raforku- málum. Sérfræðingar á þessu sviði hafa nú sýnt fram á, að engin þörf er fyrir raforku frá Kröflu næstu f jögur árin en þá þarf að hagnýta hana i þágu Austfirðinga. Fái þeir hins vegar virkjun af loforðalista ráðherra, mun liða enn lengri timi þar til þörf er á Kröf luraf magni. Orkuráðherra segir hins vegar i viðtali við Vísi öndvert við sérfræðingana að þörf sé á Kröflurafmagni 1979. Þessi fullyrðing felur eigi að siður i sér viðurkenningu á því að ekki var þörf á Kröf luvirkjun 1976 eins og haldið var fram þegar báðar af Ivélarnar voru keyptar í einu án þess að orkuöflunarmöguleikar væru athugaðir. Þetta er í fyrsta skipti sem orkuyfirvöld viðurkenna opinberlega að ástæðuiaust var með öllu að ráðast með slikum látum i virkjun Kröf lu sem gert var. Kröf luvirkj- un er þvi eitt alvarlegasta dæmið um mistök í opinberri fjárfestingu á síðari árum og eitt Ijósasta dæmið um árangurslausa minnisvarðapólitik. Hún hefur þegar kostað landsmenn mikla peninga og á eftir að verða dýr- keyptari. Þó að gufuöf lunin hefði tekist var eigi að síður um f jármálaævintýri að ræða. Laugardagur 19. nóvember 1977 VISIR NÆSTI MENNTA- MÁLARÁÐHERRA VERÐI SJÁLF- STÆÐISMAÐUR Bókasöfn þarf mjög að efla í skólunum, og notkun þeirra i skólastarfinu. sviðum. Metnaður er ekki alinn upp i nemendum sem skyldi. Þeir læra hvorki að bera 'virð- ingu fyrir sjálfum sér né öðrum. Allir eiga að fljóta gegnum kerf- ið, enginn má skara fram úr og enginn má falla á prófum. 1 9. bekk fá nemendur bókstafi, sem fæstir vita hvað tákna. Nemendur eiga rétt á þvi að vita hvað að baki er. Heilbrigður metnaður og samkeppni skaðar engan. Kommúnistar og menntakerfið Margir hafa orð á þvi hve vinstri sinnaðir kennarar eru orðnir. Einkum er þetta áber- andi i greinum, sem snerta þjóðfélagið og þjóðfélagsgerð- ina beint þ.e. samfélagsfræði. Kennarinn á að hafa i hávegum hlutleysi visindanna. Hann á að leiða fram staðreyndir, en ekki sleppa annarri hlið málanna. Aberandi margir kommúnistar virðast sækja svokallaða félags- visindadeild Háskóla Islands. Kennarar þar eru upp til hópa kommúnistar og flokksbundnir Alþýðubandalagsmenn. Þetta ætti i sjálfu sér ekki að skipta máli ef þeir hefðu hlutleysis- regluna i heiðri.Svo er þó ekki , mikið gildismat er i námsbók- arvali við deildina, túlkun námsefnis og verkefnavali nemenda. Eru menn svo hissa á þvi að þetta fólk sé með áróður gegn rikjandi þjóðskipulagi i sinni kennslu? Sinnuleysi Sjálfstæðismanna Sjálfstæðismenn hafa verið of sinnulausir i þessum málum. Róttæklingar hreiðra um sig i menntakerfinu, ala á óvild nemenda i gerð lýöræðisins og búa til alls konar gervilýðræði og kenningar. Margir góðir sjálfstæðismenn hafa látið i sér' heyra um þessi mál en nú þarf að hefja sókn og stefna að þvi markvisst, að sjálfstæðismenn taki við menntamálum i næstu rikisstjórn. Sá málaflokkur, sem hvaö mest áhrif hefur á framtlð hverrar þjóðar eru menntamálin. 1 skólakerfinu er lagður grundvöllur að skoöunum einstaklingsins á fjölmörgum málum. Heimilis- fræðsla tiðkaðist hér á landi um langan tima, og almenn mennt- un almennings var mjög litil. Nú hafa skólarnir tekið við þessu hlutverki. Þátttaka foreldra i námi barna þeirra virðist fara siminnkandi. Foreldrar þekkja ekki það námsefni, sem börnum er boðiö upp á. Þeir hafa takmarkaða aðstöðu til aö setja sig inn i það. Að visu hefur örlaö á námskeiðum fyrir foreldra t.d. I stærð- fræði. Það nýja námsefni, sem nú er verið að færa inn I skólana er litið sem ekkert kynnt fyrir almenningi. Námskrár berast aðeins i hendur kcnnara. Þegar um svo róttækar breytingar er að ræða, sem nú hafa dunið yfirværi þaö ekki óeðlilegt að allar námskrár væru prentaðar I einni heild, eða útdráttur úr þeim, og send heim meö nemendum til aö auka innsýn foreldra I skóla- starfiö. Blandaöir bekkir Sú stefna hefur verið tekin upp i grunnskólanum, að blanda bekki, þ.e. að hafa i einum og sama bekk nemendur með mjög mismunandi námsgetu. Þetta er talið lýðræðislegra einkum gagnvart þeim nemendum, sem eiga i námserfiðleikum. 1 lögum um grunnskóla hefur verið gert ráð fyrir aukinni aðstoð við þessa nemendur. Mun eitthvað vera um það i lægri bekkjum grunnskólans, en hins vegar skortir framkvæmdir i efri bekkjunum. Grundvallar- forsendur þess að blanda i bekki er að fækka i þeim jafnframt. Einn kennari getur aldrei annað sem skyldi 25-30 nemendum með mismunandi námsgetu. Aðstaða og laun kennara eru slik i dag, þrátt fyrir launa- hækkanirnar nýlega, að i raun geristlitið til breytinga. Mest er jafnan rætt um þá nemendur, sem lakastir eru i námi, hvernig þeim skuli hjálpa. Hinn hópur- inn er ekki siður mikilvægur, sem skarar fram úr. Fræði- menn hafa bent á, að þeir standi sig hvað sem á dynur. Þetta má vera rétt að vissu marki. Hversu miklu meira mætti e.t.v. kenna þeim en nú er gert vitum við ekki. Hætt er þó að hjá nem- anda, sem kemur læs i skóla 6 ára gamall, að það skapist námsleiði við að hlusta á stafa- kennslu i heilan vetur. Þessi börn eiga einnig sinn rétt. Bókasöfn þarf mjög að efla i skólunum, og notkun þeirra i skólastarfinu. Það er ekki nóg ao eyoa miiljónatugum i bækur fyrir skólana, ef þær eru ekki notaðar. Kennarar þurfa að fá námskeið i notkun safnanna. Þannig gætu bókasöfnin orðið veruleg stoð kennara einkum hvað snertir að beina nemend- um með mikla námshæfileika til starfa þar. Dýrkun á meðal- mennsku viröist rikja á flestum /* .—V Linda Rós Michaels- dóttir segir i grein þessari/ aö dýrkun á meðalmennsku virðist rikja á flestum sviö- um. Metnaður sé ekki alinn upp í nemendum sem skyldi og þeir læri hvorki aö bera virö- ingu fyrir sjálfum sér né öðrum. Allir eigi aö I fljóta í gegnum kerfið I og enginn megi skara I fram úr.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.