Vísir - 19.11.1977, Blaðsíða 20
VÍSIR
20" litsiónvarpstœki fró ^ími 86611
jr Opiö virka daga til kl. 22.0«
GUNNARI ASGEIRSSYNI er vinningurinn í Sunnudaga kl. 18-22
smáauglýsingahappdrœtti Visis. Dregið mánudag
Það er ekki sama hvort verðlagsbœtur eru í krónutölu eða prósentu:
Sumir fá þrefaldar verð-
lagsbœtur verkafólks í ASÍ
Launþegar innan Al-
þýöusambands (slands fá
nú um mánaðamótin
verðbætur, sem sam-
svara 9.319 krónu hækkun
mánaðarlauna. Frá sama
tíma fá opinberir starfs-
menn verðlagsbætur,
sem nema 9.63%, en ekki
ákveðinni krónutölu eins
og hjá ASl. Af leiðingin er
sú, að opinberir starfs-
menn fá yfirleitt fleiri
krónur i verðlagsbætur.
Kauplagsnefnd sendi frá sér i
gær tilkynningu um útreikning á
verðbótum, sem koma eiga á
laun, samkvæmt kjara-
samningum, frá 1. desember
næstkomandi.
Verðbótavisitalan er 1.
desember 1977, að viðbættum
verðbótaauka, samtals 114.02
stig. Hækkunin frá 1. september
s.l. er 9.63%.
I kjarasamningi ASl-félag-
anna er gert ráð fyrir, að hvert
stig verðbótarvisitölu gefi
ákveðna krónutölu i verðlags-
bætur, þ.e. 930 krónur. Sam-
kvæmtþvi eiga laun ASl-manna
að hækka um 9.319 krónur á
mánuði 1. desember.
1 kjarasamningum opinberra
starfsmanna er hins vegar gert
ráð fyrir þvi, að verðlagsbætur
komi sem sama hundraðstala,
eða prósenta, á öll laun.
Þetta þýðir, að laun þeirra
hækka vegna verðlagsbótanna
um 9.63% 1. desember.
Séu dæmi tekin af handahófi,
þá þýðir þetta að 125 þúsund
króna mánaðarlaun opinberra
starfsmanna hækká vegna
veröbóta ujn 12 þúsund krónur,
160 þúsund króna laun um ca. 15
þúsund, 200 þúsund króna
mánaðarlaun um ca. 19 þúsund,
230þúsunda laun um ca. 22 þús-
und, og 280 þúsund króna
mánaðarlaun um 26-27 þúsund
krónur á mánuði. Hæstu
mánaðarlaun rikisstarfsmanna
i BSRB eru 288.521,00.
Á sama tima eru verðbætur
allra innan ASt 9.319 kr,—ESJ.
Ekkert
heyrist
í þeim
þýska!
Hvorki Ti Ikynningar-
skyldan né Landhelgis-
gæslan höfðu haft fregnir
af þýska siglingakappan-
um Axel Szudaee, sem hélt
frá Siglufirði í fyrrinótt og
ætlaði að sigla vestur fyrir
Horn og til Reykjavíkur að
talið var.
Er við höfðum samband við
Landhelgisgæsluna og Tilkynn-
ingarskylduna hafði ekkert
heyrst i þeim þýska, sem fyrir
nokkrum dögum birtst skyndi-
lega á hinum þriggja tonna báti
sinum á Siglufirði.
Hafði hann þá siglt einn sins
liðs frá Noregi til Islands, og þótti
mörgum þaö glæfraför á svona
litlum báti og um þetta leyti árs.
Siglfirðingar reyndu að fá hann
ofan af þvi að sigla fyrir Horn,
þar sem veður var heldur leiðin-
legt, er hann lagði af stað i fyrri-
nótt. En sá þýski var ákveðinn i
að fara hvað sem hver segði.
Eina sambandið sem hann
hefur haft á siglingu sinni er við
stöð i Þýskalandi, en við hana
talar siglingakappinn, sem er
fyrrverandi atvinnuflugmaður,
einu sinni á dag.
Ef ferð hans fyrir Horn hefur
gengið að óskum er taiið liklegt
að hann hafi rennt sér inn á ein-
hvern fjörð fyrir vestan, eða þá
haldiö áfram og skjóti upp koll-
um i höfn við Faxaflóa um eða
eftir helgina....
—klp—
Einum af gámum varnarliösins ýtt inn um skut Bifrastar Igær. Ljósm. Vfsir Heiöar Baldursson.
„EÐLILEGT AÐ VIÐ KEPPUM
VIÐ EIMSKIP UM FLUTN-
INGA FYRIR VARNARLIÐIÐ"
— segir Þórir Jónsson, stjórnar-
formaður skipafélagsins Bifrastar
,,Við höfum engan
samning gert við varnar-
liðið um flutninga. Bif-
röst er aðeins sá aðili sem
flytur varninginn", sagði
Finnbogi Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Skipa-
félagsins Bifrastar, í við-
tali við Vísi.
Eru þessir flutningar nokkur
tiðindi þvi þótt ekki séu til neinir
lokaðir samningar þar um, hef-
ur Eimskipafélag islands ann-
ast nær alla flutninga varnar-
liðsins á sjó, undanfarin ár.
Það eru Gunnar Guðjónsson,
skipamiðlari og Magnús Ar-
mann, sem eru milligöngumenn
á milli Bifrastar og varnarliðs-
ins. Þeir hafa tilskilin leyfi til að
semja um flutninga fýrir það.
Þórir Jónsson, stjórnarfor-
maður Bifrastar, sagði nokkuð
vfst að um einhverja frekari
flutninga fyrir varnarliðið yrði
að ræða og það kæmi i ljós á sin-
um tima.
Þórir sagði að það væri ósköp
eðlilegt að Bifröst og Eimskipa-
félagið væru keppinautar um
þessa flutninga. Varnarliöið
hefði siöur en svo á móti þvi að
fleiri en einn aðili annaðist
þessa flutninga.
„Þeir eru lika með töluvert af
farartækjum sem þeir þurfa að
flytja fram og aftur svo það er
ekki nema eðlilegt að þeir vilji
prófa svona skip”, sagði Þórir.
Reksturinn í fullan gang
Að sögn Finnboga Gislasonar,
verður bilaskipið að likindum
ekki leigt til útlanda á næstunni,
heldur verður það i flutningum
til og frá tslandi. Skipið sagði
hann að hefði aðeins verið leigt
hingað til, þar sem það fylgdi
kaupsamningnum, að fyrri eig-
andi fengi afnot af þvi um 5
mánaða skeiö.
Hafnaraðstaða fyrir skipið
verður tilbúin i Hafnarfirði
um áramótin, eins og Visir
skýrði frá i gær, en þangaö til
veröur aö sæta sjávarföllum við
uppskipun bilanna. Við réttar
aðstæður er hægt að aka bilun-
um á land.
Bilaskipið verður i föstum
áætlunarferðum til meginlands-
ins frá þvi snemma næsta vor og
þá skapast góðir möguleikar
fyrir ferðamenn aö fara utan
með bila sina. Siglt verður til
Felixtowe og Rotterdam og auk
þess til þeirra hafna sem þörf er
á i hverri ferð. — SJ/—OT.
Prófkjör Sjálfstœðis-
flokksins um helgina:
Kosið verður á
sjö kjörstöðum
Kjósendur I prófkjöri Sjálf-
stæöisflokksins eiga aö kjósa i þvi
kjörhverfi, þar sem þeir áttu lög-
heimiii 1. desembcr siöastliöinn.
Kjörstaðir verða opnir á 7 stöð-
um i dag og á morgun, en á einum
stað á mánudaginn. Þeir verða
opnir kl. 14-19 um helgina á eftir-
töldum stöðum:
t KR heimilinu v/Frostaskjól
fyrir Nes- og Melahverfi.
t Grófinni 1 fyrir Vestur- og
Miðbæjarhverfi.
Templarahöllinni við Eiriks-
götu fyrir Austurbæjar-, Norður-
mýrar-, Hliða- og Holtahverfi.
Samkomusal Kassagerðarinn-
ar v/Kleppsveg fyrir Laugarnes-,
Langholts-, Voga- og Heima-
hverfi.
Valhöll, Háaleitisbraut 1, fyrir
Háaleitis-, Smáibúða-, Bústaða-
og Fossvogshverfi.
Kaffistofa verksmiðju Vifilfells
Stuðlahálsi 1 fyrir Arbæjarhverfi
og aðra Reykjavikurbyggð utan
Elliðaáa.
Seljabraut 54, 2. hæð, fyrir
Breiðholtshverfin.
Þá verður á mánudaginn opinn
kjörstaður i Valhöll kl. 15.30 til
20.30.
— ESJ.
Eldur í
mótorhjólo-
verkstœði
Eldur kom upp i mótorhjóla-
verkstæði við Hverfisgötu 72 i
gærdag, á sjötta timanum. Var
verið að gangsetja mótorhjól
þegar neisti hrökk i opið bensin-
ilát. Slökkviliðið kom strax á
staðinn og réði niðurlögum elds-
ins fljótlega. Þegar eldurinn kom
upp brenndist maður illa á hendi,
og var hann fluttur á slysadeild.
—EA
Helgarblaðið fylgir Vísi í dag!