Vísir - 03.01.1978, Síða 3
3
vism
Þriðjudagur 3. janúar 1978
Spárnar rœttust - þvímiður
Áfram likur á 42% verðbólgu á nýja árinu, segja reiknimeistarar Verslunarráðs
„Því miður rættist þessi spá
okkar, þótt margir teldu hana
óraunhæfa,” sagði Árni Arna-
son, rekstrarhagfræðingur hjá
Verslunarráði tslands, i samtali
viðVisi.
Við gerð kjarasamninga sl.
sumar voru gerðir útreikningar
á vegum ráðsins á verðlags-
horfum i landinu, miðað við að
samið yrði á grundvelli tillagna
sáttanefndar. Samkvæmt þeim
útreikningum var talið senni-
legt að visitala framfærslu-
kostnaðar myndi hækka um 37%
á árinu 1977. 1978 var búist við
42% hækkun.
Gert var ráð fyrir að innlend-
ar verðhækkanir yllu gengis-
lækkun um sem svaraði þriðj-
ungi af innlendu verðlags-
hækkuninni. Samkvæmt þvi var
þvi spáð, að Bandarikjadalur
yrði komin upp i 213 kr. um
áramót, og i lok ársins 1978 yrði
hann kominn upp i 242 krónur.
Fyrir áramótin var gengi
dollars orðið rúmar 213 krónur
og hafði þvi sú spá staðist ná-
kvæmlega.
„Við töldum sennilegt að
gengislækkunin yrði ekki höfð
meiri en þetta, en þar með var
ekki sagt að hún þyrfti ekki að
vera meiri,” sagði Arni.
„Við töldum þessa skráningu
ekki verá þá, sem útflutningsat-
vinnuvegirnir gætu starfað við.
Hins vegar töldum við að
kosningar á árinu 1978 gætu taf-
ið annars nauðsynlegar leið-
réttingar á verði erlendra gjald-
miðla.
Sú hefur orðið raunin á og nú
er greitt úr verðjöfnunarsjóði,
þótt verðið á erlendum mörkuð-
um sé i hámarki.”
Hækkunum frestað
Arni sagði, að svo virtist sem
visitöluhækkunin á árinu 1977
hefði orðið heldur lægri en spá
Verslunarráðsins sagði fyrir
um, eða um 34%. Hins vegar
hefði ymsum hækkunum verið
frestað fram yfir áramótin og
þegar þær hefðu tekið gildi
fyrstu dagana i janúar, væri
spáin ekki fjarri markinu.
Þvi væru engar horfur á að
með óbreyttum aðgerðum drægi
úr verðbólgunni á nýja árinu.
Þvert á móti taldi hann liklegt,
að spáin um 42% verðbólgu á
árinu færi nærri lagi. — SJ
Sjúkrahótelið
starfar áfram
„Stjórn RKt telur nú góðar
likur á að finna megi lausn á
rekstrarvanda sjúkrahótelsins
og hcfur þvi verið ákveðiö að
reksturinn haldi áfram fyrst um
sinn og verði timinn fram til 1.
júli notaður til að koma honum á
traustari. grundvöil”, segir i
frétt frá Rauða krossinum.
RKÍ hefur að undanförnu átt
vinsamlegar viðræður við heil-
brigðisráðuneytið um fjárhags-
leg vandamál sem upp hafa
komið i rekstri sjúkrahótels
Rauða krossins iReykjavik.
Stjórn RKÍ álitur að það hafi
komið greinilega fram á siðustu
vikum hve brýn þörf sé á stofn-
un eins og sjúkrahótelinu og vill
þvi leggja sitt að mörkum til
þess að þessi þáttur heilbrigðis-
þjónustunnar falli ekki niður.
— SG
Samningar tókust
við hjúkrunarnema
Samningar hafa nú náðst milli
hjkrunarnema og fjármála-
ráðuneytis um laun hjúkrunar-
nema. Fellur þá niður auka-
vaktabann hjúkrunarnema og
fyrirhugaðar úrsagnir úr
Hjúkrunarskóla islands en um
170 nemar höfðu sagt sig úr
skólanum.
Deila þessi kom upp vegna
þess að hlutfall launa
hjúkrunarnema af kaupi
hjúkrunarfræðinga var lækkað.
Var nú fallist á kröfu
hjúkrunarnema að prósentu-
hlutfall á grunnkaupi héldist
óbreytt frá þvi sem verið hefur
og yfirvinnukaup hækkaði nokk-
uð. 1 frétt frá hjúkrunarnemum
segir að i þessum nýja samningi
séu ýmis mikilvæg atriði sem
áður hefðu aðeins verið munn-
leg loforð en hefðu nú verið sett
inn i kjarasamninginn. — KS.
Fœrðu Krabbameins-
félaginu stórgjöf
Krabbameinsfélagi islands
barst nýlega gjöf aö fjárhæð tvö
hundruð þúsund krónur frá Val-
gerði Þórðardóttur, Gettisgötu
39 hér i borg.
Gjöfin er til minningar um
ömmu hennar og alnöfnu, Val-
gerði Þórðardóttur, f. 18.09.1848,
og foreldra, hjónin Ingibjörgu
Pálmadóttur og Þórð Jónsson.
Var gjöfin afhent á 110. af-
mælisdegi Þórðar en hann var
fæddur 12. des. 1867. Hann lést
1941.1 frétt frá félaginu eru gef-
endum færðar þakkir fyrir
þessa höfðinglegu gjöf.
Beat-dansfyrirdömur ‘
Sérstakir eftirmiödagstímar
fynr dömur sem vilja fá góðar
hreyfingar
SIMI 20345
H5TWLB55BHBB
BRAUTARHOLTl 4. REYKJAVÍ K ^
^AVAVAVAVAVÁV, ^
Innritun daglega frá 10-12
ot 13-19 i simum:
20345 38126 (
74444 24959 \
Kennslustaðir
Reykjavik
Brautarholt 4
Drafnarfell 4
Félagsheimili Fylkis
Kópavogur
Hamraborg 1
Kársnesskóli
Seltjarnarnes
Félagsheimilið
Hafnarfjörður
Góðtemplarahúsið
DHnSSHBII
SÍMI 20345
BRAUTARHOLTI 4. REYKJAVIK
Kennum alla samkvœmisdonsa, nýjustu táningadansa, rokk og tjútt.
Síðasti innritunardagur
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS