Vísir - 03.01.1978, Blaðsíða 8
Hressingarleikfimi fyrir konur
Kennsla hefst aftur fimmtudaginn 5. janú-
ar 1978 í leikfimisal Laugarnesskóla.
Nýtt 8 vikna námskeið fyrir byrjendur
hefst sama kvöld kl. 21.45
Innritun og upplýsingar i sima 33290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir
íþróttakennari
Þriöjudagur 3. janúar 1978
VISIR
Útvegsmenn vestra
horma „einstœða
skammsýni"
Suðurnesjamanna
Fundur i Útvegsmannafélagi
Vestfjarða, haldinn 30. desem-
ber siðast liðinn, lýsti furðu
sinni á viðbrögðum útvegs-
manna á Suðurnesjum vegna
útgáfu á reglugerð sjávarút-
vegsráðuneytisins um veiðar i
þorskanet i vetur.
Er i ályktun fundarins hörm-
uð ,,sú einstæða skammsýni
sem birtist i þvi að Útvegs-
mannafélag Suðurnesja skuli
telja ástæðulaust að taka þessa
reglugerð til eftirbreytni og
verður ekki séð hvernig draga á
úr sókninni i þorskstofninn ef
viðbrögð útvegsmanna i öðrum
landshlutum yrðu hin sömu þeg-
ar samdráttaraðgerðir snerta
þeirra hagsmuni”.
1 ályktuninni er minnt á að
allar samdráttaraðgerðir hafi
til þessa mætt fullum skilningi
hagsmunaaðila. Nefna vest-
firskir útvegsmenn sem dæmi
nýlokið 12 daga þorskveiðibann
er sennilega hafi bitnað harðast
á vestfirskri linuútgerð. Að lok-
um segir orðrétt:
„Treystir fundurinn þvi að
skipstjórnarmenn og sjómenn á
Suðurnesjum láti ekki hafa sig
til þess að brjóta löglegar
ákvarðanir stjórnvalda eins og
þeir eru nú hvattir til, enda þótt
það snerti hagsmuni þeirra i
bili. Gæti slikt haft þær af-
leiðingar fyrir sjávarútveginn
að úr þvi yrði aldrei bætt.
Að lokum átelur fundurinn
harðlega órökstuddar dylgjur
og svigurmæli i garð sjávarút-
vegsráðherra i sambandi við
þetta mál og telur að hann hafi
gætt fyllsta réttlætis i sinu
erfiða starfi og lýsir yfir fyllsta
trausti honum til handa.”
— SG/EKG Bolungarvík
Hitaveita Suðurnesja formlega tekin í notkun:
Iðnaðarráðherra veitir hér heitu vatni inn á dreifikerfið fyrir Kefiavfk og Njarðvfk.Við hllð hans
stendur Jóhann Einvarðsson.stjórnarformaður Hitaveitu Suðurnesja.
• Ljósm. — Heiðar.
Heildarkostnaður
520 milljónir króna
Hitaveita Suðurnesja var
formiega tekin i notkun s.I.
föstudag með þvi að Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra
hleypti vatni inn á dreifikerfi
hita veitunnar. Athöfnin fór
fram við skrifstofuhús Njarð-
vikurbæjar að viðstöddu fjöl-
menni. Að athöfn lokinni var
farið rfélagsheimilið Stapa þar
sem ávörp voru flutt.
Hitaveita Suðurnesja er sam-
eign rikisins og sveitarfélaga á
Suðurnesjum. Eignarhlutur
rikisins er 40% en sveitarfélaga
60%. baö eru vart liðin þrjú ár
siðan fyrsti fundur fyrirtækisins
var haldinn og nú er langt
kom ið að leggja dreifikerfi
fyrir svæðið. Aðveituæð
frá Svartsengi til Njarðvikur
er að mestu lokið og er það
stærsta verk Hitaveitu Suður-
nesja, sem boðið hefur ver-
ið út i einum áfanga og er
heildarkostnaður áætlaður um
520 milljónir króna. Lokið er
byggingu húss yfir fyrsta hluta
varmaorkuvers og hefur iðn-
aðarráðuneytið heimilað Hita-
veitu Suðurnesja að reisa 2ja
megavatta orkuver við Svarts-
engi. Fyrihugað er að afkasta-
geta orkuversins verði orðin
fullnægjandi fyrir byggðarlögin
á Reykjanesi, fyrir utan Kefla-
vikurflugvöll, á þessu og næsta
ári. Stjórnarformaður Hitaveitu
Suðurnesja er Jóhann Ein-
varðsson, bæjarstjóri i Kefla-
vik.
Gunnar Thoroddsen sagði i
ávarpi sinu að framkvæmdir við
Hitaveitu Suðurnesja væru
ævintýri likastar og allt hefði
gengið eins og best væri á kosið
og aðstandendum fyrirtækisins
til sóma. — KS
Jóhann Einvarðsson flytur ávarp. Ljósm. Heiðar