Vísir - 30.01.1978, Síða 1
Gengislœkkunin er ákveðin
Rœtt um vfsitöluskerðingu
Ljóst er nú að
skammt er i að Seðla-
bankinn taki formlega
ákvörðun um lækkun á
gengi krónunnar.
Rikisstjórnin og þing-
flokkar Sjálfstæðis-
manna og Fram-
sóknarmanna hafa upp
á siðkastið rætt ráð-
stafanir i efnahags-
málum vegna halla-
rekstrar útflutningsat-
vinnuveganna. Sam-
kvæmt upplýsingum,
sem Visir hefur aflað
sér verða teknar
ákvarðanir um þessi
efni mjög bráðlega og
verður málið m.a. til
umræðu i þingflokkum
rikisstjórnarinnar síð-
degis i dag.
Lækkun á gengi krónunnar
hefur þegar veriö ákveöin. A
hinn bóginn standa enn yfir um-
ræður um hversu mikil lækkun-
inskuli vera og meö hvaöa hætti
hún skuli koma til fram-
kvæmda. Útflutningur á fram-
leiðslu þessa árs hefst ekki að
marki fyrr en i mars þannig aö
hugsanlegt er aö framkvæma
Þingflokkar rlkisstjórnarinnar hafa undanfariö rætt ráöstafanir i
efnahagsmálum og munu halda þvi áfram siðdegis f dag og er
endanlegra ákvarðana aö vænta fljótlega I þeim efnum.
gengislækkunina meö hröðu sigi
á fjórum til sex vikum.
Eins og sakir standa eru þó
meiri líkur á aö gengislækkunin
verði ákveðin i einum áfanga. I
þingflokkunum hefur veriö rætt
um aö 14 til 20% gengislækkun
myndi nægja til þess að mæta
rekstrarvanda útflutningsat-
vinnuveganna, miðað við að
jöfnuður fengist milli tekna og
gjalda hjá sæmilega vel reknum
fiskvinnslustöðvum.
Ráðstafanirnar verða ekki
miðaðar við að þær stöðvar sem
verst eru reknar beri sig.
Þá hefur verið rætt um að
stöðva með lögum frekari visi-
töluuppbætur á laun. Sam-
kvæmt þessum hugmyndum
myndu umsamdar grunnkaups-
hækkanir koma til fram-
kvæmda en visitöluuppbætur
yrðu afnumdar, nema aö þvi er
varöar lægstu laun. Engin
tekjumörkhafa veriðsett i þeim
umræðum, sem fram hafa farið
um þetta efni, og engar
ákvarðanir hafa verið teknar.
—ÓR
Þaö veröur ekki sagt um þessa þrjá menn aö þeir séu kátir á svipinn. Myndin er tekin á blaöamannafundi eftir leikinn gegn Spánverjum í
Enda kannski engin furöa. Þetta eru Januz Cherwinsky, landsliösþjálf- Danmörku i gær, en á þeim fundi féllu mörg þung orö.
ari, Birgir Björnsson, formaöur landsliðsnefndar og Jón H. Karlsson, Sjá nánar á S siöna iþróttablaði sem fylgir Visi i dag.
fyrirliði handknattleikslandsliösins. —GA/Visismynd Einar
HM-DRAUMI ÍSLANDS LOKIÐ!
Það kom ekki aö ncinu haldi
þótt islensku landsliösmennirnir i
handknattleik og forráðamenn
liösins i HM-keppninni i Dan-
mörku grandskoöuðu and-
stæðingana og leiki þeirra við þá.
islenska liöiö var ekki nægilcga
gott þegar á hólminn var komið
og var slegiö út úr keppninni um
helgina. Þar með gátu menn
pakkað niöur i töskur sínar og
haldiö heim til islands. HM-
draumi islands er þar meö lokiö
og óánægjan er þegar komin upp
á yfirborðiö eins og lesa má i
iþróttablaöi Visis i dag, en þar er
ýniislcgt að finna, enda eru þær
átta talsins.
Visismynd EK i Danmörku.
—klp—
Fyrsti bíllinn
til einhvers
óskrifenda
Visis ó
miðvikudaginn
Janúarseðillinn endur-
prentaður í dag
Tugir nýrra áskrifenda hafa
bæst viö hjá Visi undanfarna
daga. Blööin, sem janúar-
seöill áskrifendagetraunar-
innar var i, eru öll uppseld og
sömuleiðis aukaseölar, sem
fjölritaðir voru til þess aö
dreifa til nýrra áskrifenda.
Þótt naumur timi sé til
stefnu veröum viö þvi aö gripa
til þess ráös aö endurprenta
getraunaseöilinn enn einu
sinni i Visi i dag, og hvetjum
viö þá nýju áskeifendur, sem
enn hafa ekki sent inn seðil aö
gera það strax. Drætti verður
ekki frestað. Klukkan 18 á
miövikudagskvöldiö, 1. febrú-
ar veröur dregið úr réttum
svarscölum nafn þess áskrif-
anda, sem hlýtur fyrsta bilinn
i áskrifendagetraun VJsis,
Derby S, að verðmæti um tvær
milljónir króna.
Aö gefnu tilefni skal tekiö
fram, aö ekkert þýöir fyrir þá,
sem þegar hafa sent inn
janúarseöil aö senda annan
slikan seðil, þvi aö nákværn-
lega er fylgst meö þvi aö eng-
inn áskrifandi komi nema
einum réttum svarseöli i pott-
inn.
RÚSSARNIR KOMA -AFTUR!
Nýi Lada-rússajeppinn var kynntur hér á landi á
föstudaginn var og vakti mikla athygli. Margir
spurðust fyrir um það um helgina hvenær dómur
kæmi um hann í bilaþætti Ómars hér í Visi. Því er til
að svara að ómar Ragnarsson bílasérfræðingur,
reynsluók Lada-jeppanum um helgina og segir álit sitt
á honum strax í dag í bílaþætti Vísis, „Bílarnir og
við". Sjá bls. 12.