Vísir - 30.01.1978, Blaðsíða 7
vism Mánudagur 30 . janúar 1978.
7
Gagnrýnin byggð á
misskilningi
„Sú gagnrýni, sem komið hef-
ur fram hjá þeim aðilum sem
standa að Torfusamtökunum,
um breytingar á framkvæmda-
svæði við Aðalstræti eru á mis
skilningi byggðar. 1 málflutn-
ingi þeirra er rætt um deili-
skipulagstillögu, en það sem við
höfum verið að vinna að er und-
irbúningur undir deiliskipulag,
sem er engan veginn fullmót-
að”,sagði örn Sigurðsson, arki-
tekt, sem starfar hjá Teiknistof-
unni, Garðastræti 17. Starfs-
mönnum þar var falið það verk-
efni af skipulagsyfirvöldum að
vinna að rannsókn uppbygg-
ingarmöguleika á fram-
kvæmdasvæðinu við Aðalstræti
(Hótel fslandsplaninu, eða Hall-
ærisplaninu, eins og það hefur
verið nefnt i seinni tið).
Hugmynd, sem gæti
verið ein af þúsund,
sem kæmu til greina.
Þann 26. júli s.l. samþykkti
skipulagsnefnd Reykjavikur-
borgar fyrir sitt leyti að unnið
yrði áfram að fyrrgreindum
rannsóknum á framkvæmda-
svæðinu. Við það tækifæri höfðu
starfsmenn teiknistofunnar
samband við fjölmiðla og
greindu frá hugmyndum sinum.
„Rikisfjölmiðlarnir sinntu
þessu ekki. Við lögðum fram
þessar hugmyndir til þess að fá
viðbrögð almennings og þeirra
aðila sem hafa hagsmuna að
gæta. Við erum fegnir öllum
hugmyndum sem koma fram
varðandi þetta mál og okkar er
kannski aðeins ein af mörgum
þúsundum sem kæmu til
greina”, sagði örn.
1 tillögum starfsmanna
teiknistofunnar, sem eru þeir
Gestur Olafsson, Hilmar Þór
Björnsson og örn Sigurðsson, er
ekki lagt til að rifin séu ellefu
hús eins og fram kemur i sam-
þykkt Torfusamtakanna.
„Þetta er tilraun til þess að
gæða miðbæinn þvi lifi, sem
margir telja að hann hafi glat-
að”, sagði Hilmar.
Könnun á svæðinu
hefur verið gerð.
Starfsmenn teiknistofunnar
sögðu að fram hefði komið i fjöl-
miðlum, að engin könnun hefði
farið fram á gömlum húsum á
þessu umrædda svæði. Þeir
sögðu þetta ekki rétt. Könnun
var gerð á húsunum i kvosinni,
eða miðbænum, og þar með á
þessu svæði, árið 1969. Það hefði
Hörður Ágústsson og Þorsteinn
Gunnarsson gert. Þeir á teikni-
stofunni sögðu að það yrði að
taka tillit til þess, að sjö ár væru
siðan hún hefði verið gerð og ef
til vill yrði öðru visi staðið að
könnun á svæðinu ef hún yrði
gerð á þessu ári, vegna breyttra
viðhorfa til gamalla húsa.
Arkitektarnir lýstu sig sam-
þykka þvi, sem komið hefði
fram hjá Torfusamtökunum, að
vinna beri að þvi á markvissan
hátt að viðhalda og endurbæta
svæðin umhverfis kvosina og
gera þau að góðum ibúðarhverf-
um. Einnig,aðá þessum málum
verði haldið þannig að full gát sé
höfð i umgengni við gömul hús
og gróin hverfi.
íbúðir við
Aðalstræti.
Starfsmenn teiknistofunnar
töldu, að ibúðir við Aðalstræti
gætu hentað jafnt fjölskyldu-
fólki sem einstaklingum. Torfu-
samtökin hafa gagnrýnt ibúða-
byggð þarna á þeim forsendum
að ekki sé t.d. hægt að hafa þar
leikvelli fyrir börn og þvi stæð-
ust þar ekki ákvæði byggingar-
samþykktar Reykjavikurborg-
ar. Þarna mundi safnast saman
eldra fólk og einstaklingar.
„Eins og áður hefur komið fram
þá er þessi hugmynd okkar að-
eins ein af mörgum, sem koma
til greina, en ekki tillaga að
ákveðinni húsagerð. Þetta eru
einungis frumdrög að skipu-
lagstillögu. Leiksvæði er hægt
að útbúa i nágrenninu, eða jafn-
vel á þökum húsanna, eins og
hefur tiðkast i Evrópu i mörg
ár. Vissulega gæti þetta verið
kjörin ibúðabyggð fyrir ein-
staklinga og aldraða”.
„Vi'ða erlendis þekkist sú hug-
mynd, sem fram kemur i frum-
vinnu okkar að deiliskipulaginu
við Aðalstræti, að byggt sé yfir
torg. Þetta hefur reynst mjög
vel f mörgum löndum t.d. i Dan-
mörku og Hollandi. Þarna er
hægt að hafa mjög gjölbreytta
starfsemi, nánast hvað sem er.
T.d. væri hægt að halda þarna
Iþróttamót, hafa kaffihús, tón-
leika, skákmót og sýningar.
Bifreiðum er ætlaður staður i
geymslum neðanjarðar, undir
torginu, til þess að vegfarendur
geti haft svæðið fyrir sig”, sagði
Hilmar. — KP.
örn Sigurðsson.
Hilmar Þór Björnsson.
Likanið, sem arkitektarnir hafa gert. Það er engan veginn fullmót-
að, heldur hugmynd og henni er hægt að breyta — t.d. með hug-
myndum frá almenningi og þeim aðilum sem hafa hagsmuna að
gæta. Myndir — BP.
Nýkomin styrktorblöð og
augoblöð í eftirtaldar
bifreiðar:
Hœkkið bílinn upp svo að hann taki ekki
niðri a snjóhryggium og holóttum vegum
___ _ ^
Bedford 5 og < tonna augablöð aftan.
Datsun diesel 70-77 augablöð aftan.
Mercedes Benz 1413, augablöð og krókblöð.
Mercedes Benz 322 og 1113, augablöð.
Scania Vabis L55 og L56, augablöð og krókblöð
aftan.
Scania Vabis L76, augablöð og krókblöð.
2” 2 1/4” og 21/2” styrktarblöð i fólksbila.
Mikið úrval af miðfjaðraboltum og fjaðra-
klemmum.
Smíðum einnig fjaðraklemmur eftir máli.
Sendum i póstkröfu hvert á land sem er.
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2, simi 82944.
!^ar/be
0
SUNNUF
MÁLLORCA dagfiug á sunnudögum. Eftirsóttasta paradís
Evrópu. Sjórinn. sólskinið og skemmtanalífið eins og fólk vill hafa það.
Tvær Sunnuskrifstofur og hópur af íslensku starfsfólki. bamagæsla og
leikskóli. Bestu og eftirsóttustu hótel og íbúðir, sem hœgt eraðfá.
COSTA DEL SOL dagflug á föstudögum. Heillandi sumarleyfis-
staður, náttúrufegurð, góðar baðstrendur, fjölbreytt skemmtanalíf og litríkt
þjóðlíf Andalusiu. Nú bjóðum við eftirsóttustu lúxusíbúðimar við ströndina
í Torremolinos Playamar. Sunnuskrifstofa á staðnum.
COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum - mánudögum. Lloret
de Mar, eftirsóttasti skemmtiferðastaðurinn á Costa Brava. Við bjóðum
glæsilegar og friðsælar fjölskyldu íbúðir Trimaran, rétt við Fanals bað-
ströndina og einnig vinsœl hótel.
KANARIEYJAR vetur, sumar, vor og haust, dagflug á laugar-
dögum - fimmtudögum. Sólskinsparadís allan ársins hring. Hægt ér að
velja um dvöl á vinsœlustu og bestu hótelum og íbúðum á Gran Canaria og
Tenerife.
GRIKKLAND dagflug á þriðjudögum. Nýr og heillandi sumar-
leyfisstaður íslendinga. ífyrsta sinn í fyrra beint flug frq íslandi til Grikk-
lands, á rúmum 5 klst. Ný glæsileg hótel og íbúðir. Einnig hœgt að dvelja á
hóteli og smáhýsahverfi á grísku eyjunum. Reyndir íslenskir fararstjórar
Sunnu á stöðunum.
ÍTALÍA —Sorrentó — Kaprí — Róm. Dagjlug á þriðjudögum.
Hœgt að velja um dvöl í hinum undurfagra ferðamannabæ við Napólí-
flóann, ævintýraeyunni Kaprí eða hinni sögufrægu og fögru Rómarborg,
borginni eilífu. íslensk skrifstofa Sunnu íSorrentó og Róm.
KA UPMANNAHÖFN Tvisvar í mánuði. Einu sinni í viku maí-
október. Islensk skrifstofa Sunnu opin í Kaupmannahöfn íjúní-september,
til þjónustu viðSunnujarþega.
LONDON Vikulega allan ársins hring.
KANADA /samvinnu við vestur íslendinga getur Sunna boðið upp
á 2 mjög hagstæðar flugferðir til Winnepeg.
PORTUGAL ífyrsta sinn reglubundið leiguflug beint til Portúgal.
Við höfum valið glæsileg hótel og íbúðir í eftirsóttustu baðstrandar-
bæjunum Estoril og Cascais í aðeins 30 km fjarlægð frá höfuðborginni
Lissabon. Frægir gististaðir kóngajólks, — og nú Sunnufarþega. — á
viðráðanlegu verði. Fjölbreyttar skemmti- og skoðunárferðir og íslenskir
fararstjórar Sunnu á staðnum.
Þúsundir ánægðra viðskiptavina velja
SUNNUFERÐIR ár eftir ár.
Bankastrœti 10
Símar 29322 - 16400 • 12070 og 25060
I