Vísir - 30.01.1978, Side 9

Vísir - 30.01.1978, Side 9
fjórhjóladrif á stóran þátt i ör- uggum aksturseiginleikum bils- ins, en ókostur þess er, að benzin- eyðslan verður svosem 1-3 h'trum meiri á hundraðið heldur en hún væri, ef einungis væri ekið i öðru drifinu. Um órofna f jórhjóladrifið gildir það sama og um grindar- leysið, að kostirnir vega þyngra en gallarnir. Stýri: Ekki létt en öruggt Stýrið hentar betur karlmönn- um en kvenfólki. Það er ágætlega nákvæmt og litið doblað, aðeins þrir snúningar á stýrishjóhnu i borð. Konunni minni fannst það fullþungt, þegar t.d. var ekið úr stæði, og einnig leitast það viðað að halda bilnum i beinni stefnu i kröppum beygj- um, og þarf þvi dálitið átak á móti til þess að beygja eins og þarf. Miðað við aðra jeppa, sem ekki, hafa vökvastýri, eru stýris- eiginleikar Lada þó góðir og öruggir, og ef til ekki sanngjarnt að bera þá saman við laufléttustu smábila. Ágætur fyrir fjóra Lada-jeppinn er ágætur fjög- urra manna bíll. Innanbreiddin er hvorki meira né minna en 1,40—1,42 metrar, svipuð og i Scout, en vegna fjórskálanna er setan á aftursætinu aðeins 1,05 m eða svipuð og á Mini. Nokkra sentimetra vantar upp á, að stór- vaxnir menn hafi alveg nóg fót- pláss i framsætum. I aftursætier hæð ágæt, en rými fyrir hnén i minna lagi. Billinn er allþokkalegur að inn- an og búnaður ágætur, til dæmis aðvörunarljós fyrir innsog, snúningshraðamæhr, vamshita- mælir, oliuþrýstimælir og hleðslumælir, öskubakkar, vindl- ingakveikjari og sólskyggni, svo að eitthvað sé nefnt. Vegna þess, Kveikja og rafkerfi hátt uppi. Lít- ið rými nýtt út i æsar: varahjólið meira að segja hér. 22 cm undir kúlu. 26 cm að framan. Vel hábyggður jeppi. Fer vel á vegi Næst stærsti kostur Lada-jepp- ans er gormaf jöðrunin. Þar hefur verið farinn millivegur á milli stifrar og mjúkrar fjöðrunar og það tekist ágætlega. Þessi bill liggur i beyjum og á óslettum vegi, er i lausamöl eins og gerist hvað best hjá fólksbilum, enda breiður og þyngdarpunkturinn lágur. Þótt afturendi dansi örlitið i slæmum þvottabrettum, , ejr bill- inn er hlaðinn, en það minna en á flestum fólksbilum með stifum afturöxh, og það er með ólik- indum, hve öruggur og hrekklaus þessi bill er á vegi. Vegna þess, hve stutt er milli aftur og fram- hjóla, er hann ekki alveg laus við kubbslegar smábilahreyfingar, en þær eru mun minni en á jepp- um i sama stærðarflokki. ' Ekki er hægt að aka Lada-jepp- anum nema með drifi á öhum hjólum. Mismunadrif á milli fram- og afturhjóla vanrnar þvi að drifið verði fyrir ofreynslu i kröppum beygjum á hörðum, þurrum vegi eða malbiki. I tor- færu er siðan hægt að læsa þessu mismunadrifi með stuttri stöng við hhð girstangar. Þetta órofna f ómar skrifar Ragnarsso umbíla. s* ....1 D Minus: Plús: Hávaði frá vél mætti vera minni. Lágt verð. Hávaði frá hjólum á möl i meira Þróuð hönnun. lagi. Góð gormafjöðrun. Stýri nokkuð þungt. Öruggur i akstri. Lægsti gir heldur hár. Hagstætt hlutfall: Knappt rými fyrir stórfætta. stærð/rými, afl, þyngd/eyðsla. Afturrúða án hita og þurrku. Gott útsýni. Dugnaður i torfærum. Alltaf fjórhjóladrif. hve billinn er þver aö aftan, hefði mátt vera hiti i afturrúðu og jafn- vel þurrka og rúðusprauta. Útsýni er m jög gotLGirskiptíngin er nákvæm og fljót(og aflhemlar. Frágangur er sæmilegur, en gúmmfmotturnar á gólfinu frammi í eru lélegar. Ekkert skrölt var i bilnum, nema örlitið i flautuhring i vissum holum. Duglegur í torfærum. Og þá er það loks heimavöllur- inn: torfærur. Ladan er ekta jeppi, og hann ætti að geta komist nokkurn veg- inn það, sem aðrir jeppar fara. T.d. er sex sentimetrum hærra undir kviðinn en á Willys, Land- rover, Blazer og Ramcharge og svipuð hæð undir drifkúlu. Hönn- un undirvagnsins er afar vel heppnuð. Billinn er með milli- kassa fyrir hátt og lágt drif, en hlutfallið er fulllitið, 1:1,8, og hlutfall milh hæsta girs i háa og lægstailága er 1:6. Það er 1:6,7 á Broncó, 1:11 á Range Rover og 1:4 áSubaru. Ef til vill hafa hönn- uðir Lada ekki þorað að leggja þau átök á drifin, sem mjög lágur lægsti gir býður upp á. En vissu- lega er þessi millikassi þó kostur i samkeppninni við Subaru um hylli kaupenda. Þótt gormar séu á öllum hjólum, er Lada-jeppinn ekki eins þýður i þýfi, eins og Range Rover, nema þá fullhlað- inn. Vegna þess, hve léttur hann Girstöngin er heldur framarlega, því að stengur fyrir hátt og lágt drif og mismunadriflás eru á besta stað. er, aðeins 1150 kiló, er hann lungamjúkur hlaðinn, án þess þd að siga mikið niður en, eins og áö- ur sagði/i meðallagi óhlaðinn. Það er erfitt að hugsa sér annað en þetta sé mjög duglegur bill i snjó. Keppinautarnir Það er greinilegt, að árið 1978 verður gott fyrir þá, sem þurfa á fjölhæfum ferðabilum að halda. Þeir,sem þurfa rúmgóðan, þýðan og háfættan bil til ferða á slæm- um végum og vegleysum, þar sem ekki er um beint torleiði að ræða, eiga kost á Simca Rancho seinna á árinu. Subaru kemur sterklega til greinafyrir þá, sem þurfa drif á öh hjól, en þurfa ekki að fara um mjög grýtt eða úfið landslag. Subaru er japanskur, léttari i stýri en Lada-jeppinn og liklega 3-5 htrum sparneytnari á hundraðið, hefur fimm dyr, en er heldur þrengri i aftursæti, lægri, hefur minni hjól og er heldur hastari að aftan. Eins og frá annarri plá- netu. Siðan er það svo Lada-jeppinn, sem stenst að flestu leyti sam- jöfnuð við aðra jeppa i torfærum, en slær þeim við hvað verð snert- ir, nema kannski rússajeppan- um, sem er þó svo ólikur hinum nýfædda samlanda sinum, að hann er eins og frá annarri plá- netu! Enn á reynslan eftir að leiða i ljós, hvernig hinir nýju ferðabil- ar, sem falla inn Tbilið millifólks- bila og jeppa, eiga eftir að reyn- ast, en eitt er þegar vist, að þeir eiga eftir að setja stórt strik i reikninginn, þegar sölutölurnar fyrir árið 1978 verða gerðar upp. Hvað verð snertir, eru þriggja til fimm ára gamlir jeppar hestu keppinautar þessara nýju ferða- biia. Margir þeirra hafa kannski meira rými, en eyðslan er jafnframt meiri. Rými þolanlegt fyrir meðalstóra Farangursrýmið leynir á sér: ca 350 lítrar. Hægt að leggja aftur- sætið fram, eins og á stationbil. Samanburður i tölum: Lada Sport Subaru Bronco ’74 Lengd milli öxla: 2,20 m 2,45 m 2,33 m Sporvidd: 1,44 m 1,27 m 1,45 m Lengd: 3,72 m 4,03 m 4,15 m Breidd: 1,68 m 1,55 m 1,83 m Hæð: 1,64 m 1,44 m 1,81 m Þyngd: 1150kg 975 kg 1625 kg. Vél: 4 str. 1,6 1. 4str. 1,61. 8str. 4,91. Afl: 76DIN 68DIN 140 DIN Eyðsla: ca 10-16/100 km 8-12/100 km 18-30/100 km Sæti: 4 4-5 4,5 eða 6 Viðbragð: 0-100 km; 23sek. 19 sek. 13,5sek. Hámarkshraði: 130km/klst 145 km/klst 153km/klst Farangursrými: ca 370-1300 1. ca 400-12001. 500/17001. Hæð undir I. punkt: 22 cm 20 cm. 21 cm. Hæð undir hlaðinn: 22 cm 17 cm 21 cm Hæðundirsils: 36 cm 26 cm 44 cm Hæð undir kvið: 33 cm 24 cm 36 cm Hlutf. hæsti/lægsti gir: 1:6 1:4 1:6,7 Beygjuhringur þvermál 11,6m 10,6 m 10,3 m Snúningar á stýri: 3 3,3 5,0 Hjólbarðar: 6,95-16 6,15-13 7,8-15 Hæð upp i gólf: 40 cm 30 cm 57 sm Okkar árlega hljómplötuútsala hófst í morgun Hljóðfærahús Reykjavíkur Laugavegi 96

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.