Vísir - 30.01.1978, Side 19

Vísir - 30.01.1978, Side 19
VTSIR Mánudagur 30 . janúar 1978. ipröttir MBil 3*1-13-84 tSLENSKUR TEXTI Borg Dauðans (The Ultimate Warrior) Hörkuspennandi bandarisk kvikmynd i litum. Aðalhlutverk: Yul Brynner Max Von Sydow Bönnuð innan 16 ára Endursýnd kl. 9 ABBA Sýnd kl. 5 og 7 Hækkað verð ífjþJÓÐLEIKHÚSIÐ ZF11-200 TÝNDA TESKEIÐIN, 30. sýn. miðvikudag kl. 20, föstudag kl. 20. STALÍN ER EKKI HÉR, fimmtudag kl. 20. Litla sviðið: FRÖKEN MARGRÉT þriðjudag kl. 20.30, fimmtudag kl. 20.30. Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200, ÍSLENSKUR TEXTI Bráöskemmtileg og mjög spennandi ný bandarisk • kvikraynd um all sögulega járnbrautalestaferö. Bönnuð innan 14 ára Sýnd kl. 5, 7,10 og 9.15. ,- hafnarbíó 3* 16-444 Ævintýri leigubílstjór- ans Bráðskemmtileg og djörf ný ensk gamanmynd I litum, Barry Evans Judy Geeson Diana Dors íslenskur texti kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Arena Æsispennandi amerisk lit- mynd Isl. texti. Sýnd kl. 9 Bönnuð börnum. Allra siðasta sinn. Mánudagsmyndin Hvað? (What) Mjög umdeild mynd eftir Pol- anski. Myndin er að öðrum þræði gamanmynd en ýmsum finnst gamanið grátt á köflum. Sýnd kl. 5, 7 og 9 Allra siðasta sinn 'mipsjón: Arnl Þórarinsson o^Guöjón ArngrÖnsson? 3^ 1-89-36 Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 Hækkað verð.Bönnuð innan 12 ára. "lonabíó 3*3-11-82 Gaukshreiðrið (One flew over the Cuckoo's nest.) Gauks.hreiðrið hlaut' eftirfarandi óskarsverð- laun: Besta mynd ársins 1976 Bestileikari: Jack Nicholson Besta leikkona: Louise Fletcher Besti leikstjóri: Milos Forman Besta kvikmyndahandrit: Lawrence Hauben og Bo Goldman Bönnuð börnum iniian 16 ára. Sýnd kl. 5, 7,30 og 10. Hækkað verö. Gamla bíó: Tölva hrifsar völdin ★ ★ + Pabbi minn tölvan Demon Seed — Tölvan hrifsar völdin, Gamla bíó. Bandarísk. Árgerð 1977. Aðalhlutverk: Julie Christie/ Fritz Weaver, Gerrit Graham. Handrit: Robert J. Jaffe og Roger O. Hir- son, byggt á sögu Dean Koontz. Leikstjóri: Donald Cammell. Eitt algengasta viðfangsefni science-fiction kvikmynda og skáldsagna er stefið um mann- lega þekkingarleit á viliitögum — um það þegar fróðleiksþorsti og metnaður visindamanna leiðir yfir þá og aðra bölvun og ógæfu. Þetta er stefið um sköp- uöinn, sem missir tök á skepnu sinni, skepnu sem snýst gegn skapara sinum. Af’þessum toga er einhver fyrsta visindaskáld- sagan (þótt reyndar sé hún margt annað lika), Franken- stein eftir Mary Shelley. Vis- indamaðurinn glatar yfirráðum yfir visindunum. Vélarnar taka völdin af höfundum sinum, mönnunum. i þessari kvikmynd Gamla biós er það tölva sem tekur völdin eins og segir i is- lenskum titli. Proteus heitir hún, og er rcyndar karlkyns. Myndin gefur engar skýringar á þvi i hverju munurinn á karlkyns- og kven- kynstölvum felst. En Proteus er súpertölva, óhugnanlega mann- leg, enda er heili hennar lifrænn i uppbyggingu. Höfundur Pro- teusar er Alex Harris, visinda- maður extraordinaire (Fritz VVeaver), sem starfar fyrir stór- fyrirtæki. Harris og kumpánar hans sjá fyrir sér, að Proteus, sem i reynd er alviturt skyn- semisafl, geti leyst úr hvaða verkefnum sem er, fyrir ein- staklinga, félög, fyrirtæki, rlkisstjórnir. En ckki liður á löngu uns Pro- teusi ofbýður, sem hreinrækt- ......... uðu skynsennsafli, heimska mannanna sem þykjast stjórna honum. Og þegar Harris óskar eftir upplýsingum um málrn- vinnslu á hafsbotni neitar Pro- teus að svara á þeim forsendum að það sé óskynsamlegt að fórna sjávarlifi fyrir fégræðgi mann- anna. ,,,Ég neita að hjálpa ykkur til að nauðga jörðinni”, segir Proteus andófstölva. Afturámóti lætur hann sig ekki muna um að nauðga frú . Harris, eiginkonu skapara sins (Julie Christie),og flyst nú sag- an að mestu á heimili hennar þar sem Proteus heldur henni i stofufangelsi. i hvaða tilgangi? Jú hann vill geta með henni barn. Þetta er býsna furðuleg saga. Visindaskáldskapur er, vel að . merkja, furðulegur. Og vel má vera að framtið mannkynsins verði enn furðulegri en nokkur visindaskáldskapur. i skáld- skap og kvikmyndum af þessu tagi veltur allt á þvi hversu vel sagan er sögð. Ævintýri geta oröið veruleiki ef þau eru sögð af innlifun, hugkvæmni og sann- færingarkrafti. The Demon Seed skortir þetta að miklu, en ekki öllu, leyti. Ilugmyndin er skemmtileg fyrir minn smekk: Hin full- komna vél, skynsemin uppmál- uð, reynir að semja frið við mannkyniö með þvi að geta barn með því, — barn sem hefur fullkomna skynsemi vélarinnar en mannlega eiginleika að auki. Þessari hugmynd tekst ekki að koma nægilega vel til skila. Donald Cammell leikstjóri hefur einkum unniö sér það til frægðar að hafa gert Perfor- mance i félagi við Nicolas Roeg (og líka fyrir að vera meintur guðsonur Aleister Crowley, galdrameistara). Meira hefur orðið úr Roeg en Cammell. Hann sýnir hér góð tilþrif með köflum, en megnar ekki að halda lygilegri sögunni saman. Fyrri parturinn er t.d. alltof hægur, en Cammell gerir góða hluti i siðari helmingnum þegar Proteus fer að gera sér dælt við frúna. Þar blandar Cammell oft Cammell (i dökku skyrtunni) leikstýrir viðureign Julie Christie við kynóðar maskinurnar... skemmtilega saman húmor og viðbjóði. Honum til mestrar hjálpar eru þau Julie Christie, sem fer illa af stað en nær sér vel á strik seinni partinn i mjög erfiðu hlutverki, og svo Proteus sjálf- ur, sem talar með mjúkri ismeygilegri röddu Robert Vaughans, leikara. Aðrir leik- arar, einkanlega Fritz Weaver, trúa greinilega ekki á verkefnið eða valda þvi ekki. Burðarás visindaskáldskapar á hvita tjaldinu er oftar en ekki tækni- leg bellibrögð (special effects). Sú deiid hefur að mestu brugðist i The Demon Seed (sem er of bjálfalegur titill fyrir þessa mynd, — m.a.s. sá islenski er betri). Myndataka Bill Butlers er afturámóti góð, og hann not- ar oft vel sjónarhorn tölvunnar sjálfrar. —AÞ uo ★ ★★ ★★★ ★★★★ afleit slöpp la-la ágæt framúrskarandi Ef myndin er talin-heidur betri en stjörnur segja til um fær hún að auki ★ Tónabíó: Gaukshreiðrið ★ ★ ★ ★ Laugarásbíó: Viðvörun — 2 mín.^ ★ Nýja bió: Silfurþotan ★ ★ ★ Regnboginn: Járnkrossinn ★ ★ ★ -f Raddirnar^ ★ Austurbæjarbíó: ABBA ★ ★ ★ Stjörnubíó: The Deep ★ ★ ★ Háskólabió: Black Sunday^ ★ ★ + Gamla bíó: Demon seed ★ ★ One Sniper. 3*3-20-75 Aðvörun — 2 mínútur Hörkuspennandi og við- buröarik ný mynd, um leyni- skyttu og fórnarlömb. Leikstjóri: Larry Peerce. Aöahlutverk: Charlton Heston, John Cassavetes, Martin Balsam, Beau Bridges. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7,30 og 10. 19 OOO salurA- Sjö nætur i Japan Michael York Hidemi Aoki Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9 og 11.10 salur Járnkrossinn Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.40. Flóðið mikla Sýnd kl. 3.10 salur Cs Raddirnar Sýnd kl. 7.10, 9.05 og 11 Draugasaga Sýnd kl. 3 , 5.05, 7.05, 9 og 11.10 Félagsprentsmiðjunnar hf. Spítalastíg 10 — Sími 11640 Leiklistar-klúbburinn Aristofanes Fjölbrautaskólinn Breiðholti Sýnir: ^MBÉTVU 1M 'Sfj KF' i)f f;.i sisai eftiv 19etcv Vstinov í Breiðholtsskóla Fjórða sýning: Þriðjud. 31/1. kl. 8.30 Miöasala við innganginn.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.