Vísir - 07.03.1978, Qupperneq 2
Ví'sír á Vopnafirði
Vísir á Vopnafirði
Fiskimjölsverksmiðjan á Vopnafiröi i fullum gangi við loðnubræöslu. Gufumökkur stigur upp af verksmiðjunni I snjókomu og
dimmviðri.
Hafa 90 þúsund á viku
í loðnuverksmiðiunni
„Verðmœti loðnuafurðanna um 400 milljónir eftir 45 daga vinnslu á síðasta ári/#
segir Sigurjón Þorbergsson, framkvœmdastjóri Tanga hf. á Vopnafirði á við Vísi
Þriðjudagur 7. mars 1978
vism
Kristján Eggert Gunnarsson,
nemi: Það verður að vera ein-
hver timi á milli þessara
tveggja kosninga, vika að
minnsta kosti.
* f MÉb
■m-4
Á \ ■ •
Jónas Jónsson: Mér finnst það
alveg sjálfsagt að kosið verði
sama daginn.
■<---------------------HK
Tveir þriðju ibúanna i byggðar-
laginu komust á launaskrá hjá
Tanga h.f. á siðasta ári, eða 420
af 610 manns. Þessi götumynd
er frá Vopnafirði og er Hótel
Tangi til hægri á myndinni.
í Reykjavík
Guðmundur Bergmann: Já, það
myndi spara — það er jú það
sem allir eru að tala um. Auk
þess væri þetta þægilegra fyrir
fólkið — þá þyrfti það bara að
fara einu sinni á kjörstað.
Kristin Þorbjörnsdóttir, próf-
arkalesari: Mér finnst það
sjálfsagt, það sparar jú kostnað.
það er erigin hætta á að sveitar-
stjórnakosningarnar gleymist.
Það verður að treysta fólki til að
fylgjast með þvi sem er að ger-
ast i þjóðfélaginu.
„Það er unnið af fullum krafti
við loðnubræðslu hjá okkur
þessa dagana og ætti loðnan
sem nú er komin i geymsluþrær
verksmiðjunnar að endast okk-
ur fram undir 20. mars”, sagði
Sigurjón Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri Tanga h.f. á
Vopnafirði,i samtali við Visi i
gær.
Þrátt fyrir þetta sagði Sigur-
jón, að heldur væri þungt i þeim
hljóðið, Vopnfirðingum, vegna
þess að engin loðna hefði borist
þangað siðan 23. febrúar. Þeir
gerðu sér þó vonir um að tals-
verðum afla yrði enn landað á
Vopnafirði á loðnuvertiðinni
enda væriálika langt af miðun-
um út af Hornafirði til Vopna-
fjarðar og Vestmannaeyja.
Brætt allan sólarhring-
inn.
Þeir Vopnfirðingar sem tið-
indamaður Visis hitti að máli
þar eystra voru sammála um að
loðnuvertiðin væri gifurleg
lyftistöng fyrir atvinnulifið i
kauptúninu, ekki sist þar sem
hún stæði sem hæst einmitt á
þeim tima ársins, þegar mesta
deyfðin hefði verið yfir atvinnu-
málum staðarins.
„Það eru 38 manns, sem
vinna i loðnuverksmiðjunni á
vöktum og hefur þetta fólk yfir-
leitt um 90 þúsund krónur á viku
ámeðan brætter með fullum af-
köstum”, sagði Sigurjón Þor-
bergsson, framkvæmdastjóri.
Hann kvað unnið á átta tima
vöktum allan sólarhringinn,
þannig að hver starfsmaður
ynni 16 tima á sólarhring.
„Við höfum geymslurými
fyrir 11000 lestir af loðnu hér i
verksmiðjunni, en með fullum
afköstum eru bræddar 400 lestir
á sólarhring. Núna höfum við
tekið á móti um 16000 lestum á
vertiðinni, og ættum að fram-
leiða Urþvi magnium 2500lestir
af mjöli og um 1100 lestir af
lýsi”, sagði Sigurjón.
Norglobal setur strik i
reikninginn
„Ef Norglobal hefði ekki
fengið starfsleyfi hér við land er
enginn vafi á þvi, að hjá okkur
værunú allar geymsluþrær full-
ar. Þettaverksmiðjuskip sem er
nú hér við Austfirðina setur
mikið strikireikninginnhjá okk- •
ur og má nánast segja, að það
samsvari þvi að kominn væri
nýr fjörður með nýja verk-
smiðju hér fyrir sunnan okkur,
og það er eðlilegt að skipin fari
þangað sem styst er að fara með
aflann. En svo geta menn velt
þvi fyrir sér, hvort sé þjóðhags-
lega hagkvæmara, að láta út-
lendinga vinna aflann þarna um
borð i verksmiðjuskipinu eða fá
hann til þessara islensku mjöl-
verksmiðja og láta islenskt
verkafólk njóta góðs af verð-
mætasköpuninni.”
Meiri hluti ibúanna á
launaskrá hjá sama
aðila.
Hlutafélagið Tangi var stofa-
að árið 1966 og annast það út-
gerð eins skuttogara/Brettings,
völdum skæðrar inflúensu sem
Telur þú að það ætti að
vera sami kjördagur bæði
til alþingis- og sveitar-
stjórnakosninga?
Jakob Benediktsson, verka-
maður: Nei, ég tel að alþingis-
kosningar eigi að vera á undan.
Að öðrum kosti er hætt við að
þjóömál blandist inn i bæjar-
stjórnakosningarnar.
Sigurjón Þorbergsson, fram-
k v æ m d a s t j ó r i : „Koma
Norglobals hingað samsvarar
þvi að kominn væri nýr fjörður
með nýrri Ioðnuverksmiðju hér.
fyrir sunnan Vopnafjörð”.
rekstur frystihúss, fiskverkun
og rekstur fiskimjölsverk-
smiðju. Starfsmannafjöldi er að
jafnaði um 120 manns, en að
sögn Sigurjóns Þorbergssonar
komust um 420 manns á Vopna-
firði á launaskrá hjá fyrirtæk-
inu á siðasta ári. Til marks um
það, hve stór atvinnurekandi
þetta fyrirtæki er á staðnum,
má geta þess, að ibúar i Vopna-
fjarðarkauptúni eru nú 610 og í
Vopnafjarðarhreppi búa 867
manns.
„Nú sem stendur vantar okk-
ur fólk til vinnu”, sagði Sigurjónf
„togarinn er nýkominn inn með
góðan afla, 115 tonn, og það
vantar ekki verkefni. Núna eru
45 manns starfandi i frystihús-
inuog 15 i saltfiskverkuninni, en
undanfarið hafa verið alimiklar
fjarvistir vegna veikinda af
1 samtalinu við Visi nefndi
Sigurjón Þorbergsson glöggt
dæmi um það hve umfangsmik-
ill þáttur i verðmætasköpun
Tanga hf. loðnuvinnslan væri.
Hann sagði að heildarverðmæti
afurðanna á siðasta ári hefði
numið um 1000 milljónum
króna, en loðnuvinnslan sem
staðið hefði aðeins 45 daga árs-
ins hefði skapað hvorki meira
né minna en um 400 milljóna
króna verðmæti af þessari upp-
hæð.
Að sögn Sigurjóns er þó loðnu-
vinnslan alls ekki jafnarðvæn-
leg og sildarvinnslan var á sin-
um tima. Við loðnuvinnsluna
reyndust afurðirnar um 20% af
heildarþunganum, sem landað
væri hjá verksmiðjunni, en 60%
af heildarþunga sildaraflans
hefði skilað sér i mjöli og lýsi.
Mikill áhugi fyrir kol-
munna
Vopnfirðingar reyndu til-
raunavinnslu á kolmunna i
, bræðslu 1963 og 1964 og eru þeir
mjög áhugasamir um að lögð
verði aukin áhersla á tilrauna-
veiðar og vinnslu á þeim fisk-
stofni.
„Við vitum, að þessi fiskur er
i miklu magni hér i kringum
landið, einkum i júli og ágúst-
mánuði”, sagði Sigurjón er tal-
ið barst frá sild og loðnu að kol-
munnanum, og bætti við: Að
sjálfsögðu eigum við að nýta
kolmunnann en það sem stendur
helstá er að sjómennirnir okkar
komist upp á lag með að veiða
hann. Þeir hafa reynt flottroll
og fengið 40 til 50 tonn i hali, en
það má ekki gefast upp heldur
verður að halda áfram tilrauna-
veiðum þar til bestu veiðiað-
ferðirnar eru fundnar. Við verð-
um ekki i vandræðum að vinna
kolmunnann, þegar hann er
kominn á land”. -OR.
hefur herjað á okkur hér á
Vopnafirði.
Einn fimmti nýtist úr
loðnunni