Vísir - 07.03.1978, Síða 3
3
m
vism Þriðjudagur 7. mars 1978
ÁTTA MANNS HUNDR-
AÐ ÁRA OG íLDRI
HÉR Á LANDI
Nú eru á lífi hér á landi átta manns hundrað ára og
eldri. Elst núlifandi Islendinga er Halldóra Bjarnadóttir
á Blönduósi en hún varð 104 ára um miðjan október. Elsti
núlifandi karlmaðurinn er 101 árs.
Færri en eitt hundrað Is-
lendingar hafa náð hundrað ára
aldri á þessariöld. Karlmenn eru
miklu færri en konur i þessum
hópi eða færri en tuttugu af þess-
um eitt hundrað einstaklingum.
Meðalævi kvenna er 77,5 ár en
karla 71,6 ár. Þessar upplýsingar
koma fram i Fréttabréfi um heil-
brigðismál, sem Krabbameins-
félagið gefur út.
Hæstum aldri náði Helga
Brynjólfsdóttir i Hafnarfirði en
hún var 106 ára og hálfnuð með
107. árið, þegar hún lést, i
desember árið 1953.
Kristján Jóhann Jónsson i
Lambanesi i Fljótum i Skagafiröi
hefur orðið elstur karla hérlendis
á þessari öld. Hann lést i desem-
ber árið 1959 og var þá 104 ára.
—KP
Ljóðakórinn í
stað
Dómkórsins
„Við höfum fengið Ljóðakór- kórinn hætti að syngja þar.
inn til að aðstoða okkur við Kórinn sendi safnaöarnefnd-
guðsþjónustur i kirkjunni, og inni bréf þess efnis að hann
hina ýmsu organista”, sagði hætti störfum meðan óbreytt
Hjalti Guðmundsson, dóm- ástand rikti hvað varðar mál
kirkjuprestur, þegar Visir innti Ragnars Björnssonar, dóm-
hann eftir hvernig tónlist væri organista, en honum var vikið
háttað i kirkjunni, eftir að Dóm- úr starfi i byrjun febrúar.-KP.
Bornakór á
kirkjukvöldi í
Laugarnessókn
Næstkomandi miðvikudag 8.
mars, kl. 20.30 verður kirkjukvöld
iLaugarneskirkju. Að þessusinni
mun Barnakór Oldutúnsskólans i
Hafnarfirði syngja nokkur lög
undir stjórn Egils R. Friðleifs-
sonar. En eins og kunnugt er hef-
ur þessikórtekiðþátt i norrænum
söngkeppnum og staðið sig með
afbrigðum vel.
Ræðumaður á kirkjukvöldinu
verður Guðmundur Ingi Leifsson,
námsstjóri. Fjallar hann um efn-
ið: Neyð náungans. Guðmundur
Ingi hefur sérmenntun i uppeldis-
fræðum og hefur starfaö að skóla-
rannsóknum. Einnig hefur hann
unnið mikið að kristilegum æsku-
lýðsmálum, bæði i KFUM og á
vegum þjóðkirkjunnar.
Organisti kirkjunnar, GUstaf
Jóhannesson, mun einnig leika á
orgel kirkjunnar eitt verk eftir
Joh. Seb. Bach.
ÁREKSTRAMET!
Talið er að árekstrar hafi
aldrei orðið fleiri i Reykjavík á
einum degi en þeir urðu á föstu-
daginn var. Þá urðu alls 52
árekstrar á götum borgarinnar
og er ekki vitað til þess að þeir
hafi orðið svo margir áður. t öll-
um árekstrunum var um að
ræða tvo bila sem ientu saman,
nema i einum, þegar fjórir bílar
rákustá.Ekkivarvitaðum nein
alvarleg slys i þessum árekstr-
um.
— EA
llla búnir
bílar ollu
vandrœðum
Það olli töluverðum vandræð-
um á vegum, að fólk lagði óhikað
upp í ferðir á bilum sem voru iila
búnir til vetraraksturs. Lentu
töluvert margir i erfiðleikum fyr-
ir ofan Hafnarfjörð, á leiðinni
austur fyrir fjall og i Mosfelis-
sveit.
Arnkell Einarsson, vegaeftir-
litsmaður, sagði Visi aö bilarnir
hefðu eiginlega valdiö jafnmikl-
um erfiðleikum og snjórinn.
í gær var búið að opna veginn
austur um Þrengsli, og verið að
hreinsa af vegum i grennd við
Selfoss. Hellisheiðin var ófær.
Fært var fyrir Hvalfjörð, upp i
Borgarfjörð, og stórum bilum
fært um Holtavörðuheiði.
— OT.
opnar fyrir
norðan
„öll okkar snjóruðnings-
tæki eru búin að vera i gangi
dag og nótt siðan á iaugar-
dagsmorgun,” sagði Páll
Þorsteinsson, hjá vegagerð-
inni á Sauðárkróki, i
morgun.
,,0g það er ennþá verið aö.
Það er nú búið að opna aliar
aðalleiðirog veriðað aðstoða
með mjólkurflutninga og
annaö inn dalina.
Snjórinn er misjafn-
lega mikill á hinum ýmsu
stöðum, sums staðar eru
miklir skaflar enautt á milii.
Langmestur var snjórinn á
Siglufjarðarleiðinni, en hún
er nú opin.” —ÓT.
Davíð varpaði sprengju ó EFTA-fundi:
Davið Scheving með stafla af bókum sem hann hafði með sér á EFTA-fundinn og hafa að geyma
upplýsingar um opinberan stuðning i EFTA-löndum. Með honum á myndinni eru framkvæmdastjór-
ar Féiags Islenskra iönrekenda, Haukur Björnsson og Pétur Sveinbjarnarson. (Visism. JA.)
„SUMIR FULLTRÚANNA
URÐU ÆFIR EN TILLAG-
AN VAR SAMÞYKKT
„Sumir fulltrúanna i nefnd-
inni urðu alveg æfir þegar ég
lagði fram tillögu okkar og
ræddi hana. Ég nefndi allar teg-
undir af styrkjum sem EFTA
löndin veita iðnaði sinum, og
sérstaklega reiddist sænski full-
trúinn og sagði þetta helbera
vitleysu. Það sljákkaöi þó I hon-
um þegar ég rak i hann sænska
handbók um styrkina og hvern-
ig ætti að sækja um þá”, sagði
Davið Scheving Thorsteinsson á
fundi með fréttamönnum I gær.
Tillagan, sem Davið flutti á
fundi ráðgjafanefndar EFTA i
nóvember siðast liðnum og vis-
að var til undirnefndar um efna-
hags-og félagsmál, var tekin til
umræðu i efnahags- og félags-
málanefndinni á föstudaginn
var i Sviss. I tillögunni var gert
ráð fyrir þvi að rannsókn færi
fram á stuðningsaðgerðum hins
opinbera, i EFTA- og EBE-
löndum, til iðnaðarins.
Þessi opinberi stuðningur hef-
ur verið mjög i felum, en ýtir i
raun og veru allri frjálsri sam-
keppni til hliðar. Davið sagði, að
island væri eina landið sem ekki
hefði tekið upp slikar stuðnings-
aðgerðir og ekki væri neinn
möguleiki á að gera það. Stuðn-
ingurinn i nágrannalöndum
okkar hefur stórspillt sam-
keppnisaðstöðu okkar og Félag
islenskra iðnrekenda segir, að
einhliða/ timabundin frestun
tollalækkunar samkvæmt
samningum við EFTA og EBE
sé þvi fyllilega réttlætanleg.
Tillagan sem Davið lagði
fram og samþykkt var efnislega
á fundi efnahags- og fé'->gs-
málanefndar er stór sigur fyrir
baráttu islenskra iðnrekenda
sem fram til þessa hafa staðið
einir i baráttunni fyrir eðlilegri
samkeppnisaðstöðu okkar.
Lagt er til við ráðgjafanefnd
EFTA, að hún mæli með þvi við
EFTA- ráðið að safnað verði
upplýsingum um rikisaðstoð og
annan opinberan stuðning innan
EFTA. Rannsóknin skal beinast
að öllum tegundum opinberra
styrkja og stuðningsaðgerða til
sérstakra greina iðnaðar, svo og
til útflutningsiðnaðar.
Á grundvelli þess efnis sem
safnað verður ber að rannsaka,
hvort og i hve miklum mæli
þessar styrktaraðgerðir hafi
áhrif á og trufli frjálsa sam-
keppni og séu þannig i andstöðu
við anda Stokkhólmssamnings-
ins sem lagði grundvöllinn aö
EFTA.
Næst verður málið tekið upp i
ráðgjafanefnd EFTA i næsta
mánuði og ef það kemst þar i
gegn fer það fyrir ráðherrafund
EFTA sem haldinn veröur i
mai.
„Við höfum opnað þetta mál
á alþjóðavettvangi og það hefur
vakið verulega athygli. Ég vona
að árangurinn verði eftir því”,
sagði Davið Scheving
Thorsteinsson, formaður Félags
islenskra iðnrekenda. —SG
GEYMIST IKÆLI
hreinn
appelsinu
cafi
ER ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA