Vísir - 07.03.1978, Blaðsíða 7
vism Þriðjudagur 7. mars 1978
Fjöldahandtökur í Zaire
Sextiu og sjö liösforingj-
ar og tuttugu og fjórir ó-
breyttir borgarar hafa
veriö handteknir fyrir
samsæri, sem beindist
gegn Mobuto Sese Seko,
forseta Zaire, eftir því sem
Azap-fréttastofan í Kins-
hasa greindi frá í morgun.
Mennirnir verða dregnir
fyrir rétt á morgun.
Mobutu forseti sagði i viðtali
við fréttastofuna, að þarna hefði
ekki verið um að ræða nein bylt-
ingaráform, heldur hryðjuverka-
áætlanir, sem erlendir aðilar
hefðu staðið að.
Hann sagði, að allt frá 1976
hefðu þrjú erlend riki unnið að þvi
að spilla liðsforingjum hersins, og
hefði verið ætlunin að vinna
skemmdarverk á mannvirkjum i
Zaire, eins og vatnsaflsvirkjun-
inni i Inga, leiðslunni milli
Matadi-Kinshasa, og á sendiráð-
um.
Mobutu sagði, að herinn hefði á
dögunum gengið milli bols og höf-
uðs á uppreisnarmönnum i Band-
undu. Fjórtán foringjar uppreisn-
armanna voru handteknir, dregn-
ir fyrir herrétt, dæmdir til dauða
og teknir af lifi.
■
:
Ifllll®
"
Nóðu sambandi við Skylob
Stjórnendur geimferða-
stöðvarinnar á Canaveral-
höfða hafa loks náð sam-
bandi við Skylab-geim-
rannsóknarstöðina, sem
þeir misstu stjórn á fyrir
f jórum árum.
bessi 85 smálesta geimstöð,
sem fyrrum hýsti þrjár áhafnir
geimfara hefur stöðugt misst
Teikning af Skylab-geimstöð-
inni, þar sem bandariskar
áhafnir dvöldu hvað lengst úti i
geimnum.
200 vitni í réttar-
höldum lœknisins
Mario Jascalevich,
læknir, sem ákærður hef-
ur verið fyrir að hafa
myrt fimm sjúklinga
sína, fyrirtólf árum, með
örvaeitri S-Ameríkuindí-
ána, er ekkert annað en
fórnardýr afbrýðisamra
starfsbræðra sinna, eftir
því sem lögfræðingur
hans og verjandi segir.
Verjandinn sagði fyrir
réttinum í gær, að ungir
og metnaðarfullir læknar
vildu gjalda skjólstæðingi
hans rauðan belg fyrir
gráan, þar sem hann
hefði verið byrjaður að
rannsaka tíð dauðsföll
sjúklinga þeirra.
Hinn fimmtugi læknir
er sakaður um að hafa
myrt fimm sjúklinga á
Riverdale-sjúkrahúsinu,
þar sem hann er yfir-
skurðlæknir.
Sækjandi segir, að tor-
trygginn starfsbróðir
Jascalevich hafi fundið
„curare"-eitur o g
sprautu í skrifborðs-
skúffu hans skömmu
eftir hin dularfuliu dauðs-
föll. Kvaðst sækjandi
ætla að leiða fram 200
vitni i málinu, og mundu
sum þeirra ber þe 3, að
Jascalevich hefði verið
fjárvana um það leyti,
sem morðin eru sögð hafa
verið_f ramin.
meiri hæð, en menn höfðu búist
við. Eru menn farnir að reikna út
að með sama áframhaldi rekist
hún á jörðina árið 1980.
G e i m v i s i n d a m e n n á
Canaveralhöfða vilja reyna að
færa geimstöðina utar i geiminn á
nýja braut, en að öðrum kosti ná
leifum hennar heilum til jarð-
ar. Sendistöð geimferðastofn-
unarinnar bandarisku á Bermúda
sendi Skylab merki i gær og átti
það merki að setja stjórntæki
stöðvarinnar i gang. Tók þá
geimstöðin að senda upplýsingar
til baka og stóð sending i tvær
minútur. Siðan ekki söguna meir.
Þyrlu-
slys
Einn af miðstjórnarmönnum
austur-þýska kommúnistaflokks-
ins, Werner Lamberz, fórst i
þyrlu sem brotlenti hjá Tripóli,
höfuðborg Libýu, i gærkvöldi.
Farþegar og áhöfn þyrlunnar fór-
ust allir, alls eliefu menn.
Lamberz var þarna i heimsókn,
sérstakra erinda, á vegum Erich
Honeckers, leiðtoga austur-þýska
kommúnistaflokksins. Voru þrir
Þjóðverjar aðrir i för með hon-
um.
Lamberz var sérfræðingur i
málefnum Austurlanda nær.
Hann var siðast á ferðinni á þess-
um slóðum i desember, þegar
hann heimsótti ungkommúnista i
Suður-Jemen og Eþiópiu.
Tokyo hristist
í tvœr mínútur
Kröftugur jarðsk jálfti fór
um meirihluta Japans i morg-
un og þar á meðal höfuðborg-
ina, Tokyo. Engar fréttir hafa
borist af meiðslum á fólki eða
spjöllum á mannvirkjum.
öflugasti kippurinn mældist
7.8 stig á Richterkvarða, en
mesti þrótturinn var úr
skjálftanum, þegar hann náði
landi. Hafði hann átt upptök
sin i Kyrrahafi. — Stærstu
byggingar i Tokyo hristust i
tvær minútur samfleytt.
Mynd órsins
Táragas-ógnin var þessi frétta-
mynd kölluð, en hún var tekin I
Suður-Afriku af blökkumönnum
á flótta undan táragasáhlaupi
Iögreglunnar. Fólkið hafði efnt
til mótmælaaðgerða til að and-
mæla bágum kjörum og aðbún-
aði i nauðungarbúðum, sem þvi
hafði verið smalað i. — Myndina
tók Leslie Hammond frá Höfða-
borg og fékk hún fyrstu verð-
laun sem „Fréttamynd ársins”
I alþjóðlegri samkeppni frétta-
ljósmyndara.
Útbreiddasta
uppsláttar-
bókin
ÍSLENSK FYRIRTÆKI er
útbreiddasta fyrirtaekjaskrá
landsins, innanlands og utan.
Hún er notuð af stjórnendum og
starfsmönnum fyrirtækja og
öðrum sem þurfa að hafa
aðgang að ítarlegum og
aðgengilegum upplýsingum
þegar þess gerist þörf.
Sláið upp í
ÍSLENSK FYRIRTÆKI
og finnið svarið.
ÍSLENSK
FYRIRT/SKI
Ármúla 18.
Símar 82300 og 82302