Vísir - 07.03.1978, Side 8
Þriðjudagur 7. marz 1978.
VÍSIR
Gullæöið greip hinn veikgeöja"
vlsindaniann og hann safnaði
þvi saman gráðugum fingrum
Meðan Kirby þjálfar sig
Hvernig verður styttan?
Það hefur endanlega verð samþykkt að gerð
verði stytta af Bítlunum og henni komið fyrir í
Liverpool. Um tíma var það mjög umdeilt og
, eldri embættismenn í Liverpool voru mjög á móti
því að þeir John, Paul, Ringo og George skreyttu
bæinn. Hugmyndin var borin upp í október og
mun nú komast í f ramkvæmd. Það á aðeins eftir
að ákveða hvernig styttan á að líta út. Fjórir
hafa þegar lagt f ram tillögur sínar en þær á eftir
að ræða. Þá hef ur sú hugmynd nú komið f ram að
i safni bæjarins verði komið upp sérstakri
Beatlesdeild.
Vildi
verða
njósnori
Peter Falk, eða Columbo
eins og hann heitir i sjónvarp-
inu, sótti um starf hjá CIA
löngu áöur en hann gat sér
frægö fyrir leik. Hann var þá
rúmlega tvitugur og átti sér
þann draum að veröa njósn-
ari. „Eg imyndaði mér að
njósnarar lifðu sérlega spenn-
andi og rómantisku lifi”, segir
hann. En hann fékk ekki tæki-
færi til að sannreyna það.
Hann sótti um, en þeir hjá
CIA kærðu sig ekkert um liðs-
aukann og Falk var visað á
dyr með þeim tilmælum að
hann leitaði sér að starfi ann-
ars staðar. Eftir það sneri
hann sér að leiklistinni, og sér
hann varla eftir þvi I dag.
Hann er sagður hæst launaða
sjónvarpsstjarna i heimi i
dag.
Ali orðinn rœðismaður
Fréttir herma að
Muhammed Ali hafi nú verið
útnefndur ræðismaður
Bangladesh i Chicago Hann
gefur sig allan að starfinu og
kveðst ætla að kynna Bangla-
desh hvar sem hann fer.
„Næst þegar ég boxa til þess
að vinna heimsmeistaratit-
ilinn aftur ætla ég að biöja
blaðamenn um að kynna mig
sem Bangladeshmann. Ég hef
nú þénað 59 milljónir dollara
frá þvi að ég gerðist atvinnu-
maður i hnefaleikum. Nú hef-
ur Guð veitt mér nóg, ég þarf
ekki meiri peninga. Ég tek þá
ekki með mér I gröfina.”
Umsjón: Edda Andrésdóttir