Vísir - 07.03.1978, Blaðsíða 11

Vísir - 07.03.1978, Blaðsíða 11
vism Þriðjudagur 7. mars 1978 11 Árós og gagnárás i snjónum í New York mjög, og stórhættulegt að aka hér um annrikisstundir dagsins. Ef til vill höfum við gott af þvi að hugsa jákvætt heim og þið heima gott af að heyra frá okkur á timum verðbólgu og gengis- hruns. Þó að við, aumingja náms- fólkið, fáum stóra skelli við hið óstöðvandi gengissig krónunnar, þá eru margir ósammála skáld- inu Sigurði A. Magnússyni þar sem hann segir i einni bóka sinna, að Leifur Eiriksson hafi fundið Ameriku og verið svo „smekk- laus” að týna henni aftur. I svona tiðarfari finnst mörgum að heima sé best. — Hrafn. far haft á hugarfar okkar Islend- inganna hér? Jú, það verður að segjast, að hugurinn er oftar heima og við finnum fleiri já- kvæða hluti við gamla Frón. Þar ber margs að geta en við verðum þó að byrja á að hrósa húsunum, jarðhitanum og betra rafveitu- kerfi. Ekki má heldur gleyma þvi að heima eru fjarlægðir á milli vina og vandamanna allar styttri og bókakostur oft rismeiri en ger- ist á heimilum hér. Snjórinn er einnig lakari hér og ekki auðvelt að nota hann i snjó- hús, snjókerlingar, eða að hnoða úr honum bolta. Aksturshæfni Bandarikjamanna i snjó er lakari namnefndin ? að endurvekja og viðhalda ýms- um þáttum þjóðlegrar menning- ar. Þeir sáu þá eina leið út úr vandanum að hrekja kellu burt. Tóku þeir það til bragðs að flytja likin af þeim Vietnömum sem drepnir voru inn á lóð konungs- hallarinnar og hrúga þeim upp fyrir framan glugga drottningar . Jafnframt skýrðu þeir henni frá þvi að þeir myndu halda áfram að hlaða þennan hrauk þar til annað hvort gerðist: Kossamer flytti úr höllinni eða höllin yrði kaffærð i likum. Að búa til syndasel Þessi ófagra saga hefur verið mér hugstæð siðan fréttir tóku að berast um áramótin af landa- mæradeilum Kambodjumanna og Vietnama. Ég fæ nefnilega ekki betur séð en að Rauðu Khmerarir séu að leika sama leikinn og sú stjórn sem þeir börðust hetjulega gegn i fimm löng og blóðug ár, semsé að notfæra sér blundandi hatur þegna sinna i garð Viet- nama i þvi skyni að beina athygli þeirra frá vondu stjórnarfari heimafyrir. Nú er ég alls ekki genginn til liðs við krossferð Elinar Pálma- dóttur gegn stjórnvöldum i Kambodju. Hins vegar hef ég engar heimildir fyrir þvi að i Kambodju riki nú paradis á jörð. Þvert á móti virðist mér margt hafa farið þar úrskeiðis og stefna stjórnvalda hin skuggalegasta'. Finnst mér það að vonum sárt þvi ég dáist að þeim hetjuskap sem þessi þjóð og leiðtogar hennar sýndu i baráttunni gegn Banda- rikjunum og leppum þeirra. Hvað segja samningar? Það kemur fram i fréttaskeyt- um frá Vietnam að Kambodju- menn hafi stundað skæruhernað fyrir innan landamæri Vietnam frá þvi nokkrum dögum eftir frelsun Pnom Penh i april 1975. ,En úr því að þeir Óli og Svarthöfði bera velferð þeirra þjóða sem byggjo Vietnam og......." Vietnamar segjast hafa þagað yf- ir þessu i lengstu lög meðan þeir reyndu að koma á samningum við Kambodjumenn um landamærin. Það hafi hins vegar borið litinn árangur og slitnaði alveg upp úr viðræðum i april i fyrra. Um landamæri rikjanna gildir samningur sem frelsissamtök þjóðanna gerðu með sér árið 1970. Þá var sæst á það til bráðabirgða að gildandi landamæri væru i heiðri höfð þar til sigur væri unn- inn á Bandarikjamönnum og tóm gæfist til að endurskoða landa- mærin. Eftir að Bandarikjamenn voru á braut en landamæraskær- ur hófust komu þjóðirnar sér saman um að skipa nefnd em- bættismanna til að leysa deiluna og ákveða landamærin i eitt skipti fyrir öll. Þessi nefnd starfaði fram i april 1977 þegar Kam- bodjumenn neituðu að taka þátt i starfinu lengur. Siðan stigmögn- uðust átök á landamærunum og segja Kambodjumenn að Vietnamar hafi hafið „árásar- strið á kambodisku landssvæði” i september. Ótrúlegar ásakanir Ef maður ber saman frásagnir striðsaðila af átökunum og gagn- kvæmar ásakanir þeirra fer ekki hjá þvi að maður taki málstað Vietnama. Það sem Kambodju- menn halda fram er einfaldiega of ótrúlegt. Að eigin sögn hafa þeir varið landamæri sin með góðum árangri frá þvi skærurnar hófust en samtimis halda þeir þvi fram að Vietnamar séu komnii; langt inn fyrir þessi sömu landa- mæri! Þeir hafa haldið þvi fram að „útlendingar af evrópskum uppruna” (les: Sovétmenn) berjist með Vietnömum. En þetta skýtur ansi skökku við þá staðreynd að Vietnamar hafa margfalt fjölmennari og öflugri her og þyrftu þess vegna ekki að þiggja neina aðstoð. Auk þess má nefna að i striði gegn tveimur stórveldum, Frökkum og Banda- rikjamönnum, höfnuðu Vietnam- ar alla tið liðsstyrk erlendis frá. Kambodjumenn segja að Vietnamar ali með sér stórveldis- drauma, likja hernaði þeirra við innrás Hitlers i Tékkóslóvakiu 1938 og segja að þeir stefni að þvi að innlima þá i indókinverskt sambandsriki. Þessi hugmynd kom fram árið 1951 en var þegar hafnað og hefur henni ekki verið hreyft siðan. Einnig halda Kambodjumenn þvi fram að Vietnamar vilji knýja fram stórfelldar breytingar á stjórn- inni i Kambodju, þ.e. stuðla að valdaráni. Vafalaust yrðu Vietnamar þvi fegnir ef velvilj- aðri menn kæmust til valda i Pnom Penh, en, en erfitt er að átta sig á hvort þeir hafi eitthvað gert til þess að svo mætti verða. Hins vegar bendir þessi ásökun til þess að eitthvað sé hæft i fúllyrð- ingum vestrænna fjölmiðla um að valdabarátta eigi sér stað innan stjórnarinnar i Kambodju. Stórveldaátök? A Vesturlöndum hafa menn mjög gert sér mat úr þvi að þarna eigi sér stað óbeint strið milli Sovétrikjanna og Kina. Um það er það að segja að telja má harla óliklegt að Kinverjar hafi áhuga á þvi að koma sér upp svo voldug- um óvini i suðri að þeir þurfi að stórefla vigbúnað sinn á landa- mærum Vietnam. Þótt sambúö Kinverja og Vietnama hafi kólnað mjög að undanförnu er hún ekki komin á það stig. Og Vietnamar eru engir leppar Sovétmanna sem hlaupa út i strið við nágranna sina þegar kallið kemur frá Kreml. Við sem héldum uppi málstað þjóðanna i Indókina meðan þær börðust við Bandarikin hljótum að hryggjast vegna þessara átaka bræðraþjóða sem við teljum að eigi miklu fleira sameiginlegt en ekki. Við hljótum þvi að taka undir þá kröfu Vietnama að öllum hernaðarátökum á landamærun- um verði þegar i stað hætt og að hersveitir landanna taki sér stööu 5 km frá landamærunum. þar á milli veröivopnlaustsvæði. Siðan komi fulltrúar þjóðanna saman til fundar og semji um landamær- in á grundvelli gagnkvæmrar virðingar fyrir fullveldi og sjálf- stæði þjóðanna. Aö á þessum fundi verði gengið frá þvi i eitt skipti fyrir öll að þjóðirnar geti lifað saman i góðum grannskap um alla framtið. Þær eiga ekki annaö skilið. Þröstur Haraldsson. blaöamaður.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.