Vísir - 18.05.1978, Síða 5
Fimmtudagur 18. mai 1978
5
Kosningasjá Vísis
Það eru aðeins tveir listar
boðnir fram i bæjarstjórnar-
kosningunum á ólafsfirði að
þessu sinni: D-listi Sjálf-
stæðisflokksins og H-listi
Vinstri manna.
Heyndar komu einnig fram
tveir listar við siðustu kosn-
ingar en þá sameinuöust
vinstri menn á Ólafsfirði um
eitt framboð. Þeir fengu
meirihluta i bæjarstjórn og
snýst kosningin m.a. nú um
það hvort þeim takist að halda
þeim meirihluta.
Á siðasta kjörtimabili var
hafist handa við endurbætur á
höfninni, byggingu heilsu-
gæslustöðvar og unnið var við
gatnagerð. Á næsta kjörtima-
bili verður haldið áfram við
þessar framkvæmdir og eru
menn nokkuð sammála um
nauðsyn þeirra verka en
skiptar skoðanir um fram-
kvæmdaröð.
I bæjarstjórn Ólafsfjarðar
eiga 7 fulltrúar sæti. Orslit
bæjarstjórnarkosninganna
1974 voru á þessa leið:
D-listi, Sjálfstæðisflokksins
fékk 283 atkvæði og þrjá menn
kjörna, Ásgrim Hartmanns-
son framkvæmdastjóra Jakob
Agústsson, rafveitustjóra og
Ásgeir Asgeirsson bæjar-
gjaldkera.
H-listi, vinstri manna, fékk
303 atkvæði og fjóra menn
kjörna, Ármann Þórðarson
kaupfélagsstjóra, Braga Hall-
dórsson skrifstofum ann,
Sigurð Jóhannsson húsvörð og
Gunnar L. Jóhannsson bónda.
A Ólafsfirði búa nú um 1150
manns og verða um það bil 664
menn á kjörskrá fyrir næstu
kosningar. —KS
„Hafnarmálin
alltaf ofarlega
á baugi"
— segir Birna
Friðgeirsdóttir
,,Það lætur að likum að hafnar-
mál verða alltaf ofarlega á
baugi hér á Ólafsfirði. t þeim
efnum leggjum við mesta
áherslu á dýpkun hafnarinnar
og að gerður verði viðlegukant-
ur fyrir togara. Höfnin skiptist I
tvennt og það þarf aö fullgera
vesturhöfnina og bæta aðstöðu
fyrir smábátaeigendur m.a.
vantar löndunarkrana fyrir
smærribáta”, sagði BirnaFrið-
geirsdóttir en hún skipar annað
I '5 \ ■ —✓
Birna Friögeirsdóttir: „Brýnt
að fá tannlækni til ólafs-
fjarðar”.
sætiá lista Sjálfstæðisflokksins.
Kristinn G. Jóhannsson efsti
maður á listanum var erlendis
þannig að ekki var hægt að ná i
hann.
Birna sagöi að þetta væri
helsta málið en af öðrum mál-
um bæri hæst bygging heilsu-
gæslustöðvar og elliheimilis og
yröistefntað þvi að þviyrði lok-
ið um 1980. Aukna tannlækna-
þjónustu settu þau mjög á odd-
inn. Undanfarið heföu Ólafs-
firðingar þurft að sækja þá
þjónustu burt af staðnum og
vildu þeir fá hana hingaö heim.
I skólamálum væri brýnt að
fullgera fyrsta áfanga i bygg-
ingu Gagnfræðaskólans. Jafn-
framt væri æskilegt að fá fram-
haldsdeild við skólann eftir að
grunnskóla lyki, a.m.k. einn
vetur og að fuUt jafnrétti milli
kynja náisttU náms á verklega
sviðinu.
Þá sagði Birna að það þyrfti
að ljúka við að koma upp skiða-
„Stefnum að
meirihluta
aftur"
— segir Ármann
Þórðarson
„Þaðsem við setjum á oddinn
er áframhaldandi uppbygging á
höfninni og að haldið verði
áfram af fullum krafti við að
ganga frá heilsugæslustööinni
og dvalarheimili fyrir aldraða,”
sagði Ármann Þórðarson kaup-
félagsstjóri efsti maður á lista
Vinstri manna.
Ármann sagði aö það væri
einnig mjög knýjandi að geta
haldið áfram að leggja bundið
sUtlagá göturbæjarins. Þá væri
verið aö reisa ibúðir til leigu á
vegum bæjarins. I byggingu
væru 7 ibúðir og áform væru
uppium að halda áfram á þeirri
braut. Það væri tilfinnanlegur
Armann Þórðarson: „Tilfinn-
anlegur skortur á leiguhiisnæöi
á ólafsfirði.”
skortur á leiguhúsnæði i Ólafs-
firði og miklum erfiðleikum háð
fyrir fólk sem viU flytjast tU
bæjarins að fá húsnæði.
Aðeins hefur boriö á kalda-
vatnsskorti á ólafsfirði undan-
farna vetur og sagði Ármann að
það þyrfti að leggja nýja að-
veitu og væribúiðaðfá rörin til
bæjarins og yrði byrjað á fram-
kvæmdum i sumar. Þá hefðu
þeir áhuga á að bæta Iþróttaað-
stöðu með nýrri skiðalyftu
einnig væri byrjað að kanna
möguleika á byggingu nýs
Iþróttahúss. Ennfremur yrði
byr jað á byggingu nýs leikskóla
I sumar.
Armann benti á að nauðsyn-
legt væri að vinna að bættum
samgöngum við Skagafjörð.
Verið væri að bæta veginn inn
sveitina en á þeirri leið er brú
þar sem stærri langferðabflar
komast ekki um.
„Fjórða sætið er auðvitað
baráttusætið”, sagði Ármann,
„þar sem aðeins tveir listar eru
i framboði snýst baráttan um
hvor nær meirihluta”.
Armann hefur setið óslitið i
bæjarstjórn Ólafsfjarðar frá
1965 en áður hafði hann verið
varamaður. Hann er fæddur á
Ólafsfirðiárið 1929 og hefur búið
þar alla tið siðan. —KS
fTILKYNNING TIL ÍBÚA
í BREIÐHOLTI III
Stofnsett hefur verið heilsugæslustöð í Breiðholti. Þjónustusvæði
stöðvarinnar (heilsugæslusvæði) nær til Fella- og Hólahverfa, þ.e.
Breiðholts III.
Heilsugæslustöðin er til húsa að Asparfelli 12,2. hæð.
Fyrst um sinn verður aðeins unnt að veita hiuta af ibúum hverfisins al-
menna læknisþjónustu og heilsuvernd á vegum stöðvarinnár, en þar
munu í byrjun starfa tveir læknar.
Þeir ibúar i Breiðholti III, sem óska að sækja læknisþjónustu til stöðv-
arinnar, þurfa að koma þangað til skráningar og hafa meðferðis per-
sónuskilriki. Fyrstu þrjá dagana verða eingöngu skráðir þeir íbúar
hverfisins sem ekki hafa heimilislækni, og njóta þeir þvi forgangs.
Skráning hefst mánudaginn 22. mai og verður opið kl. 10-12 og 13.30-15
til 31. mai.
Læknar stöðvarinnar hefja störf 1. júni.
Tekið verður á móti timapöntunum i sima 75100.
Reykjavik, 17. mail978.
Heilbrigðismálaróð Reykjavíkurborgar
Borgarlœknirinn í Reykjavík
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
m HVAÐ IR KOSIÐ Á
ÓLAFSFIRÐI?
V '■ : ' ...' ■ ' * « 1
1 ÍL.‘ i—* l^mil
-iMBnniflMn i
m i b RiwP t ...$j*i3bI
lyftu og reisa nýjan upplýstan
sklðastökkpall, ljúka við
hlaupabraut á íþróttavellinum
og skapa betri aðstöðu til frjáls-
iþrótta. Siðast en ekki sist væri
nauðsynlegt að drifa i gatna-
gerð enhún hefði dregist nokkuð
aftur úr. Það þyrfti að setja
dælu við borholu Hitaveitunnar
við Laugarengi og einnig þyrfti
að leggja aðveituæð fyrir kalda
vatnið.
,,Þvi er alveg fljótsvarað”,
sagöi Birna, „fjórða sætið er
baráttusætið. Það var mjótt á
mununum siðast og við teljum
að við eigum jafna möguleika
og hinir til aö fá fjórða mann”.
Birna er fædd að Leirhöfn á
Melrakkasléttu 1928 og flyst
til ólafsfjarðar árið 1949. Hún
hefurekki átt sæti I bæjarstjórn
en hefur starfað að félagsmál-
um I bænum og verið formaður
Slysavarnarfélagsins i 7 ár.
— KS
D-LISTI
1. Kristinn G. Jóhannsson
skólastjóri
2. Birna Friðgeirsdóttir hús-
móðir
3. Gísli Gislason forstjóri
4. Ásgeir Asgeirsson bæjar-
gjaldkeri
5. Garðar Guðmundsson skip-
stjóri
6. Gunnar Þór Magnússon út-
gerðarmaður
7. Sigurður Björnsson lögreglu-
þjónn.
H-LISTI
1. Ármann Þórðarson kaup-
félagsstjóri.
2. Björn Þór ólafsson iþrótta-
kennari
3. Sigurður Jóhannsson hús-
vörður.
4. Gunnar L. Jóhannsson bóndi.
5. Stefán B. ólafsson inúrara-
meistari
6. Bragi Halldórsson skrifstofu-
maður
7. Rikharöur Sigurðsson bif-
reiðastjóri
sem leysir gamlan vanda
Vandinn er þungt loft - eöa lykt. Innilokaö loft eöa reyk-
mettaö. Matarlykt, allskonar lykt sem angrar.
Hér er góö lausn. Lítil kúla, kölluð Airbal. Inni í henni er
lítil plata.unnin úr ferskum náttúruefnum, sem hreinsa
andrúmsloftiö.
Virkni kúlunnar er hægt aö stjórna meöþví aö færa til
hettu ofan á henni. Þegar lyktarefnin eru þrotin er ný
plata sett i kúluna.
Einn kostur í viðbót - kúlan er ódýr.
Fæst á bensínstöðvum Shell og í fjölda
verslana.
Skeljungur hf
Heildsölubirgðir: Olíufélagið Skeljungur.
Smávörudeild Sími 81722
Olíufélagið