Vísir - 18.05.1978, Blaðsíða 11
VISIR Fimmtudagur 18. maí 1978
-
*
Ófeigsson héraðsdómari efsti
maður á lista Alþýðuflokksins.
Freyr sagði að á sviði félags-
mála legðu þeir megináherslu á
að á næsta kjörtimabili yrði
drifið i byggingu dagvistunar-
stofnana. A sviði iþróttamála
væru þrjú forgangsverkefni á
stefnuskrá Alþýðuflokksins. í
fyrsta lagi væri það uppbygging
skiðamiðstöðvar i Hliðarfjalli.
Þá þyrfti að ljúka við gerð
iþróttavallanna sem byrjað
væri á. í þriðja lagi yrði að
reyna eftir mætti að hraða
byggingu nýja svæðisiþrótta-
hússins, þeir gerðu sér hins veg-
ar litlar vonir um að hægt yrði
að ljúka þvi á kjörtimabilinu.
Þá sagði Freyr að sér væru
skipulagsmál bæjarins mjög
hugleikin. Þauhefðuekki verið i
nógu góðu lagi og þyrfti að
koma þeim i betra horf.
Freyr hefur setiö i bæjar-
stjórn fyrir Alþýðuflokkinn sið-
asta kjörtimabil. Hann hafði
haft afskipti af bæjarmálum áð-
ur. Freyr er fæddur á Norður-
firði i Árneshreppi á Ströndum
árið 1937 og flutti til Akureyrar
1952. —KS
Samvinna og ein-
staklingsfrelsi fer
vel saman
á Akureyri"
„Sem fyrsti maður á listanum
segi ég, að öll sæti séu bar-
áttusæti, mitt sæti lika þvi að
sá sem vill að ég sitji i bæjar-
stjórn, verður að sjá til þess, að
éghafifleirimeð mér. Éghef þá
trú á Akureyringum, að þeir
telji eðlilegt, að félagshyggju-
flokkur eins og Framsóknar-
flokkurinn sem á i raun miklu
meiri þátt i mótun Akureyrar
heldur en hlutfall okkar í bæjar-
stjórn gefur til kynna, verði
efldur, en fyrsti áfanginn á
þcirri leið er, að við fáum fjóra
menn kjörna i komandi kosn-
ingum”, sagði Sigurður Óli
Brynjólfsson, kennari, sem er
efsti maður á B-listanum.
„Við framsóknarmenn göng-
um til kosninga undir kjörorð-
unum „Atvinna handa öllum —
menntun fyrir alla — jafnrétti
allra”. Við teljum öflugt at-
vinnulíf undirstöðu menningar-
lifs og framfara. Þess vegna
munum við beita okkur fyrir aö-
gerðum i atvinnumálum, eins
og við gerðum á árunum fyrir
1970, þegará þarf að halda. Viö
erum sérlega ánægðir með af-
komu stórra fyrirtækja, sem
bærinn er stór eignaraðili að,
þ.e. tJtgerðarfélags Akureyr-
inga og Slippstöðvarinnar, og (
viljum vinna að þvi, að þau efl-
ist og styrkist. Við stefnum
markvisst að þvi að efla iðnað-
inn i bænum og teljum, að
vaxtarbroddur atvinnulifsins á
Akureyri felist i honum. Iðnað-
ur, sem vinnur úrhráefnum frá
landbúnaði og sjávarútvegi,
þarf að þróast áfram, og smiða-
iðnaður allskonar á hðr mikla
möguleika.
Við viljum að sérskólar verði
efldir hver á sinu sviði i stað
fjölbrautaskólabákns, og telj-
um, að með þvi sé unnt að taka
tillit til þarfa einstaklingsins og
um leið atvinnugreina i
héraðinu.
Halda þarf áfram með eðli-
legum hraða byggingu nýju
iþróttahallarinnar. 1 tengslum
við hana þarf að gera viðtæka
Siguröur óli Brynjólf sson:
,,Fjóra menn kjörna i komandi
kosningum”.
áætlun um iþróttamál á
Akureyri þannig, að allir eigi
athvarf i fjölbreyttu iþrótta- og
tómstundastarfi sumar sem
vetur. Halda verður áfram upp-
byggingu skiðamiðstöðvarinnar
i Hliðarfjalli og fegrun útivista-
svæða almennt og þá alveg sér-
staklega i Hjallaskólgi, þar sem
mikið hefur verið gert á undan-
förnum árum.
Við leggjum áherslu á, að
hraðað verði viðbyggingu við
fjórðungssjúkrahúsið. Við mun-
um beita okkur fyrir byggingu
dagvistunarstofnana, og sér-
staklega starfsleikvalla, eftir
þvi sem aðstæður leyfa.
í skipulagsmálum þarf að
taka mikilvægar ákvarðanir á
næsta kjörtimabili vegna þess,
að bærinn hefur vaxið miklu
hraðar en gert var ráð fyrir. Við
gerðþess skipulags munum við
leggja áherslu á, að ekki verði
raskað sérkennum Akureyrar
eða náttúrufegurð.
Viðleggjum áherslu á, að eins
og undanfarið verði ávallt til
nægar ibúðahúsalóðir.
Skipuleggja þarf nýtt svæði
fyrir iðnaðinn, og einnig þarf að
skipuleggja svæði fyrir nýjan
iðnskóla með tilliti til þeirra
þarfa, sem skapast hafa vegna
verkkennslu i skólunum.
Við viljum efla miðbæinn sem
þjónustu- og verslunarmiðstöð.
Til að svo megi verða þarf að
hraða gerð nýs deiliskipulags,
sem þegar er farið að vinna að.
Verið er að gera mikið átak i
gatnagerðarmálum á Akureyri,
og þvi verður haldið áfram.
Undanfarið hefur verið unnið að
undirbyggingu gatna en við
væntum þess, að á næsta kjör-
timabili getum við einbeitt okk-
ur að þvi að vinna við yfirborð-
ið, og þá kemurtil aukin áhersla
á fragang og snyrtingu yfir-
borðsins.
Að sjálfsögðu teljum við fram-
gang hitaveitunnar mjög mikil-
vægan og munum eins og hing-
að til leggja áherslu á, að unnið
verði að þeim málum með eins
miklum hraða og skynsamlegt
verður talið.
1 fjölmörgum málum leggjum
við áherslu á að hafa góða sam-
vinnu við nágrannasveitirnar,
og teljum að hagsmunir
Akureyringa tengist hagsmun-
um fólks á Norðurlandi öllu.
Þess vegna styðjum við Fjórð-
ungssamband Norðlendinga.
Við teljum, að raforkumál
landsins séu komin á það stig,
að ástæða sé til að endurskoða
þau i heild. Bæjarstjórn
Akureyrar og önnur sveitar-
félög i landinu hljóta að taka
þátt i þvi starfi með það i huga
að koma á sem hagkvæmustu
raforkuverði fyrir landsmenn
alla. Einn þáttur i þeirri þróun
er að gera landið allt að einu
orkuveitusvæði.
Nú um alllangt skeið hefur
náðst samstaða um það i bæjar-
stjórn, að fylgja þvi, sem við
köllum framkvæmdastefnu. Sú
stefna hefur leitt af sér aukna
tiltrú á Akureyri sem fram-
tlðarbæ, þar sem samvinna og
einstaklingsfrelsi fer mjög vel
saman”.
Sigurður fæddist á Steinholti
við Eyjafjörð 1929. Hann hefur
átt sæti i bæjarstjórn frá 1962.
—ESJ.
Soffla Guðmundsdóttir:
„Dagvistunarmálin í brenni-
dcpli”.
Atvinnurekstur
á félagslegum
grunni
„Við erum núna i miðjum
klíðum að birta stefnuyfirlýs-
ingu okkar. Þar eru teknir fyrir
a&i margir máiaflokkar. Þar
eru atvinnumál fyrst á dagskrá,
alhliða uppbygging atvinnulifs-
ins. Og við teljum að það skapi
mest atvinnuöryggi að atvinnu-
reksturinn sé á félagslegum
grundvelli”, sagði Soffia
Guðmundsdóttir kennari á
Akureyri efsti maður á lista
Alþýöuba ndalagsins.
Soffia sagði að það þyrfti að
renna sem flestum stoðum
undir fjölbreytilegt atvinnulif
þannig að það verði sem mest
atvinnuöryggi sem sé undir-
staða allra framfara i einu
byggðarlagi.
„Hitaveitan ber nú hæst af
verklegum framkvæmdum og
framkvæmdum við hana verður
hraðað eins og nokkur kostur
er.” sagði Soffia . Af öðrum mál-
um nefndi hún byggingu svæðis-
iþróttahúss. Þá þyrfti jafnframt
að byggja upp félagslega
þjónustu á mörgum sviðum svo
sem þjónustu fyrir aldraða I
heimahúsum. Sömuleiöis þyrfti
að vinda bráðan bug að dagvist-
unarmálum sem hefðu verið i
brennidepli og væru
framkvæmdir þegar hafnar.
„Við teljum að annað sætið sé
baráttusæti”, sagöi Soffia,” það
er fyllilega raunsættað gera ráð
fyrir þvi að það sé i sjónmáh”.
Soffia hefur setið tvö
kjörtimabil i bæjarstjórn
Akureyrar. Hún er fædd i
Reykjavik árið 1927 og flyst til
Akureyrar árið 1954,— KS
A-LISTI B-LISTI D-LISTI F-LISTI G-LISTI
1. Freyr Ófeigsson héraös- 1. Sigurður Óli Brynjólfsson, 1. Gisli Jónsson, mennta- 1. Ingólfur Árnason rafveitu- 1. Soffia Guðmundsdóttir
dómari kennari skólakennari. stjóri kennari
2. Þorvaldur Jónsson fulltrúi 2. Tryggvi Gislason, skóla- 2. Sigurður J. Sigurðsson, 2. tJlfhildur Rögnvaldsdóttir 2. Helgi Guðmundsson tré-
3. Sævar Frimannsson meistari framkvæmdastjóri. húsmóðir smiður
starfsmaður Einingar 3.Sigurður Jóhannesson, 3. Sigurður Ilannesson, 3. Þorsteinn Jónatansson rit- 3. Kristin A ólafsdóttir leik-
4. Pétur Torfason verk- framkvæmdastjóri. byggingameistari. stjóri ari
fræðingur 4. Jóhannes Sigvaldason, for- 4. Gunnar Ragnars, fram- 4. Dröfn Friðfinnsdóttir hús- 4. Hilmar Helgason vinnu-
5. Hulda Eggertsdóttir hús- stöðumaður kvæmdastóri. móðir vélastjóri
móðir 5. Ingimar Eydal, kennari 5. Tryggvi Pálsson, fram- 5. Ari Rögnvaldsson vélstjóri 5. Guðjón Jónsson kennari
6. Snælaugur Stefánsson vél- 6. Pétur Pálmason, verk- kvæmdastjóri. 6. Björn Hermannsson verk- 6. Saga Jónsdóttir leikari
virki fræðingur 6. Ingi Þór Jóhannsson, stjóri 7. Höskuldur Stefánsson iðn-
7. Ingvar Ingvason kennari 7. Valur Arnþórsson, kaup- framkvæmdastjóri. 7. Elin Stefánsdóttir ljósmóð- verkamaður
8. Jórunn Sæmundsdóttir félagsstjóri 7.Margrét Kristins dóttir, ir 8. Ragnar Pálsson vinnu-
húsmóðir 8. Haraldur M. Sigurösson, skólastjóri. 8. Gunnar J. Gunnarsson vélastjóri
9. Stefán Einar Matthiasson kennari 8. Björn Jósef Arnviðarson, verkamaður 9. Ragnheiður Garðarsdóttir
nemi 9. Þóroddur Jóhannsson, lögfræðingur. 9. Aslaug Hauksdóttir ljós- verslunarmaður
10. Svanlaugur ólafsson verk- skrifstofumaður 9. Rafn Magnússon, húsa- móðir 10. Steinar Þorsteinsson tann-
stjóri 10. Þóra Hjaltadóttir, hús- smiðameistari 10. Jón Hjartarson sjómaöur læknir
11. ivar Baldursson skipstjóri móðir. 10. Þórunn Sigurbjörnsdóttir, 11. Kristin Hólm geirsdóttir 11. Bragi Skarphéöinsson
11. Árni Bjarnason, stýrimað- húsmóðir húsmóöir járnsmiður
ur. 11. Freyja Jónsdóttir, hús-
móðir.