Vísir - 18.05.1978, Síða 17
VISIR Fimmtudagur 18. mai 1978
17
Þessi mynd var tekin á æfingu ibarnaskólanum I Garöabæ, en á Iaugardag munu þessir krakkar ásamt mörgum fleiri þeyta lúöra sina. Ljósm. BP
i f
wt ■|g- ..jjfefa,. ii ját r >" JWr
450 UNGMENNI ÞEYTA LUÐRA SINAl
Mönnum gefst kostur á
að hlusta á stærstu lúðra-
sveit sem nokkru sinni
hefur leikið á Islandi/ á
laugardag/ ef allt gengur
að óskum. Þá munu um
450 ungmenni þeyta lúðra
sfna í íþróttahúsinu i
Görðum.
Fyrir nokkrum árum gekkst
Mýrarhúsaskólinn á Seltjarnar-
nesi fyrir þeirri nýbreytni að
bjóða til hátiðar að loknu vel
unnu vetrarstarfi. Komu þá
saman lúðrasveitir barna frá
höfuðborgarsvæðinu og léku,
fyrst einar sér og siðan allar i
sameiningu i iþróttahúsi Sel-
tirninga.
Nú hefur Tónlistarskólinn i
Görðum ákveðið að taka upp
þráðinn að nýju og bjóða til sliks
fagnaðar laugardaginn 20. mai
kl. 15.15. Hafa fjölmargar lúðra-
sveitir barna og unglinga þekkst
boöið og munu aö öllum likind-
um aldrei fyrr svo margar
sveitir verið saman komnar á
einum stað.
—EA
Siguröur örlygsson og Hrefna Steinþórsdóttir kona hans, en
Siguröur sýnir á Kjarvalsstööum þessa dagana. Visismynd GVA
Sigurður Örlygsson
sýnir ó Kjarvalsstöðum
Siguröur örlygsson myndlista- ur. Um 400 manns sáu sýning-
maöur sýnir á Kjarvalsstööum una þrjá fyrstu sýningadagana
þessa dagana 43 myndir, mál- og 8 myndir hafa selst. Sýning-
verk og samklippur. unni lýkur n.k. sunnudagskvöld
Myndirnar eru allar unnar á með jasskonsert er Englend-
þessu ári og 6 þeirra eru eldri ingurinn Evan Parker heldur.
myndir málaðar upp. Veröiö á Þetta er sjöunda einkasýning
myndunum er frá 40 þúsund Sigurðar.
krónum upp i 600 þúsund krón- —KS
Fyrir skömmu afhenti Magnús Sigurjónsson formaöur Lionsklúbbs
Sauöárkróks, Sjúkrahúsi Skagfirðinga fæöingarrúm aö gjöf frá klúbb-
félögum.
Stefán Pedersen varaformaöur sjúkrahússtjórnar veitti gjöfinni við-
töku og flutti Lionsmönnum þakkir fyrir rausnarlega gjöf. Síöastliöiö
haust gaf klúbburinn Sjúkrahúsinu litsjónvarpstæki.
Þá má geta þess aö I vetur gáfu Lionsfélagar Tónlistarskólanum á
Sauöárkróki vönduö hljómflutningstæki. Gjöfin var til minningar um
látinn félaga, Sveinbjörn Jónsson bónda á Hafsteinsstööum.
M ótmœlin voru fyrír
hönd þriggja flokka
Segir Sigurjón Pétursson um mótmœlin gegn því,
að Gunnar G. Schram stjórni kosningaumrœðum
//Ég mótmælti því, að Gunnar G. Schram væri látinn stjórna umræðum um
borgarmálin í sjónvarpinu, fyrir hönd efstu manna framboðslista stjórnarand-
stöðuflokkanna í borgarstjórninni/ en ekki bara fyrir hönd okkar Alþýðubanda-
lagsmanna", sagði Sigurjón Pétursson, borgarráðsmaður i viðtali við Visi i gær.
Eins og fram kom i Visi i gær
var það samþykkt á fundi út-
varpsráðs s.l. föstudag, að
Gunnar skyldi stjórna umræöum
efstu manna framboðslistanna i
Reykjavik i sjónvarpinu, en
þeirri umræðu var sjónvarpaö i
gærkvöldi.
„Það hefur enginn fundur verið
haldinn með frambjóöendum að
tilhlutan sjónvarpsins um þessi
mál þannig að ég frétti aöeins á
skotspónum að Gunnar G.
Schram ætti að stjórna þessum
þáttum”, sagði Sigurjón.
„Eftir borgarráðsfund á þriðju-
dag ræddi ég viö efstu menn
framboðslista Alþýöuflokksins og
Framsóknarflokksins, og það var
sameiginleg niöurstaða okkar að
ég hringdi i Pétur Guðfinnsson og
tilkynnti honum mótmæli okkar
allra viö stjórnandanum sem
hlutdrægum.
Pétur sagði mér þá, að þessi
mótmæli væru of seint fram kom-
in, þar sem af tæknilegum ástæð-
um væri ekki hægt að breyta
stjórnanda þeirrar umræöu, sem
send yrði út á miövikudags-
kvöldið — þótt sú fullyröing sé
reyndar dregin mjög i efa af
mönnum, sem þekkja til sjón-
varpstækni. Hins vegar sagöi
hann, að hægt væri aö breyta
þessu varöandi umræðuna
laugardaginn 27. mai”, sagöi
Sigurjón.
—ESJ
Þetta er
Haukur
I kynningu Vísis á
f ramboðslistunum t
Neskaupstað fyrir
nokkru birtist röng
mynd með viðtalinu
við Hauk Ölafsson,
efsta mann B-listans.
Rétta myndin birtist
hér með, og eru hlutað-
eigandi beðnir velvirð-
ingar á þessum mis-
tökum.
Keflavíkurganga er
fyrirhuguð 10. júní
Keflavikurganga verður farin
laugardaginn 10. júni næstkom-
andi, eða eftir rúmar þrjár vik-
ur. Göngunni mun ljúka með
fjöldafundi á Lækjartorgi, segir
i fréttatilkynningu frá Samtök-
um herstöðvaandstæðinga.
Gengið verður frá hliðum
Kefiavikurflugvallar. A án-
ingarstöðum verður efnt til úti-
funda.
„Með göngunni vilja samtök-
in gefa iandsmönnum tækifæri
til að sýna hug sinn i verki og
leggja áherslu á kröfur sinar
um brottfiutning hersins af Mið-
nesheiði og úrsögn lslands úr
Atlantshafsbandalaginu. Þaö er
sérstakiega mikiivægt nú þegar
kosningar eru i vændum, enda
hefur þjóðin aldrei veriö spurö
um þetta mál sérstaklega”,
segir i fréttatilkynningunni.
Skrifstofa samtakanna er að
Tryggvagötu 10, og eru her-
stöðvaandstæðingar hvattir til
að iáta skrá sig i gönguna, segir
i fréttatilkynningunni. —ESJ
—SG