Vísir - 22.05.1978, Blaðsíða 1
Skoðanakönnun Vísis varðandi úrslit borgarstjórnarkosninganna:
Verölagið
hér hefur
breyst mest
— sagði listamaðurinn Erró
í viðtali við Vísi í morgun,
en hann er kominn hingað
til lands vegna
Listahútíðar
„Mér finnst lítið hafa breyst hér nema verðgildi
peninganna” sagði listamaðurinn Erró (Guðmundur
Guömundsson) er Vísis ræddi viö hann i morgun. Hann
kom hingað til lands I gær.
Erró sagði að nU væru 4 ferð um hringveginn en
ár liðin frá þvi hann kom
siðast til landsins. Hins
vegar hefði hann ekki
haldið sýningu hérlendis i
14 ár. En Erró er nú
hingað kominn til að
halda sýningu á verkum
sinum á Kjarvalsstöðum.
Hann kvaðst hafa verið
önnum kafinn að undan-
förnu við aö safna saman
myndum sinum en sumir
eigendurnir hefðu verið
hálfhræddir við að senda
þær sjóleiðis.
Erró sagðist hafa farið
o£ skoðað Kjarvalshúsið
i gærkveldi og sér litist
mjög vel á það. Þar er
ætlunin að setja myndirn-
ar upp eftir aldursröö og
bjóst hann við að hefjast
handa á morgun en
myndirnar munu enn
vera i tolli.
Erró sagðist ætla að
dveljast hér á landi i um
mánaðartima og hygði á
með honum komu nokkrir
kunningjar frá Frakk-
landi sem hann hefur hug
á að sýna landiö.
Listamaðurinn kvaðst
vera ákaflega ánægður
meö það aö vera kominn
hingað og sagðist vera
hrifinn af þvi hversu
hreinleg borg Reykjavik
væri orðin og einkum og
sér i lagi væri hann
ánægður með þá
breytingu sem væri oröin
á Miklatúni frá þvi hann
kom siöast til landsins.
Er hann var inntur eftir
framtiðaráformum sin-
um, sagði Erró að I
nóvembermánuði ætlaöi
hann aö vera með sýn-
ingu i Sviss en ætlaði
siðan að taka sér fri frá
sýningahaldi alla vega i
tvö ár. Ekki ætlar hann
sér þó að hætta að mála
heldur fyrst og fremst að
taka lifinu með meiri ró.
Litprentað aukablað um Listahátíð fylgir Vísi í dag
Alþýðufíokk
urinn hetur
bœtt við sig
• Hlutfall Sjálfstœðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðu-
bandalags lœgra en f sfðustu borgarstjórnarkosningum
• Helmingur af fylgi
Alþýðubandalagsins er
fólk undir þritugu, en
það eru 25% af fólki á
þessum
oSjálfstæðisflekkurinn
hefur 14% fylgis sins
frá fólki undir þritugu,
en það eru 30% af
fólki á þessum
Vísir birtir í dag niðurstöður skoðanakönnunar, sem gerð var á
vegum blaðsins í síðustu viku varðandi niðurstöður borgarstjórnar-
kosninganna, sem fram fara í Reykjavík um næstu heigi.
Samkvæmt könnuninni mun Alþýðuflokkurinn bæta við sig tals-
Þessar niðurstöður munu þó
að likindum breytast eitthvað,
þegar kjósendur koma i kjör-
klefann, þvi að 12% þeirra kjós-
enda, sem rætt var við, höfðu
verðu fylgi frá síðustu borgarstjórnarkosningum, en svörin benda
afturá mótitil þess, að atkvæðahlutfall Framsóknarflokksins, Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðubandalagsins verði lægra en í síðustu kosn-
ingum.
eftir hverfum Reykjavikur-
borgar. Niðurstöður skoðana-
könnunar Visis eru birtar á 10.
og 11. siðu blaðsins i dag.
—ÓR
ekki gert upp hug sinn ennþá i
slðustu viku og 11% þeirra vildi
ekki láta i ljósi afstöðu sina.
Tveir þjóðfélagsfræðingar
skipulögðu könnunina og stjórn-
uðu framkvæmd hennar fyrir
Visi, en hún byggðist á rúmlega
fjögur hundruð manna úrtaki úr
kjörskrá Reykjavikur. Var
ýmis hringt i fólkið eða það
heimsótt.
Auk hlutfallstalna flokkanna
sýnir könnunin fylgi flokkanna
eftir aldri kjósenda og fylgi
Guðmundur Guðmundsson, Erró, við komuna til Keflavikurflugvallar. Eiginkona hans,
Vilai ertil vinstri á myndinni og Geirlaug Þorvaldsdóttir, fulltrúi Listahátiðar, til hægri.
Vísismynd: Heiðar Baldursson.