Vísir - 22.05.1978, Side 5

Vísir - 22.05.1978, Side 5
5 “VTSIR Mánudagur 22. mai 1978 Hagkvœmnin í fyrirrúmi Flestir ef ekki allir Reykvlk- ingar vita aö fjölmargar heildsöl- ur eru starfræktar viö Sundaborg. Margir hafa eflaust dáöst aö þvi hversu snyrtilegt er i kringum húsalengjuna sem er hvorki meira né minna en 40.000 m3. Hitt vita sjálfsagt færri aö þar eru starfrækt 32 fyrirtæki sem hafa meösér samvinnu sem cr algjört einsdæmi á islandi. Upphaf þessarar samvinnu var það að fyrir tilstilli Félags islenskra stórkaupmanna var hlutafélagið Heild stofnað 1971 í þeim tilgangi að byggja skrif- stofu og vörugeymsluhús. Bygg- ingu hússins er nú að mestu lokiö og er brunabótamat þess i dag 1.040 milljónir. Eftir húsinu miðju, á efri hæð, er gangur, þar sem inngangengt er á milli allra fyrirtækjanna i húsinu. Arið 1976 var stofnað hluta- félagið Frum sem er þjónustu- miðstöö fyrir allt húsið. Arni Gunnarsson er fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins og ný- lega kynnti hann fréttamönnum starfsemina I tilefni afmælis Félags islenskra stórkaup- manna. Við Frum h.f. starfa nú 9 manns og sjá þeir um margvlslega þjón- ustu viö fyrirtækin i húsinu. Þrir vörubilar fyrir allt húsið Fyrirtækið hefur fyrir þremur vörubifreiðum að ráða sem sækja allar vörurfyrir fyrirtækin i hús- inu og flytja þær I vörugeymslur i Sundaborg. Húsnæðið er þannig hannað að á jarðhæð eru allir vörulagerar og má aka inn I þá á sendiferðabifreiðum, en á efri hæð eru siðan allar skrifstofur. Oilum vörum er dreift til viö- skiptavina viðsvegar um borgina og á landflutningamiðstöðvar. Hjá Frum h.f. eru tvö telextæki sem þjóna þeim fyrirtækjum i húsinu, sem ekki þurfa ein á tæki að halda. Þetta hefur stórlækkað telexkostnað þeirra. Eldhús er starfandi I húsinu og sérþað starfsfólki fyrirmat og er hádegismat dreift á hinar ein- stöku skrifstofur. Þá sér Frum h.f. um að sækja allan póst á pósthús og dreifa honum og er Utsendur póstur fri- merktur og honum komið áleiðis á pósthús. Allt rusl er fjarlægt reglulega eftir fyrirfram settri áætlun. Fyrirtækið annast umsjón og gerð toll- og bankaskjala fyrir 11 fyrirtæki auk þess sem verðút- reikníngur er gerður. 1 þessu vinna að staðaldri þrir menn. InnanhUskallakerfi er i húsinu og fyrirhuguð er uppsetning full- komins brunaaðvörunarkerfis sem tengist slökkvistöðinni með simalinu. Sameiginleg innbrotsþjófa- trygging er fyrir allt húsið og jafnframt er starfrækt nætur- varsla. Rafreiknir er i notkun fyrir fyrirtækin við Sundaborg. Hann annast allt nauösynlegt fjárhagsbókhald, viðskipta- mannabókhald með útskrift reikninga, og vixla- og birgðabók- hald með innbyggðu pantanaéftir liti. 1 húsinu eru fjórir sjónvarps- skermar þar sem hægt er að fá á mynd stöðu bókhalds og fleira. Rekstur Frum h.f. á að geta veriö fyrirmynd annarra fyrir- tækja um það hvernig spara má verulegar upphæðir meö sam- heldni. —BA— Hér má sjá hluta af þeimhópi sem kynnti sér starfsemi Frum og sam- starf fyrirtækjanna viö Sundaborg. Arni Gunnarsson útskýrir þá möguleika sem tölvan I Sundaborgbýöur upp á. varanleg álklæðning, á þök, loft og veggi- úti og inni. Seltuvaröar álplötur með innbrenndum litum, auðveldar i uppsetningu, þarf aldrei að mála, gott að þrífa, og gefa fallegt útlit.Tilvaliö á ný hús, gömul hús, stór hús, lítil hús, lek hús og öll hús sem þorf er á góöri varanlegri klæöningu. Aukin einangrun, sparar hitakostnað. Vandið valið og setjiö tttwdmcbM á húsið. Framleiddar af Nordisk Aluminium A/S Noregi í mismunandi gerðum. Reynist vel við íslenskar aðstæöur. Hafið samband við okkur og fáið upplýsingar, verðtilboð og góð ráð. INNKAUP HF ÆGISGÖTIJ 7 ítEYKIAVlK. SlMI 22000-PÓSTHÓLF 1012 TELEX 2025 SOLUSTIÓRL HEIMASfMI 71400. ítalskir leðurskór nýkomnir Einnig nýkomið: Teg. 11468 Litur: Ljósgrár (nánast hvitur) Verö: kr. 8880.- Stærðir: 36-41 Teg. 11470 Litur: Bleikur (Rósa) Verð: kr. 8880.- Stærðir: 36-41 Teg. 11467 Litur: Ljósgrár (nánast hvítur) Verð: kr. 8880.- Stærðir: 36-41 DOMUS MEDICA Egilsgötu 3, pósthólf 5050 Slmi 18519 Mikið úrval af MANZ karlmannaskóm Mikið úrval af margs konar töfflum Mikið úrval af Berkemann tréskóm o.fl. o.fl.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.