Vísir - 22.05.1978, Side 7
'. ■
PAPPIRSBLEIUR MEÐ
ÁFÖSTUM PLASTIKBUXUM
Undramjúkt efni PAMPERS hvílir
nœst hörundinu, en rakinn dreifist í
pappírslög sem taka mikia vætu.
Ytrabyrði er úr plasti. Rúm og ytri-
buxur eru því ávallt þurr. PAMPERS
eru sem tilsniðnar fyrir barnið og
gefa mikið frelsi til hreyfinga.
Limbönd á hliðum gera ásetningu
einfalda.
hm'rrtsl
italska lögreglan
bjargaði 25 ára stúlku úr
höndum fimm Mafiu-
bófa með áhlaupi á felu-
stað mannræningjanna.
Þeir voru handteknir.
Ahlaupið stóð ekki nema i tiu
miniítur og náði lögreglan Eriku
Ratti heilli á hiifi frá ræningjun-
um. Þeir höföu numið hana á
brott, þegar hún var i verslunar-
ferö 4. april, og hafa haft hana á
valdi sinu siðan, meöan þeir
reyndu að þvinga föður hennar,
auðugan fataframleiðanda I
Milanó, til aö greiða lausnar-
gjald.
Ræningjarnir reyndu ekki aö
sýna lögreglunni mótþróa. Bar
fangi þeirra þeim vel söguna og
sagði, að þeir heföu hugsað vel
um hana i fangavistinni.
Þetta er fimmta mannránið á
þessu ári, þar sem lögreglunni
tekst að bjarga fórnarlambinu úr
klóm ræningja. Nitján mannrán
hafa verið framih á Italiu það,
sem af er árinu.
Kirkjuþak-
ið hrundi
í messu
Kirkjuþak hrundi meðan á
messugjörð stóð á sunnudags-
morgun i Dallas i Texas. Um
100 manns voru i kirkjunni
þegar slysiö vildi til.
Niu ára gömul telpa beið
bana og fimmtiu og átta
kirkjugestir aðrir slösuðust.
Fimm þeirra eru hættulega
slasaöir. — Þrir lögreglumenn
sem unnu að þvi að bjarga
fólkinu undan brakinu urðu
einnig fyrir meiðslum.
búa og einn Belgiumann, þegar
þeir gátu ekki framvisað per-
sónuskilrikjum. Varnarmála-
ráöuneytið i Paris vill ekki við
neitt slikt kannast.
Belgisku f allhlifaher-
mennirnir leita nú i hverju húsi
að eftirlifandi eða föllnum.
Bjuggust þeir við að ljúka
björgunarleiöangri sinum i dag.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort
uppreisnarliðið hafi verið upp-
rætt eða hrakið á óstöðvandi
flótta. Fólk sem bjargað var
burt segist hafa séö marga
þeirra bregða sér I föt óbreyttra
borgara og kasta vopnum og
einkennisbúningum um leið og
franska fallhlifaliðið kom á
vettvang. Kunna þeir að leynast
einhverjir enn i bænum.
Ibúðahverfi hvitra I Kolwezi
er nú eins og draugabær. Vatns-
veitur og rafveitur hafa verið
rofnar og farsóttarhætta yfir-
vofandi. Margir blökkumenn
hafa einnig yfirgefið bæinn en
þeir óttast aö uppreisnarmenn
snúi aftur um leið og fallhlifa-
hermennirnir hverfa á braut.
Uppreisnarmennirnir hafa
veitt vatni i koparnámur Kol-
wezi en þær eru hornsteinninn I
efnahagslifi Zaire. Þörf er
hvitra tæknimanna til þess að
koma námunum I gagnið aftur,
enósennilegt þykir, að þeir fáist
til starfa, nema erlent herlið
verði þeim til varnar I bænum.
Enginn þeirra ber lengur
traust til stjórnarhers Zaire.
Kúbuþjálfaöir hermenn I Angóia, en undir verndarvæng
þeirra halda uppreisnarmenn Zaire upp árásum á Shaba-
námuhéraðiö I Zaire.
„Hefðum öll verið
drepin, ef herinn
hefði ekki komið..."
Frá Kinshasa berast þær
fréttir að franskir fallhlifaher-
menn kembi skógarkjarrið um-
hverfis Kolwezinámabæinn i
Zaire i leit að ieifum árásarliðs
uppreisnarmanna sem i viku-
tima höfðu námabæinn á valdi
sinu til morða, nauðgana og
gripdeilda.
Það er haldið að uppreisnar-
menn hafi á flótta stnum tekið
með sér tólf hvita menn úr bæn-
um. Ekkert hefur frétst af ör-
lögum þessara gisla. — Ein-
hverjir uppreisnarmenn verjast
á undanhaldinu, norðan og vest-
an viö bæinn.
Frönsku fallhlífahermenn-
irnir (úr útlendingaherdeild-
inni) komu til Kolwezi á föstu-
dag en strax f kjölfar þeirra
komu belglskir fallhlifaher-
menn. I örvæntingu var gripiö
til þess að senda þetta lið til aö
reyna að bjarga hvitum Ibúum
sem störfuðu i Kolwezi.
Meira en 2.000 hvitum mönn-
um hefur verið bjargað frá Kol-
wezi ýmist til Kinshasa eða
Brussel. Kunna margir þeirra
aðsegjafrá villimannlegum að-
förum uppreisnarmanna, hóp-
morðum, nauðgunum og ein-
stökum aftökum. Eftir þvi sem
frétst hefur, hafa þeir myrt um
150 hvita og hundruö blökku-
manna.
Af franska fallhlifaliðinu
hefur frétst, að það hafi fellt um
200 uppreisnarmenn, þegar það
hrakti þá úr bænum. —
„Frakkarnirtöfðu sigekki á þvi
að spyrja spurninga,” sagði
einn sjónarvottur. — Liðsfor-
ingjar i beigiska fallhlff aliðinu
bera frönsku ..legionerunum' á
brýn að hafa skotið sex hvita
menn til bana, fimm Ródesiu-
Til Brússel komu I morgun
þrjár flugvélar hlaðnar flótta-
fólki frá Kolwezi, og eru þeir nú
orðnir 1170, sem þangað hafa
verið fiuttir beint frá náma-
héraðinu.
Margt af þessu fólki beið
áfram á flugvellinum I von um,
að með næstu vélum kæmu ást-
vinir þeirra eða kunningjar,
sem það hafði misst sjónar af 1
martröðinni siðustu viku.
Fleiri flugvéla er von I dag, og
búist við þvl, að alls verði um
1700 manns bjargað frá Kolwezi
til Brússel.
Fjöldi fólks beið komu þess-
ara flóttamanna og fékk hjá
þeim sorgarfréttir af ættingjum
sinum, sem myrtir höfðu verið
af uppreisnarmönnum. Frá-
sagnirnar lýstu hinum villi-
mannlegustu aðförum. Einn
maður horfði á uppreisnarmenn
rista upp kvið barnshafandi
konu, sem komin var átta mán-
uði á leið. Annar sá fimm
manna griska fjölskyldu tekna
af lifi á heimili hennar.
Það hefur sætt nokkurri gagn-
rýni, hve rækilega var auglýst,
að fyrir dyrum stæði að senda
franskt fallhlifaherlið til Zaire.
Flestir flóttamanna luku þó
lofsorði á framkvæmd
björgunaraðferðanna. Enginn
þeirra var sömu skoðunar og
vinstrisinnar i Belgiu, sem
gagnrýndu belgisku stjórnina
fyrir að senda herliðið i stað
þess að bjarga lifum glslanna
með þvi að semja við upp-
reisnarmennina. — „Við hefö-
um öll verið drepin, ef þeir
hefðu ekki komið og bjargað
okkur,”.sagði ein konan.
Bjargað úr
höndum mann-
rœmngio
Vikumartröð í
Kolwezi á encffa
FLUG BYRJAD FRÁ
HARITA-FLUGVELLI
Fyrsta farþegaflugvélin frá
hinum nýja Naritaflugvelli Tókió
lagði upp I morgun en áður þurfti
lögreglan að ná niður loftbeig,
sem ofstækismenn höfðu sent á
-loft yfir flugbrautina.
Nokkur hundruð þessara and-
stæðinga flugvallarins (sem eru
taldir vera um 20 þúsund) voru
áhorfendur að þvi aö fyrsta far-
þegaþotan hóf sig á loft af flug-
vellinum.
Um 7.000 lögreglumenn héldu
vörð um flugvöllinn um helgina
en hann var formlega vigður á
laugardag. A áætlun I dag voru
um 100 flugtök og lendingar á
vellinum. 23 flugvélar komu til
Narita I gær.
Flugvöllurinn er eins og viggirt
virki að sjá. Hann er umkringdur
hárri girðingu og gaddavirs-
hindrunum. Lögreglan geröi
áhlaup á fjóra kofa sem and-
stæöingar flugvallarins hafa
komið sér upp fast við völlinn.
Lagði lögreglan hald á 100
Ikveikjusprengjur og stálpipu-
barefli.
Andófsmenn unnu skemmdar-
verk á háspennulínum skammt
frá flugvellinum og urðu um
19.000 heimili rafmagnslaus á
tima en rafmagnsleysið náði ekki
til flugvallarins og kom þar ekki
að sök.
RUSSAR MJA S.Þ.,
TEKNIR FYRIR NJOSN-
IR í BANDARÍKJUNUM
Tveir sovéskir starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna i New York
sem handteknir voru fyrir njósnir
á laugardag, munu koma fyrir
rétt 30. mai. — Þriðji Rússinn
sem bendlaður er við njósnamál
þetta slapp við handtöku vegna
þess að hann haföi diplómata-
vegabréf, en honum hefur verið
vísað úr iandi.
Alrikislögregla Bandarikjanna
(FBÍ) hefur greint frá þvi aö
Rússarnir þrir hafi nokkrum
sinnum fariö i ágóst siðasta haust
til Woodbridge og annarra staða I
New Yersey til að sækja upp-
lýsingar um varnartækni Banda-
rikjanna gegn kafbátahernaði.
Þeir höfðu greitt 16.000 dollara I
mútur til þess að komast yfir
þessar upplýsingar. I tiu mánuöi
hafði FBÍ sérstakt eftirlit með
njósnum þessara þrimenninga og
naut til þess aðstoðar bandarisks-
borgara sem Rússarnir höfðu
reynt að bera fé á til þess aö fá
hjá honum hernaöarlegar upp-
lýsingar.
Einn Rússanna starfaði hjá
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóöanna, annar á vegum
öryggisráösins en sá þriðji var
fulltrúi i sendinefnd Sovétrikj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum.