Vísir - 22.05.1978, Page 8
8
Umsjón: Edda Andrésdóttir
PAUL ANKA
OPNAR DISKÓTEK
Söngvarinn Paul Anka
opnaði um síðustu helgi
þriggja milljóna dollara
diskótek og veitingastað
i Las Vegas. Þykir til
þess koma að í anddyri
skemmtistaðarins er
sjálfvirk vopnaleitar-
vél. Bob Marsico, einn
af þeim sem á í staðnum
með Paul Anka, sagði að
vélinni hefði verið
komið fyrir, þar sem
„þetta er enn villta
vestrið, og óvanalega
mikill fjöldi fólks i Las
Vegas ber byssur á sér,
hvort sem það hefur
leyfi fyrir þeim eða
ekki. Við ætlum ekki að
standa fyrir neinum
handtökum, en ef vélin
gefur til kynna að
viðkomandi sé með vopn
á sér, verður hann
beðinn að sýna leyfi.
Hafi hann það ekki, fær
hann ekki inngöngu.
„J u b i I a t i on " va r
staðurinn skírður, eftir
frægu lagi Paul Anka,
og er sagður einhver sá
stærsti sinnar tegundar i
öllum heiminum.
Iþróttaáhangendur hafa
aldrei verið villtari en i
dag, segja þeir i
Ameriku. Og hegðunar-
sérfræðingar þar um
slöðir kenna sjónvarp-
inu að mestu um. Þeir
segja að margir þeirra
sem sækja íþróttaleiki,
hafi óstjórnlega löngun
til að komast á
skerminn, og séu því
fúsir til að gera næstum
hvað sem er á vellinum,
bara til þess að sjást á
skerminum. Miklu
meira virðist um það nú
en áður, að áhorfendur
taki að kasta tómum
f löskum og bjórdósum á
vellinum, lendi í
áflogum, eða þjóti i
hópum inn áleikvanginn
sjálfan.
Sérf ræðingarnir segja
að ef engar sjónvarps-
vélar væru til staðar
þegar leikir standa yfir,
þá efist þeir um að
„villimennskan" væri
jafn mikil . Hins vegar
eru ekki allir tilbúnir til
að viðurkenna það að
sjónvarpinu sé um að
kenna, og telja sumir
aðrar ástæður fyrir þvi.
19 ARA STÚLKA
- MARGFALDUR
JÚDÓMEISTARI
Mönnum þykir
óviðjaf nanlegt að sjá
stúlkuna á meðfylgjandl
mynd lyfta tvisvar
sinnurn þyngri karl-
mönnum en hún er sjálf,
og kasta þeim án
minnstu sjáanlegrar
fyrirhafnar. Hún er 19
ára gömul, aðeins 153
sentimetrar á hæð og 48
kiló að þyngd og er júdó-
meistari í Svíþjóð. Árið
1974 þegar hún Var
aðeins fimmtán ára,
vann hún sænsku
meistarakeppnina, þó
hún hefði þá ekki náð til-
skildum lágmarksaldri.
Siðan þá hefur hún m.a.
unnið bronsverðlaun i
ensku meistara-
keppninni, og hún vann
v-þýska tltllinn.
fólk
ALDREI VILLTARI
4 ■ _ . _ ._ . m
Mánudagur 22. maf 1978 VTSIK
y,
/ hi
Aumingja hann,
hann hefðiáttað
vita ab hann kemst
ekki inn til sin meö
nýju Elton John
gleraugun á sér.