Vísir - 22.05.1978, Blaðsíða 13
Sk ^r--.
VISIR Mánudagur
22. mai 1978
17
Kosningasjá Vísis
UM HVAÐ CR KOSIÐ Á
ISAFIRÐI?
Framboöslistar á ísafirði eru
fimm viö þessar bæjarstjórnar-
kosningar: A—listi Alþýöu-
flokks, B—listi Framsóknar-
flokks, D—listi Sjálfstæöis-
flokks, G—listi Aiþýöubanda-
lags og J—listi tíháöra.
kosningar komu fram fjórir list-
ar: B—listi Framstíknarflokks,
D—listi Sjálfstæðisflokks,
G—listi Alþýöubandalags og
I—listi Alþýöuflokks, Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna
og óháöra borgara
Við siðustu bæjarstjtírnar- S jál fs tæöis m en n og
I—listá—nienn mynduðu meiri-
hluta siðasta kjörtimabil.
t’rslit-siðustu bæjarstjórnar-
kosningá, árið 1974, urðu sem
hér segir:
B—Bsti fékk 176 atkvæði og
einn mánn kjörinn, Guðmund
Sveinsson netagerðarmeistara.
D—Usti fékk 647 atkvæði og
fjóra menn kjörna, Jón Ólaf
Þórðarsson-íulltrúa, Jón Krist-
mannsson forstjóra, Guðmund
H. Ingólfsson bæjargjaldkera og
Þorleif Pálsson bankamann.
G—Usti fékk 163 atkvæði og
einn mann kjörinn, Aage Steins-
son tæknifræðing.
1—Usti fékk 493 atkvæði og
þrjá menn kjörna, Jón Baldvin
Hannibalsson skólameistara,
Gunnar Jtínsson umboðsmann
og Málfriði Finnsdóttur hjúk-
runarkonu.
A isafirði búa nú um 3200
manns og eru 1864 á kjörskrá.
—KS
„Ber
hofnarmálin
fyrir
brjósti
•II
A-LISTI
1. Kristján Jónasson,
framkvæmdastjtíri.
2. Jakob ólafsson,
deildarstjóri.
3. Snorri Hermannsson,
húsasmiður.
4. Anna Helgadóttir,
húsmóðir.
5. Tryggvi Sigtryggsson,
vélvirki.
6. Karitas Pálsdóttir,
húsmóðir.
7. Hreinn Pálsson,
rafmagnseftirlitsmaður.
8. Guðlaug Þorsteinsdóttir,
húsmóðir.
9. Hákon Bjarnason,
vélstjóri.
Guðmundur H. Ingtílfsson:
„Leggjum áherslu á byggingu i-
búða á félagslegum grundvelli”
II
Sturia Halldórtson:
„Umhverfismálin isfirðingum
til vansæmdar.”
,,Ég ber hafnarmálin mest
fyrir brjósti, þar sem ég er
tengdur höfninni. Þar er
brýnast úrbóta að koma slippn-
um i gagnið, þótt af nógu sé að
taka. Þar er allt á eftir og við is-
firðingar höfum verið fjár-
magnssveltir i hafnarmálum i
mörg ár”, sagði Sturla
Halldórsson yfirhafnarvörður,
efsti maður á lista óháðra.
Sturla sagði að gatna- og um-
hverfismál væru ísfirðingum til
vansæmdar og þyrfti að snúa
þeim málum til betri vegar.
Þeir væru komnir langt á eftir
öðrum bæjum i þvi að leggja
bundið slitlag á göturnar. Einn-
ig hefði umhverfi . og útliti
bæjarins farið hrakandi enda
hefði bærinn ekki sinnt þessum
málum undanfarið.
Þetta væru tvö helstu málin
sem óháðir berðust fyrir en það
væru mörg önnur mál sem
leggja þyrfti lið. Isafjörður
væru nú að byggjast ungu og
stórhuga fólki sem þyrfti að
styðja við.
„Það verða kjósendur sem
dæma þegar að kjörborðinu er
komið”, sagði Sturla, „hvort
þeir vilja eða vilja ekki slita
pólitisku flokksbondin. Miðað
við undirtektir bæjarbúa erum'
við bjartsýnir á mjög mlkinn
sigur. Það er það eina sem ég
vildi segja”.
Sturla er fæddur á ísafirði
1922 og uppalinn þar. Hann
hefurverið varafulltrúi i bæjar-
stjórn ísafjarðar i tvö kjörtiina-
bil. — KS.
Stefnum að
hreinum
meirihiuta"
„Við leggjum megin-
áhersluna á að viðhalda skipu-
legri stjórn bæjarins. Þannig að
byggðin geti eflst á ailan hátt,
og brýnustu málin sem að okkar
mati bíða næstu bæjarstjórnar
eru fyrst og fremst að halda á-
fram og ljúka þeim stóru verk-
efnum sem fráfarandi bæjar-
stjórn hefur hrint af stað”, sagði
Guðmundur H. Ingólfsson
bæjargjaldkeri, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins.
Guðmundur sagði að sérstak-
lega þyrfti að stefna að umbót-
um i húsnæðismáíum, félags-
legri þjónustu og meiri fjöl-
breytni i atvinnuítfi staðarins.
Þeir legðu megináherslu á upp-
byggingu ibúða á félagslegum
grundvelli, svo sem eins og
leigufbúða á vegum bæjarins,
og verkamannabústaða og ann-
ars sliks. Það sem háði þeim
hvaðmestværi að það væri ekki
nóg framboð af ibúðum til leigu.
Fólk gæti ekki flust til staðarins
og fengið leiguibúð meðan það
væri að átta sig á aðstæðum og
koma sér upp eigin húsnæði.
„Okkar baráttusæti er
fimmta sæti á listanum”, sagði
Guðmundur, „Okkur vantar að-
eins herslumuninn að ná hrein-
um meirihluta i bæjarstjórn,
svo að við getum stýrt bæjar-
málefnum þann veg sem við
teljum æskilegast.”
Guðmundur er fæddur i Hnifs-
dal árið 1933. Hann hefur verið i
sveitarstjórn siðan 1962, fyrst i
hreppsnefnd Eyrarhrepps en
siðan i bæjarstjórn Isafjarðar
eftir sameiningu sveitarfél-
agannaáriöl971. —KS
B-LISTI
1. Guðmundur Sveinsson,
netagerðarmeistari.
2. Fylkir Agústsson,
skrifstofustjóri.
3. Magdalena Sigurðardóttir,
húsmóðir.
4. Kristinn J. Jónsson,
verkstjóri.
5. Einar Hjartarson,
húsasmiður.
6. Kristján Sigurðsson,
verslunarmaður.
7. Birna Einarsdóttir,
húsmóðir.
8. Guðrún Eyþórsdóttir,
húsmóðir.
9. Sigrún Vernharðsdóttir.
„Vtfntar
fjölbreytni i
atvinnulífið"
„Undirstaðan er að hér sé
blómlegt atvinnulif, sem það
reyndar er, en það byggist allt á
sjávarútvegi og er þess vegna
fábreytt. Það sem okkur vantar
er svolitið meiri fjölbreytni i
atvinnulifið”, sagði Guðmundur
Sveinsson netagerðarmeistari,
efsti maður á lista Framsóknar-
flokksins.
Guðmundur hefur setið i bæj-
arstjórn Isafjarðar i eitt kjör-
timabil en áður hafði hann verið
varamaður. Hann er-fæddur ár-
ið 1913, að Góustöðumd--Skutuls-
firði, —KS
Byggja upp
íþróttasvœði
á fjórum
arum
li
Guömundar Sveintson: „Spái
aldrei um kosningar”.
Guðmundur sagði að það gæti
orðið dálitið erfitt,þvi að léttur
iðnaður ætti i vök að verjast
vegna bónusgreiðslna i frysti-
húsunum en iðnaðurinn gæti
ekki borgað jafn-háJaun. Þetta
ylli lika erfiðleikum i verslun og
þjónustu. Af sameiginlegum
málefnum rikis og bæjar nefndi
Guðmundur skólabyggingar, en
byggja þarf yfir menntaskól-
ann, iðnskólann og tónlistar-
skólann. Það væri nauðsynlegt
að vinna að samræmingu skól-
anna og væri nefnd að f jalla um
það mál.
Þá sagði Guðmundur að þörf
væri á að.byggja upp áhaldahús
bæjarins frá grunni. Verkleg
þjónusta sem bærinn hefði átt
að fá frá einkafyrirtæki hefði
verið fyrir neðan allar hellur.
Minni bátar, um 10 tonna, sem
verið hefðu á Isafirði væru að
hverf a og 30 lesta bátar að koma
i staðinn og vantaði betri aö-
stöðu fyrir þá i smábátahöfn-
inni. Þá vantaði einnig algjör-
lega aðstöðu til viðgerða á skip-
um i bænum, það væri enginn
slippur i lagi. Mikilvægt væri
fyrir Isfirðinga að fá ódýrari
húshitun og væri horft til Orku-
bús Vestfjarða i þvi sambandi.
„Ég spái aldrei um kosning-
ar”, sagði Guðmundur , «þeir
ætla allir að fá mikið og eru þeg-
ar búnir að sprengja bæjar-
stjórnina,þannig að ég ætla ekki
að spá neinu”.
„Það seni við höfum gagnrýnt
er að ekki hafi verið staðið nógu
vel að uppbyggingu iþrótta-
aðstöðu annarrar en til sklða-
iðkunar ”, sagði Kristján
Jónasson framkvæmdastjóri,
efsti maður á lista
Alþýðuflokksins. Kristján
sagði að allir væru sammála um
þetta. Það sem réði þessu ef-
laust væri að ráðamenn undan-
farin kjörtfmabil hefðu metiö
það að önnur verkefni væru
meira aðkallandi. Þetta mat
væri rangt að hans dómi og tvi-
mælalaust kominn timi tii að
gera stórt átak i þessum efnum.
Þeir væru með skipulagt
iþróttasvæði sem þyrfti að
byggja upp á næstu 4 árum.
Kristján benti á að á Isafirði
væri mjög einhæft atvinnulif i
fiskvinnslu og sjósóKp. Þetta
væri erfið og mikil vffina sem
leiddi til þess að þeir menn sem
þessi störf stunda slitnuðu fyrir
aldur fram. Hér þyrfti bæjar-
félagið að koma til móts við
menn sem ekki gætu lengur
unnið erfiðisvinnu, með þvi að
koma á fót léttum iðnaði. Þess
væru dæmi að eldri menn flytt-
ust á brott þar sem þeir hefðu
ekki getað fengið vinnu viö sitt
hæfi.
Kristján sagði að fjármagn
Kristján Jónasson: „Þyrfti að
koma upp léttum iönaði fyrir
eldra fólk”
D-LISTI
1. Guðmundur H. Ingólfsson,
bæjargjaldkeri
2. Óli M. Lúðviksson,
framkvæmdastjóri.
3. Jón Ólafur Þórðarson,
fulltrúi.
4. Gunnar Steinþórsson,
rafvirkjameistari.
5. Geirþrúður Charlesdóttir,
húsmóðir.
6. IngQnar Halldórsson,
framkvæmdastjóri.
7. Herinann Skúlason,
skipstjóri.
8. Anna Pálsdóttir,
meinatæknir.
9. Asgeir S. Sigurðsson,
járnsmiður.
G-LISTI
1. Aage Steinsson,
tæknifræðingur.
2. Hallur Páll Jónsson,
verkamaður.
3. Margrét óskarsdóttir,
kennari.
4. Tryggvi Guömundsson,
lögfræðingur.
5. Jónas Friðgeir ‘Eliasson,
verkamaöur.
6. Elin Magnfreðsdóttir,
aðstoðarbókavörður.
7. Reynir Torfasop,
sjóinaður.
8. Þuriður Pétursdóttir,
skrifstofumaður.
9. Smári Haraldsson,
kennari.
bæjarins væri nokkuð bundið i
framkvæmdum sem þyrfti aö
halda áfram með. Þar væri um
að ræða sjúkrahús og heilsu-
gæslustöð. Einnig væri nauð-
synlegt aö reisa dagheimili til
að gefa þeim mæðrum sem
vildu vinna úti kost á þvi. Þá
þyrfti sifellt að vinna að endur-
bótum í hafnarmálum og mætti
ekki iáta slikt sitja á hakanum.
Jafnframt væri gatnagerðin i
brennidepli, en bún væri erfið-
leikum háð vegna dreifðrar
byggðar.
,,Ég lit ekki á neitt eitt sæti
sem baráttusæti”, sagði
Kristján,”„allt það fylgi sem
listinn fær skapar honum styrk
til að fyígja þeim málum fram
sem hann berst fyrir”.
Kristján er fæddur á lsafirði
árið 1934 og hefur átt heima þar
siðan. Hann hefur ekki átt sæti i
bæjarstjórn áður. — KS
„Skðpum
byggilegan
bœ
II
„Okkar markmiö, eins og
flestra annarra, er að skapa
byggilegan bæ. Það eru hins
vegar skiptar skoðanir hvaða
leiðir eigi að fara”, sagði Aage
Steinsson tæknifræðingur, efsti
maður á lista Alþýðubanda-
lagsins.
„Hér er margt sem þarf að
laga”, sagði Aage. „Það skortir
svo til alla félagslega þjónustu
jafnt við unga sem aldna. Það
vantar hér dagheimili. Að visu
er hér eitt gamalt dagheimili en
það fullnægir ekki þörfinni. Þá
er ekkert tómstundaheimili til.
Hins vegar er verið að byggja
dvalarheimili fyrir aldraða.”
Aage sagði að sveitarfélög
hefðu nú talsveröu fé úr að spila
eftir að vinstri stjórnin hefði
skapað þeim betri tekjustofna.
Ef farið væri vel með þetta fé
væri hægt að gera nokkuð mik-
ið. 1 fyrsta lagi þyrfti að leggja
bundið slitlag á götur bæjarins
og vinna að hafnarmálum.
Skipasmíðaiðnaðurinn hengi á
bláþræði og yrði að ráða bót á
þvi. Atvinnulif væri of einhæft,
og ætti að fara meira út i
fullvinnslu sjávarafurða.
„Við erum að berjast fyrir þvi
að koma inn öðrum manni,”
sagði Aage, „það vantar tals-
vertmikið áþað en viö teljum af
öðru visi verði ekki veruleg
stefnubreyting i bæjarmálum.”
Aage er fæddur i Reykjavik
árið 1926. Hann fluttist til Isa-
fjarðar árið 1965, og hefur setið i
bæjarstjórn Isafjarðar siðan
1970. — KS
J-LISTI
1. Sturla Halldórsson,
yfirhafnarvörður.
2. Reynir Adolfsson,
umdæmisstjóri.
3. Asgeir Erling Gunnarsson,
viðskiptafræðingur.
4. Ólafur A. Theódórsson,
tæknifræðingur.
5. Veturliði G. Veturliðason,
vinnuvélastjóri.
6. Eirikur Bjarnason,
verkfræðingur.
7. Sverrir Hestnes,
verslunarstjóri.
8. Lára G. Oddsdóttir,
umsjónarmaður kvöldskóla.
9. Magnús Kristjánsson,
smiður.