Vísir - 19.06.1978, Blaðsíða 2
Hverju viltu spá um úrslit
alþingiskosninganna í
Vestf jarðakjördæmi?
Þorsteinn Sigfússon: Ég held a6
þetta veröi óbreytt. Ég vona a6
Sjálfstæöisflokkurinn haldi sfn-
um þremur.
Halldór Jónsson: Ég vona aö viö
Vestfiröingar fáum aö halda
okkar sjö þingmönnum. Þetta
breytist ekkert og Kjartan
kemst liklega ekki inn.
Magnús Kristjánsson, starfs-
maöur hjá Kubb: Eins og málin
standa nú bendir allt til aö Kar-
vel komist inn. Kjartan hefur
margt fram yfir Sighvat og óg
geri frekar ráö fyrir þvl aö hann
nái kosningu. Þaö er nokkuö
öruggt aö þeir fella Gunnlaug
Finnsson.
Gestur Halldórsson fram-
kvæmdastjóri: Kratar fá kjör-
inn mann. Sjálfstæðismenn
halda sinum tveim kjördæma-
kjörnum. Framsókn fær einn.
Karvel heldur ekki sinu og miö-
aö viö þaö sem Alþýðubanda-
lagiö bætti viö sig I bæjar-
stjórnarkosningunum veröur
Kjartan kjördæmakjörinn.
Guömundur Halldórsson stýri-
maöur á Guöbjörgu IS: Ég vil
litlu spá. Viö höfum lítiö veriö I
landi og ekki gefist tækifæri til
aö fyígjast meö. Ég vil ekki trúa
þvi aö Kjartan komist inn. Þetta
gæti oröiö óbreytt.
Mánudagur 19. júni 1978
VISIB
mannfjöldi sótti útiskemmtunina á Arnarhóli eins og þessi mynd
rjár skrúögöngur fóru um Reykjavik frá Hlemmtorgi, Mikiatorgi, og
undlaug Vesturbæjar aö Lækjartorgi.
Verkalýösins iék á Lækjartorgi —
þar haföi veriö komiö fyrir.
i heilmiklu vikingaskipi
ber meö sér. Visismynd JA.
Unga fólkiö lætur sig sjaldnast vanta á samkomur 17. júni.
Saklausir nesjamenn sendir í rógsferð
Yfirleitt reyna stjórnmála-
flokkar aö haga samvinnu sinni
þannig, aö hún hengi ekki til
þerris kjarkleysi og aumingja-
skap eöa undanbrögö viö sam-
eiginlega ábyrgö. Deilurnar um
kauphækkunarákvöröun meiri-
hluta borgarstjórnar i Reykja-
vik, en sá meirihluti er tæplega
mánaðar gamall, benda til þess
aö ineira sé hirt um komandi
þingkosningar en heilindi i sam-
starfi. Má i rauninni lita á þaö
sem sérstaka tilraun um þol-
gæöi hvernig samstarfsflokkar
Alþýöubandalagsins i borgar-
stjórn bregöast viö bakmáls-
árásum bandalagsmanna út af
.þvi, aö ckki var farið eftir heit-
um froöufallsloforöum um full-
ar visitölubætur á kaup meöan
stóö yfir sú hriö aö freista aö
fella fyrrverandi meirihluta, og
þá eins og nú var haft aö kjör-
oröi aö kjarabaráttan færi fram
i kjörkiefanum. Þegar upp var
staöiö sáu hinir skynsamari
aöilar i Alþýðubandalaginu, fólk
á borö viö Sigurjón Pétursson
og öddu Báru Sigfúsdóttur, aö
ekki var viölit, vegna fjárhags-
stööu borgarsjóös, aö greiöa
fullar visitölubætur á laun nú
þcgar eöa yfirleitt á gildandi
samningstima. Þessu varö æsta
liðið i borgarstjórnarmálefnum
Alþýöubandalagsins aö kyngja,
og læröist þvi um leiö, aö annaö
er aö standa i ræöustól i aöfara
kosninga en standa viö orö og
gjöröir eftir kosningar. Hafa
einkum margir nýliöar flaskaö
á þessari staöreynd, og svo
virðist enn hafa oröiö.
Nú er staöreyndin sú, aö Al-
þýöubandaiagiö hefur dregiö
sér stóran hluta þeirra atkvæöa,
sem Framsóknarflokkurinn
haföi I Reykjavik. Framsóknar-
flokkurinn er þvi i sérstaklega
veikri stööu gagnvart bandalag-
inu, og er varla bætandi á þaö
hörmungarástand. En þeir, sem
eru pólitiskt ósvífnir hafa nátt-
úrlega strax séö þegar kaup-
hækkunarloforöin klúöruöust,
aö komiö var kjörið tækifæri til
að láta Framsókn vorkennast
enn meir en orðiö var. Þess
vegna þótti henta aö hafa i
hvislingum, aö Kristján Bene-
diktsson heföi ráöiö þvi aö ekki
fengust fullar visitölubætur á
launin, eins og Alþýöubandalag-
iö hafði lofaö fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar. Saklaus-
ir nesjamenn froðufella nú yfir
þvi i hverju horni, aö allt sé
þetta þrjótinum Kristjáni Bene-
diktssyni aö kenna, en tvennum
sögum fer af þvi aö einn borgar-
fulltrúa, sem á sæti i stjórn
BSRB, hafi látiö orö falla á þá
lund, aö Kristján hafi ráöiö
þessu.
Sannleikurinn i þessu máli
mun vera sá, að Sigurjón Pét-
ursson kom meö launatillögurn-
ar og lagöi þær fyrir Björgvin og
Kristján, sem samþykktu þær
óbreyttar. Launatillögurnar eru
þvi samdar i Alþýðubandalag-
inu aö öllu leyti, og ættu þeir,
sem treystast til þess, aö and-
mæla þvi. Þótt hentugt sé I að-
fara þingkosninga aö senda sak-
lausa nesjamenn af staö til aö
kenna cinhverjum um svikin
kosningaloforö Alþýðubanda-
lagsins, breytir þaö engu um
staðreyndir málsins.
Þetta mál varpar stórum svip
yfir dálitiö samfélag. Alþýöu-
bandalagsmenn geisast nú fram
i kosningahrið og heita öllum
öllu, aöeins ef fólk fáist til aö
færa kjarabaráttuna inn i kjör-
kiefana. Forusta Alþýöubanda-
lagsins veit fullvel, aö ekki ná
þeir meirihluta á þingi aö þessu
sinni, og þess vegna mun ein-
hver samstarfsaöili þeirra
þurfa aö bera byröar þess aö
kjarabaráttan leysist ekki i
kjörklefanum. A meöan svo er
má láta hina saklausu nesja-
menn trúa hverju sem talaö er
um hina málefnalegu gjörspilltu
samstarfsmenn. Þegar svo
náöst hefur æskilegur meirihluti
fyrir atbeina saklausra nesja-
manna, þarf engum aö svara
iengur hvorki upp á laun eöa
annaö. Þá veröur vinnulöggjöf-
in ekki pappirsins viröi lengur.
Svarthöföi.