Vísir - 15.07.1978, Blaðsíða 3
VISIR Laugardagur 15. júli 1978
3
Hvað segja íslenskir
stgórnmálamenn um
Moskvuréttarhöldin?
berjast gegn gerræðinu.
Svör forystumanna
allra íslenskra flokka/
sem eiga sæti á þingi,
fara hér á eftir.
—H.L.
um.
Þrátt fyrir Helsinki-
sáttmálann er enn verið
að fangelsa menn og
draga fyrir dómstóla,
sem ekki hugsa í takt við
stjórnvöld i Sovétríkjun-
Nýjasta dæmi þess eru
réttarhöldin, þau sem nú
standa yfir í Moskvu og
Kaluga, yfir andófs-
mönnunum Shcharansky
og Ginsburg.
Þessi réttarhöld hafa
vakið mikla athygli um
allan hinn vestræna heim
og því þótti Vísi tilhlýða
að kanna viðhorf ís-
lenskra stjórnmála-
manna gagnvart slíkum
mannréttindabrotum.
Einnig að fá fram hvort
þeir teldu að við islend-
ingar gætum lagt eitthvað
á vogarskálarnar til að
„Hið kommúníska
kerfí þoiir ekki frjálsa
hugsun eða gagnrýni"
— sogir Benedikt Gröndal
„Alþýöuflokkurinn hefur alla
tið verið mjög hlynntur mann-
réttindum og sett frelsi einstakl-
ingsins framar öllu. Þetta hefur
komið fram i áratugi og hugur
okkar er enn hinn sami.
Ég vil lýsa aðdáun á hugrekki
andófsmanna i Sovétrikjunum og
jafnframt eindreginni andúð á þvi
hvernig stjórnvöld þar eystra
hafa farið með þá”, sagði Bene-
dikt Gröndal, formaður Alþýðu-
flokksins.
„Það er sýnilegt”, sagði Bene-
dikt einnig, ,,að hið kommúniska
kerfi þolir ekki frjálsa hugsun eða
gagnrýni og á ekkert svar nema
valdið. Ég tek þvl undir þær radd-
ir út um allan heim sem fordæma
þessi réttarhöld”.
En geta tslendingar eitthvaö og taka þátt i hverskonar samtök-
gert? um sem vinna gegn slikri með-
„Ég tel að við íslendingar eig- ferð á andófsmönnum til dæmis
um að fylgjast vel með þessum Amnesty International. Þannig
málum og læra af þeim. Við eig- veröi nú rödd okkar best heyrð”.
um aö láta skoðanir okkar i ljósi —H.L
ffVEIT EKKERT
UM ÞETTA"
— segir Lúflvik Jósefsson
„Ég óska ekki eftir því
aö segja eitt einasta orð
um þetta", sagði Lúðvík
Jósefsson formaður Al-
þýðubandalagsins.
Vísir hafði innt hann
eftir áliti á réttarhöldum
sovéskra yfirvalda yfir
andófsmönnunum
Shcharansky og Ginsburg
sem nú standa yfir í
Moskvu.
„Ég hef ekkert fylgst
með því og veit ekkert um
það", sagði Lúðvík.
ÓM/HL
„Réttarhöldin vekja
menn til umhugsunar
um sitt eigið frelsi"
.Réttarhöld sem þessi leiöa i
ljós hvernig stjórnarfarið I raun
og veru er I Sovétrikjunum. Þaö
eru mikil vonbrigöi aö þaö sýnist
ekki hafa breyst mikiö til batn-
aöar eftir að Sovétríkin undirrit-
uðu Helsinki-sáttmálann”.
Þannig komst Geir Hallgrims-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins að orði. „Mannréttindi og
skoöanafrelsi eru fótum troðin og
_ segir Geir Hallgrímsson
mannhelgi einskis virt”, sagði
Geir. „Hérer um fylgju sósíalisks
skipulags að ræða. Þar sém
sósialskir búskaparhættir rikja
kemur frelsisskerðing i kjölfarið.
Réttarhöldin þarna austurfrá
vekja menn til umhugsunar um
sitt eigið frelsi, en einnig hvetur
það okkur til þess að leita allra
Jeiða til að koma þeim sem nú
þjást með einhverjum hætti til
styrktar.
Oflugt almenningsálit I heimin-
um gegn slikum frelsisskerðing-
um er vissulega til þess fallið”.
—H.L.
„JM annréttindabrot
af versta tagi"
— segir Einar Ágústsson
„Eftir fréttum að dæma er
hér um aö ræða mannrétlinda-
brot af versta tagi. Það sem
mönnunum er gefið aö sök er
þjóðfélagsgagnrýni. Ef slikar.
reglur væru látnar gilda hér á
landi væri aö minnsta kosti
annarhver lslendingur I þrælk-
unarvinnu.
Ég harma það að Rússar skuli
beita slikum aðferðum”, sagði
Einar Agústsson, varaformaður
Fr am sók nar f lo kksins.
En geta tslendingar eitthvaö
gert?
„íslendingar eru hvarvetna
eindregnir fylgismenn aukinna
mannréttinda eins og við höfum
þráfaldlega sýnt undanfarin ár
og áratugi. Viö munum vafa-
laust halda áfram að leggja
þeim málum lið. Hvort við get-
um breytt gangi mála sem þú
spuröir um skal ég ekki segja.
En ég er hræddur um aö mót-
mæli okkar einna kæmu fyrir
litið”, sagði Einar.
„Mér viröist helsta málið aö
heröa róöurinn á alþjóöa vett-
vangi og bind I þvi sambandi
miklar vonir við mannréttinda-
ráöstefnuna I Madrid 1979”.
—H.L