Vísir - 15.07.1978, Blaðsíða 11
m
VISIR Laugardagur 15. júli 1978
ari. Þvi' aö billin-hefur þrátt fyrir
allt lif, þó hann sé ekki gæddur
gáfum, eölishvöt og tilfinningum
hans, sem áður var þarfasti
þjónninn.
Austurstræti háskólaáranna er
mér ekki lengur til, þó ég gangi
þar hring eftir hring I leit aö ein-
hverju sem ekki er til nema þá
innan i mér sjálfum. t Austur-
stræti hefur eitthvaö mikiö dáiö.
bar hefur eitthvaö mistekist mik-
einhvers staöar viösfjarri á rauöu
skónum. Ef þeir eru þá ennþá til
Viö erum aö gera tilraun meö
þetta á Akureyri.MÖrg skynsam-
leg rök hafa verið færö fram fyrir
þvi aö gera Hafnarstræti aö
göngugötu. Og hverjir eru ekki
móttækilegir fyrir skynsamleg-
um rökum? NU er Hafnarstræti
göngugata fimmtudaga og föstu-
daga eftir klukkan eitt um
11
ekkert aö gera. Ég er á móti
breytingunni, segir Kóki i Sport-
húsinu. Ég yppti öxlum til varnar
sjálfum mér og öörum sem sam-
þykktu þessa tilraun og segi aö
þetta sé nú bara tilraun og þaö sé
naumast timabærtaödæma. Fólk
er ekki búiö aö átta sig á hlutun-
um. En hjarta mitt segir mér aö
tilraunin hafi þegar mistekist, og
mér finnst aö ég myndi greiöa at-
kvæöi á móti þvi aö Hafnarstræti
altap daginn
"T.. - i. y.m*
b 1*
't. ' ,j j ■'' SU e w v L.MÍ
pHANOMAOÍ
feOUV£»lR»
Af blikkbel jumog göngugötwm
Svo hafa vitrir menn
sagt, að allt hverfi til
upphafs sins og hafi til
þess eðlislæga löngun.
Tækniþreytt borgarfólk
nútímans hefur haft
margvislega burði til
frumstæðis á leið sinni
inn i skóginn. Skegg,
lubbi, vafspjarir, klæð-
leysi, hjarðlif, hnefa-
réttur.
Rómantlsk þörf hefur birst meö
ýmsum hætti. Allt gamalt og upp-
haflegt er gott. Hverfum aftur til
nátturunnar! Bööum okkur i
Læragjá eöa Grjótagjá nakin og
óneis! Gerum gamalt skran aö
hibýlaprýöi, kaffikvarnir, klyf-
bera, hornhagldir, hrosshárs-
reipi. Göngum, helst berfætt, i
hæsta lagi á Jesú-sandölum. Burt
meö bilinn, blikkbeljuna, eins og
hann heitir á máli rómantisks
borgarleiöafólks.
Borgarvöld hér og þar hafa
komið til móts viö þetta nýja lifs-
horf. Bíllinn var burtflæmdur af
Strikinu, og hluti Austurstrætis
var friöaöur, svo aö fólkiö gæti
gengið. En menn ganga ekki á
grassveröi frumskógarins i
Austurstræti áttunda áratugar-
ins, heldur á hellum þeim úr
grjóti sem eru öllum bilum dauö-
iö. Þaö fyllist ekki. framar af
neinum Ástum eöa Tótum. Ég sé
enga fröken Reykjavik ganga þar
um, hvaö þá heldur á ótrúlega
rauðum skóm.
Hugmyndin var vafalaust
góöra gjalda verð og gerð af góð-
um hug og til þess aö mæta fróm-
um óskum. En það var ekki leiöin
til lífsins aö flæma blikkbeljuna
burtu. Takið eftir aö hún heitir
blikkbelja á máli þeirra sem
fyrirlita hana I oröi. Beljan hefur
lif. Og þetta llftjón veröur ekki
bætt meö þvi aö tylla litilli stein-
mynd af skáldi strætisins upp á
súlu yfir dauöum hellunum og
láta hana mæna eftir tómu stræt-
inu, þar sem engin Asta eöa Tóta
er I sjónmáli og fröken Reykjavik
óákveöinn tima. Gert I lilrauna-
skyni. Aftur veröur snúiö ef til-
raunin telst hafa mistekist.
Ég held hún hafi mistekist. Ég
sédauðamörk á strætinu þegar ég
geng eftir þvi þessa daga um
aftaninn. Ekkert iöandi mannlif.
Eitthvaö sem minnir á eyöimörk,
en ekki skóg. Eitthvaö kaldara en
áöur. Er ég svona háöur þarfasta
þjóni nútimans, blikkbeljunni?
Eöa er ég baraþrællvanans? Eöa
hefur fólk ekki áttaö sig ennþá?
Þannig spyr ég og spyr sjálfan
mig þegar ég geng inn Hafnar-
stræti siödegis á föstudag.
Jafnvel Pósthúsiö er tómt. Eg
er á móti breytingunni, segir Óli
G. listmálari á Pósthúsinu. Þetta
er allt dautt slðan, steindautt,
yröi göngugata, ef þaö kæmi á
þessari stundu til minna kasta.
Fáeinarhræöurlötratilogfrá á
gangstéttunum. Enn hefur fólkiö
ekki lagt bás blikkbeljunnar, ak-
brautina, undir sig. Þetta er lik-
lega vaninn, svona sterkur, hugsa
ég, og vist sé ég fáeina foreldra
spásséra meö börnin sin, þar sem
blikbeljan stóö kyrr eöa kjagaöi
áfram á síhringnum áöur.
Nokkrir útlendingar, kallaöir
túrhestar og ætlaöir til féþúfu,
rangla um, og Qórir klossaþjóö-
verjar sitja ábúöarfullir og
þreytulegir á tröppum Sporthús-
sins I gömlu Hamborg, rétt eins
og þeir bæru gjörvalla þjóöarsiö-
bót Alþýöuflokksins i niöþungum
segldúksbakpokunum. 2.7. ’78
G.J.
rrYið erum ekki byltingarmenn eg
bfiðum elfki - »eflir Oug-undur S. J6n»«on
■fVwwlll wTWwlUl starffsmaður Þjóðmálahreyfingar Islands
„Proutist Universal er alheims hreyfing, sem
byggir á nýrri þjóðfélagsheimspeki, Progressive
Utilisation Theeory (PROUT), sem sett var fram
af Indverjanum P.R. Sarkar. Hreyfingin var
stofnuðá Indlandi 1959, þaðan barst hún til Ástralíu
og Ameriku fyrir 6-7 árum og Evrópu fyrir 2-3 ár-
um. Islenska deildin, Þjóðmálahreyfing Islands,
var stofnuð fyrir hálfum mánuði."
Það er ungur maður, Guðmundur S. Jónasson
sem talar. Hann er starfsmaður þessarar hreyfing-
ar og ritstjóri nýs timarits, sem hún gefur út og
heitir Vitund og veruleiki.
Guðmundur sagði aö þeir
Prout-menn hygðust gefa ritið út
fjórum sinnum á ári og hlutverk
þess væri að breiða út boðskap
hreyfingarinnar og vera fjár-
hagslegur grundvöllur starfsins.
Hann sagði hinsvegar að höf-
undar greina i blaöinu bæru
sjálfir ábyrgð á skoöunum og
kenningum sinum en ekki
hreyfingin. Blaðið ætti að vera
opinn umræöugrundvöllur þar
sem öllum áhugamönnum væri
heimilt aö tjá sig um þau efni sem
tekin veröa fyrir hverju sinni.
„Mannlegi þátturinn situr
ávallt i fyrirrúmi".
En hvurslags hugmyndafræði
er sú, sem Guömundur og
hreyfing hans boðar?
,,Hugmyndafræði okkar er al-
tæk”, sagði Guömundur. „Þetta
er hugmyndafræöi sem fyrst og
fremst byggir á mannúöarstefnu
og andhyggju. öfugt við
kommúnisma og kapitalisma er
þessi nýja hugmyndafræði ekki
byggð á efnishyggju. Hún er þvi
andstæö bæöi kapitalisma og
kommúnisma.
Viö teljum að i öllum mannleg-
um samskiptum eigi mannlegi
þátturinn ávallt að sitja i fyrir-
rúmi. Þjóöfélagsframför og ein-
staklingsþroski veröa aö fylgjast
aö ef árangur á aö nást viö sköpun
betra samfélags.”
En er þessi ágæta hreyfing ykk-
ar ekki aðeins enn eitt flokksbrot-
ið á vinstri vængnum?
„Sósialisminn sem hér hefur
verið boöaöur byggir á röngum
forsendum”, svaraöi Guð-
mundur. „Hann gerir fyrst og
fremst ráð fyrir þvi að maöurinn
sé efnahagsleg vera og þvi nægi
aö breyta efnahagskerfinu til að
breyta einstaklingnunum og
skapa nýtt þjóðfélag.
Viö teljum hinsvegar aö þeir
menn sem ætla sér aö breyta
þjóðfélaginu verði að vera lausir
sjálfir viö þá galla sem þjóð-
félagið skapar og vera fyrirmynd
öörum. Þeir verða að vera gæddir
skilningi á eðli mannsins og ein-
staklingsbundnum og félagsleg-
um þörfum hans og vera öörum
fyrirmynd meö góðu fordæmi.
En ef bornir eru saman til
dæmis lifnaöarhættir vinstri og
hægri manna þá lifa þeir i raun
sama lifi. Hugmyndirnar eru ein-
ungis aðrar.
1 grein minni i Vitund og veru-
leika sem f jallar einmitt um þetta
gagnrýni ég mjög ýmsa þætti
Marxismans til dæmis.
Sjálfur er ég fyrrverandi
kommúnisti. En eftir aö hafa
kynnt mér þessa hluti, þá tel ég
ákaflega litils af þessum
hreyfingum kommúnista að
vænta. Enda byggir hugmynda-
fræöi þeirra á sömu efnishyggju
og hinna svokölluöu borgaralegu
flokka sem þeir þó gagnrýna svo
mjög.”
„Lýðræðisskipulagið er
eftir allt fullkomnasta
stjórnarfar sem nú er við
lýði"
Þið stefniö þá ekki aö byltingu I
kommúniskum skilningi?
„Við erum ekki byltingarmenn
og boöum ekki ofbeldi.”
Fyrir mitt leyti vildi ég heldur
búa i kapitallsku þjóðfélagi en
kommúnisku. Lýöræðisfyrir-
komulagið er eftir allt saman
fullkomnasta stjórnarfarskerfi
sem nú er viö lýði, þrátt fyrir
annmarka sina. Þetta kerfi telj-
um við standa framar þvi „alræði
öreiganna” sem þekkist i skjóli
kommúnista flokka i A-Evrópu og
...ef bornir eru saman lifnaöarhættir vinstri og hægri manna þá kem-
ur i ljós aö þeir lifa i raun og veru sama lffi. Hugmyndirnar eru einung-
is aörar”.
viöar”, sagöi Guömundur aö lok-
um.
Þess má geta aö blaö þeirra
Prout-manna Vitund og veruleiki
fæst i öllum helstu bókaverslun-
um og er meö margvislegu efni.
Þar má til taka greinar eftir
Erich Fromm, Egil Egilsson,
Einar Þorstein Ásgeirsson, Birgi
Svan Simonarson, Fritjof Capra,
Sigmar Arpórsson, Mortier
Arias, John de Graf, Guttorm
Sigurðsson og Guðmund S. Jónas-
son.
Þá er i ritinu kynnt tvö ung
ljóöskáld, þau Gunnhildur Heiöa
Axelsdóttir og Bardús. Einnig
myndlistarmaöurinn Guömundur
Oddur Magnússon.
Þá má aö endingu geta þess aö
verið er aö kanna hvort grund-
völlur sé fyrir heimsókn sál-
fræöingsins Erichs Fromm til is-
lands i haust á vegum Þjóðmála-
hreyfingar islands.
—H.L.