Vísir - 22.07.1978, Side 4

Vísir - 22.07.1978, Side 4
4 Laugardagur 22. júli 1978 VÍSIR ’Rœtt við Ómar Ragnarsson um heima og geima, — í háloftum og að tjaldabaki Viðtal: Sveinn Guðjónsson Myndir: Þórir Guðmundsson Að upplagi er ég bœði feiminn og daufgerður ég hef bara verið svona heppinn ,/Viö fáum mikinn mótvind strákar, um 50 hnúta," — segir ómar um leið og ,,Frúin" sleppir flugbrautinni og viö svífum upp yfir bæinn. — „Ef þetta helst f júkum við til baka í nótt." ómar lítur á okkur, gleiðbrosandi og er greinilega í ess- inu sínu. Síðan hallar hann vélinni og tekur stefnu í norð-vestur. Það er nánast útilokað að fá viðtal við ómar Ragnarsson eftir venjulegum leið- um. Hann er á eilífu flakki út og suður, ýmist í hlutverki fréttamannsins eða skemmtikraftsins. Þess utan eru áhugamálin svo mörg að maður furðar sig á hvernig honum endist sólarhringurinn til að sinna öllu þessu. Það er því ekki um annað að ræða en að fylgja honum eftir á f lakkinu og freista þess að festa á blað einhver gullkorn sem kunna að hrjóta af vörum hans við stjórnvölinn í f lugvélinni eða á meðan hann skiptir um buxur að tjaldabaki þar sem hann á að skemmta að þessu sinni. „Það jafnast ekkert á við flugið" Viö erum sem sagt á leiö vestur á Stykkishólm og meö I förinni eru j>eir Bessi Bjarnason leikari og Jón Sigurösson, hljómiistar- maöur. Áöur en viö fórum I loftiö haföi Bessi haft á oröi aö Ómar væri afbragðs flugmaður, — ,,ein- hver sá besti hér á landi. Hann tekur aidrei áhættu og svo þekkir hann landiö svo vel,” segir Bessi og þaö eru orö aö sönnu. Aiia leiö- ina er Ómar aö benda okkur á staöi sem hann nafngreinir og svo virðist sem hann þekki hverja þúfu sem viö fljúgum yfir: ,,Ég hef haft áhuga á landa- fræöi frá blautu barnsbeini en þaö byrjaði þannig aö pabbi gaf mér landakort eitt sinn þegar ég lá veikur. Þetta hefur fylgt mér alla tiö siöan og varð m.a. til þess að ég fór út i flugið fyrir 12 árum. Og raunar blandast inn i flugdelluna enn eitt áhugamálið sem er veðurfræði. Það má eiginlega likja þessu við skemmtilega þraut;til dæmis þegar ég þarf að komast á milli landshorna til aö skemmta á einum og sama degin- um. Það getur verið mikil kross- gáta að koma þessu öllu heim og saman og þá spilar þetta allt inn i, landafræðin, veðurfræðin og svo náttúrulega ástand vélarinnar og vallarins á hverjum stað. Ég er óskaplegur dellukarl en af öllum þeim dellum sem ég hef fengið er flugið i sérflokki. Það jafnast ekkert á við þaö. Biladell- an sem ég var lengi illa haldinn af hefur þokað fyrir fluginu. En hvaö meö rall-kappakstur- inn? ,,Jú, þaö er gaman af rall- akstrinum. En hvorki er það holl iþróttagrein né það aö hún sé númer eitt fyrir mér. Sennilega hefðum við bræðurnir hætt nema af þvi að okkur gekk svo illa i fyrsta rallinu að við urðum að halda áfram þess vegna. Svo i öðru, þriðja og fjóröa rallinu gekk okkur svo vel að viö gátum ekki heldur hætt. Þetta er eins konar vitahringur.” „Siðasta spölinn á reið- hjóli" „Flugið hefur komið sér mjög vel fyrir mig i þessum skemmti- bransa. Ég get komið viðar viö og þaö er mun þægilegra fyrir mig aö skipuleggja skemmtanirnar og það hvernig ég á að komast á milli. En þetta hefur oft staðið tæpt og stundum mikið kapphlaup að komast i tæka tið. Þeir hafa ekki alltaf verið rólegir strákarnir i Sumargleöinni að sjá mig kannski i sjónvarpsfréttunum klukkan hálf niu og skemmtunin á aö byrja norður á Siglufirði klukkan niu. En þetta hefur allt blessast einhvern veginn. Ég man eftir einni verslunar- mannahelgi sem ég held að hafi slegið öll met hvað þetta varðar. Ég átti að vera i Vaglaskógi að kvöldi og svo i Hallormsstað fyrir hádegi daginn eftir og svo aftur i Vaglaskógi eftir hádegið. Strax á eftir þvi fór ég i Galtalæk og siöan að Laugarvatni. Svo þurfti ég að koma viö i sjónvarpinu og henda þar inn filmum sem ég hafði tekið á þessum stööum og fara aftur austur að Laugarvatni og enn til Reykjavikur til að skipta um undirleikara og fá mér hraö- skreiðari flugvél þvi ég þurfti að koma við i Húsafellsskógi áður en ég fór norður á Raufarhöfn. A þessum sólarhring dundi yfir mig alls konar veður og þær voru fimm flugvélarnar sem lágu eftir þessa törn þvi ég þurfti að skipta um vélar bæði vegna bilana og

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.