Vísir - 22.07.1978, Síða 13
I
ER VERÐBÓLGAN
ÓLEYSANLEGT VANDAMÁL?
Að frumkvæði sænska heiibrigðisráðuneytisins var REN I
MUN vísindalega rannsakað í Vipeholms sjúkrahúsinu í
Lundi.
Árangurinn var svo jákvæður að nú mæla sænskir tann-
læknar og sænski tannlæknaskólinn með REN I MUN til
enn betri tannhirðu.
Gód keilsa ep gæfa feveps iaaRRs
FftXAFEbbHF
ftN FbÚOR I
ftN SblPIEFNft!
SPARIÐ 20% -
NOTIÐ AGFACOLOR FILMU
fýi
Austurstrœti 7
Simi 10966
vísm
Laugardagur 22. júli 1978
Verk unnið út frá barnaævintýrinu um Hans og Grétu.
Dæmigerð nestistaska barns fyllt til helminga af hvitum
steinum og brauðmolum.
„Steingervingur". Gifsafsteypa af tréklump*.
alla aðra. Þessi blandaða tækni
býður upp á vissa vidd i túlkun á
hugsun og tilfinningu okkar fyrir
lifinu og tilverunni. Mér finnst
spennandi að fást við hegðunar-
munstur okkar og lifshætti út frá
þeim hugsunarhætti að ekkert sé
sjálfsagt og óbreytanlegt.
Finnast þér þær túlkunarað-
ferðir sem þú velur þér aðgengi-
legar almenningi?
Fólk sem vill njóta myndlistar-
verka verður að beita tÚ þess at-
hygli sinni ogskynjun. öllum sem
gera það, vona égað verkmin séu
aðgengileg. Mig langar til þess að
ná til fléiri með verkum minum
en þeirra sem stunda gallerý
borgarinnar. Oft vill það verða
svo að sýningargestir eru mest-
megnis aðrir myndlistarmenn.
Það er stór spurning á hvaöa
vettvangi hentugast er að koma
hugmyndum sinum á framfæri.
Hvernig finnst þér búið að is-
lenskum myndlistamönnum?
Það er sko ekkert búið að þeim.
Samféíagið gefur okkur kost á
menntun sem það svo hefur mjög
takmarkaðan áhuga á að nýta að
námi okkar loknu. Leikarar hafa
leikhúsin, tónlistarfólk sinfóni-
una, en myndlistarmenn eru oft
álitnir óþarfur sértrúarhópur,
samt er myndlistarfólk oft sá
hópur sem fæst hvaö opinskáast
við samtimann. Myndlistafólk
verður að gripa til alls konar
vinnu. Það eitt, að fást við
myndlist, krefst mikillar vinnu to
tima, en hún er lika jafnframt
mitt val, áhugamál sem gerir
minar aðstæður ólikar þeim sem
flestir lenda i. Innan okkar flóknu
þjóðfélagsbyggingar eru hlut-
verkin mörg.
Hlutverk myndlistarmanns er
ekki viðurkennt til jafns við flest
önnur hlutverk i krónutölu af
þjóðfélaginu. Þótt ég velji jietta
hlutverk þrátt fyrir þaö, ber það
ekki vitni um leti og ábyrgðar-
leysi af minni hálfu heldur óeðli-
legt mat fjöldans á myndlist. Svo
ég útskýri þetta með dæmi: An
efa hefur þú séð að öll sumur er
garðurinn hans Asmundar i
Laugardalnum fullur af erlendu
ferðafólki sem keppist við að
skoða stytturnar hans. Við
hreykjum okkur af þessum verk-
um þvi þau sýna að hér býr sið-
menntuð þjóð. Það vekur þó
spurninguum hve siðmenntuð við
séum þegar hafter i huga að það
eru ekki liðin svo mörg árin frá
þvi að þessi verk voru miskunn-
arlausthædd og fyrirlitin af fjöld-
anum, hvað þá að Ásmundi hafi
verið umbunað fyrir sköpun
þeirra. Það er mjög leiðinlegt að
myndlistarmenn sem ekki eru
rigbundnir af hefðum séu álitnir
tilgangslausir I þjóðfelaginu.
Og hver úlitur þú hlutverk
þeirra?
Margþætt, en það mikilvægasta
aðbrjóta niður þá einangrun sem
þeir og verk þeirra hafa verið i i
samfélaginu til þess að það megi
njóta þess að lifa i hugmynda-
fræði samtimans.
Mér finnst myndlistarverk i
dag oft einkennast af leit að sam-
hengi á milli manneskja, tilfinn-
inga hennar og þeim raunveru-
lega tima og þeirri tækni sem hún
upplifir.
Hugtök eins og fegurð og gæði,
og hæfni myndlistarmannsins til
að fullnægja i verkum sinum
kröfum um slik gildi eru ekki
lengur þaðsem mestumáli skipt-
ir. Myndlistin er langtum fjöl-
breyttari en það. Mér finnst
japanski leirkerasmiðurinn
Hamada komast vel að orði um
þetta þegar hann segist ekki hafa
áhuga á árangrinum heldur þvi
að halda áfram. Listamaðurinn
er ekki að reyna að gera sjálfan
sig ódauðlegan heldur litur á sig
sem þáttakanda i sköpun sam-
timans. I dagber mikið að þvi að
fólk skortir lifsfyllingu og ég held
að það sé af þvi að það hefur van-
ist þvi að vera matað á allan hátt
en fær ekki útrás fyrir heilbrigöa
sköpunarþörf sina. Fólk er hrætt
við vankunnáttu á sviði tækni.
Fjöldinn kaupir sé frekar hljóm-
flutningsgræjur en hljóðfæri þótt
t.d. pianó sé átórkostlega
skemmtilegt hljóðfæri hvort sem
maður KANN að spila eöa ekki.
Viðmiðunin er bara röng, spurn-
inginer ekki hvort þú spilar betur
eða ver en ég, þú spilar öðru visi.
Nú ert þú nýkomin úr skóla,
heldur þú að það verði ekki erfitt
að vinna á óhefðbundinn hátt.
Myndlistarmaður sem fer sinar
eigin leiöir þarf fyrst og fremst
kjark. Ég safna honum.
Annars finnst mér framtiðin
spennandi þvi ég hef áhuga á
henni sem viðfangsefni skilurðu?
Hvernig list þér kvenfrelsisbar-
áttan?
Ég held að það sé smá hié i
kvenfrelsisbaráttunni núna, eins
konar umhugsunartimi fyrir kon-
ur. Það er nefnilega einfaldara að
breyta lögum, almenningsálitinu
og skoðunum heldur en minni-
máttarkennd, hræðslu og óöryggi
þvi sem konur þurfa að yfirbuga
áður en baráttan heldur áfram á
viðara sviöi en hingað til hefur
verið. Konur eru afskaplega spé-
hræddar þvi þeim hefur verið svo
mikið stritt. Það umhverfi sem ég
erj' núna virkar hvetjandi á mig
til að starfa aö myndlist, en ég
finn að ég þarf að vinna á minu
eigin vantrausti til þess að geta
orðið verulega virkur mynd-
listarmaður. Ég hlakka mikið til
aö veröa vitni að kvennalist, hver
hún er og hvaða braut hún
stefnir.
Hvað um bein tengsl hug-
myndafræði kvenfrelsisbarátt-
unnar og nýlistarinnar?
Kvenfrelsisbaráttan er ekki
eingöngu bundin konum heldur er
hún barátta manneskjunnar i dag
gegn gildismati og heföum sem
eru ekki lengur i takt við þann
tima sem við lifum á. Húner bar-
átta um rétt til þroska á þeim
sviðum sem hver kýs sér án tillits
til kynferðis. Þetta tengist mjög
þeirri vidd og f jölbreytni sem ný-
listin leggur áherslu á. Er ekki
einkennilegt hve okkur reynist oft
erfitt að fást við eigin framför?
Hugsaöu þér t.d. við erum hrædd
við að hafa skoðanir vegna þess
að við erum enn hræddari við að
vera komin með aðrar skoðanir
eftir viku. Með þviaðveraforvitn-
ar og hugsandi verur hljótum við
að skipta oft um skoðun eöa við-
horf td hluta og málefna og það
finnst mér jákvætt.
Er fólk hvatt til forvitni af fjöl-
miðlunum?
1 heild eru fjölmiölarmir ofsa-
lega spennandi vettvangur fyrir
tilraunastarfsemi nýlistamanna,
en þeir eru bara svo ótrúlega
staðnaðir. T.d. hefur breytingin á
efnisskrá hljóðvarpsins ekki stað-
ið i neinu hlutfalli við breyttan
tima og hugmyndir.
Sjálf tæknin tekur stöðugum
framförum en ekki það sem varp-
að er til fólks. Sama má segja um
dagblöðin og sjónvarpið.
Hvað hyggst þú gera á næst-
unni?
Svo sem eðlilegt er hef ég unnið
undanfariö undir talsveröum
áhrifum frá kennurum minum og
mér finnst ekkert neikvætt aö
setja mig inn I þeirra hugsunar-
hátt, þvi þeir eru mjög góðir
myndlistarmenn. Ég er aö reyna
að átta mig á þvi hvaða viðfangs-
efni höfða til min, hverjir minir
möguleikar eru og hverjar tak-
markanir, t.d. i sambandi við efni
til að vinna i.
Ég hef gert mikiðaf þvl að set ja
sjálfri mér verkefni og ganga þá
út frá ákveðinni hugmynd og
glima svo við útfærslu hennar og
mér finnst gaman að fást við hug-
myndafræðileg efni og oft er út-
færslan önnur en texti á blaði
ónauðsynleg. Ofter-þaö lika þann
ig að ég sé ekki fram á f járrað né
nauðsynlega aðstöðu til þess aö
framkvæma sumar hugmyndir
minar, svo ég læt mér nægja að
skrifa þær niður og nýt þess þá
baraþegar mérþóknasti einrúmi
að hafa íengið góða hugmynd.
ER EITTHVAÐ AÐ FOTUM YÐAR?
antiseptic foot baim
EFSVO ER, ÞA MUNU
VORURNAR HJALPA YÐUR
FASTINÆSTA APOTEKI
KEMIKALIA HF.