Vísir - 31.07.1978, Síða 10

Vísir - 31.07.1978, Síða 10
10 VÍSIR Otgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Reykjaprent h/f Davfð Guðmundsson Þorsteinn Pálsson ábm. Ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. (Jmsjón með helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaða- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrfmsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónfna Mikaelsdóttir, Katrfn Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlitog hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, MagnúsOlafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8. Sfmar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2—4 sfmi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2000 á mánuði innanlands. Verð f lausasölu kr. 100 eintakið. Prentun Blaðaprent h/f. Frjálst útvarp Á sama tima og kröfur um frjálst útvarp verða æ háværari ákveður fráfarandi rikisstjórn að verja nokkr- um milljörðum króna til þess að byggja yfir ríkisútvarp- ið. Ákvörðun þessi er ámælisverð aðallega af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi stangast hún á við þá f járfestingarpólitík, sem viðurkennd er í orði og ætti að vera ríkjandi í verki. í annan stað er hér um að ræða yf irlýsingu af hálfu frá- farandi ríkisstjórnarflokka, að þeir vilji ekki frjálsan útvarpsrekstur. Ástæður þessar eru með öllu óskyldar. Onnur tekur að- eins miðaf núverandi efnahagsástandi, en hin snýst um grundvallarviðhorftil ríkisfjölmiðlunar í frjálsu þjóð- félagi. Ef ríkisstjórnin hefði ákveðið að verja þremur til f jórum milljörðum króna til þess að byggja yfir ríkis- blað og fengið því einokunaraðstöðu til dagblaðaútgáf u hefði orðið borgarastyrjöld í landinu. Slík ákvörðun væri brot á stjórnarskrá og færi gegn öllum hugmyndum um almenn borgaraleg réttindi. Þessi hugmynd er reyndar svo f jarstæðukennd að hún fellur ekki undir annað en barnaskap. En í raun og veru er enginn sá munur á útvarpsf jölmiðlun og dagblaða- f jölmiðlun að þar um eigi að.gilda gjörólíkar reglur. Rikisútvarpið býr að vísu við þröngan húsakost. En áður en ákveðið er að verja mörgum milljörðum króna til hallarbyggingar yf ir þessa ágætu stof nun verða menn að gera upp við sig, hvert hlutverk ríkisins á að vera í f jölmiðlun af þessu tagi. Fráfarandi ríkisstjórnarf lokk- ar hafa tekið ákvörðun um þetta atriði að því er virðist án umhugsunar. í raun og veru eiga menn að hafa sama rétt til útvarps- reksturs og dagblaðaútgáf u innan þeirra marka, sem tæknilegar aðstæður leyfa. Stundum er því haldið f ram, að frjáls útvarpsrekstur leiði til aukins ójafnaðar í þjóð- félaginu. Vegna kostnaðar við stofnun og rekstur stöðv- anna. Þessi rök eru þó haldlaus með-öllu. Það er miklu ódýrara að stof na og reka staðbundna út- varpsstöðen hef ja útgáfu dagblaðs. Ef þessi kostnaðar- röksemd ætti að gilda væri óhjákvæmilegt að láta hana taka til blaðanna einnig. Það dettur hins vegar engum í hug. I annan stað er því haldið fram, að frjáls útvarpsf jöl- miðlun standist ekki menningarlegan samanburð við rikiseinokunarf jölmiðlun. Frjáls útvarpsf jölmiðlun er jaf nvel talin afsiðandi. En skyldu ekki gilda alveg sömu lögmál um frjálsa blaðaf jölmiðlun. Vitaskuld getur hún orðið lágkúruleg. En við fórnum ekki frelsinu af þeim sökum. Okkar þjóðfélag er einfaldlega það menningarlega sterkt að við þolum fullkomlega frelsi. Ríkiseinokun er engin trygging fyrir hámenningu, þó að okkar einok- unarútvarp hafi um margt staðið sig ágætlega i þeim efnum. Þaðer menningarstig þjóðarinnar sjálfrar sem | mótar f jölmiðlana. Ef frjáls útvarpsfjölmiðlun siðspillir þjóðinni geta frjálsir stjórnmálaf lokkar gert það alveg eins. Ugglaust mun þaðtaka langan tíma að ryðja f rjálsu útvarpi braut. En fráfarandi stjórnarflokkar hafa tafið það verk i hugsunarleysi með því meira að segja að brjóta gegn stefnu sinni í f járfestingarmálum. Mánudagur 31. júli 1978 VISIR „Vafasamt að unnt verði að tryggja kaupmótt launa" gera á þvi.Til þess aö segja um þaö hvaö miklar breytingarnar þurfi að verða þyrfti maður að hafa staðreyndirnar á borðinu. En verði gengið fellt þyrfti jafn- hliða að gera aðrar ráðstafanir i peningamálum, fjármálum og vísitölumálum, sem komi i veg fyrir að það sama eigi sér stað og við fyrri gengisfellingar að árangur þeirra renni á skömm- um tima út i sandinn. Aðalvandinn i dag er vixl- hækkun verðlags og kaupgjalds” Um siðustu ráðstafanir rikis- stjórnarinnar að ábyrgjast greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði sagði Ólafur, að það væri aldrei annað en hrein bráðabirgða- ráðstöfun. Næsta skrefið yrði þá að tryggja fé til þess. Þetta gæti ekki leyst vandann nema mjög skamman tima. ,,Að óbreyttu ástandi held ég að óhætt sé að segja að rekstrargrundvöll m segir Ólafur Björnsson prófessor um lausn efnahagsvandans ,,í stuttu máli tel ég að I fyrsta lagi veröi að koma á jafnvægi i greiösluviðskiptum okkar viö útlönd. 1 öðru lagi að tryggja þaö aö sæmilega rekin út- flutningsfyrirtæki geti haldið áfram rckstri sinum. Og svo er auövitaö nauösynlegt aö stööva veröbólguvöxtinn. Ef þaö verö- ur ekki gert má gera ráö fyrir þvi aö ráöstafanir sem ná fyrr- nefndum markmiöum veröi haldlitlar”, sagöi Ólafur Björnsson prófessor i samtali við Visi er hann var beöinn aö segja álit sitt á ástandi efna- hagsmála þessa dagana. „Þetta er það sem þarf að gera”, sagði Ólafur, ,,en siðan er það spurning um leiðirnar. Mér finnst aðalatriðið, miðað við það sem áður hefur verið gert,að taka peningamálin sér- staklega föstum tökum. Stöðva verðbólguaukningu frá þeirri hlið. Að minnsta kosti þarf að koma i veg fyrir að raun- vextir, eins og það er kallað, séu neikvæðir. Ef það er ekki gert hlýtur verðbólgan að halda áfram.” — En þarf að breyta skráningu gengisins? „Mér þykir það ekki óliklegt að einhverja breytingu þurfi að Umræöurnar sem fram hafa fariö um stööu Sjálfstæöisflokksins nú sföustu vikur hafa veriö býsna fróölegar. Þær endurspegla aö nokkru ólik viöhorf innan flokksins, en þó miklu fremur hugrenn- ingar einstakra manna og tiifinningahita eins og eðlilegt er á timum vonbrigöa. Flestir sjálfstæöismenn hafa taliö þaö nokkra búmannsbót aö bera sig karlmannlega og heitið þvf aö safna liöi, eins og margvitn- uö Ólöf rfka, þegar hún spuröi fall Björns bónda sins. Þaö er vissu- lega vel. En þrátt fyrir aila karlmennskuna hafa ýmsir sjálfstæöismenn, — flokksbræöur mfnir — veriö I hefndarhug. — Hver er sökudólgur- inn? Finnum hann og drepum, þaö er allra meina bót, hafa margir þeirra sagt i blaðagreinum upp á sfökastiö. Sumir hafa þóst býsna fundvisir. Geir Hallgrfmsson er hinn slæmi maöur, aö dómi nokk- urra sjálfstæöismanna. Skiptar skoðanir Að visu hafa skoðanir verið skiptar. Sumir vilja reka hann úr forystu, aðrir gjarnan lika , en sakir þess að þeir sjá engan meðal sinna sem skárri er, telja þeir aö best sé aö leyfa Geir að sitja i formannssætinu, þar til betri maður finnst. Niðurstööur sem þessar finnst mér heldur fáfengilegar og lítt igrundaðar. Þær lýsa einkar vel hugarfari þeirra manna sem slikar skoðanir aðhyllast. Aö komast að svona niðurstöðum, er i raun og veru að einfalda svo hina pólitisku mynd, að engu tali tekur. Eða hvernig dettur nokkrum heilvita manni það i hug að formaður stjórnmála- flokks beri einn ábyrgð á vel- gengni eöa tapi flokks sins. Þar valda margir samverkandi þættir, sem er alls ekki svo auð- velt að skýra. Með kikinn við blinda augað Þýski heimspekingurinn Nietzsche, sagði að guð væri dauður.og boðaði ofurmennis- kenningu. Eg efa það ekki, að væri hann nú á lifi þá fagnaði

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.