Tíminn - 18.09.1969, Side 2
2
TÍMINN
FIMMXXTDAGUR 18. september 1969.
Tilraunaflug
Boeing-747
EJ-Reykjavík, miðvikudag.
Tilraunir hafa nú staðið yfir
um nokkurn tíma með hina nýju
stóru þotu Boeing-verksmiðjanna,
Boeing-747. Hafa fimm slíkar vél-
ar verið smíðaðar, og eru allar
notaðar við tilraunaflugið.
Meðfylgjandi mynd var tekin á
Boeing-flugvellmum í Seattle í
Bandaríkjunum á döigunum, og |
sjást allar fimm vélarnar þar sam
an — en ein þeirra, sú sem er
fjærst á myndinni, er að undirbúa
flugtak.
Vélarnar ern merktar Boeing
og flugfélögunum PanAm og TWA.
Hafa þær samtals flogið hátt í
500 klukikustuindir.
Trjónan framan á vélinni fremst
á myndinni er sérstakt mælitæki.
10-12 DAGA USTAHÁTÍD
í REYKJA VÍK NÆSTA ÁR
SB-Reylcjavík, þriðjudag.
Listahátíð í Reykjavík verður
haldin í fyrsta sinn á næsta ári,
en samnefnd stofnun hefur með
höndum undirbúning hátíðarinn-
ar. Aðilar að listahátíðinni eru
nítján talsins. Hátíðin mun standa
í 10—12 daga. Höfuðáherzla mun
lögð á að kynna íslenzka list svo
og norræna og alþjóðlega list.
Álkveðið hefur verið, að halda
í fyrsta sinn listahátíð' í Reykja-
vók síðari hiluta júnímánaðar
1970. Sérstöik stofnun, sém nefn
ist Listahátíð í Reykjávdk, hefur
mieð hömdum undirbúning hátíðar
innar.
Forsaga þessa máls er sú, að
Ivar Bskel'and, framtovæmd'astjóri
Norræna hússins, skrifaði bongar-
stjióna bréf fyrir rúmu ái'i síðan
og hreyfði hugmymdiiniiii:. iHenni
var tekið vel af borgarnáði. og
var einnig borin undir stjórn
Nomaona hússins, sem féllBt á að
eiga hlut að undirbúningi og
rekiS'tri hátíðarin.nar, 'innan þeirra
maTfca, sem starfsemi hússins eru
setit. Næsta skref var, að Hanmes
Davíðsson, forseti Bandalags ísl.
listamanna og Ivar Esfceland
kvöddu tn fund'ar við sig fulltrúa
ýmissa fé'lia'gssamtaka og stofn-
ana. sem afréðu. að efna til lista-
hátíðar í Reyikjavík og leggja
fram fé í því sikyni. Lög fyTÍr
Listahátíð í Reykjawík voru síðan
samlþyklkit í marz 1969.
Aðilar að Listahátíð í Reyikja
vík eru: Menntamállaráðuneytið,
Reykjavfkurborg, Arkitetatafélag
íslandis, Bamdailag ís'l. listamanna,
Félag ísl. leikará, Félag ísl. list-
dansara, Félag ísl. mymdlistar-
mianna, Fólag ísl. organleikara,
Félag ísl. tónlistanmanna, Leik-
félag Reyfcjavítaur, Listasafn fs-
lands, Musica Nova, Norræna hús
ið, Ríkisútvarpið, Rithöfundasam
band ísland's, Sinfómíuhlljiámsveit
ísttaradis, Tónisikiáíldafólag ÍB'landB,
Þjóðieifchúsið. Bnnfr'etnur var
Ragnari Jónssyni, forstjóra, boðin
persónuleg aðild og tók hann því
boði.
Ofanigreindir aðilar eiga full-
trúa í sérstöku fulltrúaráði og
ákveðið er í lögum s-tofnuna-rinn
ar, að menintamiáilaráðherra og
borgarstjóri gieigni til stoiptis for-
m'enmsku. Geir Hallgrímsson er
púveranidi formaður.
Poi’maður framikiviæmdiastjóim-
ar er Páll Líndal, borgarlögmað-
ur, en framikvæmdastjóri sjálfrar
Ibtahátíðlarinnar er Ivar Esfce-
land, end'a hefur hamm kynnt sér
sérstakilega fyrirfcomul'ag listahá-
tíða erlendis. Norræma húsið ann
ast skrifstofuha'ld stofnunarinnar.
Um nokkurt skieið hefur verið-
kaninað, hivaða efni væri fáanlegt.
Höfuðáherzla verður lögð á að
bynina íslenzkia list, svo og nor-
ræna og aliþjlóðllega list. Síðar
mun greint frá einstökum dag-
skrárliðum, en þó má geta þess,
að fyrir milligönigu menntaimiála
ráðherra og Vladimirs Aakenazy,
fást nokkirir eimiskunnir', tónlist-
arimenn til að fcoma hér fram á
veigum hát'íðiarinmar. Má þar nefna
auik Asfcenazy sjiálfs, hljómsveit
arstjórann Amdré Previn, söhg-
bonuna Vietoria die los Angeles,
fiðttuil'eikarann Isaac Perlmán,
píaniói'eifcaranu Daniel Barenbaum
og S'ellóll'eifcara'no Jacu'eline du
Pré.
Gert er ráð fyrir, að á lista-
hátíðinni verði sinfóníutón'leikar,
kiammertónlleikar, einsöngstónleik
Framlhald á bls. 14.
4. hefti Samvinnunnar 1969:
Greinarflokkur um stöðu
konunnar í þjóðfélaginu
SB-Reykjavík, miðvikudag. ;
Blaðinu hefur borizt 4. hefti
Samvinnunnar 1969, sem að þessu
sinni er að miklu leyti helgað
efninu „Konan og þjóðfélagið“ og
rita margir í blaðið um það. Einn
ig er fjöldi greina, smásögur og
jóð, ásamt heimilisþætti. Heftið
er 68 bls. og gott og vandað eins
og venjulega.
í greinaflobknum um konuna og
þjóðfélagið, skrifar Jóhanm Hann-
esson, prófessor, um endurreisn
mæðraveldis, Aase Eskeland, hús-
móðir skrifar um konuna, sem
nýtt sögulegt fyrirbæri. Vigdlís
Finmbogadóttir skrifar um mennt-
un kvenna, Bryndfe Schram um
hina ósýnilegu stétt. Þá er grein
eftir Ön,nu Sigurðardóttur um
I mannréttindaárið, Margrét Mar-
geirsdóttir skrifar um einstæðar
mæður og Hólmfríður Gunnarsdótt
ir um fyrirvinnuhugtakið og goð-
sagnirnar. 1 ritstjóraspjalli blaðs-
ins, segir m.a. um efnið: — Þegar
þess er gætt, hve margar konur
settu svip sirnn á þjóðlíf fyrri alda
hérlendis, þá gegnir furðu, hve
lítt þær láta til sín taka í nútím-
anum. Á íslandi hefur kona aldrei
setið í ráðherrastóli, bankaráði, út
varpsráði, menntamálaráði, þjóð-
leikhúsróði, iðnfræð-sluráði, kirkju
ráði, aldrei gegnt störfum banka-
sitjóra, sýslumanns, sendiherra,
hæstaréttardómara, og þannig
mætti lengi telja.
Löng grein er í blaðinu um
Framhald a bls. 14
Atvinnuástand
sæmilegt á
Grundarfirði
þetta sumar
— miklar afskipanir
þar á freðfiski
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
Ellefu til þráttán bátar hafa
lagt upp hjá Hraðfrystihúsi Grund
arfjarðar h. f. í sumar, og þegar
nægilegt hráefiii hefur verið fyrir
hendi, hafa um 70 manns unnið í
frystihúsinu, sagði Þórarinn Sig-
urðsson framkvæmdastjóri húss
ins, er fréttamaður innti hann eft
ir starfseminni á dögunum.
Bótarnir, sem gerðir hafa verið
ið út frá Grundarfirði í sumar og
lagt upp hjá frystihúsinu eru:
Gnýfari 65 tonn, Farsæll 60 t., Sig
urfari 45 t. Siglunes 60 t. Riunólf
ur 120 t. Grumdfirðingur II 60 t.
Asgeir Kristjánsson (áður Pétur
Sigurðsson) 140 t. og svo trillurn
ar Haddur, Frosti, Ársæll, Svala,
Bliki og íslendingur. Ásgeir Krist
jánsson, Grundfirðingur og íslend
ingur hafa ekki verið í föstum
viðskiptum, en Islendingur hefur
stundað rækjuveiðar og lagt upp
hjá Zophoníasi Cecilssyni. Hefur
báturinn aflað sæmilega einíbum í
júii Segja má að eigandi bátsins
Friðþjón Gunnarsson, hafi á eigin
reíkning staðið fyrir tilraunum
með þennan veiðiskap, sem er
áður óþekktur á þessum slóðum,
án þess að t. d. hreppsnefnd hafi
mér vitanlega gert nokkra tilraun
til þess að útvega honum styrk,
sém ekki hefði verið óeðlilegt þar
sem rækjan veitir mikla vinnu, en
er ekki að sama skapi arðvænleg
fyrir báitinn. Aflahæstur báta-nna
er Gnýfari, skipstjóri Gisli Krist-
jánisson. Er hann búimn að leggja
upp á þriðja hundrað tonn á sum-
arvertíðinni.
Þórarinn sagði, að frystihúsið
væri búið að taka á móti 2.200
tonnum af fiski frá áramótum og
til ágústlo-ka. Þar af bárust að-
eins 1000 tonn á vertíðinni, sem
er algjört lágmark á vetrarvertíð.
Vinna hefur verið sæmilega góð
í súmar, og þegar nægilegt hrá-
efni hefur borizt að, hafa um 70
manns haft vinn-u í frystihúsinu.
Það sem af er árinu, hafa verið
greiddar rúmar fjórar milljónir
í vinnulaun hjá frystihúsinu, en
framleiðslan á árinu er 25—30
milljón króna verðmæti, mest-
megnis freðfiskur, en frystihúsið
hefur einnig haft skreiðarverfcun,
Framhatd á bls. 14
„Mótor”
nýtt bílablað
Út er komið vandað blað um
bila og viðlhald þeirra, ásamt
öðru fróðlegu efni. Blaðið er
vandað, prentað á góðan pappír og
með fjölda mynda, og heiitir
MÓTOR.
Af efni þess mó m. a. telija
greinar um ganigsetningu bila í
köldu veðri, um afl á aflhemlum
(power brafces), greinar um bif
hj'óladeild lögreglunnar, bíla for
setans, viðtal við híiasala, o. m.
fl.
Blaðið er til sölu á öllum
venjulegum blaðsöliusitöðvum,
bensínstöðvum og víðar.
Útgefandi og ábyrgðarmaður er
Guðmundur Karlsson, Kópavogi.
Björn Fr. Björnsson
sextugur í dag
Bj'ör'n Fr. Björnisson, sýslumað-
ur Ran'gæinga og þingmaður Suð-
■uirl'andiskjlördiæmís, er sextuigur í
dag. Hann er fæddur í Reykjavík
18. sept. 1909 sonur Björns
Hieronymussonar verkamanins og
Guðrúna-r G-uðmund'sd'óttur konu
hans. Han.n varð stúdient í Reykja-
vík 1929 og tók lögfræðipróf við
Hástaóttia fslandis 1934. Síðao vann
hamn að lögfræðistörfum í Reykja
vfk og víðar að lofcnu pPófi. Hann
var settur sýslumiaður í Árnes-
sýslu 1936—37 og sýslumaður í
Ranigárvallasýslu 1937. Hefu-r
hann gegnt því embætti síðan.
Hann var kjörinn alþingismaður
Rangœiniga fyrir Fnams'ótanar-
Uo'kkinn 1942 og aftur 1959 oig
síðan heffur bann veríð þingmað-
ur Suðurlandiskjiördæmis. Hanin
hiefur gegnt fjölmöngum trúnaðar-
störfum öðnum innan héraðs og
utan, m. a. verið formaður sfcóla-
nefnd'ar Stoógasfcóla og formaðúr
stjiórnar Kaupfélags Ramgtæinga.
Kona Björns er Ragmheiður Jóns-
dlóttitir frá Deildaitumgu.
Bjarni Jónsson
SÝNIR
í EYJUM
SB-Reykjavík, miðvikudag.
Bjarni Jónsson, listmálari opnar
ar á laugardaginn málverkasýn
ingu í Vestmannaeyjum. Á sýning
unni eru 30 olíumálverk og krítar
myndir og eru þær ailar til sölu.
Bjarni hefur stundað nám hjá
ýmsum kunnum myndlistarmönn-
um og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga bæði heima og eriendis, en
þetta er fjórða sjálfstæða sýning
hans.
Myndirnar, sem Bjarni sýnir að
þessu sinni eru all-ar nýjar og til
sölu. Sýningin í Vesbmannaeyjum
verður opin í rúma viku. Bjarni
Jómsson hefur áður haldið tvær
sj'álfstæðar sýningar í Reykjavík
og eina í Hafnarfirði. Aulk þess
hefur hann tekið þábt í fjölda
Frambaiu á bls. 14