Vísir - 15.09.1978, Side 12
12
c
Föstudagur 15. september 1978 VISIR
VISIR Föstuda
gur 15. september 1978
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson — Kjartan L. Pálsson
17
Æfingabúðir IBV
á sólarströndum?
Vestmannaeyjar geröu sér
ekki miklar vonir um aö komast
áframl 2. umferö i
UEFA-keppninni, eftir a hafa
náö marklausu jafntefli gegn
Glentoran hér heima á
dögunum i ömurlega lélegum
leik.
Þeir höföu pantaö sér farmiöa
til sólarlanda eftir siöari leikinn
og þar hugöust þeir dvelja
ásamteiginkonum sinum næsta
hálfa mánuö. Héldu frúrnar
utan til London i morgun og þar
munu þær hitta hetjurnar sinar
siöar i dag, er þeir koma frá
Belfast.
Iteikna iná meö aö
Eyjaskeggjar fái ekki aö flat-
maga i sólinni á Spáni í hálfan
mánuö. Þeir veröa aö halda sér
við og æfa fyrir næstu umferö,
scm verður i nóvember. Má þvl
eins búsat viö aö þeir þurFi aö
taka eitthvað fram knattspyrnu
skóna á Spáni og einnig aö
hlaupa um á ströndinni, en þaö
veröa þeir aö gera ef þeir ætla
ekki aö fara alveg úr æfingu.
Vonandi veröa þeir meö
fullskipaö liö i annarriumferö
Evrópukeppninnar, en heyrst
hefur aö a.m.k. einn leikmaður
IBV hafi veriö undir smásjá hjá
breskum liöum i leiknum i gær.
Er þaö Sigurlás Þorleifsson,
scm bar af á vellinum er tBV og
Glentoran léku fyrri leik sinn i
Kópavogi i siöustu viku.
Höföu , .njósnarar” haft
fregniraf honum eftir þann leik,
og var vitaö aö einhver liö
ætluðu aösenda menn til Belfast
til aö fylgjast meö honum og
öðrum leikmönnum ÍBV þar.
Ef Eyjaskeggjar veröa
heppnir meö lið i 2. umferð —
fá t.d. eithvert frægt lið frá
Englandi eöa af meginlandinu
— ættu þeir a ð rétta vel viö fjár-
haginn hjá sér en bullandi tap
varð á leik þeirra bér heima
við Glentoran. Þurftu þeir aö fá
yfir 2000 manns til aö sleppa viö
tap, en rétt liðlega 700 áhorf-
endur komu á leikinn — eöa 1300
manns of litið —klp—
j. ««• , A - „h-M
'
A
HREINU
Þeir sem auglýsa eftir
húnnœöi eða auglýsa
hÚ8næði til leigu í Vísi eiga
nú kost áaðfá ókeypis
eyðublöð fyrir húsaleigu-
8amránga hjá auglýsinga-
deild VÍ8Í8 að Síðumúla 8.
í þeim eraðfinna
öll mikilvægustu ákvœðin
sem ber að hafa í huga
þegar húsaleigu-
samningur er gerður.
Þetta eykur öryggi óg
hagrœði þeirra sem not-
fœra sér húsnæðismarhað
VÍ8Í8.
Húsnæöi í boði
Hjá þeim er húsnæðið á hæinu!
VÍSIR
Síðumúla 8 Sími 86611
Sigurlás Þorleifsson f baráttu viö varnarmann Glentoran. Allt fór í b brand í Bel | Visismynd Einar. íl og Fast!
— ÍBV sló Glentoran út úr UEFA-keppninni með því að gera jafntefli 1:1 — Friðfinnur Finnbogason rotaður eftir leikinn
Þaö gekk mikið á i Belfast i gær-
kvöldi, er ÍBV og Glentoran gerðu þar
1:1 jafntefli i siðari leik sinum i UEFA
kcppninni i knattspyrnu. Þetta jafntefli
nægöi ÍBV til aö komast áfram i 2.
umferö, þvi aö fyrri leiknum lauk meö
0:0 jafntefli og IBV kemst áfram á þvi
aö hafa skorað mark á údvelli.
Það munaði litlu að það mark yrði
ekki að veruleika, það kom á siðustu
minútu leiksins, er Orn óskarsson bak-
vörður brá sér i sóknina og skoraði.
ÍBV hafði átt i vök aö verjast i fyrri
hálfleik, og þá náði Glentoran forustu
með marki Caskey á 45 min.
Vestmannaeyingarnir náöu sér hins-
vegar betur á strik i siðari hálfleiknum,
og örn Óskarsson sendi svo Glentoran
út úrkeppninni með marki á lokaminútu
leiksins.
Þvi miður tókst okkur ekki að ná sam-
bandi við leikmenn IBV eftir leikinn,
þar sem siminn á hóteli þeirra var
bilaður, en Reuter fréttastofan kvað
íslendingana hafa komið mjög á óvart i
leik num.
Friðfinnur rotaður!
Mikil harka var i leiknum undir lokin,
og mönnum orðið heldur betur heitt i
hamsi. Þegar leikurinn var svo flaut-
aður af, og það orðið staðreynd, að IBV
kæmist áfram, fór allt i bál og brand.
Einn áhorfenda óð inn á leikvanginn
og hljóp að Friðfinni Finnbogasyni mið-
verði IBV. Var hann ekki að tvinóna viö
hlutina heldur gaf Friðfinni einn vel úti-
látinn og svo mikið var höggið að Frið-
finnur var borinn af velli rotaður og
siðan fluttur á sjúkrahús. Ekki er þó
reiknað með að hann sé alvarlega
meiddur.
Þetta kjaftshögg kann að reynast
Glentoran afdrifarikt. Málið verður
örugglega tekið fyrir á fundi hjá Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, og nær öruggt
má telja að Glentoran fái fjársekt og
leiki ekki heimaleiki i Evrópukeppni á
næstunni — ef kjaftshöggið kostar þá
ekki það að félagið verði útilokað frá
keppninni um sinn. gk—
Landsliðið
valið gegn
Hollandi
Landsliösnefnd Knattspyrnu-
sambands tslands valdi I gær
Ali og
Spinks
í hringinn
í nótt!
Menn biöa nú meö mikilli eftir-
væntingu eftir keppni Muhammed
Ali og Leon Spinks um heims-
meistaratitilinn i þungavigt i
hnefaleikum, sem fram fer í New
Orleans i nótt (kl. 02.15 aö isl.
tima). Reiknað er með metað-
sókn og flestar tölur i sambandi
viö hnefaleikakeppni verða vist
slegnar, s.s. tölur um upphæö
greidds aðgangseyris o.s.frv.
Kapparnir voru vigtaðir i gær,
en það gekk ekki átakalaust fyrir
sig. Blaðamenn og ljósmyndarar
fjölmenntu nefnilega svo á hótel-
ið, þar sem sú athöfn átti að fara
fram, að við lá að það þyrfti að
hætta við allt saman.
En það greiddist úr þessari
flækju, og það var Ali sem varð
fyrri til aö stiga á vigtina. Hann
reyndist vera 100,24 kg á þyngd,
eða aðeins léttari en hann var i
fyrri bardaga sinum við Spinks.
Spinks vigtaði hinsvegar ekki
nema 91,17 kg, en er samt þyngri
en hann var i fyrri bardaganum.
Það vakti athygli manna að Ali
hélt sér alveg saman á meöan á
þessari athöfn stóö. Hann er þó
þekktur fyrir að senda væntan-
legum keppendum sinum
„hæðnisglósur” viö þessi tæki-
færi, en nú var kappinn hinn
rólegasti.
Sigri Ali i nótt, verður hann
fyrsti maðurinn til að vinna
heimsmeistaratitilinn þrivegis.
Takist það, þá er það einstakt af-
rek, sem verður sennilega seint
leikið eftir.
Ali á aðbaki 58 viðureignir sem
atvinnumaður i hnefaleikum.
Hann hefur sigraö 55 sinnum, en
tapað fyrir Joe Frazier, Ken
Norton og fyrir Leon Spinks i' titil-
bardagaþeirra s.l.febrúar. Hann
hefur 37 sinnum unnið á „knock
out” (rothöggi).
Spinks á aðeins 8 viðureignir að
baki sem atvinnumaður. Hann
hefur unnið 7 þeirra og einu sinni
gert jafntefli. Fimm sinnum
hefur hann unnið á „knock out”.
gk—•
Stórsigur
Honved
Leimenn ÍBV og Glentoran
voru ekki þeir einu sem voru aö
keppa I UEFA keppninni i knatt-
spyrnu i gær.
Griska liðið Oluppiakos fékk
Levski Spartak frá Búlgariu i
heimsókn i gær og sigraði með
2:1, og i Ungver jalandi vann ung-
verska liðiö Honved stórsigur
gegn Adnaspor frá Tyrklandi 6:0.
Þetta voru fyrri leikir liðanna.
landsliöshópinn sem heldur tii
Hollandsum helgina, en þar leika
tslands og Holland landsleik i
Evrópukeppni landsUöa n.k. miö-
vikudag.
Einn leikmaður kemur nú inn i
hópinn, sem ekki var með i lands-
liðshópnum gegn Póllandi og
Bandarikjunum,en það er Asgeir
Sigurvinsson, sem kemur tU Hol-
lands frá Belgiu. Hinsvegar fara
fjórir leikmenn úr fyrri hópnum
ekki út til Hollands, en það eru
Diðrik ólafsson markvörður,
Gisli Torfason, Róbert Agnarsson
og Hörður Hilmarsson. Lands-
liðshópurinn er þvi þannig skip-
aður:
Þorsteinn Bjarnason IBK
Arni Stefánsson Jönköping
Janus Guðlaugsson FH
Karl Þórðarson 1A
Arni Sveinsson 1A
Pétur Pétursson IA
Jón Pétursson Jönköping
Jóhannes Eövaldsson Celtic
Asgeir Sigurvinsson Standard
Atli Eðvaldsson Val
Dýri Guðmundsson Val
Ingi Björn Albertsson Val
Guðmundur Þorbjörnsson Val
Ólafúr Júlíusson IBK
Sigurður Björgvinsson IBK
Fararstjórar verða Ellert
Schram, Friðjón Friðjónsson,'
Hilmar Svavarsson, Arni Þor-
grimsson og Youri Ilichev lands-
liðsþjá lfari.
Leikur liðanna fer fram i
Nijmeigen, en þar léku^ liðin
einmitt i forkeppni HM á siðasta
ári.
Þetta er fyrsti leikur hollenska
landsliösins eftir HM i Argentinu i
sumar, og vitað er að Hollending-
arnir verða meönokkra nýja leik-
menn, sem ekki hafa leikiö lands-
leiki áður. Sem fyrr sagöi, heldur
liöið utan á sunnudagsmorgun.
Visir verður meö mann i ferðinni,
og mun flytja daglegar fréttir frá
Hollandi.
Callaghan
fór til
Swansea!
Ian Callaghan, sem um árabil
hefur veriö einn af máttarstólp-
um enska knattspy rnuliösins
Liverpool, yfirgaf félagiö I gær og
hélt til 3. deildarliðsins Swansea.
Callaghan, sem á að baki 850
leiki fyrir Liverpool — þar af 640 i
deildarkeppninni — fékk frjálsa
sölu, sem þýðir að allt kaupverð
Swansea rennur beint til hans.
Hann mun hitta gamla félaga
sina frá Liverpool hjá Swansea.
Framkvæmdastjóri liðsins er
enginn annar en John Toshack,
sem lék lengi með Liverpool, og
þar eru einnig Tommy Srni’th,
Phil Boersma og Alan Waddle en
allir þessir kappar gerðu garðinn
frægan hjá Liverpool hér áður
fyrr.
Þá seldi Tottenham i gær John
Duncan til Derby fyrir 150 þús-
und pund, en hann er fyrsti leik-
maðurinn, sem Tottenham selur,
eftir að hafa keypt argentinsku
leikmennina Osvaldo Ardiles og
Richardo Villa. gk-.
J
Katrin Pálsdóttir, blaöamaöur, dregur út nafn vinningshafans I
gær. Vlsismynd GVA.
Valsmenn
eru vin-
sœlastir
Valur er vinsælasta knatt-
spyrnuliðiö á tslandi 1978 sam-
kvæmt skoöun lesenda VIsis.
Kosningunni um þennan titil
lauk i fyrrakvöld, og þá höföu
okkur borist 6280 atkvæöaseöl-
ar. Þess má geta aö Valsmenn
sigruöu einnig I þessari keppni
s.l. ár.
Valsmenn hlutu aUs 859 at-
kvæöi, en Skagamenn sem
veittu þeim haröa keppni komu
næstir meö 815 atkvæði. sföan
kom Fram meö 760, Vfkingur
413, KR 401, ÍBV 377, Sclfoss 329,
Skaliagrímur úr Borgarnesi 216,
tBK 186 og KA varö f 10. sæti
meö 124 atkvæöi.
Alls hlaut 31 liö atkvæöi, og
þau liö sem ekki hefur veriö
minnst á eru þessi: Einhverji,
Sindri, Vikingur ó, Vföir, Aftur-
elding, óöinn, Stjarna, UMFG,
USVS, Fylkir, Armann, Ilauk-
ar, Keynir S., Austri, Þróttur
N., Völsungur, tBt, Þór, Þróttur
■ N.i FH og Breiöahlik.
Eins og i f>Tra munu Vals-
menn fá frá VIsi bikar til minn-
ingar um sigurinn i kosning-
uiini, og veröur hann afhentur
viö fyrsta tækifæri.
„Reiknaði
alls ekki
með þessu'
,fcg rciknaöi alls ekki meö aö
hljóta vinningþótt ég tæki þátt i
>essu”, sagði Guölaugur Heiga-
son, Eskihliö 10, er viö hringd-
um i hann i gærkvöldi og tjáöum
honum aö hann heföi hlotiö 50
>úsund króna vöruúttekt hjá
versluninni Útilifi I Glæsibæ.
Guðlaugur var einn þeirra,
sem greiddu Val atkvæöi I
kosningunni um vinsælasta
kuattspyrnuliöið og hann haföi
heppnina meösér.er við drógum
i gærkvöldi. Eftir helgina mun
hann þvi versla i Útilifi i Glæsi-
bæ fyrir 50 þúsund krónur.
,,Ég hef aldrei veriö i Val og
litið stundaö iþróttir sjálfur, en
ég er ákafur stuöningsmaöur
Vals engu aö siöur” sagði Guö-
iaugur. „Ég reyni alltaf að fara
þcgar Valur er aö kcppa i knatt-
spyrnu eöa handknattleik, þvi
aö þetta er mitt félag.”
gk-.