Tíminn - 25.09.1969, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.09.1969, Blaðsíða 3
fTMMTUDAGUR 25. september 1969. TIMINN 3 Nobkrar staðreyndir: Adam: Fyrsti apinn, sem komst að raum um, að hann var e'kki api. Kurteisi: Að gera þvert gegn þvi, sem mann langar rnest til. Jazz: Tónlist, sem er tekin sund- ur og sett skakk't saman. Kósakki: Maður, sem situr á engu og dansar. Vigt: Hlutur, sem maður stágur á og kemist í vont skap. Blaðamaður nokkur hugðist hafa viðtal við dverg, sem kom ið hafði til bæjarins með fjöl- leikaiflokki. Hann barði að dyr- um á vagni dvergsins. — Ég vildi gjarnan fá að taia við dverginn Tommy, sagði han-n við manninn, sem kom til dyranna. — Það er ég. —Þér! En þér eruð næstum tveir metrar é hæð! —Já, ég er að hvíla mig fyr ir næstu sýningu. — Ég ætla að líta á hatt, en hann verður að vera eftir nýj- ustu tízku. — Viljið þér ekki setjast augnabiik frú? Tízkan er ein mitt að breytast núna. Þeir voru a3 hringja frá skrifstofunni, Jón, og spurðu, hvort þú yrðir marga daga heima vegna veikinda konunnar þinnar. Ógift kona á „bezta aldri“ hafði mjög strangar siðferðis- hugmyndir. Þetta kom m. a. iila niður á læðunni hennar, sem aldrei mátti koma í námunda við fresskött. Þegar konan fór í sumarleyfi til Mallorca, kom hún lœðunni í fóstur hjá vina fólki, en það varð að lofa því, að sleppa henni ekki lausri. Eftir hálfan mánuð, þegar konan skyldi koma heim, fékk vinafólkið símskeyti í staðinn: — Hef það dásamlegt. Er trú- lofuð. Verð hálfan mánuð til. Hleypið kisu út. — — Góði herra! Þér vilduð víst ekki hjálpa fátækum flakkara, sem hefur misst annan fótinn? — Því miður, ég hef engan fót afganigis. Skipstjórinn á einu herskipinu, tók eftir 5—6 ára snáða, sem fylgdist með af miklum áhuga, öl'lu, sem fram fór hjá herskip unum. — Er pabbi þinn í flotanum? spurði hann drenginn einn dag inn. — Nei, en mamma er þar. DENNI D/EMALAUSI — Hvenær verðið þið búnir með sundlaugina? Þeir gömllu góðu Bítlar senda bráðlega á markað enn eina plötu. Að þessu sinni verður um að ræða LP-plötu í einföldu albúmi, en síðasta pliata þeirra var „tvöföid“, og kom út árið 1968. Nýja platan befur þegar verið skírð og mun heita „Abtoey Boad“, en það er götu- nafn í' Londion. Á meðfylgjandi mynd eru Bítlarnir á göngu ylfir Abtoey Boad, og auðvitað á gangbraut, því að þetta eru heiðvirðir borgarar, sem aldrei fara yfir götu -nema lögum samkvæmit. Mynd þessi mun reyndar vera framhlið plötu- umslaigisinis, en enn sem komið er er ekki búið að ganga frá því til fullnustu. Kunnugir henma, að plata þessi sé lík þeim, sem þeir hafa áður sent fná sér. Það eina, sem skeri hana frá þeim sé það, að þeir séu bara enn þá betri en fyrr. Þá segir einnig í fréttatil- kynningu, að á plötunni séu sextán alveg nýjar melódíur eftir þá félaga, en sum>ar þeirra séu reyndar stuttar. ★ Djemial Ali, þrjátíu og fimm ára gamall náungi, hafði í mörg ár Ihaldið ibúum bæjarins Ku- talhya í Tyrklandi í gr-eipum óttans. Hann var margoft i fangelsi en j'afnskjótt og hann slapp þáðan, hélt hann áfram fyrri iðju sinni, að hræða fólk og jiafnivel mieiða. Hann hefur ráðizt á fjölda manns, og aðeins heppnin hef- ur bjargað honuim frá því að verða manns bani. Djemal Ali var í augum bæjarbúa allt hið illa og óttalega. Fyrir skömmu lokkaði hann þrettán ára dreng á afvikinn stað og kom hrottalega frarn við hann. Nær dauða en lífi tókst drengnum að sleppa frá bon- um, og fáum tímum seinna vissu aHir bæjarhúar um síð- asta ódæði Djemals Ali. Stuttu síðar var hann enn á ný hand- tekinn, en þegar lögreglan kom með hann á torgið framan við lögreglustöðina, safnaðist þar saman mikill mannfjöldi, nokk- ur þúsund reiðra borgara. fólkið réðst á lögreglumenn- ima nær ært af reiði, sleit af- brotamanninn úr höndum lag- anna vörðum og dró hann inn í miðjan hóp sinn, og þar hefndu borgararnir sín grimmi lega á Djemal Ali, þeim er í tíu ár hafði gert þeim margt til' miska. Síðan þegar hefndarþránni var fullnægt gekk hver að sín- um starfa sem áður, en Djernal Alli lá dauður eftir. Bose Kennedy — konan, sem siögð er „gerð af stáli“, móðir Johns hins látna Bandarikja- forseta ,og tveggja annarra mætra manna, sem dóu fyrir aldur fram fyrir morðiugja- hendi og af slysförum, virðist nú að mestu komin yfir áfall- ið, sem hún varð fyrir, þegar yngsti sonur hennar, Édv/ard, lenti í bílslysi, sem gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir stjórnmálaframa hans. Eftir slysið lokaði hún sig ’nni, vild. ekkj nokkurn óviðkomand; sjá. en nú hefur hún aftur tekið tii við daglegar lífsvenjur sínar, fer til kirkju, syndir, fer í langa göngutúra og leikur golf. Hún hefur einnig kastað sér allshugar út f baráttu fyrir frama yngsta son-arins á stjórn- miálasviðinu. — Þetta var slys, sorglegt slys, sem hefði getað komið fyrir hvern sem var, iýsti hún nýlega yfir á fjölmennri sam- komu. — Sonur minn hefur þá hæfileika til að bera, sem þarf til þess að vera forseti í Bandaríkjunum. Þetta mál mun gleymast, og diag nokkurn mun sonur minn taka sér bólfestu i Hvíta hiúsinu. Það er þar sem hann tillheyrir. ¥ William Jones er að mörgu lejdii athyglisverður náungi. Hahn er piparsveinn, en áður en hann varð fjölskýldumaður vann hann að jafnaði tólf til ★ fjórtán stundir daglega, unz sivo kom að hann tók sér nokk- urt Mé til þess að athuga sinn gang. Hann gerði það upp við sig, að hann vildi verða fjöl- skyldumiaður, verða faðir. Þess vegna sendi hann umsúkn til réttra aðila, urn að hann vildi ættleiða barn, en það hafði aldrei áður gerzt í Bandaríkj- unum, ao einstæður karlmaður vildi ættleiða barn — og eftir nokkurra mánaða nákvæma at- hugun á fortíð Jones, sennilegii framtíð, og fjölskyldumálum hans, sambandi bans við vini og kunningja og fólk yfirleitt, gerðist hið einstæða — hon- um var veitt leyfi til að ætt- leiða barn. Wi'Hliam Jones er veliiðini máður, og til dæmis brugðu allir kunningjar hans við, þeg- ar hann allt í einu var orðinn faðir, og útbjuggu handa hon- um barnaklæðaskáp, sem senni lega er einbver stærsti sinnar tegundar í Bandaríkjunum og þótt víðar væri leitað. Jones ættleiddi tæpra þriggja ára gamlan dreng, og bana hef ur sagt, að nú fyrst, þegar hann er orðinn fertugur, lifi hann fyrir alvöru. Hami hafi reyndar verið smeykur fyrst í stað, hafi til dæmis ekki þor- að annað en að sofa 4 gólfinu fyrir framian rúm drengsins fyrstu næturnar, en skrekkur- inn hafi horfið. Nú líði honum dáisamlega. Og það gerir son- urinn einnig, en þeir. eru sam- an hvenær sem Jones á frí. 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.