Vísir - 16.10.1978, Page 10

Vísir - 16.10.1978, Page 10
10 Mánudagur 16. október 1978VXSIR VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davfð Guðmundsson Ritstjórar: þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmutidsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Umsjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöa- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Ellas Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrin Páls dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson,Jens Alexandersson. Utlitog hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Ölafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Sföumúla 8. Simar 86611 og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2-^4 sími 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2400 kr. á mánuöi innanlands. Verö í lausasölu kr. 120 kr. eintakiö. Prentun Blaöaprent h/f. Stjórnarondstoðan byrjuð Steingrímur Hermannsson dómsmálaráðherra gerði fyrir skömmu i viðtali við Vísi grein fyrir þeim hugmyndum, sem ríkisstjórnin hefur um lækkun vaxta. Á þessu stigi virðist margt óljóst í þessu efni, en einsýnt er, að stjórnin ætlar að gera alvöru úr því að koma hér á óraunhæfu vaxtakerfi, miðað við ríkj- andi verðbólguástand. Þessi áf orm eru ítrekuð á sama tíma og upplýsingar eru birtar um verulegan samdrátt í innlánum í banka- kerf inu. Það er ekki aðeins að aukningin sé hægari en áður, heldur minnkuóu innistæðurnar í haust í krónum talið. Gengisfellingin hefur átt sinn þátt í þeim breytingum, en eigi að siður eru hér alvarleg teikn á lofti. Fái menn ekki sannvirði fyrir að leggja peninga í banka, fara þeir annað. Óraunhæfir vextir geta ekki haft annað í för með sér en hrun bankakerfisins. Á hinn bóginn hafa menn getað ávaxtað sparifé sitt hjá rikissjóði með f ullum verðbótum. Þannig hef ur ríkis- sjóður smám saman verið að draga peninga f rá hinni frjálsu atvinnustarfsemi í landinu. Eitt af grundvallarstefnumálum Alþýðuflokksins eru raunhæfir vextir, er samsvari verðbólgustiginu á hverjum tíma. Ráðherrar Alþýðuflokksins vinna nú gegn þessari grundvallarstefnu með því að taka full- an þátt í ríkisstjórn, sem vinnur að því að lækka vexti. Með hliðsjón af þessu er ánægjulegt að stjórnar- andstaðan (innan Alþýðuf lokksins) skuli snúast gegn stjórninni í þessum efnum. Vilmundur Gylfason hef ur boðað að hann muni leggja fyrir Alþingi frumvarp þess ef nis, að Seðlabankanum verði ekki heimilt að á- kveða vexti lægri en verðbólgustigið er hverju sinni. Segja má að Alþýðuflokkurinn skiptist í tvær deild- ir. Önnur styður ríkisstjórnina, en hin sýnist vera í grundvallaratriðum andvíg höfuðstefnumiðum henn- ar. Tillöguf lutningur af þessu tagi miðar því að því fyrst og fremst að vekja athygli kjósenda á þvi, að Alþýðuflokkurinn hafi ekki í heild svikið hvern bók- staf í stefnuskránni. Að þvi leyti er þess tæplega að vænta að mikið komi út úr f lutningi f rumvarps um raunvexti. En hvað sem þvi líður, er ástæða til að vekja athygli á þessu máli og frumkvæðiðer lofsvert. Fjármála- og lánamarkaður- inn verður aldrei heilbrigður með þeirri lágvaxta- stefnu, sem rikisstjórnin hefur boðað. Talsmenn lágvaxtastefnunnar hafa lagt á það á- herslu, að f yrirtækin í landinu risi ekki undir þeim háu vöxtum, sem núeru rikjandi, þó að þeir séu verulega lægri en verðbólgustigið. Það er vissulega rétt, að vaxtabyrðin er mjög þung, bæði f yrir f yrirtæki og ein- staklinga, sem eru að koma sér þaki yf ir höfuðið. En það breytir þó ekki dæminu. Á sama tíma og sagt er að f yrirtækin rísi ekki undir vaxtabyrðinni telur rikisstjórnin, að þau geti greitt miklu hærri skatta, af því að þau græði svo mikið. Að réttu lagi ætti að draga úr skattlagningu, bæði að því er varðar fyrirtæki og einstaklinga, en kref jast þess á móti að greitt sé eðlilegt endurgjald fyrir afnot af peningum. Lágvaxtastefnan stuðlar að óarðbærri f járfestingu, leiðir til spillingar og setur bankakerfið á hausinn. Það væri þvi stórkostlegt afrek, ef Alþingi tækist að bregða fæti fyrir framgang stjórnarstefnunnar á þessu sviði, en til þess standa ekki miklar vonir. —ÞP GLEYMDIR FANGAR í YEMEN Amnesty International var stofnuö árið 1961 til aö leysa ár fangelsum cinstaklinga, sem þangaö væru komnir vegna kun- þáttar sins, trúarbragöa eöa persúnulegrar sannfæringar og samvisku. Þetta var tjáö meö oröum Peter Benensons, stofn- anda samtakanna: ,,AÖ flytja „fieymdu fangana” úr dýflissun- uin”. Siöan þetta geröist I 17 ár, hefur Amnesty Internationai orðiö alheimshreyfing meö rúmlega 200 þúsund félagsmönnum, sistarfandi til frelsunar „samviskuföngum” og jafnframt til aö Iræöa fólk um viöa veröld um ábyrgö stjórnvalda á vanhelgun á grundvallaratriöum mannréttinda, sérstaklega gjörræöisfullu gæsluvaröhaldi, misþyrmingum, óréttlátri málsmeöferö og dauöarefsingu. A siðustu árum hefur Amnesty International skjalfest slik mannréttindabrot i meira en 110 Iöndum og sannaö yfir 5000 til- felii sérstakra samviskufanga. Samt sem áöur eru þessi fimm þúsund aðeins brotabrot þess fjölda einstaklinga, sem almennt hafa veriö scttir saklausir í íangelsi. Meö þvi hefur veriö brotin Mannréttindayfirlýsing Sameinuöu þjóöanna um mannréttindi sem veitir hverjum einstaklingi rétt til trúarskoöana og sannfæringar án ótta viö ofsóknir. Margir þessara fanga eru i afskekktum fangelsum án minnstu snertingar viö umheiminn. Aörir tilheyra undirokuöum þjóöabrotum eöa lltlum sveita- samfélögum og vita ekki einu sinni sjálfir um réttindi sin eöa mögulegan stuöning alþjóöasamtaka. Margirhafa horfiöeftir handtöku. Fjölskyldur þeirra vita ekki hvort þeir eru lifandi eöa liönir. Oft er lika þaggaö niöur I ættingjum eöa vina meö ógnunum eöa þeir hafa engin ráð fjárhagslega til aö leita hjálpar. Vika samviskufangans 1978 er helguö þvi aö kynna neyöarástand karla og kvenna, sem i dýflissum dvelja fyrir trúarskoöanir og trúarbrögö, kynþátt eöa iitarhátt, „gleymd” bæöi stjórnvöldum slnum og umheimi öllum. Staða mannréttinda i alþýöulýöveldinu Yemen vekur litla athyglií Miö-Austurlöndum fyrst og fremst vegna þeirra takmörkuöu upplýsinga, sem berast um flest frá þessu mjög svo einangraða landi. Þaö er hugmyndafræðilega einangraö frá arabiskum nágrönnum, sem lita það hornauga vegna kommúnistiskra stjórnarhátta og náinna tengsla við Sovétrik- in. Það er einnig einangraö á alþjóöavettvangi, aö nokkru leyti vegna eigin einangrunar- stefnu og einnig vegna litilla viðskipta (vanþróaö land, án oliuframleiðslu) viö önnur riki. Til viöbótar má geta þess, aö engin skipulögö stjórnarand- staöa er til, utan lands né innan, sem annist kynningu á afstööu til mannréttinda, né dragi athygli aö þeim tiöu mann- hvörfum og handtökum, sem átt hafa sér staö af pólitiskum orsökum slðan landiö varö sjálf- stætt árið 1967. Einn þeirra, sem hafa horfiö sporlaust, er Bahadin Ahmad Muhammad. Hann er fæddur 1938, stundaði um árabil nám i Englandi, en hélt heimleiðis til Aden, vegna sjúkleika föður sins, um það leyti sem landið varð sjálfstætt. Hann var tvi- vegis handtekinn og settur i A1 Mansura fangelsið. Þetta var á árunum 1967 og 1968. Engin ástæða var nokkru sinni gefin fyrir þessum handtökum, en hann var hvaö eftir annaö spurður um sambönd og kynni viö útlendinga, sérstaklega Bandarikjamenn sem bjuggu i Aden. Sagt var, aö hann hefði veriö pyndaöur. Allt til 1970 vann Muhammad aö kennslu i tækniskóla, en undirbjó för sina til Bandarikj- anna eöa Bretlands til aö taka þar doktorsgráðu. Stjómvöld i Yemen voru andvig þessum áformum og töldu Muhammad á aö taka aö sér vélfræöistöf fyrir hiö opinbera. Muhammad kvæntist i mars 1970. Viku siöar var hann staddur á heimili syst- ur sinnar. Hann fór til dyra, þegar bjöllu var hringt, en kom ekki aftur inn. Siðast sást hann i jeppabil, sem ekiö var um götur Yemen. Sagt er að 18 manns hafi horfið þessa nótt, en ástæður fyrir hvarfi þeirra eru ókunnar. Ættingjar Ahmads hafa oft spurst fyrir um hann án árangurs hjá stórnvöldum. En stuttu eftir hvarf hans voru fjölskyldu hans sendir 200 shill- ingar á mánuði frá rikinu. En “ það er upphæö, sem veitt er aö-1 standendum þeirra, sem liflátn- _ ir eru. öllum nánari upplýsing-™ um varöandi Muhammad hefur g rikisstjórnin neitaö aö svara. _ Siöan Yemen varð sjálfstætt* riki hafa hundruð manna horfiö ■ algerlega og fjölmargir veriö^ handteknir og haföir i haldi. ■ Meðal þeirra, sem einkum hafa H oröiö fyrir þessu, eru foringjar " og félagar úr stjórnmálasam-1 tökum, sem störfuðu áður en m núverandi rikisstjórn kom tilm valda. Þá ber að nefna fólk, sem H er I andstööu viö núverandi n stjórnvöld, og er grunað um ■ skemmdarverk. Einnig er um | aö ræöa menn, sem grunaöir _ eru um sambönd viö erlendar ■ rikisstjórnir eöa útlendinga ■ yfirleitt. Sumum hefur verið _ rænt af vinnustööum, heimilum ■ eða verið handteknir á förnum m vegi. Sumir hverfa úr fangels-™ um, þar sem þeir höföu leyfi til | að taka á móti heimsóicnum » fjölskyldna sinna. Þrátt fyrir “ itrustu eftirgrennslanir ættingja | hefur reynstókleiftað fánokkra r» vitneskjuum, hvort hinn horfni ■ sé lifs eöa liöinn eöa haldiö i £j fangelsi. Vegna fyrirspurna Amnesty ■ International árið 1975 var þvi ■ yfir lýst opinberlega, að þetta _ fólk væri farið úr landi eða að B þaö heföi verið skotiö i ■[ flóttatilraunum á landamærum " Saudi-Arabiu eöa annarra ■ grannrikja Yemen. ósennilegt n er, aö enginn þeirra hefði leitað m sambands við ættingja eöa vin erlendis áður en reynt var aöl flýja. Sennilegt er aö margir af m þeim, sem sagöir eru horfnir, séu látnir. En orðrómur, m.a.B frá þeim, sem látnir hafa veriÖH lausir úr fangelsum, og segjast* hafa séð þar einhverja hinnaB horfnu, gefur þó vonir um aöa sumir séu enn á lifi. Sá kvittur* hefur flogiö fyrir.aöfjöldi fanga | sé i haldi á Socotra eyju, sem er _ 250 kilómetra frá megiríiandinu I úti á Arabfuflóa. En þangað er | óbreyttum borgara i Yemen_ ekki leyft að fara. Óvissan ■ óyfirstiganiegir öröugleikar i ■ leit að réttum upplýsingum veldur angist og örvæntingu og I liggur á þjóöinni eins og mara. m Og f jölskyldur geta ekki fengið m þá fjárhagshjálp, sem þær ættu | rétt á, ef viðkomandi heföi hlot- m iðdóm. Stundum,svosem i máli ■ Bahadins, er fjölskyldu þó boö- B inn styrkur frá stjórnvöldunum, _ en það telst þó fremur til undan- ■ tekninga en algildrar reglu. Q Bahadin Ahmad Muhammad hvarf sporlaust i mars 1970.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.