Vísir - 20.10.1978, Side 9
MOMMNGI
TROTSKYS
LÁTINN
Ramon Mercader, Spán-
verjinn dularfulli, sem
myrti Leon Trotsky í
Mexíkó 1940, andaðist í
gær í Havana á Kúbu.
Fjölskylda hans segir,
að eftir líkbrennslu á
Kúbu verði flogið með
ösku hans til Sovétríkj-
anna á sunnudaginn — að
líkindum til greftrunar á
einhverjum heiðursstað í
Moskvu.
Leon Trotsky
Fyrr i þessum mánuöi sagöi
yngri bróöir Ramons, Luis aö
nafni, sem búiö hefur i
Sovétrikjunum siöan 1938, aö
bróöir hans, 64 ára aö aldri,
heföi fariö til Havana snemma
árs 1977 aö leita sér lækninga
viö krabbameini.— Luis, 55 ára,
er sagöur ætla aö flytja meö
konu sinni og börnum til Spánar
bráölega til aö setjast þar aö.
Ramon Mercader (sem um
hriö gekk undir dulnefnunum
Jacques Mornard og Frank
Jackson) hélt þvi alla tiö fram i
öllum yfirheyrslum, aö hann
heföi myrt Trotsky af
persónulegum ástæöum. En
flestir þeir, sem skrifaö hafa um
þetta dularfulla morö, hafa
veriö þeirrar skoöunar, aö hann
hafi veriö á snærum Josefs
Stalins, erkióvinar Trotskys.
Telja þeir, aö Ramon hafi geng-
iö sovésku leyniþjónustunni á
hönd i spænsku borgara-
styrjöldinni.
Trotsky, sem var einn af aöal-
leiötogum októberbyltingarinn-
ar 1917 og siöan utanrikisráö-
herra Sovétrikjanna, eftir aö
Bolsévikkar komust til valda
(einnig yfirmaöur Rauöa hers-
ins) hraktist i útlegö vegna
fjandskapar viö Stalin. Var
Trotsky myrtur aö heimili sinu i
Coyoacan i suöurhverfi Mexikó-
borgar.
Mercader haföi um nokkurra
mánaöa tima áunniö sér trún-
aöartraust Trotskys meö þvi aö
þykjast andstæöingur Stalins.
Einn daginn laumaöi hann
ishaka fjallgöngumanna undir
frakka sinum meö sér inn I hús
Trotskys og vann á gestgjafa
sinum meö þvi vopni.
Hinn helsæröi Trotsky geröi
vart viö sig og var Mercader
handtekinn strax. Hann afplán-
aöi 20 ár i fangelsi og hélt þvi
ávallt fram, aö hann heföi veriö
einn i ráöum.
Þegar Mercader var látinn
laus 1961, flúöi hann til
Tékkóslóvakiu, en flutti
skömmu siöar — eftir þvi sem
Luis bróöir hans segir — til
Moskvu.
Sovétstjórnin hefur aldrei
opinberlega viöurkennt, að
Mercader hafi verið útsendari
Stalins. En einhvern tima á
fimmta áratugnum hermdu
áreiðanlegar heimildir, aö
Karídad, móöir Mercaders,
'heföi veriö kölluö fyrir Stalin,
sem hafi heiöraö bæöi hana og
son hennar.
Ford í Evrópu í krögg-
um of verkfalli Breta
Fulltrúar starfs-
manna Fordverksmiðj-
anna i Evrópu komu
saman til fundar i
Falsarar í
Lissabon
Lögreglan i Lissabon segist
hafa flett ofan af alþjóðlegum
hring falsara. Hald hefur
veriö lagt á prentsmiöju eina i
Lissabon og sjö menn hand-
teknir.
Hringurinn prentaöi og
dreiföi fölskum hollenskum
gíró-ávisunum, fölskum skatt-
frádráttarmiöum og persónu-
skilríkjum.
Þetta er fimmta fölsunar-
verksmiöjan, sem flett er ofan
af i Lissabon á tveim árum.
London og lýstu yfir
samstöðu með verkfalli
starfsbræðra sinna i
bresku Fordverk-
smiðjunum.
Verkfalliö I bresku
verksmiöjunum hefur staöiö i
fjórar vikur, og er áhrifa þess
farið aö gæta I Fordverksmiöjum
i V-Þýskalandi, Belgiu, Portúgal
og Spáni. Skortir þar oröiö
bilahluti, sem framleiddir eru I
bresku verksmiðjunum.
Framleiöslan hefur. stöövast i
Fordverksmiðjunum í Portúgal
og mun fyrirsjáaniega stöövast i
Belgiu i næsta mánuöi. Skammt
verður þá aö biöa þess, aö þýsku
Fordverksmiðjurnar stöövist
einnig.
57.000 starfsmenn bresku Ford-
verksmiöjanna eru i verkfalli
þessu. Krefjast þeir langtum
meiri kauphækkana en 5% launa-
takmarkanir bresku
stjórnarinnar leyfa.
Verksmiðjurnar hafa boöiö 8%
hækkun, en aö þvi hefur ekki
verið gengið.
Tveir dátar úr Ródesluher á veröi viö þorp i noröurhéruöum Ródesiu
f inn af „Bragða-
refunum" fyrirfór
sér og konu sinni
Gig Young
Verðlaunaleikarinn,
Gig Young, virðist hafa
skotið vesturþýska brúði
sina (sem hann hafði
verið giftur i þrjár
vikur) og siðan fyrir-
farið sér á eftir —
samkvæmt þvi sem lög-
reglan i New York
greinir frá.
Komiö var aö hjónunum
látunum I svefnherbergi lúxus-
ibúðar þeirra I Manhattan. Bæöi
höföu veriö skotin I höfuöiö.
Morövopnið lá i hendi Youngs.
Hinn sextugi leikari gekk að
eiga Kim Schmidt (31 árs) frá
Treysa i V-Þýskalandi 27.
septémber, en Ibúðina I
Manhattan höfðu þau fest sér
fyrir hálfu ári. — LÖgreglan
segir, aö konan hafi einnig notaö
nafniö Ruth Hannelore Schmidt
og virðist eigandi aö Forum-sýn-
ingarsölunum i Hong Kong.
Gig Young haföi leikið i
rúmlega 50 kvikmyndum, þegar
hann vann til verölauna 1969 fyrir
aukahlutverk I myndinni ,,They
shoot horses, don’t they?”.
Young, sem sídröur var Byron
Barr, var einnig tilnefndur til
verölauna fyrir hlutverk sitt I
myndinni „Come fill the cup.”
Hann þótti maöur feiminn á
sínum yngri árum, og gegndi
ýmsum störfum, eins og bilasölu-
mennsku, áöur en hann lagöi leik-
listina fyrir sig. I 40 ár lék hann
ýmist á leiksviði, i kvikmyndum
eöa sjónvarpi. I leikhúsum á
Broadway vann hann sér tii viöur-
kenningar fyrir túlkun á mikil-
vægum hlutverkum I „Under the
Yum-Yum tree”, „Tehúsi ágúst-
mánans” og „There is a girl in
my soup”.
Islendingar munu kannski helst
minnast hans úr sjónvarps-
þáttunum ,, Bragöarefirnir”, sem
hér voru sýndir viö vinsældir á
fyrstu árum islenska sjón-
varpsins.
Nýtt morg-
unblaðíNY
Rupert Murdoch,
ást*ralski blaða-
kóngurinn, sem keypti i
fyrra siðdegisblaðið
New York Post og tvö
önnur blöð sama útgáfu-
fyrirtækís, segist ætla að
hefja útgáfu á nýju
morgunblaði innan
fárra daga.
Blaö þetta á aö heita „Daily
Sun” og mun etjá kappi viö tvö
stórblöð New York-borgar, „New
York Times” og „Daily News”,
sem hvorug hafa komiö út fráþvi
snemma I ágúst vegna verkfalls.
New York Post hefur verið
einrátt á blaöamarkaönum
siöustu tvær vikur, eftir að
Mudoch náöi sérsamkomulagi viö
prentarasamtökin.
Árás á
flótta-
ri|['llll['D
Ibúar Lusaka, höfuð-
borgár Zambíu, sáu í
morgun hina föllnu og
særðu úr síðustu árás
Ródesíuhers á skæruliða-
og flóttamannabúðir þjóð-
ernissinna blökkumanna
aðeins 20 km frá Lusaka.
Joshua Nkomo, leiðtogi
þjóðernissinna i Ródesiu,
hefur borið á móti þvi, að
búðir þessar séu helstu lið-
skráningar- og þjálfunar-
búðir skæruliða hans. Segir
hann, að þar haf i verið fólk
of ungt til herþjónustu, og
sjúkt flóttafólk frá Ró-
desiu.
Ódýrar Lundúna-
ferðir
Farið hvenær sem er alla
daga nema sunnudaga.
Lágmarksdvöl 8 dagar, há-
marksdvöl 21 dagur.
Dvalist á Hótel STRAT-
FORD COURT — REM-
BRANDT - WESTMORE-
LAND, eftir eigin vali,
CHESTERFIELD eöa
ALBANY, öll i Miö-London.
Verð frá kr. 104.000 á mann
flug innifaliö, gisting, öll
herbergi með baöi, WC,sjón-
varpi og sima.
Útvegum leikhúsmiöa, miða
á kn a 11 s py r n ul ei k i,
skoðunarferöir o.fl.
Hagkvæmustu kjörin — hag-
kvæmustu feröaskilmálarn-
ir.
Ferdaskrifstofa
KJARTANS
HELGASONAR
Skolavörðustig 13 A
Reyk/avik simi 29211
nú V*'r
LYKUR
31. OKTÓDER