Vísir - 20.10.1978, Side 14
LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST
Föstudagur 20. október 1978
VISIR
OG LIST LIF OG LIST
ANTABUS
Dexter Gordon og félagar
Tónleikar í Háskólabíói
18.10.78.
Dexter Gordon, tenór/-
sópransax.
George Cables, píanó
Rufus Reed, bassi
Ed Glenn, trommur
Um þaö bil 600 tilheyrendur á
tónleikum Jassvakningar stóöu
upp I lok siöustu blústóna kvart-
etts tenórsaxófónleikarans
Dexters Gordons og fögnuöu jass-
leikurunum innilega, þrátt fyrir
þaö aö gifurlega misheppnuö
hljóöblöndun og iskur i hátölurum
geröu tónleikana því sem næst
óbærilega I fimm af átta lögum
þessara ágætu tónlistarmanna.
Þaö er mjög leitt til þess aö vita
aö slikt geti komiö fyrir aftur og
aftur á jasstónleikum hérlendis.
Óneitanlega kemur þaö manni til
aö hugsa til þess góöa manns,
sem lýsti þvi yfir, aö loknum
tónleikum i fyrra, aö mesta ógæfa
jasstónlistarinnar væri raf-
magniö!
I eigin takti
Hljómleikarnir hófust (nokkuð
seint — eftir heföbundnar tilfær-
ingar á hljóönemum) á hraöri
útgáfu af „Green Dolphin
Street,” góðum upphitara, sem
fór fyrir ofan garð og neöan hjá
TÓNLIST
ólafur
Stephen-
sen skrif-
ar um
jass.
flestum af ofannefndum ástæö-
um. Gordon lók sóló slna aö
mestu I öruggum millitakti, sem
hann skilaði vel. Þó kom I ljós,
þegar leiö á tónleikana, aö þetta
var „hans tempó” ...hann lék i
þessum takti svo aö segja I flest-
um lögunum, hvaö svo sem taliö
var fyrir og félagar hans léku.
Þetta kom enn greinilegar i ljós i
næsta lagi, „Strollin” eftir
pianóleikarann Horace Silver.
Heldur birti þó til, þegar þeir
félagar tóku til viö gamlan og
góöan húsgang „As time goes by ”
— fallegan hægagang, sem þeir
geröu allir mjög góö skil —
sérstaklega þó pianóleikarinn
Cables, sem átti aldeilis frábæra
tækniroku i'Tatum-stil, og svo
Gordon sjálfur, sem lauk laginu
meö fallegri cadensu I lokin.
Trommari í gæðaflokki
Fyrri hálfleik lauk svo með
„Jumpin’ the Blues” Charlie
Parkers. Þar fékk trommuleikar-
inn Glenn tækifæri til að spreyta
sig.
Eddie Glenn er mjög góöur
trommari, sennilega einn sá
besti, sem hér hefur troðiö upp á
jasstónleikum. Leikur hans og
tækni var sérstaklega eftirtektar-
verö. Samleikur hans meö
bassaleiknum og burstatækni var
áberandi góð. Þaö er ekki á
hverjum degi sem þaö gefst kost-
ur á aö hlusta á trommuleikara i
þessum gæöaflokki. Þvi var þaö
bæöi synd og skömm aö
hljóöblöndunin skyldi vera eins
og hún var.
Einleikur með boga
Seinni hálfleikur hófst með lagi
eftir Gordon sjálfan, „A la Molto”
Hér skipti Gordon yfir I sópran,
sem virtist hæfa leikstil hans vel,
þó ekki væri tónninn neitt til aö
hæla sér af. Gordon lék einnig á
sópran i lagi pianóleikara sins,
George Cables, „I told you so.”
Þetta var eitt skemmtilegasta
lag tónleikanna, léttur og lag-
legur lagstúfur meö hljómagangi
ekki ólikum „Lady Madonna”
úr bitlaheiminum. Rufus Reed,
sem er sennilega einna þekkt-
astur jassleikari fjórmenning-
anna — þrátt fyrir endurreisn
leiötogans Gordons, lék einleik
sinn i laginu meö boga. Þaö eru
ekki margir bassajassistar, sem
Dexter Gordon og félagar á fuilu á hljómleikunum i fyrrakvöld.
skila sliku vel, en Reed tókst
þetta þokkalega. Einn af þeim fáu
sem boga sig áfram I jassinum af
snilld, er Arni Egilsson, eins og
kunnugt er.
Þeim fer fækkandi
Aö lokum léku félagarnir
„Misty” Garners og „Antabus”
eftirGordon. Ekki gaf „Antabus”
tilefni til mikilla tilþrifa, enda er
varla hægt aö búast viö þvi aö
slikt og annað eins sé viö hæfi höf-
undar.
Jassvakning á þakkir skiliö
fyrir aö gefa okkur kost' á aö
hlýöa á tónlist Dexters Gordons
og félaga hans. Þeim fer
fækkandi tenóristunum af þessari
jasskynslóð, og þeir eru fáir
ennþá I fullu fjöri.
Timinn, antabus og hljóðbland-
arar eiga sennilega eftir að ganga
alveg frá þeim. __^
A sýningunni eru m.a. ýmsir glermunir frá fjórum gler-
verksmiöjum á Noröurlöndum.
Vismynd GVA.
Norrœna húsið á tíu ára afmœlinu:
Norrœn glerlist
Norræn glerlist nefnist
sýning sem opnuö veröur i
Norræna húsinu á laugar-
dag kl. 15. Sýningin er sett
upp af tilefni tiu ára
afmælis Norræna hússins.
Fjórar norrænar glerverk-
smiðjur sýna muni i kjall-
ara hússins, en þær eru:
Holmegard I Danmörku,
Iittala og Nuutajarvi i
Finnlandi, Hadeland i
Noregi og Kosta-Boda i
Sviþjóð.
I kaffistofu og i anddyri
eru einnig sýndar gler-
myndir eftir þau Metu
Holmboe og Leif
Breiðfjörð.
Sýningin stendur tii 12.
nóvember og er opin dag-
lega frá kl. 14 til 19.
— KP.
Sýning Gylfa I Stúdentakjallaranum saman-stendur ein-
göngu af myndum frá Reykjavlk. Ljósm. GVA.
„Alltaf eitthvað
í gangi í
Stúdenta-
kjallaranum"
— Fœr kjallarinn
vinveitingaleyfi?
„Það verður alltaf eitt-
hvað i gangi i Stúdenta-
kjallaranum i vetur” var
Vísisfólki tjáð þar i gær.
Stúdentakjaiiarinn
verðuropnaður með pompi
og pragt i dag. Þar getur
fólk gætt sér á ýmsu
góðgæti. Og auk þess ýmsu
menningarlegu efni. Gylfi
Gislason myndiistarmaður
opnar sýningu i kjallaran-
um I kvöld, og sýnir þar alh
margar myndir.
Auk þess verða haldnar
ýmsar m enningariegar
Dansa niður
Laugaveg
Félagar úr Ananda
Marga munu dansa
útihópdans niður
Laugaveg, frá
Frakkastlg og niðuf á
Lækjartorg a' sunnu-
dag. Dansinn hefst’
kiukkan 17.
samkomur, ýmist i kjall-
aranum eða matsal i vetur.
Hefur Pétur Gunnarsson
rithöfundur þá dagskrá
meö upplestri úr óútkom-
inni bók sinni: Ég um mig
frá mér til min, sem
væntanleg er á markaðinn
fyrir jól. Pétur hefur lest-
urinn klukkan hálfniu i
kvöld.
Sýning Gylfa saman-
stendur eingöngu af mynd-
um frá Reykjavik og eru
myndimar allar til sölu.
Saga.Péturs er úr Reykja-
vikurlifinu og nefst við
upphaf bitlaæöis.
Seinna i þessum mánuöi
koma fram Þursaflokkur-
inn og Alþýðuleikhúsið meö
sameiginlega dagskrá. All-
stór hópur myndlistar- og
hljómlistarmanna, auk
annarra listamanna hefur
einnig lýst sig fúsan til aö
koma fram i stúdenta-
heimilinu i vetur og verður
það nánar auglýst þegar
þar aö kemur.
Þessmá geta að stúdent-
ar hafa hug á aö hafa létt
vln á boðstólum i StUdenta-
kjallaranum og hafa sótt
um slikt leyfi. Enn hefur
endanlegt svar ekki feng-
ist, en Utlitiö mun þó þykja
nokkuö gott.
— EA
A sýningunni er myndaröð sem Dali hefur gert eftir
ijóbaflokki Dante, gleðleiknum guðdómlega.
Visismynd GVA
„Þetta eru um eitt-
hundrað graflkmyndir og
eru allar til sölu. Verðið
er frá 80 þúsund krónum
og upp I um 400 þdsund”,
sagði Konráð Axelsson,
forráðamaður Mynd-
kynningar, sem sýnir
verk Salvador Dali á
Kjarvalsstööum.
Stærstu myndröðina
hefur Dali gert eftir
ljóðaflokki Dante, Gleði-
leiknum guödómlega.
Sýningin kentur hingaö
frá Svlþjóð, en þetta er
þriðja s ýningin sem
Myndkynning stendur
fyrir aö Kjarvalsstöðum.
„BÖRNUM DETTUR
MARGT SKEMMTI-
LEGT I HUG
segir Andrés Indriðason/höfundur nýs framhaldsleikrits
fyrir börn i útvarpinu
„Þetta leikrit er fyrir
krakka á öllum aldri og
reyndar er það skrifað með
þaðihugaað fullorðnir geti
haft gaman af þvi lika,”
sagði Andrés Indriðason I
samtali við VIsi en hann er
höfundur framhalds-
leikritsins Elisabetar, sem
útvarpið hefur flutning á á
mánudaginn.
— Hvers vegna skrifar
þú barnaleikrit?
„Það má segja aö þar
komi þrennt til: áhugi á
leiklist, skriftum og börn-
um. Viö þaö að skrifa
barnaleikrit sameinast
þessi áhugasvið i eitt.”
Fyrri reynsla Andrésar
af skriftum eru sú helst að
1974 skrifaði hann leikrit
fyrir Þjóðleikhúsiö, sem
hét „Köttur Uti i mýri”.
Einnig hefur hann skrifað
smáþætti fyrir Stundina
okkar I sjónvarpinu, ára-
mótaskaup og ýmsa aöra
þætti. Þau skrif hafa fylgt
starfi hans við dagskrár-
gerð hjá sjónvarpinu.
Bakterían
„Ég fékk leiklistar-
bakteríuna þegar ég var
settur á svið i ÞjóðleikhUs-
inu,12áragamall,i Feröinni
til tunglsins. Næstu árin
fékk ég að vera með I ýms-
um sýningum sem statisti.
En ég fór aldrei Ut I það aö
læra til leikara, þvi þegar
ég var i menntaskólanum,
lék ég i Herranótt og þá sá
ég aö ég yröi ómögulegur
leikari.
Hins vegar hef ég aldrei
sagt skiliö viö leiklistina. I
starfi minu hér hjá sjón-
varpinu hef ég lifað og
hrærst i þeim heimi meira
og minna öll þessi ár.”
Skemmtileg tilsvör
Andrés á tvær dætur,
sem nú eru 5 og 2ja ára. Við
spurðum hann hvort
persónur leikritsins væru
byggðar á kynnum hans af
þeim.
„Ja, óhjákvæmilega er
sitthvað sótt til þeirra, sér-
staklega þeirrar eldri, þvi
aðalpersónan, Elisabet, er
6 ára gömul. Börn á þess-
um aldri eiga til mörg
skemmtileg tilsvör og það
er freistandi aö nota eitt-
hvað af því. Ég hef mjög
gaman af að tala viö börn
og kynnast þeirra hug-
myndaheimi. Þeim dettur
svo margt skemmtilegt i
hug.”
Leikritið er I 5 þáttum og
er hver þeirra sjálfstæð
saga. Aöalhlutverkin eru I
höndum þriggja barna.
Jóhanna Kristin Jónsdóttir
LIFOGLIST LÍFOGLIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST