Vísir - 04.11.1978, Qupperneq 5
VTSIR Laugardagur 4. nóvember 1978
Utanáskríftin
Eins og getið var um i fyrsta þættinum um
Kynferðismál og kynfræðslu i Helgarblaðinu
fyrir viku eru lesendur hvattir til að skrifa þætt-
inum ef þeir hafa fyrirspurnir varðandi kyn-
ferðismál. Fullt nafn verður að fylgja, en þvi
haldið leyndu sé þess óskað. Utanáskriftin er:
Þátturinn „Kynferðismál og kynfræðsia” —
Helgarblað Visis — Siðumúla 14 — Reykjavik.
þú gleymir raðpillu eöa minipillu
er vörn gegn þungun lltil. Þegar
ein af siðustu pillunum gleymist
er hættan ekki eins mikil.
23. Hvaða áhrif getur mikill
niðurgangur eða uppköst
haft?
Kastirðu upp innan tveggja
klst. frá þvi að þú tókst pillu nær
hún ekki að leysast upp og verða
virk. Taktu þá aðra. Ekkert gerir
til þó mánaðarskammtinum ljúki
fyrr en venjulega. Þú tekur þér
bara 7 daga fri að honum loknum
og byrjar síðan á nýjum
skammti. Eáirðu svæsinn niður-
gang, einn eða fleiri daga getur
svo farið að éfni pillunnar mynd-
ist ekki, nái ekki að sogast úr
þörmunum. Þvi skaltu nota aðrar
getnaðarvarnir samhliða henni á
meðan þetta ástand varir.
24. Hve gömul þarf kona að vera
til þess að geta fengið pilluna?
Akveðið aldursmark er ekki til.
Hafiröu haftreglulegar tiöir i 2 ár
og læknir telur þig hafa heilsu til
að taka pilluna á ekkert aö vera
þvi til fyrirstöðu að þú fáir hana.
Engar reglur eru til um aö leita
beri eftir áliti eða samþykki for-
eldra á þessu máli og læknar og
aörar heilbrigðisstéttir eru
bundnar þagnarheiti. Ef þér er I
mun aö halda pillutöku leyndri er
það aðeins þitt eigið vandamál.
25. Gefa allir læknar út lyfseðil
á pilluna?
Allir læknar hafa leyfi til þess.
Kvensjúkdómalæknar, skóla-
læknar, heimilislæknar og hér-
aðslæknar eru vanir að gefa út
lyfseðla á pilluna.
26. Þarf kona að fara i skoðun hjá
kvensjúkdómalækni áður en
hún fær piiluna?
Aöur en læknir gefur út lyfseðil
á getnaðarvarnapillu þarf hann
aö ganga úr skugga um aö þú
hafir enga sjúkdóma I móðurlífi.
Þvi þarftu aö láta lækni skoða
þig. Auk venjulegrar skoðunar er
mældur blóðþrýstingur.
27. Er þörf á hvild frá pili-
unni um tima á hverju ári?
Um það eru skiptar skoðanir.
Sértu mjög ung er þó taliö ráðlegt
að þú hvilir þig frá henni um tima
á hverju ári. Után þessa er ekki
talin ástæða til að taka reglu-
bundin fri frá henni árlega. Hvild
frá pillutöku er ráölögð i þeim til-
gangi að fylgjast með þvi hvort
egglos og tiðir komi eins og
venjulega.
28. Getur verið hættulegt að hætta
inntökum I miðjum mánaðar-
skammti?
Gerirðu þaö byrja blæðingar
oftast eftir nokkra daga. Venju-
legar tiðablæðingar geta siðan
komið á venjulegum tima. Þó
máttu reikna meö þvi að óregla
komist á tlöir hjá þér og að það
taki nokkurn tima fyrir þær að
komast I reglubundið horf. Það er
ein ástæðan til þess að konum
er ráðlagt að ljúka mánaöar-
skammti áður en þær hætta
notkun gernaðarvarnarpillu.
önnur ástæða er sú aö öryggi pill-
unnar minnkar ef hætt er i miðj-
um skammti og rétt er að taka
pilluna 2 sólarhringa eftir siðustu
samfarir. Ef þú ert einhverra
hluta vegna tilneydd að hætta
áður en mánaðarskammti er
lokið skaltu ráðfæra þig við lækni.
29. Hve lengi má taka piiluna?
A tslandi hafa getnaöarvarnar-
pillur veriö I notkun siðan um
1960. Ekki eru til upplýsingar um
hve margar konur hér á landi
taka pilluna en I Sviþjóð er reikn-
að með að u.þ.b. 350-370.000 konur
noti hana.Ef neyslan er svipuö á
tslandi má gera ráö fyrir að um
10.000 konur notfæri sér þessa
getnaðarvörn.
Notkun pillunnar er ekki meö
öllu áhættulaus og getur m.a.
valdið blóötappa og hækkun á
blóöþrýstingi. Ahættuna verður
að vega og meta I hverju tilviki.
Þaö verður þó að hafa I huga að
meðganga og fæöing hefur tiltölu-
lega meiri hættur I för með sér en
taka pillunnar.
PS.
Hafa ber i huga að getnaðar-
varnarpillur veita ekki vörn gegn
lekanda. Lekandi hefur aukist
mjög siðustu ár meðal ungs fólks
hér á landi. Byrjunareinkenni
lekanda eru oft harla væg meðal
kvenna en afleiöingin er þvi
miður oft örlagarik, þ.e. ófrjó-
semi. Konum er þvi ráðlagt að
treysta á aörar varnir, einkum
verjur, við samfarir eftir skyndi-
kynni.
Innkaupastjórar
*Gjaíavörur Jólavörur
Erum að taka upp
mikið úrval af
jóla- og gjafavörum
Úrvalið
hefur aldrei
verið meira
Allt verð ó
gömlu gengi
Hringið eða lítið inn
Heildverzlun
^"Pétur^Péturóóon Ul\
Suðurgata 14 Simor 2-10-20 og 2-51 -01
HAMRABORG 1
KÓPAVOGI,
SÍMI 43711