Vísir - 04.11.1978, Síða 27

Vísir - 04.11.1978, Síða 27
vism Laugardagur 4. nóvember 1978 27 næfti kosningu, og hefði mér ekki þótt þaö neitt einkennilegt, ef annað hefði ekki komið til. En þegar lýst haföi veriö kosninga- úrslitum, þá kvaddi einn hinna nýkjörnu miðstjórnarmanna sér hljóðs og benti þinginu á, aö svo slysalega hefði tekist til, að i mið- stjórnina hefði ekki verið kosinn sá maður, sem falin haföi verið forusta i landbúnaöarmálunum. Hann þóttist vita, að allir þing- fulltrúar væru sammála um þaö, aö úr þessu yrði að bæta, og til þeirra úrbóta gerði hann það aö tillögu sinni, að fjölgað yrði um tvo i miðstjórninni. Þvi var harð- lega mótmælt á grundvelli ákvæöa i lögum flokksins, og uröu úr skörp átök i þinginu, sem lykt- aði á þá leið, að þingforseti neit- aði að bera framkomna tillögu undir atkvæði. Þá rann það upp fyrir mér, að verið var að berjast um styrkleikahlutföllin milli rétt- linumanna og tækifærissinna. Sannarlega tók ég þátt I þróun flokksins á þessu þroskaskeiöi hans, og minningar minar frá þeim timum eru i ætt viö æsku- minningar. Sú fölskvalausa al- vara, sem gagnsýrði allt okkar starf, er það súrdeig, sem drýgst hefur enst til þeirra sigra, sem al- þýða Islands hefur unnið til þessa dags undir forustu Kommúnista- flokksins og arftaka hans, hvaða nafn sem þeir hafa boriö hverju sinni. Þaö voru gerðar strangar kröfur til annarra, en einnig til sjálfra sin. Ég var um skeið for- maður einnar sellunnar i Reykja- vik og bar ábyrgð á þvi, að kveðn- ar væru niöur rangar skoðanir og réttilega væri aö hverju verki staðið. Ég man nákvæmar skýrslugeröir stærri og minni ein- inga i samtökunum, um framfar- ir og ósigra, ástæöu fyrir hverju skrefi þróunarinnar, til hvorrar áttar, sem það leiddi, og það voru ekki spöruö fundarhöld til að freista aö ná einingu um niöur- stööur, svo aö sem best mætti samhæfa skrefin næsta spölin. Nú vill svo til, að einmitt um þessar mundir uppgötva ég, að um þessa starfsháttu á ég I gömlu blaða- drasli heimild, sem liklegt er, að ég hafi átt minn þátt i aö móta, eins og siöar kemur i ljós. Ég hef fyrir framan mig á borð- inu fundargerðir Kommúnista- deildarinnar á Eyrarbakka. Ég staðnæmist við 5. fund ’árið 1932, haldinn 4. desember. 1 lok fundar- gerðarinnar er þess getið, aö auk félaga i deildinni hafi félagi Gunnar Benediktsson setið fund- inn. Sú fundargerð er ekki frá- gengin að fullu og ekki undirrituð, og næst er fundar getiö ári siðar, 11. desember 1933. Þar er ekkert sagt, hver hann er I rööinni af fundum ársins, en fundargerðin hefst meö þessum orðum: „Fundurinn settur af félaga Gunnari Benediktssyni, sem var fundarstjóri”. Þá var „lögö fram ályktun fyrir deildina, sem samin hafði verið sam- kvæmt fyrirmælum sið- asta fundar”, en um þann fund er ekkert annað skráð i bók- ina. Siðan segir: „Alyktunin var lesin lið fyrir lið, rædd ýtarlega og samþykkt að þvi undanskildu, að greinin, sem fjallar um sjálfs- gagnrýni, átti aö orðast ööruvisi. Starfslinurnar áttu aö ræöast sið- ar”. önnur fundargeröer dagsett tveim dögum siðar, og milli -f' - v--' A $ ' ''' ' ' '' - " * _ , , f - - ' Unuhús við Garðastræti Læknishúsiö á Eyrarbakka - i fbúð i næsta húsi bjó Gunnar og fjöl- skylda hans fyrsta kastið þar I plássinu. ar, og er hann ófagur: „Hún hefur á engan hátt verið þvi hlutverki vaxin aö fylkja verkalýönum til baráttu og leiöa hana”. Deildinni er brugðið um tækifærisstefnu, sem komið hafi fram i „átakan- legum” skorti á ábyrgðartilfinn- ingu, sjálfsgagnrýni og „siöan, einkum siðast liðið ár, i starfs- leysi”. Allt sem unniö haföi verið, var unnið af tveimur mönnum, sem ályktunin nafngreinir, en hinir hafa ekki skipt sér af, þótt starfið lægi niöri og gengi á tré- fótum. En þessir tveir, sem unnu, hafa sýnt „mjög mikla vanrækslu i starfi sinu og skort á ábyrgöar- tilfinningu sem leiðandi menn deildarinnar og skilningi á misk- unnarlausri sjálfsgagnrýni”. Annar þessara félaga haföi sýnt mjög tækifærissinnaða sáttfýsi við yfirstéttina og gengiö til sam- vinnu við hana, og var dæmi þar með látið fylgja. Hinn félaginn hafði að mörgu leyti skilið hægri villur félaga sins og gagnrýnt þær. En báðir hafa þeir „vanrækt aö rökræöa ágreiningsmál sin I deildinni meö þvi takmarki að komast að niöurstöðu”, og svo höfðu þeir ekki heldur leitað til miðstjórnar meö að fá hjálp. Svo er þvi lýst yfir, að hinn tækifæris- sinnnaði „hefur sýnt viðleitni til sjálfsgagnrýni og viröist skilja nauðsyn hennar”, og „hann hefur viðurkennt ýmsar villur slnar, en á þó enn langt I land, að honum sé þaö fyllilega ljóst, að sósialdemó- kratiið sé höfuðstoð borgara- stéttarinnar og heyja þurfi opna baráttu gegn þvi”. Hinn starfandi félaginn hafði einnig gagnrýnt sjálfan sig og „viðurkennir, aö skapsmunir sinir hafi leitt sig út af réttri linu og jafnvel út i flokksfjandsamlega afstöðu, og telur rétt, að hann dragi sig til baka i starfi út á við um hrið”. Hér viröist mér hreinlega til verks gengiö, og allt er þetta samþykkt með öllum greiddum atkvæðum eftir tveggja kvölda fundarsetu, sjálfsagt fram á nótt, fyrir utan meira og minna per- sónulegar viðræður við og við alla daga. Siöan er þvl lýst yfir, aö nú „riði á, aö deildin taki til starfa og hver einasti félagi verði virkur i starfinu”. — Og svo setti deildin starfinu á nýbyrjuðum vetri tak- mark 18 liðum. Nú átti aö berjast af alefli fyrir samfylkingu á Eyr- arbakka, fyrir aö fá greidd ógold- in vinnulaun viö lendingabætur, vinna að samfylkingu verkalýðs- félaganna á Suðurlandsundir- lendinu I kaupgjaldsmálum, end- urvekja ASV-deildina og sam- fylkingarliðið á Eyrarbakka, halda útvfkkaða deildarfundi með róttækum verkamönnum, þar sem rædd yrðu hagsmunamál verkalýösins og barátta fyrir framgangi þeirra, svo nokkuð sé nefnt. Seinna veröur ef til vill rifj- að upp, hvað úr framkvæmdum varð. Hjá Erlendi i Unuhúsi bjó Gunnar uppi á lofti uns hann fluttist til Eyrarbakka. Hér er Erlendur við dyr Unuhúss. þeirra fundargeröa er ályktunin innfærð og neöan við hana ritað: „Alyktunin lesin og rædd á tveim- ur fundum og samþykkt með öll- um greiddum atkvæöum”. Og hvað er það svo, sem stend- ur I þessari ályktun? Það er ómaksins vert að renna augum yfir hana sem dæmi um starfs- háttu á þeim tima þegar öllum' bar skylda til að gagnrýna alla og ekki sizt sjálfa sig, hvort sem um var að ræða einstaklinga eða samtakaheildir. Mér ætti einnig að vera þetta mikið áhugaefni þar sem alltbendir tii þess, að héi hafi það verið ég sjálfur, sem réð ferðinni i umboöi flokksins. lupphafi ályktunarinnar er það tekiö fram, að flokksdeildin hafi verið stofnuð haustiö 1931. Svo kemur dómurinn um starf henn- LAUSAR STÖDUR A skattstofu Norðurlandsumdæmi eystra, Akureyri, eru eftirtaldar stöður lausar til umsóknar: Staða fulltrúa með próf i viðskiptafræði eða endurskoðun. Staða skattendurskoðanda I. Æskilegt er að viðkomandi hafi verslunarskólapróf eða hliðstæða menntun. Staða skrifstofumanns. Góð vélritunar- kunnátta nauðsynleg. Umsóknir er greini aldur menntun og fyrri störf óskast sendar skattstjóra Norðurlandsumdæmis eystra, Hafnar- stræti 95, Akureyri, fyrir 5. desember n.k. FJARMÁLARAÐUNEYTIÐ, 2. NÓVEMBER 1978. LAUS STAÐA Umsóknarfrestur um stöðu framkvæmdastjóra við Raun- visindastofnun Háskólans er framlengdur til 10. nóvember n.k. Framkvæmdastjóri annast almennan rekstur stofnunarinnar og hefur umsjón meö allri starf- semi sem ekki heyrir undir einstakar rannsóknarstofur. Umsækjandi skai hafa lokið háskólaprófi. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Nánari upplýsingar um starf þetta veitir stjórn Raunvisinda- stofnunar. Umsóknir með itarlegum upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Rvk., fyrir 10 nóv. 1978. MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ, 31. OKTÓBER 1978. Hjólaskófla til sölu ::::r iiiii Til sölu 18 tonna hjólaskófla með 3 rúm- jjjll metra skólfu, liðstýrð, árg. 1973, i góðu j|jjj ástandi. Mjög hagstætt verð. Uppl. i sima jjjjj 91-19460 og 91-32397 (á kvöldin). m Smurbrauðstofan BJORIMIIMN Njálsgötu 49 — Sími 15105 blaöburóarfólk óskast! Laugavegur Safamýri I. j> Laugavegur frá 1-120 Ármúli Fellsmúli Siðumúli Tunguvegur t Ásendi Byggðarendi Sogavegur 103-212 u Kóp. Aust II: > Hlíðarvegur Hrauntunga Vogatunga VISIR

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.