Vísir - 09.11.1978, Blaðsíða 4

Vísir - 09.11.1978, Blaðsíða 4
VILJA HANNA SUMAR- Myndir eftir Sólveigu Eggerz: styrktar- félags vangefinna Styrktarfélag vangefinna hefur undanfarin ár gefið út jólakort með myndum af verkum Sól- veigar Eggerz Pétursdóttur. Aö þessu sinni verða gefin út ný kort með fjórum myndum. Þau verða til sölu á heimilum félags- ins og skrifstofu þess aö Lauga- vegi 11 og i versluninni Kúnst, Laugavegi 70. Tvær geröir af kortum meö myndum eftir Sólveigu verða einnig gefin út og eru þau m.a. ætluð fyrirtækjum. Þau fyrirtæki sem hafa áhuga eru beðin að hafa samband við skrifstofu félagsins, simi 15941 og verða þeim þá send sýnishorn. — sala islenskra ullarvara á vesturlandamarkað hefur farið vaxandi Hér sjáum viö nokkrar vistkonur á Hrafnistu við handavinnu sfna. FATNAÐ UR ULLINNI Mikiil samdráttur hefur orðið á markaður fyrir vorurnar á næsta ári. sölu ullarvara til Sovétrfkjanna á vesturlöndum og búist er við Þetta kom m.a. fram á árlegum þessu ári. Hins vegar er góður áframhaldandi söluaukningu á haustfundi ullariðnaðarins, sem haldinn var nýlega. Það er Útflutningsmiðstöð iönaðarins, sem gengst fyrir þessum fundum með sölu- og framleiðsluaðilum I iðngreininni. Þaö kom fram hjá sölustjórum útflutningsfyrirtækjanna, að aukning á sölu til vesturlanda gæti aðeins átt sér staö með þvi að opna nýja markaði og auka kynningar-og söluátak. Jafn- framt öflugu sölustarfi yröu gæði framleiðslunnar að vera fyrsta flokks. Það var samdóma álit sölustjóranna að gæði ullar- fatnaðar hefu farið batnandi siðustu ár. Miklar umræöur spunnust á fundinum um samskipti milli útflvtjenda og framleiðenda. Vandamál i ullariðnaðinum skapast öðru fremur af árstiöa- bundinni framleiðslu. Ullarvaran er nær eingöngu seld sem vetrar- fatnaöur. Lausn á þessu vanda- máli væri aö hanna og framleiöa sumarfatnað, en þá lengdist framleiðslutlmabilið til muna. Fundarmenn lögöu áherslu á, aö þetta vandamál yrði leyst i sameiningu. Gera yrði prjóna-og saumastofum fært aö framleiða meira magn á lengri tima. Nú eru starfandi á landinu tvær spunaverksmiöjur, 17 prjóna- stofur og 35 saumastofur, sem framleiöa til útflutnings, auk þeirra sem handprjóna fatnað, en áætlaður fjöldi þeirra er um 15 hundruð manns. Útflutningur er I höndum 15 til 20 aðila. —KP. Geirlaug græðari nefnist þessi mynd eftir Sólveigu Eggerz Pétursdóttur og prýðir hún eitt kortið. Sölusýning ó Hrafnistu Vistfólk á Hrafnistu heldur sölu á handunnum munum á sunnu- daginn. Þeir sem hafa hug á að sækja þessa sölu geta heimsótt Hrafn- istu frá klukkan hálftvö. Margt góðra muna er að venju tii sölu. 5. umferó í kappátinu í kvö^ Sídasta keppnin í undanúrslitum Urslitakeppnin eftir viku Hinn landsfrægi Magnús Axelsson lýsir æsispennandi keppni hinna matglööu keppenda Keppl veróur urn hinn eftirsotta titil "MAGI ÓDALS '78" Kappátió fer þannig fram ad keppt verdur i 6 manna f * , , , riólum - siguvegararnir ur hverjum rióli etja sióan saman 1 / y t • ' ■ kjöftum i þenjandi urslitakeppni 'K Æ/* ■ Bmuöbær Veitingahús Mikilvægt er aö keppendur hringi i dag og lati skrá sig til keppni - siminn er 11630 #

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.