Vísir - 09.11.1978, Page 10

Vísir - 09.11.1978, Page 10
10 VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjári: Davfð Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón með Helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind Asgeirsdóttir,Edda Andrésdóttir, Gisli Baldur Garðarsson, Jónlna Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrln Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson: Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Stefán Kristjáns- son, Sæmundur Guðvinsson. iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Otlit og hönnun: Jón Óskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: PáII Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingarog skrifstofur: Slöumúla 8. Slmar 86611 og 82260. i Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 slmi 86611. Ritstjórn: Sfðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2400,- á mánuði innanlands. Verð I lausasölu kr. 120 kr. eintakið Prentun Blaðaprent h/f. Friðrik forseti Þær ánægjulegu fréttir bárust hingað til lands síðdegis í gær, að Friðrik Ólafsson stórmeistari hefði borið sigur úr býtum í kosningum um eftirmann Max Euves i for- setastól Alþjóðaskáksambandsins. Vonir Islendinga um kjör Friðriks höfðu dvínað nokkuð eftir að íslenski skák- hópurinn kom til Buenos Aires í Argentínu, þar sem þing Alþjóðaskáksambandsins er háð samtímis Ólympíu- skákmótinu. ( Ijós kom að f jölmennt kosningalið vann þar að framboði júgóslavneska stórmeistarans Gligoric, sem talinn var helsti keppinautur Friðriks en íslend- ingar voru fámennir. I samtali við Vísi í gær sagði Frið- rik Ólafsson, að Júgóslavar hefðu notað utanríkisþjón- ustu sína í meira en ár til þess að vinna að framboði Gligoric og hefði hvorki verið sparað fé né fyrirhöfn i þessu sambandi. Þá var einnig boðað einvígi Fischers og Gligoric sem átti að verða kosningabeita, en allt kom fyrir ekki. Orslit kosninganna f gær sýna svo ekki verður um villst, að Friðrik ólafsson nýtur mikils trausts og virð- ingar í skákheiminum og er ekki að efa, að hann er vel vaxinn því alþjóðastarfi, sem honum er nú fengið. Það fer vel á því að sá maður, sem f yrstur íslendinga náði árangri á heimsmælikvarða á skáksviðinu, skuli nú hafa verið kjörinntil þess aó gegna æðsta embætti skák- heimsins. Skáklistin hefur veriðsamofin lífi Friðriks Ólafssonar f rá því að hann lærði að tef la hjá f öður sínum átta ára að aldri. Fyrsta stóraf rek sitt á skáksviðinu vann hann árið 1950, er hann sigraði í meistaraf lokki Norðurlandamóts i skák, aðeins 15 ára, yngstur þátttakenda á mótinu. Síðan varð ferill hans stöðugt glæsilegri og átti Friðrik og frammistaða hans geysimikinn þátt í því að efla áhuga íslendinga á skáklistinni, sem nefnd hefur verið vitræn- asta dægradvöl, sem til er. Augljóst er að skáklistin er í miklum uppgangi meðal Islendinga um þessar mundir og ný kynslóð öflugra skákmanna er að hasla sér völl. Helgi Ólafsson var formlega útnefndur alþjóðlegur skákmeistari á Fide- þinginu í Buenos Aires í fyrradag og þegar þetta er skrifað vantar Margeir Pétursson aðeins herslumun til að ná þeim áfanga, sem þarf til þess að hljóta þann titil. Skemmst er svo að minnast heimsmeistaratitils sveina, sem þriðji efnilegi skákmaðurinn í ólympíuliði Islands, Jón L. Árnason, hreppti á siðasta ári. Útlit er nú f yrir, að hann muni verða fyrstur til þess að hljóta nýja nafnbót Alþjóðaskáksambandsins, en það er „FIDE-meistari". Það er líka tímanna tákn, að nú höf um við fslendingar i fyrsta sinn sent kvennasveit á ólympíumót í skák og skipar hana meðal annarra tvöfaldur Norðurlanda- meistari í skák, Guðlaug Þorsteinsdóttir. Samtímis öllu þessu gerist það svo, að Alþjóðaskák- sambandið mun flytja starfsemi sina hingað til lands, fyrst alþjóðlegra samtaka og Islendingur veita sam- bandinu forstöðu. Forsetastarf Friðriks verður enginn dans á rósum, því að í hans hlut kemur að útkljá margs kyns deilumál og vinna að samlyndi skákþjóða heims. Aftur á móti mun það auðvelda honum mjög stjórn þessara alþjóðasam- taka, hve yf irgnæfandi meirihluta atkvæða hann hlaut á þingi Alþjóðaskáksambandsins í Argentínu í gær. Visir óskar Friðrik Olafssyni til hamingju með sigur- inn í því hinu tvísýna tafli,sem háð hefur verið um það, hver eigi að stjórna samtökum skákmanna í 106 löndum heims. Það er fslendingum mikill heiður að fulltrúi þeirra hefur verið kjörinn forseti FIDE. Fimmtudagur 9. nóvember 1978 VISIR Uni kosningar í Háskólanum Hinn 21. október siðastliðinn fóru f ram kosningar i Há- skólarium til 1. des. nefndar. Úrslit þessara kosninga urðu skv. venju, VAKA tapaði, Verðandi, vinstri menn, sigruðu, en kjörsókn var einungis 25%. Meðal fólks hafa úrslitin vakið þó nokkurt umtal. Flestum þykir miður, að vinstri menn skuli enn einu sinni fá að útvarpa marxískum áróðri sínum út yfir landsmenn. Ýmsir hafa varpað fram þeirri spurningu, hvort ástæðan f yrir þessari lélegu kjörsókn sé ekki sú, að stúdentar séu orðnir leiðir á hinum tveim stríðandi f ylk- ingum. Einn þeirra sem halda fram slikri skoðun er laganemi nokkur, Olafur Sveinsson að nafni. Hann ritar grein i Visi, sem hann kallar „Þrir af hverjum fjórum mót- mæla meö þögninni”. Ólaf þenn- an þekki ég ekki nema af afspurn og þá af góðu einu, þvi þykir mér það miður, að hann skuli draga svo fljótfærnislegar ályktanir af úrslitum kosninganna auk þess, sem hann gerir sig beran aö mik- illi vanþekkingu i ummælum sinum um VÖKU. Ólafur heldur þvi fram, aö úr- slit kosninganna sýni það, að grundvöllur 1. des. kosninga sé brostinn og að 3/4 hlutar stúdenta hafi alls engan áhuga, hvorki á VÖKU né vinstri mönnum, þar sem þessi fjöldi hafi setið heima á kjördegi. 1 öðru lagi afhjúpar Ólafur þekkingarleysi sitt á VOKU. Hann heldur þvi fram, að VAKA sé „samansafn bláeygra Heim- dellinga”, sem blaöri um óvininn i austri og kapitalisma. Ég skil ekki tilganginn með þessum orðum, nema þá að /-----------V-----------\ Sigurður Sigurðarson laganemi og ritstjóri Vökublaðsins skrifar -----------------------' Ólafur setji þau fram til aö undir- strika það, aö hann tilheyrir hvorugum flokknum. Um leiö og Hugmyndir manna um skatta- mál hafa breytzt mjög á undan- förnum áratugum. Þaö er alger- lega eðlilegt, þar eð þjóðfélagið sjálft hefur tekiö gagngerum breytingum. Liölega hundrað ár eru siöan Islendingar fengu löggjafarvald varðandi fjármál sin. Það gerðist með setningu stjórnarskrárinnar 1874. Fyrsta fjárlagafrumvarpið var lagt fyrir Alþingi áriö 1875 og tók til áranna 1876-77. Það væri skemmtilegt aö bera saman þessi fjárlög og fjárlög nú á dögum. 1 sllkum samanburöi mundi blasa við sú gifurlega breyting sem átt hefur sér stað á Islenzku þjóö- félagi á siðast liöinni öld. Slikt á þó ekki við hér. En á það má þó minna að hlutverk rikisins var þá ekki talið annað en að halda uppi almennri stjórnsýslu, gæta laga og réttar og annast rekstur fá- einna skóla. Framfarasinnaðir menn tóku þó fljótlega að ætla rikisvaldi og sveitarfélögum fleiri verkefni. 1 þvi sambandi var tekjuskattur lögleiddur þegar 1877 og á þvi nú i ár rúmlega hundrað ára afmæli. Aukning umsvifanna var þó ekki meiri en svo að um aldamótin hefur verið taliö að rikisútgjöldin hafi numið tæplega 4% af þjóöartekjum. A undanförnum árum hafa þau numið um 30%. Annaö atriöi I sambandi við opinber fjármál fyrr á timum og þróun þeirra siðan er og athyglisvert. Ariö 1890 er talið að útgjöld sveitarfélaga hafi numið 80% af rikisútgjöldun- um. Nú eru þau sem kunnugt er um 20%. Þaö var algjörlega eölilegt sjónarmið hjá forfeðrum okkar þegar þeir vildu fá rikinu aukin verkefni aö réttmætt og eölilegt væri að afla til þess fjár meö þvi að taka upp stighækkandi tekju- skatt I stað þess að auka eigna- skattana sem fyrir voru. Þegar grundvöllur var lagður að núgild- andi tekjuskattskerfi árið 1921 eða fyrir rúmum fimmtiu árum, má og segja, að sú lagasetning hafi veriö skynsamleg, miöað viö aðstæöur þá og svipað má segja um setningu tekjuskattslaganna 1934. Það var ekki fyrr en nokkru siöar að lagöur var grundvöllur aö almannatryggingum á Islandi, en þær fóru brátt aö hafa áhrif til LJ '\ Dr Gylfi Þ. Gislason skrifar fyrri grein um skatt- heimtu rikisins og segir að á næsta ári megi ekki auka tekjuskattsheimtuna en siöan eigi að afnema tekju- skatt af aimennum launa- tekjum um leiö og viröis- aukaskattur veröur settur á. Ónnur grein Dr. Gylfa um þetta efni birtist á mánu- daginn undir yfirskriftinni: Neysluskattur er hag- kvæmari en tekjuskattur. tekjujöfnunar. A þeim fjórum áratugum, sem siðan eru liðnir, hefur islenzkt þjóðfélag ger- breytzt svo I grundvallaratriðum að það sem var rétt og skynsam- legt þá getur hæglega veriö orðið ranglátt og óskynsamlegt núna. Og það á einmitt viö um tekju- skattsheimtu rlkisins. Tekjuskatturinn er launa- mannaskattur. Þegar löggjafinn fyrir fjörtiu árum mótaði annan aðaltekju- stofn rikisins tekjuskattinn, var eðlilegt að hann léti hann vera stighækkandi, meö sérstakri hlið- sjón af þvi að þá voru I raun og veru engar opinberar ráöstafanir I gildi, sem höföu almenn áhrif til tekjujöfnunar. Undir slikum kringumstæöum var þaö fullkom- lega eðlilegt og réttmætt sjónar- mið að hinn tekjuhái greiddi mun hærra hlutfall af tekjum slnum til sameiginlegra þarfa en hinn tekjulági. Þá varö lika sú raunin á aö þeir, sem höfðu háar tekjur, bæði fyrirtæki og einstaklingar, greiddu verulegan hluta af tekj- um rikissjóðs en tekjuskatturinn I heild nam þá um þriðjungi rikis- teknanna. Skyldi nokkrum detta I hug I alvöru, að halda þvi fram, að gildandi tekjuskattskerfi tryggi þaö að hinir tekjuháu greiði verulegan hluta af tekjum rikissjóðs? Þótt tekjur launþega séu auövitaö misjafnar og nokkr- ir hafi háar iaunatekjur eru þeir ekki mjög margir. Háu tekjurnar eru eflaust, eins og viö er að búast af atvinnurekstri, þótt hann geti auövitað lika verið rekinn með tapi. En hvað skyldu allir at- vinnurekendur I iandinu hafa greitt mikiö i tekjuskatt 1 fyrra? Félög, sem stunda atvinnurekst- ur, greiddu 1740 millj. kr., og ein- staklingar, sem höfðu meö hönd- um atvinnurekstur, greiddu 1200 millj. kr. Af öllum atvinnurekstri sem 1976 var talinn velta um 300 milljörðum kr., var I fyrra greiddur 2900 millj. kr. tekju- skattur. Þeir atvinnurekendur sem greiddu tekjuskatt voru jafn- framt aöeins 55-60% af þeim aöil- um, sem atvinnurekstur stunduðu. 40%-45% þeirra greiddu alls engan tekjuskatt. Samtimis þessu greiddu launþeg- ar i fyrra 6600 millj. kr. I tekju- skatt til rlkisins. Þeir, sem halda þvi enn fram að innheimta tekjuskatts til rikis- ins sé réttmæt og eðlileg vegna þess, að hún jafni tekjur I þjóð- félaginu hafa augljóslega ekki fylgzt meö tlmanum. Tekju- skatturinn var I fyrra rúmlega ti- undi hluti rlkisteknanna. Megin- hluti hans var greiddur af launa- fólki. Geta skynsamir menn meö hliðsjón af þessu i alvöru haldiö þvi fram að tekjuskatturinn sé virkt tæki til tekjujöfnunar?

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.