Vísir - 09.11.1978, Page 17

Vísir - 09.11.1978, Page 17
VISIR Fimmtudagur 9. nóvember 1978 Berglind Ásgeirsdóttir þýddi og endursagöi. JACKIE „Ég man eftir því aö Jack Kennedy sagöi einu sinni, aö bandariska þjóöin væri ekki tilbii- in aö taka viö einhverjum eins og Jackie og aö hann vissi eiginlega ekki hvaö fjölskyldan ætti aö gera. Jack varpaöi fram þeirri hugmynd hvort ekki væri best aö hiln yröi kynnt i stuttrisjónvarps- auglýsingu. Jackie brást viö eins og hún heföi veriö slegin utan undir og hljóp frá boröinu. Jack var vanur aö tala viö systur slnar á þennan máta og fékk yfirleitt hvöss svöt til baka. Ekki gat Jack beöiö hana afsökunar og gengiö eftir henni svo aö ég fór fram og f ékk hana til þess aö koma aftur aö boröinu” segir Betty Spalding, er viö ræöum þetta atvik. Þaö vwumargir fundir haldnir um hlutverk Jackie. A þessum tlma var hún komin meö sllka andúö gagnvart væntanlegri kynningarherferö aö hún vildi ekki einu sinni ræöa um máliö. Rose Kennedy og dætur hennar voru þegar komnar af staö meö garöveislur og kaffisamsæti og unnu nótt og dag til aö Jack næöi kjöri. Jackie féll hins vegar saman viö tílhugsinina um aö þurfa aö heilsa upp á ótölulegan fjölda ókunnugra en fjölskyldan hvatti hana og sló henni gullhamra fyrir fegurö og glæsileik. Aö lokum sagöi sendiherrann fyrrverandi, Joe Kennedy viö tengdadóttur slna. ,,Ef þú ætlar aö komastút úr þessu þarftu aö veröa ófrísk.” A meöan Jackie eyddi tlma sin- um i' aö gera húsiö aö heimili notaöi Jack tima sinn og skipu- lagöi fundi sem uröu þess vald- andi aö hann var aldrei kominn heim fyrr en undir miönætti. Kennedyhjónin fóru nokkru seinna I feröalag um Evrópu þar sem þau fengu meöal annars áheyrn hjá páfa. Ariöeftirvar enn meiraaö gera hjá Jack Kennedy þar sem hann var aö reyna aö tryggja sér út- nefningu sem varaforsetaefni demókrata. ,,Ég var yfirleitt ein heima um hverja helgi. Jack feröaöist um Bandarikin þver og endilöng og hélt ræöur,” sagöi Jackie. ,,Þaö eralltaö. Viö áttum ekkert einka- llf.” Jackie reyndi ekki aö taka þátt i kosningabaráttu eiginmanns sins „Jack vildi ekki og gat ekki átt eiginkonusem vakti jafnmikla athygli og hann.” „Ég mæti á fundi og brosi,” sagöi hún um þátttöku stoa. „Stundum segi ég fáein orö en þaöeralltogsumtsem Jack telur aö ég þurfi aö gera.” Jackie eyddi mestum tima árs- ins 19561 þaöaökaupa húsgögn og innrétta nýja húsiö þeirra. Hún lagöi sérstaka áherslu á barna- herbergiö enhún átti von á barni I október. Hún hélt þvi leyndu eins lengi og hún gat, liklega hefur þaö veriö af ótta viö aö missa fóstriö. A fyrsta hjónabandsári þeirra varö hún fyrir þvi aö missa fóst- ur. Mörgum árum seinna eftir aö John F. Kennedy haföi veriö kjör- inn forseti sagöi.Jackie viö vin- konu slna er hún kveiöfyrir skyld- um forsetafrúar: „Ég ætla aö veröa ófrisk og halda þvi áfram. Þaö er eina útgönguleiöin.” Heimili og fundahöld Jackie haföi nú fundiö hús sem henni leist vel á sem framtiöar- heimili. Þaö var handan Potomac árinnar i McLean i Virginiu ekki langtfrá Merrywood þar sem hún haföi alist upp. Eftir átta mánaöa legu haföi John F. Kennedy snúiö aftur til starfa sinna sem öldungadeildar- þingmaöur f Washington. Hann haföi lokiö bókinni og gat brátt gengiö án þess aö nota hækjur. Vinir og óvinir Jackie átti erfitt meö aö skilja þann hugsunarhátt sem rflctí I stjórnmálaheiminum. „Jack sagöihenniaöistjórnmálum ættu menn hvorki vini né óvini heldur fyrst og fremst starfefélaga,” segir Arthur Schlesinger yngri, „og aö maöur ætti aldrei aö stofna til deilna þar sem ekki væri möguleiki á sættum. Þú þyrftir ef til vill aö vinna meö viökomandi aöila seinna.” Jack varaöi hana viöþvi aö láta stjórnmálamenn særa sig. „Þaö er ekki hægt aö taka stjórnmál persónulega. Þau vekja heitar til- finningar, og ef fólk er viökvæmt fyrir þvi sem aörir segja, veröur þaö eillflega miöur sin.” Jackie hefur alla tíð haft mjög gaman af að mála og teikna og er hér að sinna þessu hugðarefni sínu. Kennedy náði ekki að hljóta útnefningu sem varaforsetaefni demókrata 1956 þótt hann lagði sig mjög fram. Hér eru Kennedyhjónin að snæða saman í borðstofunni í húsi þeirra i Georgetown. Jackie skildi þetta aldrei. Hin blinda trú hennar á eiginmanninn geröi þaö aö verkum aö hún talaöi um þeirra menn og „hina”. Demókratar komu aö þessu sinni saman I Chicago til aö velja varaforsetaefni. Kennedy var lengi sigurstranglegur en náöi þó ekki settu marki aö þessu sinni. „Viö geröum okkar besta,” sagöi hann I simtali viö fööur sinn eftir aö úrslit voru kunngjörö. „Ég skemmti mér ágætlega og geröi mig ekki aö fífli.” Alvarlegt áfall Kennedy var ákveöinn I aö fara til Frakklands og hvila sig á frönsku riverunni eftir þessi úr- slit. Hann sinnti engu tilmælum Jackie sem átti von á sér eftir tvo mánuöi um aö vera hjá henni. „Jackie var svo bitur yfir þessu aö hún sagöi aö sér væri alveg sama um barniö,” sagöi vinkona hennar. „Auövitaö var henni ekki sama en hún var svo miöur sin yfir aö hann skyldi fara aö hún lokaöi sig inni og lét óánægjuna nagasig. Þettakom ofan á öll læt- in sem höföu veriö i Chicago og þetta endaöi meö þvi aö hún fór á spltala.” Viku eftir aö Kennedy fór til Frakklands var hún flutt á sjúkrahús eftir aö blæöingar höföu hafist og hún fengiö krampa. Keisaraskuröur var framkvæmdur en barniö lést. Ro- bert Kennedy fór strax til aö vera hjá Jackie á sjúkrahúsinu á meöan Eunice systir hans reyndi örvæntingarfullt aö hafa upp á Jack bróöur þeirra. Þaö tókst ekki fyrr en eftir þrjá daga, og eftir aö hann vissi, aö þaö væri allt I lagi meö Jackie ákvaö hann aö halda áfram frii sinu þar sem hann var nú á siglingu á snekkju einni i nánd viö Capri. Þaö var aöeins fyrir orö vinar hans George Smathers aö hann fékksttil aökoma heim til Banda- rikjanna. „Ef þú ætlar þér aö veröa forseti er eins gott aö þú hundskist til konu þinnar annars munu allar eiginkonur I landinu snúast gegn þér,” sagöi George viö hann. Joe faöir Jacks var á sama máli og George. Jackie var gjörsamlega magn- þrota likamlega og andlega eftir þetta áfall og dvaldi á spitalanum meöan fjölskyldan lét halda minningarathöfn um litlu stúlk- una sem ekki liföi nógu lengi til aö unnt væri aösklra hana. Mörgum árum seinna var litla kistan meö áletrununni „Oskirö Kennedy” flutt til og grafin i Arlington- kirkjugaröinum iWashington viö hliö Kennedybræöranna tveggja. Á laugardaginn: Einkamólin og stjórnmálin 17-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.