Vísir - 09.11.1978, Síða 20

Vísir - 09.11.1978, Síða 20
20 Fimmtudagur 9. nóvember 1978 VISIR LIF OG UST UF OG UST UF OG UST UST LIF OG LIST Tónabió: Let it Be ★ ★ + Let it Be Tónabfó. Bresk. Argerö 1970. Leikstjóri: Michael Lindsay-Hogg. Aóalhlut- verk: John Lennon, Paul McCartney, Ringo Starr, George Harrison og fylgi- fiskar. Undarlegt aö þessi heimildarmynd um aö- dragandann aö endalok- um Bitlanna skuli dúkka upp á Islandi átta ára gömul. Hrein heppni fyrir Tónabió aö Bitlarnir skuli ekki vera farnir aö spila saman aftur fyrir löngu. Let it Be er reyndar ekki sérlega merkilegt verk frá kvikmy ndalegu sjónarmiöi, enda vart viö þvi aö búast aö þessi yfir- buröahljómsveit sé tekin föstum tökum i mynd sem hún sjálf framleiöir. Samt eru bráöskemmti- legir kaflar i Let it Be, og nokkrir verulega upplýs- Kvikmyndir o Arni Þór- arinsson skrifar andi um þaö hvernig hljómsveitin er að grotna niöur um þetta leyti, —- bæöi móralslega og músiklega. Þótt tónlistin i Let it Be, og á samnefndri plötu sé i mikilli lægð miöaö við fyrri afrek fjór- menninganna er hún samt besti parturinn af þessari þvælingslegu mynd. Hvaö sem öðru liöur má enginn gamall eöa nýr Bitlaaödáandi láta Let it Be framhjá sér fara. —AÞ 4 stjörnur: framúrskarandi 3 stjörnur: ógœt 2 stjörnur: la-la 1 stjarna: slöpp 0: afleit I GANGI Stjörnubíó: Close Encounters of thc Third Kind Furöuleg tæknikunnátta Steven Spielbergs bjargar hugmyndafátækt handritsins i þessari bjartsýnu lofgjörö um samlifi sólkerfanna. Heilmikiö fyrir augu og eyra, en heilabúiö getur slappað af Nýja bíó: Stjörnustríð — Star Wars Huggulegt geimævintýri I hasarblaöastil. Eins og Spielberg bjargar George Lucas sér á tæknilegum bellibrögöum og óbrigöulli efnisformúlu um baráttu hins góða og hins illa, þar sem teflt er saman minnum úr öllum hugsanlegum tilbrigöum ævintýra- og hasarmynda. Gott fyrir þreyttar heilasellur og börn á öllum aldri. Háskólabió: Saturday Night Fever Einkar fagmannlega gerö mynd um tilfinningafirrt, kalt, en heillandi og sexl diskóllf. John Badham leikstjóri og Norman Wexler, handritshöfundur gera þessa mynd betri en hún ætti aö vera. John Travolta og Bee Gees eru líka I góöu formi. Laugarásbió: Hörkuskot — Slap St>c* Hrottaleg gamanmynd George Roy Hill, leikstjóra um villimennsku atvinnuiþrótta (Isknattleiks) I Amerlku. Þvf viöfangsefni er veitt sæmileg úr- vinnsla, en umf jöllun um andlega upplausn íþrótta- mannanna fer fyrir ofan garö f geggjuöum hasarn- um. Prýöis afþreying. —AÞ Eftirmœli um Umheiminn Þaö var uppi fótur og fit á sinum tíma, þegar Magnús Torfi ólafsson var valinn til aö fjalla um erlend málefni í þættinum Efst á baugi i hljóövarpinu. Blaöamenn af málgögnum lýöræöisflokkanna höföu skipt meö sér um- sjón þessa þáttar um nokkurt skeiö og oröiö aö þola stöö- ugar svlviröingar Þjóöviljans og annarra skríbenta úr vinstra liöinu. Linnti ekki látum fyrr en yfirvöld út- varpsins lögöu niöur rófuna eins og svo oft hefur gerzt fyrr og siöar undir svipuöum kringumstæöum. Þá var Magnús Torfi fenginn til aö gæta hagsmuna rauöliöanna i umræddum dagskrárþætti. Nýr Magnús En nú er á meðal vor nýr Magnús Torfi, — fyrrver- andi alþingismaöur og ráö- herra, framkvæmdastjóra- efni Menningars jóös, studdur til þess embættis af fulltrúum Sjálfstæöis- flokksins I menntamála- ráöi. Þaö hafa sjálfsagt þótt svo góö meömæli, aö nú hefur ólafur Jóhannes- son tekið Magnús upp á sina arma og gert hann aö blaöafulltrúa rlkisstjórnar- innar. Um stutt skeiö hefur Magnús Torfi Ólafsson haft meö höndum umsjón þátt- ar um erlend málefni I sjónvarpinu, sem nefndur hefur verið Umheimurinn. Égsásiöastaþátt sem fjall- aöi um hinn nýja páfa, Jó- hannes Pál II. Þetta var um margt fróðlegur þáttur, sem án efa hefur upplýst margan islenskan mót- mælendatrúarmanninn um áöur lítt kunnar hliöar á starfi hinnar miklu stofn- unar sem kaþólska kirkjan er. Góðir kraftar Eins og vonlegt var hlaut umræöan I þessum þætti fyrst og fremst aö snúast um stööu kirkjunnar i Pól- landi og öörum Austur- Evrópulöndum. Þeir Arni Bergmann og Torfi ólafs- son ræddu viöfangsefniö ásamt Magnúsi og tókst bærilega vel upp. Arni tal- aöi aöallega út fra kynnum slnum af ástandinu I Sovét- r-ikjunum og annars staðar austan járntjalds, en Torfi frá sjónarhóli kaþólskra. Þeir Arni og Torfi eru dæmi um þann efniviö, sem Magnús Torfi ólafsson leynlst I okkar fámenna þjóöfélagi og fengur er i fyrir dagskrár af þessari gerö. Viö getum aö sjálf- sögöu keypt aö utan kynstrin öll af sjónvarps- efni um erlend málefni með heimsfrægum fréttaskýr- endum og öörum stórséni- um. En það er ekki siöur áhugavert að hlýöa á land- ann segja sjálfan frá og skýra fjarlæga viöburöi I ljósi sinnar eigin reynslu eins og þarna var gert. íslendingar hafa viöafariö og upplifaö margt. 1 hópn- um fyrirfinnast einstakl- ingar, sem hafa feröazt um veröldina til aö stunda hin Jóhannes Páll páfi II. ólikustu áhugamál sin. Þaö ætti aö vera sjónvarpinu nokkurt kappsmál að virkja þessa krafta eftir þvi sem tilefni gefast til eins og gert var i umrædd- um þætti Magnúsar Torfa. Þar meö er ekki sagt aö viö eigum aö hafna upplýsing- um erlendra sérfræðinga og fréttastofa. Þær halda eftir sem áður sinu fulla gildi. Mynd og texti I upphafi þáttarins um Jóhannes Pál páfa II. var sýnd fréttamynd til útlist- unar á aödraganda hins slöari páfakjörs i sumar. lífsháski hjá L.R.: LIFSHASKI ER NAFN SEM HEYRIST IÐU- LEGA NEFNT I IÐNÓ ÞESSA DAGANA. Þegar spurt er nánar út i þaö hvaö sé á seyöi, lokast allir. Þaö er greinilega eitthvaö mjög dularfullt aö gerast i leikhúsinu og til þess aö þefa eitthvaö uppi lagöi Visir leiö sina niöur i Iönó. ,,Þaö er varla hægt aö segja eitt einasta orö um leikritið, þvi þá kunna skarpskyggnir menn aö leggja saman tvo og tvo og þá er gamanið úti ” sagöi Tómas Zoega fram- Hér sjást þau Sigrlöur Hagalln og Þorsteinn Gunnars- so'n I hlutverkum sinum. Greinilega hafa voveiflegir atburöir gerst. Leyndin í fyrírrúmi kvæmdastjóri en hann er þýöandi Lifsháskans, er á ensku nefnist Death Trap. ,,Ég vil undirstrika þaö sem kemur fram i leik- skrá. Þar eru leikhús- gestir beðnir um aö láta ekki efnisþráðinn fara lengra til aö spilla ekki fyrir þeim sem ekki hafa enn séð verkið.” Blaöamaöur var aö vonum oröinn mjög for- vitin eftir þennan formála Tómasar, sem var þögull sem gröfin. Hér var greinilega ætlunin aö halda áhorf- endum I algerri óvissu út leikinn. Blaöamaöur brá þvi á það ráö aö spyrja eftir höfundinum. „Ira Levin er Banda- rlkjamaöur, sem er lik- lega kunnastur hér á landi fyrir verk sitt Rose- mary’s Baby. Hann hefur jöfnum höndum skrifað leikrit og skáldsögur. Death Trap var frumsýnt I vor I New York og viö reiknuðum meö aö veröa þeir fyrstu til aö sýna Hjalti Rögnvaldsson fer meö eitt aöalhlutverkiö I Lifsháska, en auk hans leikam.a. Asdis Skúla- dóttir og Guömundur Pálsson það, utan Bandarikjanna. Viö vorum hins vegar aö frétta þaö, aö Bretar heföu slegiö okkur viö. Leikritiö gerist I októ- bermánuöi, ártal er ótil- greint, I herbergi einu i Connecticut I Banda- rlkjunum. Nafn verksins gefur ýmislegt til kynna og óhætt er aö fullyrða að mjög langt er siöan leikrit þessarar tegundar hefur verið sýnt hér á landi.” HROLLVEKJA? Tómas sagði aö siðasta leikrit i þessum dúr hjá Iönó heföi veriö Blúndur og blásýra, sem var fært upp i kringum 1950. „Slik leikrit saman- standa yfirleitt af leik- fléttum og þaö er at- hyglisvert að höfundur leggur einum leikaranum einmitt I munn orö sem kunna að útskýra þetta. Leikarinn segir frá þvi, hversu frábærlega ögr- andi leikritsform þetta sé, og jafnframt að nær öll ef ekki öll tilbrigöi hafi verið tæmd. Höfundar eru þvi aö finna upp nýjar fléttur sem haldið geta athygli áhorfandans.” Leikritiö veröur frum- sýnt um helgina og eru leikendur fimm talsins, en leikstjóri er Gisli Hall- dórsson. _bA— TONLIST Gunnar Salvars- son skrif- ar u m popp Rétt spor Lög Jenna Jóns i útsetningu Þóris Baldurssonar Svavar Gests, eigandi SG-hljómpIatna, hefur gert sér far um aö kynna Islensk dægurlagatónskáld sem uppi voru meö þjóöinni er hljómplatan var ekki orðin almenningseign. t þessum flokki SG-hljómplatna eru plötur meö úrvali laga eftir Sigfús Halldórsson, Jóna- tan ólafsson, Oddgeir Krist já nsson, „Tólfta september” — og nú siðast lög Jenna Jóns. Jenni Jóns LIFOGLIST LÍFOGLIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.