Vísir - 13.11.1978, Page 15
VJSIR Mánudagur 13. nóvember 1978
BÍHBIÉIHHHHiHHHHIHf
■
Mafíustríð innan fangelsismúra:
Guðéaðirinn
í einangrun
m
Foringja mafiu-
foringjanna, Carmine
Galante, guðföðurnum,
hefur verið ógnað lifláti
þar sem hann situr i
Danburyfangelsi i
Connecticut. Aðrar
mafiufjölskyldur vilja
losna við hann fyrir
fullt og allt. Galante er
vaktaður allan sólar-
hringinn og er i einan-
grun frá öðrum föng-
um.
FBI hefur aövaraö fangelsis-
yfirvöldin um aö lif Galante sé i
hættu. Er simtöl háttsettra
glæpamanna voru hleruö kom i
ljós aö veriö væri aö undirbúa
aö myröa Galante og tvo aöra
mafiuforingja.
Galante er höfuö Bonnanno-
fjölskyldunnar sem stjórnar
glæpaheimi New York borgar.
Hann er 67 ára gamall og iosn-
aöi úr fangelsi áriö 1974 eftir aö
hafa afplánaö 12 ár af 20 ára
refsingu. í fyrra var honum aft-
ur stungiö inn til aö taka út þaö
sem eftir er refsingarinnar.
Hann mun væntanlega losna úr
fangelsinu áriö 1982.
Tveir aörir glæpaforingjar
hafa einnig veriö fluttir til oftar
en einu sinni og eru nú i einan-
grun eftir aö FBI haföi komist
aö svipaöri hótun gegn þeim.
Þessar hótanir eru liöur I mikl-
um átökum á milli mafiu-
fjölskyldnanna.
Þessir glæpaforingjar eru
John Franzese og Carmine Per-
cici. Þeir eru báöir foringjar
fyrir mafiufjölskyldum og koma
sterklega til greina til aö hreppa
guöfööurtitil Galantes.
Galante hefur mótmælt þvi
kröftuglega aö vera i einangrun
frá öörum föngum. Er þaö
vegna þess aö hann á þá i erfiö-
leikum meö aö stjórna veldi
sinu innan fangelsisveggja eins
og hann hefur gert til þessa.
Hann segir aö ekki megi taka
hótanirnar of alvarlega og jafn-
framt liki honum ekki aö vera
vaktaöur allan sólarhringinn.
Fangelsisyfirvöld halda fast viö
sitt og vilja ekki hætta á aö
mafiuforinginn veröi myrtur er
hann situr inni.
Þess vegna hefur meöal ann-
ars veriö útbúiö sérstakt eldhús
fyrir glæpaforingjana þrjá og
maturinn rannsakaöur rækilega
áöur en hann er borinn á borö
fyrir þá. —KS
AÐALATRIÐIÐ
ER AÐ HAFA
EITTHVAÐ
FYRIR STAFNI
— segir hinn blindi, áttrœði rithöfundur,
Karl Bjarnhof
Danska sjónvarpiö er nú aö
fara aö taka upp sex viötalsþætti
viö danska rithöfundinn Karl
Bjarnhof, sem er blindur.
Karl Bjarnhof er áttræöur aö
aldri. Hann er þekktur hér á landi
fyrir bækur sfnar. Hann er afar
fjölhæfur maöur og er meöal ann-
ars kunnur útvarpsmaöur I
heimalandi slnu, Danmörku.
Norska blaöiö Verdens Gang
segir um hann: „Hinn stórkost-
legi Karl Bjarnhof, skáldiö, lista-
maöurinn, pianóleikarinn, hljóm-
listarunnandinn, útvarpsmaöur-
inn, sem er ótrúlega sjáandi á
ýmsa fleti tilverunnar sem aörir
koma ekki auga á, þó hann sé
blindur.”
Fréttamaöurinn spuröi hann
um fyrirhugaöa viötalsþætti I
sjónvarpinu.
,,Þeir vilja lxklega eiga mig á
„lager”. Ég er ekki ódauölegur
og minn timi fer aö nálgast, en ég
hef ekki áhyggjur af þvi” sagöi
Karl Bjarnhof.
„1 gær afhenti ég Mogens
Knudsen hjá Gyldendal handrit af
nýrri bók eftir mig sem kemur út
innan skamms. Aöalatriðiö er aö
hafa eitthvað fyrir stafni.
Tónlistin hefur ómetanlega
þýðingu fyrir mig. Ég verö að
spila á hverjum degi. En ekki
nútíma tónlist, ég nenni þvl
einfaldlega ekki. Ég hlusta hins-
vegar gjarnan á hana, ekki slst
tónlist eftir Nils Viggo Bentzon’.’
— Þú tekur enn þátt I umræöum
á opinberum vettvangi?
„Já ég er svo lánsamur aö ná
eyrum fólks. Fyrir skömmu var
ég i umræöum um hina vonlausu
aöstööu sem gamalt fólk býr oft
viö hér I landi. Gamla fólkiö sýnir
þá ókurteisi aö deyja ekki. Þaö
er lokaö inni á sjúkradeildum, oft
án þess að hafa tækifæri til að
umgangast annaö fólk. Þaö er af-
ar slæmt”.
— Þú tekur ekki þátt I pólitískum
umræöum?
„Nei, aldrei. Ég veit ekkert
Hinn fjölhæfi áttræöi rithöfundur
Karl Bjarnhof var aö leggja síö-
ustu hönd á slna 21. bók.
hvort þaö gengur vel eöa illa I
Danmörku. Sjálfur er ég aldrei
atvinnulaus og það eru kannski
forréttindi. Ég hef alltaf haft nóg
aö gera og núna er aö koma út
min tuttugasta og fyrsta bók’.’
— Saknaröu ekki vinnu þinnar
hjá útvarþinu?
„Ég starfaöi hjá danska út-
varpinu I heilan mannsaldur,
fyrst sem hljóðfæraleikari. Ég
varö lausráöinn áriö 1937, en fast-
ráöinn frá árinu 1945 til 1965, og
var meö mlna föstu þætti og viötöl
við fólk. Ég hugsa oft til þess, en
ég hef nóg annað að gera.
Mér finnst lika vera kominn
ópersónulegur blær yfir útvarps-
vinnu, þetta er allt oröið svo
skipulagt. Hver af dagskrárstjór-
um útvarpsins I dag hefur
persónuleika? Ég bara spyr. Vit-
um viö eitthvaö um skoöanir
þeirra sem starfa viö ui»^.p:’>?
Hafa þeir ekki persónulegai
skoöanir og hugmyndir? Hvernig
finnst þeim starf sitt?”
— Hlakkarðu til aö vinna aö
s jón varpsþáttunum ?
„Já ég geri þaö” sagöi
Bjarnhof.
Komið og skoðið ITT Schaub-Lorens
litsjónvarpstcekin hjá Gelli, Brceðraborgarstíg 1.
ITT litsjónvarpstcekin sýna raunverulega liti,
hafa fallegt útlit og eru vestur-þýsk
tcekniframleiðsla sem vert er að veita athygli.
Forsenda góðrar þjónustu er tceknikunnátta sem
tceknimenn okkar scekja beint til framleiðanda.
Vestur-þýsku ITT litsjónvarpstcekin eru vönduð
og vegleg eign. Þau eru gerð til að endast lengur
Veljið varanlegt.
Brceðraborgarstíg 1 Sími 20080
(Gengið inn frá Vesturgötu)