Vísir - 14.11.1978, Blaðsíða 3

Vísir - 14.11.1978, Blaðsíða 3
vism ÞriOjudagur 14. nóvember 1978 r i i Bruninn & Höfn í Hornafirði: TJÓNIÐ HÁn í 300 MILUÓNIR Gkki er ennþá ljóst hvert heildartjónió á söltunarstö&inni Stemmu á Höfn i Hornafiröi var i brunanum s.l. sunnudag. Sölt- unarhúsið er metið á 230 milljónir og eyðilagðist það gjörsamlega í eldinum ásamt öllum tækjum. Talið er að um 1200-1500 saltaðar tunnur hafi verið f stöðinni og eyðilögðust þær I eldinum og eitthvað af sild úti við skemmdist einnig. Kristján Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Stemmu sagði 1 samtaliviðVisi að nú þegarværi byrjað að hreinsa rústirnar. Þaö verk tæki að minnsta kosti 2-3 vikur og þangað til væri ekki hægt aö segja með nokkurri vissu hvað tjónið væri mikiö. Einnig væri matsmaður að at- huga sildina sem var fyrir utan húsiðfaö hve miklu leyti hún hefði skemmst. Söltunarstöðin var byggð i fyrra og húsið stækkað i ár. Það var stálgrindarhús, 1800 fer- metrar að stærö. Á þessari ver- tiö var búið aö salta þar 19000 tunnur. „Eftir að búið er að hreinsa til þá ætlum við að byggja aftur þvi við erum bjartsýnisfólk”, sagði Kristján. Hann sagði að engar hug- myndir væru um eldsupptök en eitt væri þó ljóst,aö þau væri ekki frá kynditækjum þvi þau væru það eina sem ekki hefði eyðilagst i eldinum. —KS Brunarústirnar á Höfn I Hornafirði.Visismynd: Albert Eymundsson . Drifa Pálsdóttir lögfreðingur Nýr lögfrœðingur Mœðrostyrksnefndar Drifa Pálsdóttir hefur tekiö við starfi lögfræöings Mæðrastyrks- nefndar i Reykjavik. Hún tók við af Sigriði Asgeirsdóttur, héraðs- dómslögmanni, sem hefur starfað undanfarin ár sem lögmaöur nefndarinnar. Drifa mun halda áfram þeim endurgjaldslausu lögfræðilegu leiöbeiningum við efnalitlar mæöur, sem Mæðrastyrksnefnd hefur rekið um árabil. Viðtalstimi Drifu veröur alla mánudaga kl. 10-12 að Njálsgötu 3, en slminn er 14349. Drifa Pálsdóttir lauk lögfræði- prófi vorið 1978 og var prófritgerð hennar á sviði sifjaréttar og fjall- aði um forsjá barna við skilnaö foreldra þeirra. Systrafélag Ananda Morga á íslandi: Símaþjónusta Fjórlagafrumvarpið: TVEIR MILLJARÐAR BÆTAST VIÐ OPIN- BERAR FRAMKVÆMD- IR Á NÆSTA ÁRI „Fjárlagatölurnar eru yf irleitt þær sömu og þær voru er fyrri stjórn skildi við fjárlagafrumvarpið. Siðan hefur verið gengið út frá því að 2 milljarðar bættust við til opinberra framkvæmda", sagði Ragnar Arnalds sam- göngu- og menntamála- ráðherra i samtali við Vísi. Ragnar sagði að al- þýðubandalagsmenn hefðu lagt á þetta þunga áherslu, að fá fram- kvæmdafé aukið, og myndi sú aukning dreif- ast jafnt á framkvæmda- sviðið. Þetta kæmi reynd- ar fram i athugasemdun- um með frumvarpinu. Þar segi að miðað við að ein- um milljaröi sé bætt við þá verði samdráttur i fjárfestingum um 16%. 1 framhaldi af þvi kæmi aö telja mætti eðlilegt að sam- drátturinn væri um 12% og væri þá miðað við tveggja milljaröa aukningu frá þvi sem gert væri ráð fyrir I frumvarpinu eins og þaö hefði veriö lagt fyrir. —KS Kenichi Takefusa I hinni nýju verslun Japis. „SONY í HÆSTA GÆÐAFLOKKI" ,,Sony leggur aðaláherslu á vöruvöndun og öll framleiðsla Sony er i hæsta gæðaflokki”, sagði Kenichi Takefusa framkvæmdastjóri Japis í sam- tali við Visi. Japis er nýstofnað hlutafélag sem annast margháttuö viðskipti við Japan og hefur opnað verslun með vörur frá Sony að Lækjar- götu 2. „Við erum hér með litsjón- varpstæki, hljómtæki, kassettur og margt fleira frá Sony og enn- fremur varahluta- og viðgeröar- þjónustu. Sony fann upp og notar með einkaleyfi svokallað Trinitron kerfi fyrir litsjónvarps- tæki sem tryggir bestu fáanlegu gæði”, sagði Takefusa. Þá minnti hann á, aö áriö 1973 hlaut einn af sérfræðingum Sony, dr. Leo Esaki, Nóbelsverölaunin, en hann vann að hönnun Trinitron kerfisins. —SG Grunnskólakennarar mótmœla niðurskurði á fjórveitingum Fuiltrúaráðsfundur Sam- bands grunnskólakennara mót- mælir harðlega þeim niöur- skurði á f járveitingum til kennslu I grunnskólum sem fram kemur I fjárlagafrum- varpinu. SGK varar við fjölgun nem- enda 1 bekkjardeildum, fækkun kennslustunda eða öðrum þeim leiöum sem munu bitna á nem- endum. Sambandið minnir á ár barns- ins áriö 1979 og telur aö stefnan ætti að vera aö bæta skólahald og námsaðstöðu, I stað þess aö þrengja kosti nemenda. „Samþykki stjórnarflokk- arnir þennan niðurskurð ganga þeir þvert á stefnuskrár sinar fyrir siðustu kosningar” segir i lok ályktunarinnar. Þorskveiðibann 20.-31. desember öilum öðrum skipum en skut- togurum er óheimilt að stunda þorskveiðar f fslenskri fiskveiði- landhelgi timabilið 20.-31. des. að bá&um dögum meötöldum. Þetta kemur fram i reglugerð um takmarkanir á þorskveiöum allra fiskiskipa i nóvember og desember i ár. Varöandi skuttogara gildir sú regla, að skuttogarar með aflvél stærri en 900 bremsuhestöfl, verða að láta af þorskveiöum I 21 dag á timabilinu 15. nóvember til ársloka. A þeim tima sem skíp mega ekki stunda þorskveiðar sam- kvæmt ofangreindu, má hlutdeild þorsks i heildarafla hverrar veiðiferöar ekki nema meiru en 15%, það sem umfram er veröur gert upptækt samkvæmt lögum um upptöku ólöglegs sjávarafla. —BA— um helgar Systrafélag Ananda Marga á tslandi hefur tekiö upp simaþjón- ustu um helgar. Þetta er að erlendri fyrirmynd og hefur þessi simaþjónusta veriö nefnd „Amurtel”. Þjónustan er veitt I slma 2 35 88 frá klukkan 22.00—02.00 föstudagskvöld, laugardagskvöld og sunnudags- kvöld. öllum þeim sem þurfa að ræða vandamál sfn I trúnaði viö utan- aðkomandi persónu er velkomið að hringa á þessum tlma og verð- ur samtaliö trúnaðarmál milli þeirra og systranna. —KS STERKUR SrfUHRElNN OG GÓDUR HITAGJAFI STÓ ofninn er islensk framleiðsla, rafsoðinn saman að mjög miklu leyti með fullkomnum sjálfvirkum véium, sem tryggja jöfn gæði og styrkleika suðunnar. Mælingar hafa sýntað STÓ ofninn er mjög góður hitagjafi og hentar bæði hitaveitu- og ketilkerfum. Leitiö nánari upplýsinga. Gerum föst verðtilboð. STÁLOFNAR HF. Smiðjuvegi 56 sfmi 73880

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.