Vísir - 16.11.1978, Page 1
200 FÓRUST
FLUGLEIÐAÞOTU
Átta íslendingar férust, en fimm eru i sjékrahúsi
Frá slysstaðnum við flugvöllinn i Colombo á Ceylon.
Það kviknaði i vélinni eftir að hún hafði fallið til jarðar
nokkrum kflómetrum fyrir framan flugbrautina.
Slmamynd.
Islendingarnir sem fórust
I flugslysinu við Colombo á Ceylon fórust átta íslendingar, en fimm komust lífs af.
Myndirnar eru af þeim, sem létu lífiö í flugslysinu.
Asgeir Pétursson, yfir-
flugstjóri, 48 ára, kvænt-
ur, til heimilis að Furu-
lundi 9, Gb.
Erna Haraldsdóttir, flug-
freyja, 38 ára, gift, til
heimilis að Túngötu 7, R.
Guðjón Rúnar Guðjóns-
son, flugmaður, 38 ára,
kvæntur, til heimilis að
Bergþórugötu 33, R.
Haukur Hervinsson, flug-
stjóri, 42 ára, kvæntur, til
heimiKsað Urðarstekk 1,
R.
ólafur Axelsson, deildar-
stjóri i flugdeild, 47 ára,
kvæntur, til heimilis að
Kóngsbakka 3, R.
Ragnar Þorkelsson, flug-
vélstjóri, 55 ára, kvæntur,
til heimilis að Hliðarvegi
18, Kóp,
Sigurbjörg Sveinsdóttir,
flugfreyja, 37 ára, gift, til
heimilis að Hraunbrún 6,
Hf.
Þórarinn Jónsson, for-
stöðumaður flugdeildar,
52 ára, kvæntur, til
heimilis að Skólagerði 36,
Kóp.
Um 200 manns/
þar af átta islend-
ingar, létu lifiö
þegar DC-8 þota frá
Flugleiðum fórst i
lendingu við flug-
völlinn í Colombo á
Ceylon, þar sem vél-
in var í pílagríma-
flugi. Með vélinni
voru 246 farþegar og
átta manna áhöfn,
en auk þess voru i
aukaáhöfn tveir
flugstjórar, ein
flugfreyja, for-
stöðumaður flug-
deildar Flugleiða og
deildarstjóri í Flug
deild Flugleiða, eða
samtals 13 islend-
ingar.
Þeir fimm Islendingar
sem liföu slysiö af voru
fluttir 1 sjúkrahús i Col-
ombo. Þeir munu ekki
vera lifshættulega
slasaöir.
I fréttaskeyti frá
Reuter segir aö mikiö
þrumuveöur hafi veriö
viö flugvöllinn þegar vél-
in reyndi aö lenda. Hún
kom niöur á kókoshnetu-
plantekru um sex kiló-
metra frá btautarend-
anum, plægöi I gegnum
tré og lenti á litlum kofa
og kom þá eldur upp i
henni.
Björgunarsveitir náöu
til sextiu manna sem liföu
af slysiö og voru þeir
fluttir I sjúkrahús aö sögn
Reuter. Tuttugu létust
eftir aö komiö var I
sjúkrahúsiö, tuttugu og
þrlr fengu aö fara þaöan
eftir minniháttar aö-
hlynningu en hinir liggja
enn á sjúkrahúsinu.
Vélin var á leiö frá
Jeddah i Saudi-Arabiu til
Surabaya á Jövu, meö
millilendingu á Ceylon.
Aukaáhöfn og starfsmenn
áttu aö fara af i Colombo
en hluti áhafna haföi fariö
þangaö áöur meö ööru
flugfélagi.
Flugvélin sem fórst,
TF-FLA, var ein af
þremur flugvélum af
geröinni DC-8 sem Flug-
leiöir áttu. Hún var keypt
áriö 1975.
Þetta var fyrsta feröin I
siöari hluta pflagrima-
flugs Flugleiöa milli
Indónesiu og Saudi-
Arabiu.
t fréttatilkynningu um
slysiö segir aö stjórn fé-
lagsins og starfsfólk sé
harmi slegiö og votti aö-
standendum þeirra sem
fórust dýpstu samúö. _öt
fimm íslend-
ingar kom-
ust lífs af
Fimm Islendingar slösuðust í flugslys-
inu og voru f luttir á sjúkrahús í Colombo.
Þeir munu ekki vera lífshættulega slas-
aðir.
Þessi fimm eru:
Haraldur Snæhólm, flugstjóri
Jónína Sigmarsdóttir, flugfreyja
Kristín E. Kristleifsdóttir, flugfreyja
Oddný Björgólfsdóttir, flugfreyja
Þuríður Vilhjálmsdóttir, fiugfreyja
Þá er talið, að um 50 farþegar hafi
komist lifs af úr flugslysinu.
—ESJ.