Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 3

Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 3
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 B 3 Já, raunveruleikinn blasti viðhópnum, sem var að koma til Indlands í fyrsta skipti. Ungur betl- ari var löðrungaður fyrir framan strák- ana og settur í skammakrókinn inni í flughöfninni, þar sem hann var stöðugt látinn taka hnébeygjur og var enn að því þegar rútan sem sótti landsliðshópinn rann úr hlaði flughafnarinnar. „Það er hreint ótrúlegt að vera kominn hingað eftir erfitt ferðalag. Það var búið að segja okkur fá því að við myndum upplifa margt sem við höfum ekki gert okkur grein fyrir að við ættum eftir að upplifa. Við höfum kynnst mörgu nýju hér á stuttum tíma. Ég hef til dæmis aldrei upp- lifað það að menn séu byrjaðir að bera á sig varnir við moskítóflugum þegar beðið er eftir farangri,“ sagði Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari Ís- lands, sem segir að það sé hans fyrsta mál hér í Indlandi að ná ferða- þreytu úr sínum mönnum og koma þeim á réttan kjöl. „Hópurinn mun hvílast hér í Bombay. Við erum stað- ráðnir í að rífa þreytuna strax úr strákunum, það er stutt í fyrsta leik – við mætum Úrúgvæmönnum á fimmtudaginn. Ég geri mér fyllilega grein fyrir að þessi ferð er ein mesta ævintýraferð sem íslenskur íþróttahópur hefur farið í. Það eru margar hættur að verjast, ekki aðeins á knattspyrnu- vellinum heldur í öllu umhverfinu, sem við eigum ekki að venjast. Við þurfum að vara okkur á mataræði og miklum hitum á vatnasvæði, sem Cochin er,“ sagði Atli. Atli sagði að hann og strákarnir myndu renna blint í sjóinn í sam- bandi við keppnina sjálfa. „Við mæt- um mótherjum sem við vitum lítið sem ekkert um, eins og landslið Ind- lands og Indónesíu. Við vitum að Úrúgvæmenn eru sterkir, enda eru þeir taldir réttilega sigurstrangleg- astir í riðlinum. Við sjáum hver styrkleiki Indlands og Indónesíu er á fimmtudaginn þegar við sjáum lið- in leika strax eftir okkar leik við Úrúgvæmenn. Ég geri mér grein fyrir að vandamálin eru mörg. Strák- arnir eru ekki í mikilli leikæfingu á þessum tíma, en tækifærið er kær- komið fyrir okkur. Margir leikmenn mínir eru að taka sín fyrstu skref í ís- lenska landsliðinu. Þetta eru þó allt strákar sem hafa farið í gegnum góð- an skóla – hafa leikið með unglinga- landsliðum okkar. Eins og ég sagði er þetta ævintýri fyrir ungu strákana okkar – að koma hingað á framandi slóðir, kynnast nýjum siðum og lifnaðarháttum. Þetta er mikill skóli fyrir strákana og mig sjálfan. Það er frábært að fá að taka þátt í þessu ævintýri. Við er- um ákveðnir, eins og alltaf, að standa okkur og verða landi og þjóð til sóma. Ég vona að við berum höfuðið hátt þegar við förum héðan, hvenær sem það verður,“ sagði Atli Eðvalds- son. Morgunblaðið/Einar Falur Atli Eðvaldsson landliðsþjálfari og Ásgeir Sigurvinson gægjast út um glugga rútunnar sem flutti knattspyrnulandsliðið gegnum fátækrahverfið við alþjóðlega flugvöll- inn við Bombay og heim á hótel eftir rúmlega sólarhrings ferðalag. Bakvið þá er m.a. Böðvar Örn Sigurjónsson læknir. Morgunblaðið/Einar Falur Undir morgunn í flugstöðinni í Dubai voru landsliðsmennirnir Sigurvin Ólafsson, Bjarni Þor- steinsson, Gunnleifur Gunnleifsson og Valur Fannar Gíslason orðnir æði þreyttir. Raunveru- leikinn blasti við ÞAÐ má með sanni segja að raunveruleikinn hafi blasað við ís- lenska landsliðshópnum þegar flogið var inn yfir Bombay og að flugvellinum þar. Leikmennirnir sem sátu við gluggann í þotu Em- irates hrópuðu upp er flogið var yfir fátækrahverfin. „Þetta eru kassar...“ mátti heyra einn strákinn segja og þegar landsliðshóp- urinn kom út úr flughöfninni streymdu að betlarar. Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar frá Indlandi ÞAÐ voru slæptir leikmenn íslenska landsliðsins sem komu til Indlands í gærmorgun, eftir erfiða og þreyt- andi ferð frá Íslandi, sem hófst á sunnudagsmorguninn. Landsliðs- hópurinn komst ekki á áfangastað, Cochin, eins og vonast var eftir held- ur var gist á hóteli við flugvöllinn í Bombay. Þegar landsliðshópurinn kom inn á hótelið um klukkan tvö fyrirskipaði Atli Eðvaldsson lands- liðsþjálfari leikmönnum sínum að fara upp á herbergi sín og leggjast til hvíldar. „Þið verðið ræstir klukk- an fimmtán mínútur yfir fimm. Þá fundum við og fáum okkur göngu- ferð fyrir matinn. Ykkur verður síð- an gefnar svefntöflur klukkan ell- efu, sem er hálf sex að íslenskum tíma. Við hittumst síðan hressir og kátir í fyrramáli þegar haldið verð- ur af stað á áfangastað,“ sagði Atli. Eins og fyrr segir lagði landsliðs- hópurinn af stað frá Íslandi á sunnu- dagsmorguninn. Flogið var til Frankfurt klukkan 7.35 og lent í Þýskalandi á hádegi. Frá Frankfurt var haldið til Dubai í Sameinuðu ar- abísku furstadæmunum kl. 14.25. Flogið var yfir Austurríki, Ung- verjaland, Rúmeníu, Búlgaríu, Tyrkland, Kýpur, Líbanon, Sýrland, Jórdaníu, Sádi-Arabíu á gömlu Sátt- arströndina og Sameinuðu arabísku furstadæmin. Komið var til Dubai kl. 23.45 að staðartíma, en tímamismunur eru fjórir tímar á Íslandi. Upphaflega átti að halda frá Dubai klukkan fjög- ur um nóttina til Bombay, en það var ekki lagt af stað fyrr en klukkan átta um morguninn og flogið til Bombay – yfir Óman-flóann og Ar- abíska hafið. Lent var í Bombey klukkan 12.15, eða stundarfjórðungi fyrir sjö að morgni að íslenskum tíma, en tímamismunur á Indlandi og Íslandi er fimm og hálfur tími. Atli sendi strák- ana strax í koju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.