Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 5

Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 5
FIMLEIKAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 B 5 eins bogalistin á mínu uppáhalds- áhaldi þegar mest á reyndi.“ Rúnar segir að sér hafi liðið illa dagana eftir keppnina í Sydney og hann hafi mik- ið velt fyrir sér hvers vegna allt gekk á afturfótunum. „Ég skildi ekki þá og skil ekki enn hvers vegna ég féll tvisvar sinnum af hestinum.“ Missti sjálfstraustið Eftir leikana segist Rúnar hafa misst sjálfstraustið um tíma og átt í verulegum erfiðleikum með að ein- beita sér í keppni og verið óstyrkur. Hann hafi hins vegar ekki látið hug- fallast heldur unnið sig út úr vand- ræðunum. Nú vonast hann til þess að hafa endurheimt fyrri sálarstyrk og tekist að ýta frá sér að komast ekki í gegnum æfingarnar án þess að falla af hestinum, en sl. mánuðir hafi verið afar erfiðir við að öðlast sjálfstraust á nýjan leik. Bestu árin framundan Rúnar er 23 ára gamall og á kjör- aldri sem fimleikamaður, en þeir ná yfirleitt hvað bestum árangri á aldr- inum 23 til 28 ára. Hann segir því ekkert til fyrirstöðu að næstu fjögur ár, fram yfir Ólympíuleikana í Aþenu, geti verið sín bestu ár. „Ald- urinn ætti ekki að vera mér fjötur um fót á Ólympíuleikunum í Aþenu árið 2004. Þrítugir fimleikamenn eru jafnvel í fremstu röð, þannig að í Sydney klúðraði ég ekki mínum eina möguleika á að vera á meðal þeirra bestu á Ólympíuleikum. Árangur fimleikamanns ræðst meira af hvernig hann er á sig kom- inn en aldrinum. Ég er enn að bæta við mig og lít því bjartsýnum augum fram á næstu ár.“ Elti þjálfarann til Svíþjóðar Rúnar hefur búið í Alvsbyn í N- Svíþjóð undanfarið hálft þriðja ár, en bærinn er 900 km norður af Stokk- hólmi. Þangað flutti hann til þess að geta notið áfram leiðsagnar Mati Kirmes, þjálfara síns til margra ára. Kirmes flutti til Svíþjóðar fyrir rúm- um þremur árum eftir að hafa búið á Íslandi og þjálfað hjá Gerplu um nokkurra ára skeið. Fyrst eftir að Kirmes flutti utan naut Rúnar leið- sagnar hjá hvít-rússneskum þjálfara sem tók við starfi Kirmes hjá Gerplu. Rúnari líkaði lítt við eftirmann Kirmes og ákvað að elta Kirmes til Svíþjóðar. „Öll aðstaða til fimleika er afar góð í Alvsbyn, fullkomið fimleikahús. Þar get ég æft mikið og vel og tekið fram- förum.“ Ef þú hefðir ekki elt Kirmes til Svíþjóðar, værir þú ennþá á Ís- landi? „Alveg örugglega, en ég væri ekki eins góður fimleikamaður og ég er nú. Það er erfitt að æfa fimleika á Íslandi ef menn ætla sér að vera á meðal þeirra bestu í heiminum. Að- staðan er því miður ekki nógu góð. Einnig tel ég að Kirmes sé rétti þjálfarinn fyrir mig. Við þekkjumst vel og ég treysti honum algjörlega til þess að gera mig enn betri.“ Fæðing sonarins Í Svíþjóð kynntist Rúnar sænskri stúlku, Helenu Gäls, en hún er ári yngri en Rúnar. Þau hafa nú stofnað heimili og á meðan Rúnar var í Sydn- ey, nánar tiltekið 24. september, eignuðust þau son sem nú hefur ver- ið skírður Victor. „Helena er ekki í fimleikum, hún er bara ósköp venju- leg stúlka,“ segir Rúnar um sína heittelskuðu. Rúnar telur ekki að væntanleg fæðing sonarins hafi truflað einbeit- ingu sína á Ólympíuleikunum. „Fyrir keppnina hugsaði ég ekki mikið heim, en strax að henni lokinni lang- aði mig að yfirgefa Sydney og kom- ast til Helenu sem átti von á sér þá og þegar. Ég komst hins vegar ekki heim fyrr en tveimur dögum eftir að drengurinn kom í heiminn.“ Með bros á vör viðurkennir Rúnar að þau hjónaleysin hefðu mátt velja sér ann- an tíma til að eignast barn en á miðjum Ólympíuleikum. „Tímasetn- ingin hefði getað verið betri, en svona var þetta nú,“ segir Rúnar og loks brosir þessi alvarlegi ungi mað- ur og bætir við að hann sé afar ham- ingjusamur og ánægður með kær- ustuna og drenginn sem sé afar hraustur. Harður heimur Rúnar byrjaði að æfa fimleika 5 ára. Þá var Eistland hluti af Sovét- ríkjunum. Faðir hans fór með hann á æfingu hjá fimleikafélagi í Tallinn eftir að hafa séð auglýsingu í dag- blaði. „Það var mjög stutt frá heimili mínu á æfingar. Ég var afar heppinn að komast að því að það þurfti að þreyta inntökupróf. Ég stóðst það og gat þar með mætt á æfingar.“ Þá tók við afar harður og grimmur fimleika- skóli að rússneskri fyrirmynd þar sem ekkert var gefið eftir. „Úff, já,“ segir Rúnar. „Þetta var á tíðum alveg ólýsanlega erfitt. Það var gríðarlega mikið lagt á börn til þess að ná árangri, því án hans voru styrkir ríkisins minni til fimleika- félagsins. Fyrstu eitt til tvö árin voru róleg með leikjum, en síðan fóru kröfurnar að aukast. Þjálfararnir lögðu meira og meira á þá sem æfðu. Af þessu leiddi að það voru gerðar gríðarlegar kröfur til okkar, bæði á æfingum og í keppni. Mikil áhersla var lögð á kraftþjálfun, án hennar næst enginn árangur. Við krakkarn- ir fengum svo sannarlega að ganga í gegnum erfiða tíma með blóði, svita og tárum.“ Þjálfararnir voru afar grimmir við æfingarnar, jafnvel þótt þeir væru með börn í höndunum? „Já, þeir voru svo sannarlega ekkert að gefa eftir þótt þeir væru að þjálfa börn. Ef maður slakaði eitthvað á þá komu þjálfararnir heim og töluðu við foreldrarna. Fengu þá í lið með sér við að halda börnunum við efnið.“ Þetta hefur því verið mjög erfitt? „Þetta voru svo sannarlega erfiðir tímar og mig langaði margoft til þess að hætta, en ekkert varð úr því. Þjálfarinn kom þá í heimsókn, talaði við mann og foreldrana. Daginn eftir var maður mættur á æfingu.“ Mynd- ir þú láta son þinn ganga í gegnum sama skóla og þú gekkst í gegnum sem barn ef hann langar til þess að æfa fimleika? „Aldrei,“ segir Rúnar af miklum þunga. „Ekki undir nokkrum kringumstæðum myndi ég vilja leggja það á son minn sem ég gekk í gegnum sem barn og ungling- ur í fimleikum. Aldrei. Það var ein- faldlega alltof erfitt. Og í raun vil ég ekki óska neinum að kynnast þeirri hörku sem ég kynntist. Á hitt ber þó að líta að nú eru aðrir tímar og langi hann að æfa fimleika þegar fram líða stundir eru æfingar og hugsunarháttur í kringum þær með allt öðru sniði en nú er,“ segir Rúnar. Hertar kröfur Eftir að heim var komið frá Ól- ympíuleikunum tók Rúnar upp þráð- inn á nýjan leik við æfingar. „Ég tók ekkert frí, heldur hellti mér út í æf- ingar, enda veitti ekki af að ná sjálfs- trausti á nýjan leik. Auk þess er ver- ið að breyta reglunum í fimleikunum og ég verð að kynnast þeim til þess að vera gjaldgengur á næstu mótum. Það þýðir ekkert að slá slöku við.“ Rúnar segir reglubreytingarnar vera allnokkrar en áhorfendur verði ekki mikið varir við þær. Eftir hverja Ólympíuleika er reglum breytt og kröfurnar hertar þannig að það þarf að gera erfiðari æfingar en áður til þess að fá góðar einkunnir. Nú æfir Rúnar fimm tíma á dag, sex daga vikunnar. „Ég tek alltaf frí frá æf- ingum á laugardögum. Mestur tíminn á hverri æfingu fer í æfingar á áhöldum og síðan eru allt- af einhverjar lyftingaæfingar með. Megináherslan er hins vegar á tæknilegu hliðina og þá er um að gera að æfa sem mest á áhöldum og geta lokið æfingum óhappalaust.“ Lífið að ferlinum loknum Rúnar viðurkennir að fimleikar gefi ekki mikið í aðra hönd, verð- launafé sé lítið sem ekkert á mótum, en hann hafi notið styrkja frá Af- rekssjóði ÍSÍ og Gerplu svo einhverj- ir séu nefndir. Hann hafi sniðið sér stakk eftir vexti og ætli sér að halda áfram að æfa eins vel og kostur er á. „Mig langar að stunda fimleika, ef ekki þá verð ég að stunda vinnu og þá er úti um fimleikaiðkun mína, það er á hreinu.“ Rúnar hefur ekkert verið í skóla síðan skyldunámi lauk og enn sem komið er hefur hann ekki í hyggju að setjast á skólabekk. „Það fer ekki vel saman að vera í námi og æfa og keppa eins mikið og ég geri.“ Það er líf eftir fimleikana, ekki satt? „Rétt er það og áður en ferlinum lýk- ur verð ég að leiða hugann að fram- tíðinni og afla mér einhverrar menntunar, það er alveg ljóst.“ Langar ekki að verða Svíi Heyrst hefur af því að sænska fim- leikasambandið hafi sýnt Rúnari áhuga og viljað greiða götu hans fjárhagslega gerist hann sænskur ríkisborgari og keppi fyrir Svíþjóð. Rúnar vill lítið gera úr því, segist hafa heyrt af áhuga Svía, en hann sé ekki lengur fyrir hendi. „Þeir höfðu áhuga á mér fyrir Ólympíuleikana í Svíþjóð, en ég veit ekki hversu mikil alvara var á ferðum, að minnsta kosti var aldrei haft beint samband við mig.“ Rúnar segist ekki hafa mikinn áhuga á að keppa fyrir Svía, auk þess sem hann telji að þeir hafi ekki úr miklum peningum að spila. „Mig langar ekki að verða Svíi og keppa fyrir hönd Svíþjóðar. Ég er Íslendingur og hef ekki í hyggju að breyta því.“ Framtíðardraumar Rúnars eru ekki skýrir, að minnsta kosti vill hann sem minnst segja um þá. Kemur til greina að þjálfa? „Ef til vill einhverntímann í framtíðinni, en það er ekki auðvelt að vera fimleika- þjálfari á Íslandi og ég sé mig ein- hvernveginn ekki í því hlutverki.“ Er ekki á leiðinni heim Getur svo farið að þú flytjir ekki til Íslands þegar ferlinum lýkur? „Ég reikna alveg eins með því að búa á Ís- landi þegar fram líða stundir. Þótt konan mín sé sænsk er það ekkert sem koma á í veg fyrir að við flytjum einn góðan veðurdag til Íslands. En eins og mál standa nú er ég ekki á leiðinni heim. Aðstaðan til æfinga er einfaldlega betri þar sem ég bý núna. Ég hef hins vegar ekki útilokað Ís- land um aldur og ævi, langt í frá. Um framtíðina er hins vegar aldrei hægt að spá.“ HM í fimleikum framundan Stærsta mótið hjá Rúnari á þessu ári er þátttaka í heimsmeistara- mótinu sem fram fer í Gent í Belgíu í lok október og byrjun nóvember, auk keppni á sex eða sjö heimsbik- armótum, að ógleymdu Íslands- mótinu í apríl. „Ég er staðráðinn í að gera mitt besta og sýna að ég er betri á boga- hestinum en sýndi sig á Ólympíuleik- unum. Ég er einn af átta bestu fim- leikamönnum heims á bogahesti og ég vil sanna það á HM.“ Af hverju er bogahesturinn þér svo kær? „Hæfi- leikar mínir sem fimleikamanns henta vel til æfinga á bogahesti. Ég er t.d. ekki góður í stökkum eða gólf- æfingum, eins og kunningi minn, Igor Vikhrov frá Lettlandi, ólymp- íumeistari í gólfæfingum. Hann get- ur ekkert á bogahesti. Ég hef alltaf verið góður á bogahesti, hef haft góða tilfinningu fyrir áhaldinu. Það þarf að gera sömu æfingarnar aftur og aftur og fínstilla þannig alla tækni.“ Hvað þarf til þess að ná ár- angri á bogahesti? „Fyrst og fremst að hafa góða tækni, hafa tilfinningu fyrir henni,“ segir Rúnar sem neitar því að það sé erfitt að vera góður á bogahesti.“ Þannig að hinar erfiðu grunntækniæfingar sem þú gekkst í gegnum sem barn og unglingur eru grunnur að bogahestinum? „Já, rétt er það. Hinn harði skóli sem ég var í sem barn og unglingur veitti mér ákveðinn grunn sem ég lifi á í dag.“ Rúnar setur kalk á tvíslána fyrir æfingarnar í Sydney. Þetta var á tíðum alveg ólýsanlega erfitt. Það var gríðarlega mikið lagt á börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.