Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 6

Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 6
HANDKNATTLEIKUR 6 B ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Guðfinnur Kristmannsson, Eyja-peyi og nýliði í liðinu, kom inn í vörnina um miðjan fyrri hálfleik og stóð í ströngu allt til leiksloka. „Við náð- um að rífa okkur upp og sýna betri leik heldur en í gær. Við vissum það náttúrlega að sóknar- leikurinn yrði ryðgaður. Liðið er að hittast aftur en þetta er allt að koma, þetta small núna. Vonandi heldur það áfram. Við þurfum að spila bet- ur, þetta er bara fyrsti áfangi.“ Stígandi í leiknum Björgvin Þór Björgvinsson, Framari og fyrrverandi leikmaður KA, var vinsæll meðal áhorfenda og tók við heillaóskum og áritaði blaða- snepla lengi eftir leikinn. Hann átti mjög góðan leik og fann sig greini- lega vel á fornum slóðum. „Það er alltaf mjög gaman að spila hérna í KA-heimilinu, sérstaklega þegar maður er á heimavelli. Það var frá- bært að vinna þennan leik. Frakk- arnir eru með afbragðslið en við er- um í rauninni á byrjunarreit þannig að þetta var mjög jákvætt. Vonandi náum við svo að vinna þá aftur á þriðjudaginn. Það er stígandi í lið- inu, á því leikur enginn vafi.“ Naut þess að spila Róbert Julian Duranona var þó vinsælastur allra en hann náði þó ekki að skora en fiskaði þrjú víti. Hann fór meiddur af velli snemma í síðari hálfleik en var glaðbeittur í leikslok eins og ávallt: „Það er mjög gaman að vera kominn aftur til Ak- ureyrar. Hér á ég marga vini og ég naut þess svo sannarlega þegar ég spilaði hér. Ég er mjög ánægður með að hafa lagt Frakkana sem eru með eitt sterkasta landslið heims. Við spiluðum illa í fyrsta leiknum en baráttan var mun meiri í kvöld. Þetta var toppurinn.“ ÞORBJÖRN Jensson var ánægður en ótrúlega rólegur í leikslok. Aðspurður hvort KA-heimilið væri besta húsið til að spila í svaraði hann: „Það er alveg greinilegt því að við unnum allavega Frakkana. Undirbúningurinn fyrir HM heldur áfram og auðvitað er alltaf kærkomið að vinna. Við lögðum náttúrlega áherslu á sigur eins og reyndar alltaf. Þetta tókst ágætlega en við hefðum ekki þurft að hafa þetta svona naumt í restina en það ein- hvern veginn þróaðist þann- ig. Ég er mjög ánægður með það að við skyldum þó skora úrslitamarkið á síðustu sek- úndunni.“ Um það hvort hann hefði verið að fara á taugum sagði hann einfald- lega: „Nei, nei, það þarf meira til en þetta.“ Frakkar skoruðu tvö fyrstu mörk-in í leiknum en Patrekur Jó- hannesson minnkaði muninn eftir 4,26 mínútur. Þá kom afleitur kafli hjá Íslandi. Patrek- ur var með allt á hornum sér og lét reka sig út af í sókn. Frakkar komust í 5:1 eftir 7,20 mín. og ekkert gekk hjá Íslandi. Róbert Duranona skaut í stöng úr vítaskoti, Róbert Sighvats- son náði frákastinu en Gaudin varði frá honum af línunni. Skömmu síðar skaut Einar Örn Jónsson í þverslá úr hraðaupphlaupi. Eftir 13 mínútna leik skoraði Ólafur Stefánsson loks annað mark Íslands. Gaudin varði frá honum vítaskot en Ólafur fékk boltann aftur og skoraði af línunni. Leikurinn jafnaðist nokkuð, stað- an var 4:6 um miðjan hálfleikinn en Aron Kristjánsson og Björgvin Björgvinsson fuku út af á 17. og 19. mínútu og munurinn varð aftur fjög- ur mörk, 5:9. Íslendingar hertu sig seinni hluta hálfleiksins og jöfnuðu í 10:10 en staðan í leikhéi var 11:12. Birkir Ívar Guðmundsson stóð í markinu í fyrri hálfleik og varði 5 skot. Björgvin var í vinstra horninu, Duranona kom inn á eftir að Patrek- ur var rekinn af velli á 7. mín. og lék áfram út hálfleikinn sem skytta vinstra megin og einnig í vörn, Dag- ur var leikstjórnandi, Ólafur hægra megin, Einar Örn í hægra horninu og Róbert á línunni. Sóknin gekk vel á hægri væng hjá Ólafi og Einari sem skoruðu 7 af 11 mörkum liðsins, Dagur var lítið ógnandi, Duranona slakur, Björgvin stóð fyrir sínu en Róbert fékk lítið af sendingum inn á línuna. Vörnin var 5-1 og voru nokkrar tilfæringar í henni. Dagur, Róbert og Aron fengu allir að spreyta sig í „indíánahlutverkinu“ og Guðfinnur Kristmannsson kom nokkuð við sögu í vörninni. Í seinni hálfleik fóru hlutirnir að ganga betur hjá Íslendingum. Guð- mundur Hrafnkelsson varði mjög vel, sérstaklega í seinni hlutanum. Sóknin varð beittari eftir að Patrek- ur leysti Duranona af, Ólafur sýndi hvað í honum býr og þá small vörnin saman á köflum. Aron og Róbert skiptu með sér indíánahlutverkinu. Þetta gerði það að verkum, samhliða tilraunastarfsemi Frakka, að Íslend- ingar komust yfir í 16:14 og síðan 18:15 á 11. mín. seinni hálfleiks. Frakkar jöfnuðu í 19:19 en Íslend- ingar virtust í góðum málum í stöð- unni 22:20 með Ólaf á vítalínunni og aðeins 5 mínútur eftir. En vopnin snerust í höndum Íslendinga, víta- skotið var varið, Guðfinnur rekinn út af skömmu síðar og Frakkar skor- uðu 3 mörk í röð og breyttu stöðunni í 22:23 eftir 28,30 mín. Nú voru góð ráð dýr. Hinn yfirvegaði nýliði Einar Örn jafnaði þegar mínúta var eftir, Frakkar misstu boltann í næstu sókn og eftir æsilegar lokasekúndur klíndi Dagur knettinum upp í skeyt- in á síðustu sekúndunni. Ólafur Stefánsson lék mjög vel í þessum leik og var allt annað að sjá til hans en á laugardaginn. Hann skoraði 7 mörk, átti fjölda stoðsend- inga, allmörg sláarskot og fiskaði víti. Einar Örn var góður og gerði 4 mörk og þótt nýtingin væri ekki 100% eins og í fyrsta leiknum var hún eðlileg og hann virðist ætla að tryggja sér þessa stöðu. Guðmundur varði oft stórvel í seinni hálfleik, Birkir þokkalega í þeim fyrri. Björg- vin stóð sig vel í vörn og sókn. Ró- bert var sterkur í seinni hálfleik. Hann og Aron voru báðir duglegir í vörninni. Guðfinnur var sterkur í varnarleiknum. Patrekur var sterk- ur en stundum bráður, bæði í skapi og skotum. Dagur hresstist er á leið. Duranona komst ekki vel frá leikn- um. Valgarð Thoroddsen, Guðjón Valur Sigurðsson, Heiðmar Felixson og Róbert Gunnarsson komu ekki við sögu. Það má mikið vera ef línur hafa ekki skýrst nokkuð í sambandi við byrjunarlið Íslands eftir þennan leik. Frakkar leyfðu nánast öllum leik- mönnum að spreyta sig. Markverð- irnir stóðu sig bærilega og 10 leik- menn skiptu mörkunum með sér. Leikur liðsins byggist mikið á stór- skyttunum enda skoruðu Frakkar 11 mörk utan af velli. Jéróme Fern- andez og Joél Abati voru marka- hæstir með 4 mörk hvor. Batamerki á íslenska liðinu ÍSLENSKA handknattleiks- landsliðið vann fyrrverandi heimsmeistara Frakka í öðrum vináttulandsleik liðanna í KA- heimilinu á Akureyri síðastlið- inn sunnudag. Lokatölur urðu 24:23 og skoraði Dagur Sig- urðsson sigurmarkið sekúndu fyrir leikslok. Íslendingar byrj- uðu afleitlega en sóttu í sig veðrið er á leið, dyggilega studdir af áhorfendum sem troðfylltu KA-heimilið alveg upp í rjáfur. Fullyrða má að lætin í húsinu hafi slegið Frakkana út af laginu og blásið strákunum okkar baráttuanda í brjóst en vissulega mátti sjá mörg bata- merki á leik liðsins. Stefán Þór Sæmundsson skrifar Morgunblaðið/Kristján Einar Örn Jónsson skorar eitt af fjórum mörkum gegn Frökkum á Akureyri. Einar Örn lék vel í báðum leikjunum um helgina. Alltaf kær- komið að vinna Einar Sigtryggsson skrifar Þetta er fyrsti áfangi                       !! !  " #"$           

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.